Morgunblaðið - 13.03.2004, Page 36
www.svipmyndir.is
FERMINGAR-
MYNDIR
SVIP
MYNDIR
PORTRAIT
STUDIO
Hverfisgötu 50
sími 552 2690
Fermingarúr
frá Storm, Diesel, Fossil og DKNY
Óskar Gíslason
Laugavegi 55, sími 551 8611.
VORIÐ 1954 sendu prestar Ak-
ureyrarkirkju frá sér stutta tilkynn-
ingu þar sem þeir gerðu grein fyrir
því að taka ætti upp sérstaka bún-
inga fyrir fermingarbörnin það vorið.
Séra Friðrik J. Rafnar, þá sókn-
arprestur á Akureyri, sem sjálfur
hafði þegar árið 1906 séð slíka
búninga notaða í Edinborg sagði
markmiðið með notkun á ferming-
arkyrtlum vera þríþætt, – að gera
ferminguna hátíðlegri, að koma í
veg fyrir mismunun ferming-
arbarnanna hvað fermingarklæði
snerti og að draga úr kostnaði for-
eldra við fermingu barna sinna.
Markmiðið var einnig að forðast að
fermingarathöfnin yrði nokkurs kon-
ar tískusýning.
Séra Jón M. Guðjónsson
bar fram hugmyndina um kyrtlana
Aðdragandi þessarar ákvörðunar var þó
nokkur. Fyrstur til að bera þessa hugmynd
upp hér á landi var séra Jón M. Guð-
jónsson, þá sóknarprestur á Akranesi. En
hugmyndin kom líklega hingað frá Noregi. Í
febrúarhefti Æskulýðsblaðsins sem gefið
var út af Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju var
vitnað í frásögu norska tímaritsins „Alle
Kvinner blad“, þess efnis að Dómkirkjan í
Ósló hefði verið fyrst til þess að nota ferm-
ingarkyrtla og að Sandvíkurkirkja í Bergen
hefði fylgt í kjölfarið. Nú færi þessi siður
eins og eldur í sinu um allan Noreg og
reikna mætti með að fljótlega myndu allar
kirkjur í Noregi taka upp fermingarkyrtla.
Í janúarhefti Æskulýðsblaðsins þetta ár
skrifaði séra Pétur Sigurgeirsson, einnig
sóknarprestur í Akureyrarprestakalli: Líkur
benda til að fermingarkyrtlarnir verði saum-
aðir fyrir næstu fermingu. Kvenfélag Ak-
ureyrarkirkju mun beita sér fyrir því, að það
verði gert. Ætlar félagið að gefa kirkjunni
kyrtlana ... Er hér um algjöra nýbreytni að
ræða á Íslandi.
Þetta vor fermdust fyrstu íslensku börnin
í fermingarkyrtlum í Akureyrarkirkju og í Lög-
mannshlíðarkirkju, en konur í kvenfélaginu
Baldursbrá í Glerárþorpi höfðu þegar í nóv-
ember 1953 tekið málið upp á félagsfundi
og rætt nauðsyn þess að sauma kyrtlana.
Efnið í kyrtlana var pantað „að utan“, að
frumkvæði Kvenfélags Akureyrarkirkju.
(Byggt á samantekt Péturs Björgvins Þor-
steinssonar á vef Háteigskirkju.)
Saga fermingar-
kyrtlanna
Morgunblaðið/RAX