Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 46
Marengsréttur sem þykir afar bragðgóð-
ur og fallegur á borði.
MJÖG algengt er að fólk kaupi að veislu-
þjónustu. Ýmist pantar það sali á hótelum,
t.d. á Hótel Borg eða Hótel Loftleiðum og
fær þá „allan pakkann“, salinn, allan mat
og þjónustu á staðnum.
Aðrir finna heppilega sali og kaupa svo
veisluborðið af aðilum sem selja slíka þjón-
ustu úti í bæ.
Cafe Adesso er nýtt á þessum markaði.
Það var stofnað í apríl árið 2002 í Smára-
lind en nú býður fyrirtækið upp á veisluborð
sem hægt er að fá ýmist í sali eða heima-
hús, eða þá hluta af veisluborðinu, svo sem
tertur eða brauðrétti.
„Ef tertu- og brauðveisla er haldin í sal,
aðkeypt að fullu, með þjónustu má gera ráð
fyrir um 1.750 kr. á mann.
Ef við miðum við veisluföng eingöngu,
t.d. fyrir hundrað manns, þá kosta veiting-
arnar 1.550 kr. á mann. Verðið lækkar í
1.300 krónur á mann ef kransakaka er ekki
með á borðinu,“ segir Guðlaug Pálsdóttir
sem rekur Cafe Adesso ásamt eiginmanni
sínum Kristjáni Sveinssyni og Eggert Jóns-
syni bakara sem er menntaður í konditori-
um í Danmörku og hefur langa reynslu í sínu
fagi.
Eggert sér að sögn Guðlaugar um allan
bakstur á Cafe Adesso.
Hægt er að koma og
smakka á veisluföngunum
„Hægt er að velja á milli tertna á borð við
kókós-passion, fruit-tertu, ostatertu, mars-
ipantertu, kransaköku, súkkulaði-
hindberjatertu, kókos-súkkulaði-dessert,
súkkulaðitertu fyrir börn og fleira. Fólk getur
komið hingað í Cafe Adesso og skoðað og
smakkað á tertunum sem við bjóðum upp á
til þess að vera með á hreinu hvort því líki
bragð þeirra og útlit,“ segir Guðlaug.
„Við bjóðum einnig upp á brauðtertur og
rúllutertubrauð í veisluna, einnig erum við
með gott úrval af dönsku smurbrauði,
ítalskar snittur, heita brauðrétti og fleira
það sem fólk þarf til að gera góða veislu
enn betri. Þess ber að geta að hjá okkur
starfar smurbrauðsdaman María Svan-
dís Guðnadóttir, sem lærði sitt fag í
Noregi.
Það er að verða æ algeng-
ara að fólki velji ákveðið
„þema“ í skreytingum á
veisluborð og jafn-
vel vilja ferming-
arbörnin tengja
fermingartert-
una við áhugamál sín, t.d.
fótbolta eða skauta, við skreyttum m.a.
tertu um daginn fyrir dreng sem er í íshokkí
og fundum leið til að láta það áhugamál
koma fram á fermingartertunni hans. Við
leggjum okkur fram um að koma til móts við
slíkar óskir og gera það sem í okkar valdi
stendur til að hafa veisluborð í fermingum
og fleiri veislum vegleg og falleg.“
Veisluborð í sali
eða heimahús
Veisluborð frá Cafe Adesso. Eggert Jóns-
son bakari stendur við borðið sem er
skreytt með blómum frá Garðheimum.
Tertur af ýmsu tagi eru sérgrein Eggerts Jónssonar bakara hjá Cafe Adesso. Kransakökuhorn eru afar glæsileg.
Fermingartertur í bók-
arlíki eru mjög vinsælar.
Snickersterta
Möndlubotnar
350 g eggjahvítur
125 g sykur
75 g hveiti
200 g möndlur/heslihnetur
250 g flórsykur
Þeytið eggjahvítur og 125 g sykur.
Hakkið möndlurnar fínt og sigtið flór-
sykurinn og hveitið, blandið þurrefn-
unum saman við og blandið varlega út í
þeyttu eggjahvíturnar með sleif. Skiptið
deiginu á tvær bökunarplötur og bakið
við 180–190°C í 7–10 mín. (ljósbrúnir).
Snickers-frómas
2 egg
100 g sykur
2 pelar rjómi
½ dl sterkt kaffi
6 blöð matarlím
100 g salthnetur
Matarlímsblöðin sett í kalt vatn, létt-
þeytið rjómann.
Þeytið egg og sykur, bræðið mat-
arlímsblöðin í heitu kaffinu og kælið áð-
ur en sett er út í rjómann og hellið í
mjórri bunu í eggjaþeytinguna og bland-
ið varlega út í ásamt salthnetunum.
Stingið út 3 möndlubotna með 22-24
cm hring, smyrjið smávegis karamellu-
kremi á botnana og setjið frómasinn á
milli botnana og frystið.
Búið til mjólkursúkkulaðihjúp: sjóðið
100 g rjóma og hellið yfir 170 g mjólk-
ursúkkulaði og hrærið og hellið yfir kök-
una og skreytið með salthnetum.
Kransakökuhorn
1 kg kransamassi
500 g sykur
3–4 eggjahvítur (80 g)
Setjið sykur og eggjahvítur í heitt
vatnsbað. Þegar blandan er orðin vel
volg þá blandið henni saman við
massann og hrærið í stutta stund í
hrærivél. Gott er að láta deigið standa í
sólarhring í kæli.
Vigtið 1 kg af deiginu og rúllið í 80
cm langa lengju, skiptið lengjunni þann-
ig:
mælið með reglustiku ½ cm, 1 cm,
1,5 cm, 2 cm, 2,5 cm, 3 cm, 3,5 cm, 4
cm, 4,5 cm, 5 cm, 5,5 cm og svo með
1 cm á milli, 6,5 cm, 7,5 cm o.s.frv.
eða þangað til lengjan er búin, mótið þá
hringina. Restin af deiginu, 500 g, fer í
litla kransabita.
Bakið við 190°C í ca 7–12 mín. eða
þangað til hringirnir eru ljósbrúnir, kæl-
ið og sprautið með eggjahvítuglassúr (3
eggjahvítur og sigtaður flórsykur) festið
hringina með súkkulaði.
Heitur brauðréttur
14 franskbrauðssneiðar
1 camembert-ostur
4 dl rjómi
12 skinkusneiðar
2 rauðar paprikur
1 lítil dós sveppir
1 poki rifinn mozzarella-ostur
1. Bakarofninn hitaður í 185°C
2. Skorpan skorin af brauðinu, raðað í
botninn á eldföstu móti.
3. Camembert-osturinn brytjaður niður
setttur í pott og hitaður á litlum
straum, rjóminn settur út í.
4. Skinkan og paprikan brytjuð smátt.
5. Skinkunni, paprikunni og svepp-
unum dreift yfir brauðið. Safinn af
sveppunum notaður ef þurfa þykir.
6. Ostablöndunni hellt yfir allt.
7. Mozzarella-ostinum dreift yfir.
8. Hitað í ofni í ca 20 mín.
Uppskriftin er fyrir ca 10 manns.