Morgunblaðið - 27.03.2004, Síða 1

Morgunblaðið - 27.03.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 86. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Betri heilsa og bætt líf Aðventistar standa að fræðslu um heilbrigt líf og mataræði | Daglegt líf Lesbók og Börn í dag Lesbók | Alþjóðlegur hópur listamanna leikur laus- um hala á síðum Lesbókar Börn | Líf og fjör á skíð- um Maóríarnir á Nýja-Sjálandi  Myndasögurnar BORGARRÁÐ í Santa Fe í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum hefur nú til umfjöllunar tillögu að reglu- gerð þess efnis að kettir, hundar og önnur gæludýr skuli nota ör- yggisbelti þegar farið er með þau í bíl. Gæludýrabúðir í borginni hafa nú þegar á boðstólum útbúnað til að festa dýr í bílum. Versl- unarstjórar segja söluna hafa ver- ið heldur dræma, en reglugerðin gæti breytt því. Verðið er tæpar 2.000 krónur. Reglur sem þessar eru þegar í gildi í ýmsum banda- rískum bæjum og borgum, sam- kvæmt upplýsingum dýravernd- unarsamtaka. Markmiðið með reglugerðinni er ekki einungis að vernda dýrin, heldur einnig að koma í veg fyrir að þau – þá einkum hundar – stökkvi út úr bílum og á nær- stadda vegfarendur. Spenntu beltið, Brandur Reuters Santa Fe. AP. BELGÍSKAR F-16 herþotur munu nú eftir helgina hefja eftirlitsflug yf- ir Eystrasaltsríkjunum Eistlandi, Lettlandi og Litháen, í umboði Atl- antshafsbandalagsins, NATO. Greindi lettneski varnarmálaráð- herrann Atis Slakteris frá þessu á fimmtudag og staðfesti þar með áætlanir NATO sem farið hafa fyrir brjóstið á rússneskum ráðamönnum. Slakteris sagði að eftirlitsflugið yrði fyrst um sinn í höndum belgíska flughersins. Upprunalega hafði verið búizt við því að þotur danska flug- hersins myndu gegna þessu hlut- verki fyrstar. Samningar um aðild Eystrasaltsríkjanna að NATO ganga í gildi á föstudaginn. „Það hefur sannarlega táknræna þýðingu að belgískar þotur sinni eft- irliti í lofthelgi Lettlands, þar sem Belgía er lítið NATO-ríki, rétt eins og Lettland,“ sagði Slakteris. Belg- ísku herþoturnar verði með bæki- stöðvar í Siauliai, sunnan við lettn- esku landamærin í norðurhluta Litháens. Fjórar þotur muni sinna eftirlitsfluginu. Rússnesk stjórnvöld eru ósátt við þá ákvörðun NATO að hafa herþotur á sínum vegum að störfum í Eystra- saltslöndunum. Nú er rétt rúmur áratugur liðinn síðan sovézki herinn yfirgaf Eystrasaltslöndin í kjölfar þess að þau endurheimtu sjálfstæði sitt eftir hálfrar aldar nauðungarað- ild að Sovétríkjunum. Rússar hafa árum saman beitt sér gegn því að ríkin fái aðild að NATO, en hafa ekki haft árangur sem erfiði. Sergei Ívanov varnarmálaráðherra sagði á fimmtudag að sem svar við athöfnum NATO í Eystrasaltslönd- unum kynni hann að fyrirskipa frek- ari uppbyggingu kjarnorkuvopna- herafla Rússlands. Ráðamenn í Moskvu óttast að í skjóli eftirlitsflugs NATO verði stundaðar njósnir um hernaðarvið- búnað Rússa. Belgar senda fjórar F-16 Riga, Brussel. AFP, AP. NATO gætir lofthelgi Eystrasaltsríkja „Slæmt fordæmi“ á Spáni Moskvu. Madríd. AFP. VLADÍMÍR Pútín Rússlands- forseti sagði í gær að úrslitin í þingkosningunum á Spáni fyrr í mánuðinum sköpuðu „slæmt fordæmi“. Sósíalistar sigruðu óvænt í kosningunum, þremur dögum eftir hryðjuverk í Madr- íd, sem kostuðu 190 manns lífið. „Að stjórnarskipti í stóru evrópsku ríki skuli rakin til al- þjóðlegra hryðjuverkamanna skapar mjög slæmt fordæmi,“ sagði Pútín. Hætta væri á að þetta styrkti alþjóðlega hryðju- verkamenn. Það væri „með öllu óþolandi“ að hryðjuverkamenn hefðu „kúgað heilt samfélag“. José Luis Rodríguez Zapa- tero, verðandi forsætisráð- herra Spánar, sagði í gær „ósið- legt“ að saka Spánverja um að hafa látið undan hryðjuverka- ógninni í kosningunum. MÚSÍKTILRAUNUM, hljómsveitakeppni Tónabæjar og Hins hússins, lauk í gærkvöldi með sigri reykvísku hljómsveitarinnar Mammút, sem skipuð er stelpum að meirihluta, með söngkonuna Katrínu Mogensen í broddi fylkingar. Katrína var einnig valin besta söngkona keppninnar og Mammút var valin athyglisverðasta hljómsveitin. Í öðru sæti varð hljómsveitin Lada Sport úr Hafnarfirði og þriðja sætið hreppti Tony the Pony frá Húsavík. Ellefu hljómsveitir kepptu í úrslitum í gær- kvöldi fyrir troðfullu húsi í Austurbæ við Snorrabraut. Samtals tóku fimmtíu hljómsveitir þátt í keppninni sem hófst fimmtudaginn 18. mars sl., en alls var keppt á fimm kvöldum í undanúrslitum. Ellefu hljómsveitir komust í úrslit, en sigurhljómsveitirnar völdu sérstök sjö manna dómnefnd og áheyrendur í sameiningu. Ýtarlega verður sagt frá keppninni í blaðinu á morgun. Mammút sigraði í Músíktilraunum Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir AÐILDARFÉLÖG Starfsgreina- sambandsins munu flest ákveða eftir helgi hvort boðað verður til vinnu- stöðvunar meðal félagsmanna sem starfa hjá ríkinu. Aðalsteinn Baldurs- son, formaður Verkalýðsfélags Húsa- víkur og nágrennis, segir að stjórn fé- lagsins muni boða til fundar eftir helgina með félagsmönnum sem starfa hjá Heilbrigðisstofnun Þingey- inga á Húsavík. Á fundinum verði leit- að eftir heimild til að boða til verkfalls sem hæfist um miðjan apríl, verði ekki búið að semja fyrir þann tíma. Efling – stéttarfélag tekur ákvörðun á mánudag Sl. þriðjudag slitnaði upp úr við- ræðum SGS og ríkisins og munu að- ildarfélögin hvert fyrir sig ákveða hvort gripið verður til vinnustöðvun- ar. Aðildarfélög SGS eru upptekin þessa dagana við talningu atkvæða um nýgerða samninga á almenna vinnumarkaðinum og því er ekki búist við að ákveðið verði í neinu félaganna fyrr en í næstu viku hvort til vinnu- stöðvunar kemur vegna deilunnar við ríkið. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, fyrsti varaformaður Eflingar – stéttar- félags, segir að haldinn hafi verið fundur með trúnaðarmönnum um stöðuna eftir viðræðuslitin við ríkið og annar fundur verði á mánudag. „Þá verður tekin endanleg ákvörðun,“ segir hún. Komi til vinnustöðvunar hjá aðild- arfélögum SGS næði hún til á fjórða þúsund ófaglærðra starfsmanna hjá ríkinu og vinna langflestir þeirra á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðis- stofnunum, m.a. í mötuneytum, þvottahúsum og við ræstingar. Aðildarfélög SGS ræða vinnustöðvun vegna deilu við ríkið eftir helgi Óska eftir verkfallsheimild
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.