Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ www.plusferdir.is Portúgal - 14. apríl 30.455 kr. N E T (52.000 kr. / 2 = 26.000 kr. + 4.455 kr. flugvallarsskattar) = 30.455 kr. á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman. Innifalið er flug, gisting í 10 nætur á Sol Dorio í stúdíói, ferðir til og frá flugvelli erlendis, íslensk fararstjórn og flugvallarskattar. NETplus er einungis bókanlegur á www.plusferdir.is 2 fyrir 1 Á mbl.is hefur verið opnaður vefur helgaður rithöfundinum Guðmundi Gíslasyni Hagalín. Á vefnum er að finna ýmsan fróðleik um Hagalín, þar á meðal greinar eftir Erlend Jónsson, Indriða G. Þorsteinsson, Jóhann Hjálmarsson, Þröst Helga- son, Matthías Viðar Sæmundsson, Soffíu Auði Birgisdóttur, Matthías Johannessen og Kristínu Viðarsdótt- ur. Einnig er birt á vefnum smásag- an Barómetið og ljóðið Svefneyja- bóndinn. Hægt er að komast inn á vefinn með því að smella á flipann Fólk á forsíðu mbl.is og velja síðan Hagalín í vinstri dálki á þeirri síðu sem upp kemur. Vefur helg- aður Hagalín HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann á þrítugs- aldri í 30 daga fangelsi fyrir að skalla mann í andlit fyrir framan Hverf- isbarinn í ágúst 2002. Sá sem fyrir árásinni varð nefbrotnaði. Dómurinn átaldi lögreglu fyrir að hafa látið rúmt ár líða frá því kæra kom fram á hendur honum uns hann var kvaddur til skýrslutöku en ákærði var ekki yfirheyrður fyrr en í lok október 2003. Hann neitaði sök en með vitnisburði vitna og vitnis- burði brotaþola þótti sannað að hann hafi gerst sekur um brotið. Vegna dráttar þess sem varð á málinu hjá lögreglu var fullnustu refsingar hans frestað um tvö ár og fellur hún niður að þeim tíma liðn- um. Ákærði var dæmdur til að borga fórnarlambi sínu 75 þúsund krónur í miskabætur auk alls sakarkostnað- ar. Guðjón St. Marteinsson héraðs- dómari dæmdi málið. Verjandi ákærða var Ásgeir Ragnarsson hdl. og sækjandi Katrín Hilmarsdóttir, fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík. Lögregla átalin fyrir seinagang í sakamáli SAMEIGINLEG miðstöð Slökkviliðs höfuðborg- arsvæðisins, Landsbjargar, Neyðarlínunnar og fleiri tengdra aðila hlaut nafnið Björgunarmið- stöðin Skógarhlíð þegar miðstöðin var opnuð við hátíðlega athöfn í gær. Í miðstöðinni starfa aðilar sem gegna lyk- ilhlutverki í viðbúnaði vegna hvers kyns slysa og náttúruhamfara, auk þess sem þar er sinnt ýms- um forvarnarverkefnum. Húsið er samtals um 6.000 fermetrar, og hafa því bæst um 3.100 fer- metrar við gömlu slökkvistöðina. Kostnaður við byggingu og breytingar var um 500 milljónir króna. Nýjar hættur vegna hryðjuverkaógnar Við vígslu miðstöðvarinnar í gær sagði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra fyrirkomulagið í húsinu til fyrirmyndar á heimsvísu. Hann benti á að þeir aðilar sem í húsinu starfi þurfi sífellt að vera til reiðu og nú hafi bæst við nýjar hættur, og vísaði þar til hryðjuverkaógnar. Þórólfur Árnason, borgarstjóri Reykjavík- urborgar, sagði Íslendinga með þeim fremstu í heiminum við að skipuleggja öryggismál íbúa. Þórólfur segir þjónustu þá sem veitt er í húsinu vera þess eðlis að fólk viti ekki af henni ef ekkert fer úrskeiðis og hlutirnir eru í lagi, en gagnrýnin verði hins vegar hvöss ef eitthvað beri út af. Þess vegna sé samstarf á þessu sviði ánægjulegt, auk þess sem sparnaður náist fram með því að sam- eina starfskrafta og tækjabúnað í einu húsnæði. Landhelgisgæslan bætist í hópinn Í Skógarhlíð 14 hefur verið slökkvistöð frá því 1966, en nú eru þar Slökkvilið höfuðborgarsvæð- isins, Neyðarlínan, Slysavarnafélagið Lands- björg, Tetra Íslandi, Fjarskiptamiðstöð lögreglu og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Stefnt er að því að flytja Tilkynningaskyldu íslenskra skipa í húsið á árinu og höfuðstöðvar Landhelg- isgæslu Íslands síðar meir. Húsnæðið er að fullu í eigu SHS fasteigna, dótturfélags Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, sem sér um rekstur á húsnæðinu og leigir þeim sem í húsinu starfa að- stöðu. Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislög- reglustjóra, segir samstarfið í nýju miðstöðinni ekki síst mikilvægt þar sem það stytti til muna allar boðleiðir, og segir hann að starfsemin komi frekar til með að virka sem ein heild saman kom- in undir einu þaki fremur en dreifð í mörgum að- gerðamiðstöðvum um borgina. Kostnaður við rekstur þeirra aðila sem hafa aðstöðu í húsinu lækkar að einhverju leyti, segir Kristbjörn Óli Guðmundsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Hann bendir á að Landsbjörg hafi áður rekið tvær miðstöðvar sem nú sameinist í björgunarmiðstöðinni. Einnig sparast fé þegar vaktmönnum fækkar sökum sameiningarinnar, en hver staða sem þarf að manna allan sólarhringinn kostar á bilinu 25 til 30 milljónir á ári, segir Hrólfur Jónsson, slökkvi- liðsstjóri. Þó að Björgunarmiðstöðin Skógarhlíð verði aðalmiðstöð björgunarstarfa á landi, og síðar lofti og sjó, verður lögð áhersla á að hafa aðstöðu til vara á Akureyri þar sem starfsemi getur farið fram lamist starfsemin í Skógarhlíðinni af ein- hverjum völdum, og er Neyðarlínan nú að koma sér upp aðstöðu þar til vara, segir Árni Möller, skrifstofustjóri Neyðarlínunnar. Opið hús í dag Þeir aðilar sem starfa í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð bjóða almenningi að skoða miðstöðina í dag milli kl. 14 og 16. Starfsmenn munu sýna húsnæðið og tæki sem notuð eru við starfsemina, og er allur almenningur boðinn velkominn. Dómsmálaráðherra ánægður með Björgunarmiðstöðina Skógarhlíð Segir fyrirkomulagið til fyrirmyndar á heimsvísu Björgunarmiðstöðin Skógarhlíð var formlega opnuð þegar Björn Bjarna- son dómsmálaráðherra og Þórólfur Árnason borgarstjóri klipptu á borða. Morgunblaðið/Júlíus Í þessum sal nýju björgunarmiðstöðvarinnar er aðstaða fjarskiptamið- stöðvar ríkislögreglustjórans og er þar að finna margs konar búnað. ♦♦♦ HEILBRIGÐIS- og tryggingaráðu- neytið stendur um helgina í um- fangsmiklum flutningum úr húsnæði ráðuneytisins á Laugavegi 116 í nýtt húsnæði við Vegmúla 3. Vegna þessa var ráðuneytið lokað í gær og verður lokað á mánudaginn. Stefnt er að því að starfsemi hefjist í hinu nýja húsnæði strax á þriðjudag, en þá verði búið að taka öll mikilvæg- ustu gögn og tæki upp úr kössum. Aðkoma fyrir fatlaða batnar að mun Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra sagðist upplifa minningar um pakkhúsdaga sína, þegar hann vann í kaupfélagi, slíkur væri pappa- kassafjöldinn. Mikilvægast væri þó að nú færðist öll starfsemi ráðuneyt- isins á einn stað. „Við höfum verið með skrifstofur á þremur mismun- andi stöðum hingað til, en nú verður þetta allt á einum stað. Sérstaklega mun aðkoman batna, það hefur ver- ið erfið aðkoma fyrir fatlaða hingað til.“ Davíð Á. Gunnarsson ráðuneytis- stjóri segist fagna flutningunum, enda sé um góða ráðstöfun að ræða í sameiningu starfsstaða. „Eins og hjá öllum er þó hjá mér gleðibland- inn kvíði við þessa flutninga. Við er- um að komast á betri vinnustað, betra umhverfi, en við erum búin að vinna hér lengi og eiga góðar stund- ir saman og þrengslin kalla oft á sérstaka tillitssemi og ákveðna nánd. Við þurfum nú að aðlagast vinnu í rýmra húsnæði og laga vinnubrögð okkar að því,“ segir Davíð. Öll starfsemi í eitt hús Morgunblaðið/Golli Davíð Á. Gunnarsson ráðuneyt- isstjóri og Jón Kristjánsson segjast báðir vera spenntir fyrir flutning- unum í nýtt húsnæði ráðuneytisins. Heilbrigðisráðuneytið flytur frá Hlemmi í Vegmúla 3 Björn Kjartansson, bílstjóri heil- brigðisráðherra, er yfirmanni sínum stoð og stytta og hjálpar honum við flutningana.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.