Morgunblaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.03.2004, Blaðsíða 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 13 ÚR VERINU GLATT var á hjalla hjá nem- endum 4. bekkjar Borgarhóls- skóla í blíðskaparveðri þegar þau fóru í sveitaferð í vikunni. Lagt var upp frá Húsavík að morgni og ekið sem leið lá suður í Þingeyjarsveit og byrjað var á því að heimsækja kúabúið á Fremstafelli þar sem eru yfir 50 mjólkandi kýr og mikið af öðrum gripum. Var það spennandi í aug- um barnanna þar sem þau fengu að gefa yngstu kálfunum pela og höfðu mörg hver mjög gaman af því. Þar gaf einnig að líta ýmsan nýtískulegan búnað við heyfóðrun og mjaltir kúa sem athyglisvert var að skoða. Eftir að hafa skoðað kúabú- skapinn var ekið að bænum Rauðá í sömu sveit þar sem geit- ur og kiðlingar gerðu gríðarlega lukku og svo mikla að allir vildu halda á ungviðinu. Þá voru einnig skoðuð alinaut og sauðfé, en nem- endur fengu að gefa þeim bygg sem ábúendur rækta sjálfir. Þetta var mjög fróðlegt en eftir allanga stund lá leiðin að Fosshóli þar sem boðið var upp á heitar pylsur í brauði og höfðu nemendur sjálf- ir meðferðis drykki. Að máltíð lokinni fóru svo allir út í góða veðrið og léku sér um stund. Upp úr hádeginu var svo ekið að Hestamiðstöðinni í Saltvík þar sem tekið var á móti hópnum og fengu allir að fara á hestbak enda góð aðstaða að teyma hesta í reiðskálanum. Þetta var skemmtileg upplifun, að sögn nemenda, en að öllu þessu loknu fóru nemendur heim, glaðir í bragði yfir þeirri tilbreytingu í skólastarfinu sem ferð þessi færði þeim. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Kálfarnir voru gráðugir og kláruðu fljótt úr pelunum. Gaman að gefa kálfum Laxamýri. Morgunblaðið MÖGULEGT er að Norðurlanda- samstarf í matvælarannsóknum verði víkkað út þannig að það nái til alls átján Evrópulanda. Umsókn um að bæta þrettán lönd- um í samstarf Norður- landanna, svo löndin verði alls átján, var send til Evrópusam- bandsins í upphafi þessa mánaðar og mun niðurstaða liggja fyrir í sumar. Oddur Már Gunnars- son, verkefnastjóri hjá Norrænu nýsköpunar- miðstöðinni, segir þetta mikla áskorun, sam- starf Norðurlandanna hafi gefið mjög góða raun og ESB hafi brugðist mjög vel við þessari hugmynd. „Það eru ný lönd að koma inn í Evrópusamstarfið, markaðir eru að opnast og þessi lönd hafa alls ekki öll sama staðal hvað varðar öryggi mat- væla og hin Evrópulöndin. Þetta skapar ákveðna hættu fyrir mat- vælaiðnaðinn, sérstaklega á Norður- löndunum. Ef neytandi kaupir t.d. kjúkling og verður veikur spáir hann ekki í hvaðan kjúklingurinn er, hvort hann er frá Íslandi, Slóveníu eða Grikklandi, heldur hættir að borða kjúkling,“ segir Oddur Már. Samstarf Norðurlandanna í mat- vælarannsóknum hófst árið 1993. Á sama tíma og Norðurlöndin voru að velta fyrir sér framhaldi samstarfs- ins lét Evrópusambandið í ljós áhuga á að láta til sín taka á þessu sviði og auka samstarfið á milli Evrópulanda. Sóttu Norðurlöndin þá um forverk- efnisstyrk og var ætlunin í upphafi að bæta fimm löndum í samstarfið. „Viðtökurnar sem við fengum voru stjarnfræðilegar, þannig að í staðinn fyrir að vera með fimm ný lönd bæt- ast þrettán ný lönd í samstarfið,“ segir Oddur Már. Með- al þessara landa eru Frakkland, Bretland, Ítalía og fleiri stór lönd. Styrksumsóknin hljóðar upp á 3,6 millj- ónir evra. Ætlunin er að samstarf landanna átján, verði það sam- þykkt, standi í fimm ár og hefjist í október á þessu ári. Mikilvægt að eiga aðild að samninga- borðinu Oddur Már segir mikilvægt fyrir Ísland og Norðurlöndin öll að eiga þátt að þessu samstarfi þar sem matvæla- öryggi sé stundum notað til að byggja upp viðskiptahindranir. Þannig geti lönd varið viðskipta- hagsmuni sína með því að berjast fyrir því að viðmiðun ákveðinna efna í matvælum sé lækkað eða hækkað svo flytja megi út vöruna og mik- ilvægt sé að eiga aðild að samninga- borði þar sem slíkar ákvarðanir séu teknar. Reynt verður að koma á samstarfi milli landanna í málaflokkum þar sem hægt er að beita sameinuðu átaki og þar sem þörf er á frekari upplýsingum. Ákveðið hefur verið að leggja áherslu á rannsóknir í fjórum flokkum; kamfílóbakter í kjúklingi, efnafræðilegum breytingum sem verða við framleiðslu matvæla, rekj- anleika matvæla og þróun aðferða við áhættumat. Fleiri Evrópulönd verði í Norður- landasamstarfi í matvælarannsóknum Samstarf að nor- rænni fyrirmynd Oddur Már Gunnarsson FISKVINNSLUFYRIRTÆKI í Eyjum hafa verið að bæta við fólki undanfarnar vikur. Skiptir það miklu máli þar sem hér hefur atvinnuleysi verið viðloðandi. Jón Ólafur Svansson, fram- kvæmdastjóri Godthaab, segir 44 starfa hjá þeim. „Við höfum bætt við sex nýjum starfsmönnum og erum með þrjá lausráðna. Ástæðan er fyrst og fremst aukið framboð á hrá- efni og lægra hráefnisverð. Bátar sem hafa verið í beinum viðskiptum hafa fiskað vel og við erum að mæta því og auka framlegðina,“ sagði Jón og allt í blússandi botni eins og hann orðaði það. Unnið er í tíu til ellefu tíma á dag og laugardaga. Rebekka Rut hóf starfsemi í nýju húsnæði í lok febrúar. Að sögn Vík- ings Smárasonar framkvæmda- stjóra hefur hann ráðið níu starfs- menn. „Við höfum fengið hráefni af einum bát fyrir norðan, tveimur hér í Eyjum og af markaði. Við höfum nánast alltaf haft nóg af hráefni og þetta fer ágætlega af stað,“ segir Víkingur. Viðar Elíasson hjá Fiskvinnslu ehf. hefur bætt við fólki en nú er full- mannað hjá fyrirtækinu en þar vinna nú tíu manns. „Það hefur verið ágætt að gera og allt í góðu standi. Það hefði mátt fiskast meira undanfarna daga en það hlýtur að lagast. Ég er bjartsýnn á framhaldið,“ sagði Viðar. Nóg hráefni Fiskverkunin Lóndrangar hóf starfsemi um miðjan janúar. Arnar Gylfason, verkstjóri, segir að þar vinni tuttugu og fimm manns. „Síð- ustu daga hefur mikið verið sótt um vinnu hjá okkur en það er full- mannað. Vinnslan gengur vel og nóg hráefni, við höfum stundum verið að vinna til tíu á kvöldin en við stefnum að því að vera ekki lengur en til sjö á daginn,“ segir Arnar og er ánægður með ganginn. Það hefur verið nóg að gera hjá þeim í Kinn ehf. að sögn Magnúsar Freys Valssonar, framkvæmda- stjóra. „Að jafnaði höfum við verið með 35 í vinnu undanfarið en erum að bæta við fólki og eru 45 á launa- skrá þessa viku. Við einbeitum okkur að því að taka 5 kílóa og stærri þorsk og ufsa þannig að það er hávertíð hjá okkur. Við leggjum því allt kapp á að vinna þennan fisk hratt og vel. Á síð- asta ári vorum við í 12. sæti í inn- kaupum á landsvísu á Fiskmarkaði Íslands en erum nú í 7. sæti, það sem af er ári ef litið er á verðmæti. Ég hef eingöngu unnið fisk af bátum héðan úr Eyjum síðustu viku ef undan er skilið óverulegt magn af Fiskmark- aði Vestmannaeyja,“ segir Magnús. Verðmætasköpun Anne er 16 ára stúlka frá Ekvador, en hefur búið í fimm ár í Eyjum. Hún skefur lundir af hryggjum, en lundirnar þykja herramannsmatur víða. Morgunblaðið/Sigurgeir Mikil vinna Ófeigur Lýðsson að snyrta saltfiskflök í Re- bekku Rut sem hóf starfsemi í nýju húsnæði í febrúar. Vertíðarstemning í minni fiskvinnsluhúsunum Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. HUGMYNDIR nefndar brezka for- sætisráðuneytisins um breytingar til bjargar brezkum sjávarútvegi fá misjafnar undirtektir. Forystumenn Skozka þjóðarflokksins hafna þeim og forseti Samtaka skozkra sjó- manna segir þær óraunhæfar. Hugmyndirnar byggja meðal ann- ars á því að stjórnvöld fjármagni úreldingu 13% þess flota sem veiðir þorsk, ýsu og kola og að 30% þess sem eftir stendur verði þá lagt í fjög- ur ár á kostað útgerðarinnar. Þá er lagt til að tekin verði upp svæðis- bundin fiskveiðistjórnun, sem bygg- ist á útdeilingu framseljanlegra afla- heimilda. Ben bradshaw sjávarútvegsráð- herra kynnti skýrsluna í vikunni og sagðist bjartsýnn á að á grunni þess- ara hugmynda gæti sjávarútvegur- inn unnið sig út úr núverandi erf- iðleikum og skapað sér arðbæran rekstur í framtíðinni. „En til þess að það náist verður sjávarútvegurinn að taka þátt í því að kosta úreld- inguna,“ sagði hann. Forseti Samtaka skozkra sjó- manna sagði að hugmyndur um að útvegurinn yrði að taka á sig veru- legan kostnað væru slæm byrjun. Það væri algjörlega óraunhæft að fara fram á það að flotinn yrði bund- inn í fjögur ár, þegar hann þyldi ekki einu sinni 6 mánaða stopp á ári. Tals- maður Skozka þjóðarflokksins sagði að tillögurnar væru byggðar á röng- um grunni. Nefndin hafi vanmetið stærð skozka fiskveiðiflotans og góða stöðu fiskistofna í Norðursjó. Flestir fiskistofnar sem Skotar veiddu úr væru í góðri stöðu og ef eitthvað væri, mætti auka veiðarnar. Skozkir íhaldsmenn telja að þessar hugmyndir gætu riðið baggamuninn og gengið endanlega að útveginum dauðum. Fulltrúar fiskiðnaðarins telja til- lögurnar einnig óraunhæfar, en nauðsynlegt sé að líta raunhæft á vandann hvað þorskinn varðaði. Hann verði áfram undirstaða fisk- iðnaðarins og rétt að benda á að nær allur þorskur, sem etinn er í Bret- landi komi úr sjálfbærum veiðum. Meira en 90% alls þorsk sem neytt er í Bretlandi sé tekinn úr stofnum við Ísland og í Barentshafi, þar sem ver- ið sé að auka veiðiheimildir í kjölfar ábyrgrar fiskveiðistjórnunar. Stað- an sé sú að af 820.000 tonna þorsk- framboði á norðurhveli jarðar komi aðeins 3% úr Norðursjónum. Breytingar í Bretlandi fá dræmar undirtektir ÚTFLUTNINGSRÁÐ Íslands undirbýr nú för við- skiptasendinefndar til Kodiak-eyju í Alaska og til Seattle. Í skoðanakönnun sem framkvæmd var í lok síð- asta árs kom fram verulegur áhugi fyrirtækja á þessu markaðssvæði, en þó nokkur viðskiptatækifæri eru þarna, aðallega á sviði sjávarútvegs. Sjávarútvegsráðherra Árni M. Mathiesen mun fara fyrir sendinefndinni sem áætluð er í viku 21 í maí nk. Að þessu sinni er megináherslan lögð á tengingar í sjávarútvegi, þ.e. í útgerð, í fiskvinnslu og í fiskeldi. Jafnt fyrirtæki sem eru í miklum viðskiptum nú þegar og þau sem eru að hefja markaðssókn inn á þetta svæði eru velkomin með í sendinefndina. Markmiðið er að viðhalda núverandi viðskipta- tengslum auk þess að koma á nýjum. Í þessu sambandi verður lögð áhersla á að tengja saman væntanlega við- skiptavini á svæðinu og þátttakendur í sendinefndinni. Skipulagðar verða viðskiptaráðstefnur, litlar sýningar, fyrirtækjastefnumót og móttaka á hótelum á Kodiak- eyju og í Seattle. Útflutningsráð hefur nú þegar valið mjög hæfa samstarfsaðila ytra, sem þekkja vel til á þessum markaðssvæðum auk þess að þekkja vel til í sjávarútvegi. Þeirra hlutverk verður að skipuleggja viðskiptafundi fyrir þátttakendur í sendinefndinni, í samstarfi við Útflutningsráð. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku geta haft samband við Útflutningsráð. Viðskiptasendinefnd til Seattle og Alaska Seattle Frá smábátahöfninni í Seattle.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.