Morgunblaðið - 27.03.2004, Page 20
ERLENT
20 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSTÆÐAN fyrir því að heilinn í
mönnum varð miklu stærri en í
nánustu ættingjum þeirra, öpun-
um, gæti verið stökkbreyting í
geni, að sögn bandarískra sér-
fræðinga í líffræði og lýtalækn-
ingum í Pennsylvaníu. Breytingin
er talin hafa orðið fyrir 2,4 millj-
ónum ára og hafi hún dregið úr
stærð kjálkavöðva og þannig
valdið því að meira pláss varð fyr-
ir heila í höfuðkúpunni.
Ekki er kenningin þó óumdeild
og segja aðrir sérfræðingar að vel
geti verið að aðrir hlutir hafi vald-
ið því að vöðvarnir minnkuðu. Til
dæmis geti breytingar í umhverf-
inu hafa þvingað menn til að fara
að gera sér áhöld og elda mat sem
verður þá auðveldari viðfangs,
þörf fyrir öfluga bitvöðva minnk-
ar.
Vísindamennirnir uppgötvuðu
stökkbreytinguna að sögn AP-
fréttastofunnar í erfðaefni sem
talið var hluti af svokölluðu
„drasli“, þ. e. DNA-erfðaefni sem
ekki hefði neitt eiginlegt hlut-
verk, en genið finnst aðeins í
kjálkavöðvum. Síðan hafa þeir að
sögn tímaritsins New Scientist
gert rannsóknir á erfðaefni fólks
frá mörgum löndum, þ. á m. Ís-
landi, Japan og Rússlandi, og bor-
ið saman við erfðaefni úr makakí-
öpum sem eru af ætt markatta.
Dr. Harold Stedman, sem fer
fyrir hópnum, segir að alls staðar
hafi niðurstaðan verið sú sama,
menn séu með stökkbreytta genið
en í öpunum hafi það ekki stökk-
breyst. Stökkbreytingin veldur
því að vöðvaþræðirnir minnka og
þannig dregur úr umfangi vöðv-
anna.
Heili apans í
heljargreipum
Reynist tilgátan rétt er skýr-
ingin á því að apar þróuðust ekki
eins og menn sú að kjálkavöðv-
arnir stóru héldu heilastærðinni í
heljargreipum. Heili mannsins er
nú þrisvar sinnum stærri en í gór-
illum og simpönsum.
Vísindamennirnir voru að rann-
saka ástæður vöðvarýrnunar þeg-
ar þeir fundu stökkbreytinguna.
Bent er á að fyrstu öruggu merk-
in um að menn hafi farið að gera
sér áhöld séu frá sama tíma og
stökkbreytingin varð en erfitt er
að segja hvort kom á undan.
Einnig gæti kenning Darwins um
náttúruval hafa valdið því að ein-
staklingar sem fæddust með
stærri heila en aðrir hafi einfald-
lega fjölgað sér meira. Stóru heil-
arnir hafi þannig orðið ofan á
vegna þess að stærra heilabú
gerði kleift að þróa fjölbreyttari
menningu.
Olli stökkbreyting meiri heilastærð?
Kjálkavöðvar urðu minni í mönnum
og þá varð meira rými fyrir heilann
STAÐFEST var opinberlega í gær
af hálfu kjörnefndar á Taívan að
Chen Shui-bian hefði verið endur-
kjörinn forseti í kosningunum um
síðustu helgi. Kom til óeirða er and-
stæðingar forsetans réðust á skrif-
stofur kjörnefndarinnar, köstuðu
eggjum og brutu rúður. Stjórnar-
andstæðingar kröfðust á sínum tíma
endurtalningar og voru kjörkassar
þá allir innsiglaðir. Deilt hefur verið
um málið og hvernig standa skuli að
endurtalningu sem Chen segist
samþykkja. Fundur milli deiluaðila
leystist í gær upp án samkomulags.
Stjórnarandstaðan hyggst efna til
útifundar í höfuðborginni Taipei í
dag og gerir ráð fyrir allt að 500.000
þátttakendum. Stjórn kommúnista í
Kína sagði í gær að hún myndi ekki
sitja aðgerðalaus hjá ef ókyrrð á Ta-
ívan færi úr böndunum. Þau líta á
Taívan sem uppreisnarhérað er eigi
að heyra undir Pekingstjórnina.
Kommúnistar eru mjög andvígir
Chen forseta sem hefur látið í veðri
vaka að efna ætti til þjóðaratkvæðis
um sjálfstæðisyfirlýsingu Taívans
en í lögum eyjarinnar er hún enn
talin vera hluti Kínaveldis.
Aðeins munaði um 30.000 atkvæð-
um eða 0,2% á Chen og helsta and-
stæðingi hans, Lien Chan. Einnig
hefur verið bent á að um 300.000 at-
kvæði voru dæmd ógild, þrisvar
sinnum fleiri en í síðustu forseta-
kosningum árið 2000. Stjórnarand-
staðan hefur einnig bent á ýmis
dæmi um atkvæðasvindl. Aðrir
segja að öflug hreyfing hafi hvatt
fólk til að skila auðu og geti það
skýrt að nokkru hvað mörg atkvæði
voru dæmd ógild.
Daginn fyrir kjördag var skotið á
Chen og varaforseta hans, Anette
Lu, og særðust þau lítillega. And-
stæðingar Chen segja að margt sé
grunsamlegt við málið og árásin
hafi ef til vill verið sviðsett. Lög-
reglan hefur birt mynd úr eftirlits-
vél af sköllóttum manni, klæddum
gulum jakka. Er sagt að hann geti
hafa verið að verki og hann hafi flú-
ið af vettvangi á mótorhjóli. Lien
hefur sagt að Chen hafi fengið
fjölda samúðaratkvæða vegna árás-
arinnar.
Hörð mótmæli gegn
Chen Taívanforseta
Enn deilt um til-
högun endurtaln-
ingar atkvæða
Taipei. AP, AFP.
FORSÆTISRÁÐHERRA Indlands og leiðtogi Bharatiya Janata-flokks
þjóðernissinnaðra hindúa, Atal Behari Vajpayee, flutti ræðu á fundi í hinni
helgu borg Amritsar í gær. Hann sagðist m.a. álíta að ekki myndi oftar
koma til styrjaldar við Pakistan og hvatti til þess að viðskipti milli ríkjanna
tveggja yrðu aukin en mikill uppgangur hefur verið í indverskum efnahag
síðustu árin. Þingkosningar verða á Indlandi í apríl.
Reuters
Litríkur stjórnmálafundur
SEX Bretum var bjargað í fyrra-
kvöld úr helli í Suðvestur-Mexíkó
en þeir voru innilokaðir í honum
vegna mikils flóðvatns í átta daga.
Eru stjórnvöld í Mexíkó mjög
óánægð með þessa uppákomu og
halda því fram, að Bretarnir hafi
farið ofan í hellana án tilskilinna
leyfa.
Mennirnir báru sig vel þegar þeir
losnuðu úr prísundinni og fullyrtu,
að í raun hefði aldrei nein hætta
verið á ferðum. Voru þeir í flokki
12 manna, aðallega hermanna, en
helmingurinn var kominn út áður
en vatnið lokaði inngöngunni.
Hellakerfið, Cuetzalan-hellarnir, er
mjög flókið og víðáttumikið og alls
50 km langt.
Formleg mótmæli
Yfirvöld í Mexíkó sögðu, að Bret-
arnir yrðu yfirheyrðir áður en þeir
færu úr landi og meðal annars
spurðir hvaða erindi þeir hefðu átt
inn í hellana. Breska sendiráðið
sagði, að hellaferðin hefði verið
hluti af herþjálfun og fyrir henni
hefði verið leyfi. Mexíkóstjórn
kannast þó ekki við það og segir, að
mennirnir hafi komið til landsins á
ferðamannapassa. Hefur Vicente
Fox, forseti Mexíkós, falið utanrík-
isráðherra landsins að krefja
bresku stjórnina skýringa á þessu
og bera fram formleg mótmæli.
Bretarnir segjast hafa stundað
þessar hellaferðir í 14 ár og íbú-
arnir í Cuetzalan staðfesta það.
AP
Þrír breskir kafarar í Alpazat-helli en hann er einn margra í Cuetzalan-hellakerfinu sem er alls um 50 km langt.
Sex Bretum bjargað úr
mexíkóskum hellum
Málið orðið að
hálfgerðri
milliríkjadeilu
Ayotzinapan. AFP.
Hæðst að
al-Qaeda-
yfirlýsingu
Islamabad. AFP.
TALSMENN pakistanska hersins
hæddust í gær að yfirlýsingu, sem
er sögð frá hryðjuverkasamtökun-
um al-Qaeda, en í henni er skorað
á herinn að rísa upp og steypa
Pervez Musharraf, forseta Pakist-
ans, af stóli.
Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Ja-
zeera flutti yfirlýsinguna í fyrra-
kvöld en sagt var, að hún væri frá
Ayman Al-Zawahiri, næstæðsta
manni al-Qaeda. Þar er skorað á
Pakistani og herinn að styðja
hryðjuverkasamtökin og reka burt
Musharraf, sem væri svikari við
þjóðina.
Yfirlýsingin er flutt á sama tíma
og pakistanski herinn heldur uppi
mikilli sókn gegn al-Qaeda í norð-
vesturhluta landsins við afgönsku
landamærin. Hafa 54 hermenn
fallið í átökunum en 163 al-Qaeda-
liðar og talibanar hafa verið hand-
teknir.
TALIÐ er að sjóræningjar frá
Norður-Afríku hafi á árunum 1530
til 1780 rænt alls rúmlega milljón
Evrópumanna og gert þá að þræl-
um, að því er fram kemur á vef
Discovery-sjónvarpsstöðvarinnar.
Ræningjarnir gerðu strandhögg á
Íslandi árið 1627 og tóku með sér
nokkur hundruð manns í Tyrkjarán-
inu svonefnda.
Túnis, Alsír og Marokkó voru á
þessum árum hluti Tyrkjaveldis en
sjálfstæðir höfðingjar, pasjar, fóru í
reynd með völdin í „Barbaríinu“ eins
og svæðið var nefnt af Evr-
ópumönnum. Um 90% þrælanna
voru karlar og voru þeir einkum not-
aðir til að sinna erfiðum störfum við
skógarhögg, í námum og til að róa
galeiðum, að sögn Robert Davis,
sagnfræðings við Ohio-háskóla í
Bandaríkjunum.
Þurftu að ræna 8.500 manns
árlega til að fylla í skörðin
Eftir að byrjað var að flytja
blökkumenn frá Afríku til nýlendna í
Ameríku varð skortur á þrælum í
Afríku og fóru sjóræningjar þá að
snúa sér að ströndum Evrópu, talið
er að nokkrir strandbæir á Ítalíu
hafi beinlínis verið lagðir í auðn.
Davis segir afföllin hafa verið mikil,
margir hafi dáið, flúið ellegar verið
leystir úr ánauð fyrir fé. Hefur hann
reiknað út að þurft hafi að ræna um
8.500 manns á ári til að fylla í skörð-
in.
Evrópskir þrælar í
Norður-Afríku
Yfir
milljón
var rænt
Tyrkland
Níu fórust
í jarð-
skjálfta
Ankara. AFP.
LJÓST er að minnst níu manns
fórust þegar jarðskjálfti upp á 5,1
á Richter reið yfir Erzurum-hérað
í austurhluta Tyrklands á fimmtu-
dagskvöld. Upptök skjálftans voru
undir bænum Cat, um 870 km
austur af höfuðborginni, Ankara.
Þorpsbúar og björgunarmenn leita
í rústum húsa, að sögn Anatolia-
fréttastofunnar tyrknesku.
Nokkur múrsteinshús hrundu í
a.m.k. þremur þorpum á svæðinu.
Sjö hinna látnu eru börn, að sögn
Anatolia og a.m.k. tuttugu manns
slösuðust. Íbúar í Erzurum-héraði
þustu út úr híbýlum sínum þegar
skjálftinn reið yfir og að sögn
NTV-sjónvarpsstöðvarinnar voru
heimilislausir fluttir í skólabygg-
ingar og íþróttahús víða í héraðinu.
Fjögur börn fórust í sama hús-
inu í þorpinu Kucukgecit, nærri
bænum Askale. Þá týndu tvö önn-
ur börn einnig lífi í sama þorpi, að
sögn Anatolia og annað barn fórst í
nærliggjandi þorpi, Karaybuyuk.
Fréttir herma að fimmtán hús hafi
hrunið í Kucukgecit.
Jarðhræringar eru tíðir í Tyrk-
landi og árið 1999 fórust um 20
þúsund manns í tveimur jarð-
skjálftum í norðvesturhluta lands-
ins.
♦♦♦