Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 21
James Brennan, sem veriðhefur sendiherra Írlands áÍslandi með aðsetur íKaupmannahöfn frá því
vorið 2002, var staddur í Reykjavík
í vikunni og átti viðræður við ís-
lenzka ráðamenn þar sem Evrópu-
málin voru í brennidepli.
Er Írar tóku við formennsku-
hlutverkinu í ESB af Ítölum um
síðustu áramót „erfðu“ þeir deiluna
um nýjan stjórnarskrársáttmála
sambandsins, sem mistekizt hafði
að ná samkomulagi um á leiðtoga-
fundi í desember. Brennan segir
írsku stjórnina hafa það sem af er
formennskumisserisins verið mjög
upptekna af sáttaumleitunum sem
miðuðu að því að leysa ágreining-
inn um stjórnarskrársáttmálann.
Stefnt að samkomulagi
fyrir 17. júní
Og hún uppskar árangur þessa
erfiðis á leiðtogafundi ESB sem
fram fór í Brussel nú í vikulokin, er
samþykkt var ályktun um að kalla
ríkjaráðstefnuna um stjórnar-
skrársáttmálann aftur saman fjót-
lega og stefnt skyldi að því að ljúka
frágangi hans fyrir 17. júní nk.
Í desember strandaði samkomu-
lag einna helzt á and-
stöðu Pólverja og Spán-
verja við að fallast á
breytingar á því at-
kvæðagreiðslukerfi og
vægi atkvæða aðildar-
ríkjanna sem samþykkt
hafði verið í Nice-sátt-
málanum svonefnda í
árslok 2000. Honum var
ætlað að vera grundvöll-
urinn að þeim stofnanabreytingum
sem nauðsynlegar töldust til að
ESB héldist starfhæf og skilvirk
stofnun eftir að aðildarríkjunum
fjölgar úr 15 í 25.
„Ég held að það sé æ breiðari
skilningur á því meðal aðildarríkj-
anna að það græðist ekkert á því að
slá samkomulagi á frest. Það er
mitt persónulega mat að það verði
frekar erfiðara en auðveldara að
finna lausn eftir því sem tíminn líð-
ur. Þá bætast önnur brýn mál á
dagskrána sem kalla á fulla athygli
allra aðila,“ segir Brennan og nefn-
ir sem dæmi að á næstu misserum
þarf að semja um fjárlagaramma
sambandsins fyrir tímabilið 2007–
2013. Það verði mikil rimma. Hvað
gera á varðandi beiðni Tyrkja um
að hefja aðildarviðræður (þeim hef-
ur verið heitið svari við því
fyrir lok þessa árs); að að-
laga hin 10 nýju aðildarríki
sambandinu og stefnu þess
sé út af fyrir sig gríðarmikið
verkefni. Lokasprettur aðild-
arviðræðnanna við Rúmeníu
og Búlgaríu sé líka eftir. Og
þannig mætti lengi telja.
„Í stuttu máli: Vinnudag-
skrá sambandsins er á mikilli
hreyfingu og viðfangsefnin mikil-
væg. Það vinnst ekkert með frekari
frestun“ á samkomulagi um stjórn-
arskrársáttmálann, að sögn sendi-
herrans.
Hvert formennskuríki
hefur sína aðferð
Þessi árangur írsku formennsk-
unnar, að hafa tekizt að draga öll
aðildarríkin aftur að samninga-
borðinu um stjórnarskrársáttmál-
ann og koma samkomulagi í sjón-
mál, er nýjasta dæmið um það
hvernig litlum aðildarríkjum sem
gegna formennskunni virðist oft
ganga betur að miðla málum í
ágreiningsmálum innan ESB en
stórum. Spurður um þetta tekur
Brennan undir það að vissulega
séu þess mörg dæmi að minni að-
ildarríkin hafi náð góðum árangri
þegar þau gegndu formennsku-
hlutverkinu. Þau eigi stundum
betra með að miðla málum en
stærstu ríkin sem hafi jú meiri
hagsmuna að gæta í mörgum mál-
um og eigi því erfiðara með að að-
skilja málamiðlunarhlutverkið og
hagsmunavörzluhlutverkið. En
þetta sé þó ekki einhlítt; dæmi
megi nefna um árangur sem e.t.v.
er erfiðara að sjá fyrir sér að litlu
formennskuríki hefði reynzt unnt
að ná en stóru. Aðildarríkin, eins
ólík og þau eru, hafi einfaldlega
hvert sína aðferð við að gegna for-
mennskuhlutverkinu.
Aðspurður sagði Brennan að
hann ætti ekki von á öðru en að
samningarnir um stækkun Evr-
ópska efnahagssvæðisins (EES)
gætu gengið í gildi á sama tíma og
sjálfir samningarnir um stækkun
ESB, þ.e. 1. maí næstkomandi.
Fullgildingarferlið sé á góðum
skriði og sér vitanlega hefði ekkert
hinna 28 framtíðaraðildarríkja hins
stækkaða EES (ESB-ríkin 25 auk
Íslands, Noregs og Liechtenstein)
neina tiltekna ástæðu til að af-
greiða ekki staðfestingu samning-
anna tímanlega.
Dagskrá Evrópusambands-
ins er á mikilli hreyfingu
James Brennan
Ekkert vinnst með því að slá því frekar á frest að ganga frá samkomulagi um stjórnar-
skrársáttmála ESB, sem mistókst í desember sl. Þetta segir írski sendiherrann James
Brennan í samtali við Auðun Arnórsson, en Írland gegnir nú formennsku í ESB.
Númer eitt í notuðum bílum
Týndust
flug-
skeyti í
Úkraínu?
Kíev. AP.
RÁÐHERRA varnarmála í Úkra-
ínu, Jevhen Martsjúk, segir að ekki
séu til nein gögn um afdrif mörg
hundruð öflugra flugskeyta sem
fullyrt sé að hafi verið eyðilögð.
Umrædd flugskeyti eru af gerð
sem Rússar nefndu S-75 en vest-
rænir sérfræðingar kölluðu SA-2.
Þau voru seld til margra landa og
voru meðal annars notuð í Balkan-
stríðunum á tíunda áratugnum til
að skjóta niður flugvélar.
Ekki munu vera til nein gögn um
eyðingu flugskeytanna. Martsjúk
gaf í skyn að ástæðan fyrir upplýs-
ingaskortinum væri fremur stjórn-
sýsluklúður eða þjófnaður en að
þeim hafi ekki verið eytt í reynd.
„Þeir segja, þeim var eytt. Allt í
lagi. En í hvert flugskeyti er notað
gull, silfur og platína. Hvað varð
um hagnaðinn af eyðingunni?“
Úkraínumenn erfðu mikið af
vopnum þegar Sovétríkin liðuðust í
sundur 1991 en afhentu Rússum öll
kjarnorkuvopn landsins og var það
gert undir alþjóðlegu eftirliti.
SA-2-skeytin, sem voru hönnuð
1957, geta skotið niður vélar í allt
að 20 km hæð. Skeyti af þessari
gerð var notað þegar U-2 njósna-
flugvél Bandaríkjamanna var skot-
in niður yfir Sovétríkjunum árið
1960, flugmaðurinn, Francis Gary
Powers, komst lífs af. Málið olli
miklum titringi í samskiptum risa-
veldanna.