Morgunblaðið - 27.03.2004, Side 22

Morgunblaðið - 27.03.2004, Side 22
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is ÞAÐ vorar á Djúpavogi eins og annars staðar. Náttúran að lifna við og farfuglarnir farnir að láta sjá sig. Aðrir fara burt. Fólk frá öðrum löndum sem kemur og býr hér yfir veturinn. Fólk sem vinnur í fiski og sér fyrir fjölskyldu í öðru landi. Flýgur burt að vori, kemur aftur að hausti. Fólk frá Pól- landi, Hondúras, Filippseyjum og Serbíu. Undanfarna mánuði hafa útlendingarnir stundað íslenskunám hjá Berglind Ein- arsdóttur sem á oft fullt í fangi með að út- skýra af hverju við flækjum tungumálið okkar svona mikið. Þar mætast ólíkir menningarheimar en allir leggja sig fram.    Á meðan æfa grunnskólanemendur sig fyrir stóru upplestrarkeppnina. Grunnskóli Djúpavogs sendir tvo keppendur á Horna- fjörð og þeir lenda í fyrsta og þriðja sæti. Frábær árangur hjá Davíð Arnari Sigurðs- syni og Gretti Gautasyni. Fullorðna fólkið keppir í árlegri spurningakeppni á vegum Ungmennafélagsins Neista. Þar er hart barist. Sextán lið eru með, fjögur fara í úr- slit. Björn Hafþór sveitarstjóri fer á kost- um sem spyrill og í kvöld er úrslitakvöldið. Bræðslan, Bútasaumshópurinn, Sunnu- tindur og Ósnes keppa um stóran bikar og blómakörfu. Búist er við fullu húsi og spennandi keppni.    Mars er líka tónlistarmánuður á Djúpa- vogi. Svavar Sigurðsson, skólatjóri Tón- skóla Djúpavogs, hefur lagt mikla vinnu í að undirbúa árlega tónlistarhátíð með nem- endum skólans. Yngri deildin heldur sína tónleika í kirkjunni en eldri deildin spilar á Hótel Framtíð. Húsfyllir er á hótelinu og dagskráin fjölbreytt. Popp, rokk, rapp og klassík. Allir fá að njóta sín og margir prófa að spila í hljómsveit.    Avinnumálin hafa verið mikið í um- ræðunni undanfarnar vikur. Laxeldið í Berufirði gengur vel. Nú hafa verið settar út fimm kvíar með fjögur hundruð þúsund seiðum. Gunnar Steinn Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Salar Islandica, er bjartsýnn á framtíðina. Í sumar er stefnt að slátrun og markaðsverð á laxi er orðið gott. Nú vinna þrír hjá fyrirtækinu og í vor verður ráðið í þrjú ný störf. Úr bæjarlífinu DJÚPAVOGUR EFTIR SÓLNÝJU PÁLSDÓTTUR FRÉTTARITARA Mikil þátttaka var íhugmynda-samkeppni Landsbankans um hvern- ig efla megi miðbæ Reykjavíkur. Dómnefnd er nú að fara yfir tillög- urnar og gert er ráð fyrir að þær tillögur sem vöktu hvað helst áhuga dóm- nefndar verði sýndar í Ráðhúsinu í byrjun maí. Alls bárust rúmlega 600 tillögur, ýmist í tölvupósti eða sem innsendar greinar og teikningar, segir Krist- ján Guðmundsson, for- stöðumaður markaðs- og þróunardeildar Lands- bankans. Hann segir til- lögurnar sem bárust vera mjög fjölbreyttar, sumar séu framkvæmanlegar en aðrar ekki líklegar til að komast til framkvæmda. Kristján segir mikla breidd í þeim hópi sem sendi inn tillögur. Tillögur sýnd- ar í byrjun maí Flaggað var og pönnukökur bakaðar á HótelRangá þegar síðustu sperrurnar í sex her-bergja viðbyggingu við hótelið höfðu verið reistar og festar. Hafist var handa við verkið þremur vikum áður og voru einingarnar smíðar annars staðar og síðan fluttar á staðinn. Reiknað er með að viðbyggingin verði fullbú- in að innan og utan í lok júní og verður Hótel Rangá þá orðið 27 herbergja hótel. Morgunblaðið/Óli Már Hótel Rangá stækkað Sagt er að séra BjörnHalldórsson í Lauf-ási hafi ort á yngri árum er hann hlýddi á messu hjá nágrannapresti: Sauðurinn séra Jón sagður er mesta flón. Blessuð guðsorðabulla, – bullar kirkjuna fulla. Sem aftur minnir á þessa braghendu: Biblían er sem bögglað roð fyrir brjósti mínu. Gleypti ég hana alla í einu ekki kom að gagni neinu. Mikilvægt trúnaðarstarf við Héraðsskólann í Reyk- holti var starf hringjara. Ort var um Helga Júl- íusson hringjara á fjórða áratugnum: Mikið Helgi Hönnu ann, harðskeyttur að binda og glíma. Óstundvísi hatar hann, hringir rétt í alla tíma. Og að lokum vísa eftir Björn G. Eiríksson sér- kennara: Daggardropar glóa í dagsins gullnu skálum. Vor í lofti vekur vor í okkar sálum. Mergur Máls Fljót | Gamlir bílar fá stundum nýtt hlutverk. Þannig var það með Land-Rover bifreiðina K 1254 sem er árgerð 1970 og er elsti gangfæri bíll í Fljótum um þessar mundir. Hann var not- aður sem brúðarbíll þegar Hall- dór Hálfdánarson og María Númadóttir gengu í hjónaband í Barðskirkju síðastliðinn laug- ardag. „Ég var nú búinnn að „skvera“ hann aðeins til fyrir þetta en held að þetta hafi tekist eins og vonast var til. Þetta er náttúrlega Reykjavíkursiður að fá svona gamlan bíl til að keyra brúð- hjónin í en ég gat að sjálfsögðu ekki neitað nágrönnum mínum um að keyra þau þennan spotta við svona hátíðlegt tækifæri,“ sagði Guðbrandur Þór Jónsson í Saurbæ, eigandi Land-Rovers- ins. Þeir sem þekkja Þór vita að hann er einstakt snyrtimenni og ber Land-Roverinn glögglega merki um það því hann lítur nán- ast út sem nýr, jafnt utan sem innan. Bíllinn er því góður fulltrúi þessarar merku bílateg- undar sem var til nánast á öðrum hverjum sveitabæ fyrir nokkrum áratugum. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Hrísgrjónum rigndi yfir brúðhjónin þegar þau komu að félagsheimilinu Ketilási í brúðkaupsveisluna. Völdu þann elsta sem brúðarbíl Gifting ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík Á MIÐVIKUDAG sendi Impregilo S.p.A. út tilkynningu til starfsmanna sinna við Kárahnjúka um að þeim bæri framvegis að taka þátt í kostnaði sem þeir yllu á öku- tækjum fyrirtækisins. Að sögn fram- kvæmdastjórnar Impregilo var ætlunin að draga úr slysum á starfsmönnum og kostn- aði hjá fyrirtækinu, en fram til þessa hafa sumir starfsmenn ekki gætt nægjanlega vel að sér í akstri við íslenskar aðstæður. Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar mótmæla þessu og segja kröfuna ekki standast íslensk lög að neinu leyti. Þrír yfirmenn Impregilo undirrita til- kynninguna og er þar greint frá því að starfsmenn skuli greiða helming af við- gerðarkostnaði við annað óhapp og allan kostnað við þriðja óhapp. Oddur Sigurðsson, yfirtrúnaðarmaður við Kárahnjúkavirkjun segist hafa varað yfirmenn fyrirtækisins við að krefja starfs- menn um slíkar greiðslur því enginn eyði- leggi vélar viljandi. Impregilo sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem segir að ákvörðunin hafi verið tek- in í flýti og ekki í samráði við lögfræðinga fyrirtækisins eða tryggingaráðgjafa. „Ætlunin var að vekja athygli á því að þeir sem valda tjóni á eignum fyrirtækisins af ásetningi eða með stórkostlegu gáleysi, kunna að þurfa að bera einhvern kostnað af slíkri hegðan. Ljóst er að tilkynningin frá 24. mars var ekki nægjanlega skýr og verður hún því endurskoðuð.“ Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Framkvæmdastjórn Impregilo vill tyfta ógætna ökumenn sína Krafa um þátttöku starfsmanna í tjónakostnaði endurskoðuð pebl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.