Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 24
AKUREYRI
24 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Tækniteiknari
Óskum eftir að ráða
tækniteiknara í hlutastarf
Við bjóðum þér framtíðarstarf í spennandi fyrirtæki.
Áhersla er lögð á faglegan metnað,
sjálfstæð vinnubrögð og þægilegt viðmót.
Æskilegt er að þú getir hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veittar
á skrifstofu okkar, Strandgötu 13, Akureyri,
í síma 461 4014 eða opus@opusehf.is
Vatnaskógur – sumarbúðir fyrir hressa stráka
– og það er bara það sem ég geri fyrir hádegi!
Upplýsingar í síma 588 8899 og á www.kfum.isNON
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
1
1
7
0
3
•
s
ia
.i
s Skráning hefst 31.
mars kl. 8.00
Eyjafjarðarsveit | Samfylking-
arfélagið í Eyjafjarðarsveit var
stofnað á fundi á Hótel Vin í Hrafna-
gili fyrir skömmu. Á stofnfundinum
voru m.a. formaður
Samfylkingarinnar, Össur Skarp-
héðinsson, þingmenn flokksins í
kjördæminu og aðrir forystumenn.
Stjórn Samfylkingarfélagsins
skipa Rögnvaldur Símonarson for-
maður, Ásdís Ásmundsdóttir og
Aníta Jónsdóttir. Varamenn í stjórn
eru Guðrún Harðardóttir, Hannes
Örn Blandon og Hans Rúnar
Snorrason.
Orgeltónleikar | László Attila
Almásy organisti við kirkju heil-
agrar Önnu í Búdapest í Ung-
verjalandi leikur á tónleikum í Ak-
ureyrarkirkju á morgun,
sunnudaginn 28. mars, kl. 17.
Hann hefur haldið tónleika í yfir
20 löndum, m.a. í borgunum Búda-
pest, Prag, Salzburg, Vatíkaninu í
Róm, Barcelona, Haag, London,
Singapúr, Sydney, Tomsk í Síb-
eríu og Guanajuato. Hann hefur
leikið með frægum hljómsveit-
arstjórum en starfar nú sem org-
anisti við kirkju heilagrar Önnu í
Búdapest.
HIÐ árlega Stjörnutölt Hesta-
mannafélagsins Léttis fer fram í
Skautahöllinni á Akureyri í kvöld.
Um 80 hestar tóku þátt í forkeppni
og af þeim komust 20 í úrslit í tölt-
keppninni. Búast má við harðri
keppni í kvöld, þar sem margir af
bestu hestum og knöpum landsinu
munu reyna með sér. Einnig koma
fram á svellið 19 kynbótahross.
Undanfarin ár hefur verið húsfyllir
í Skautahöllinni og mikil stemning.
Stjörnutöltið hefst kl. 20.30 og
stendur í um tvær og hálfa klukku-
stund.
Stjörnutölt Léttis
Myndrænt samtal | Karl Guð-
mundsson (Kalli) og Rósa Kristín
Júlíusdóttir opna sýningu sem þau
kalla „myndrænt samtal“ í Bóka-
safni Háskólans á Akureyri í dag,
laugardaginn 27. mars kl. 14.
Sýningin var á Kjarvalsstöðum í
nóvember sl. og var liður í listahátíð-
inni List án landamæra, sem stóð yf-
ir allt síðastliðið ár í tilefni af Evr-
ópuári fatlaðra.
Karl og Rósa Kristín hafa unnið
saman að myndlist í mörg ár og líta
á þá samvinnu sem nám og leik í
senn. Kalli er í myndlistarnámi og
um leið eru þau að gera verk saman.
Karl Guðmundsson stundaði nám
á barna- og unglinganámskeiðum í
Myndlistaskólanum á Akureyri í
fimm ár og í nokkur ár hefur hann
komið á vinnustofu Rósu Kristínar
til náms og leiks. Hann er alvarlega
mál- og hreyfihamlaður en býr yfir
góðum skilningi.
Á sýningunni á laugardaginn
munu Karl og Rósa segja frá sam-
vinnu sinni klukkan 14.30.
FRAMTÍÐIN – Styrktarsjóður
aldraðra hefur afhent Dvalarheim-
ilinu Hlíð að gjöf sjúklingalyftu og
tvö sjúkrarúm með dýnum og nátt-
borðum. Framtíðin varð til eftir að
Kvenfélagið Framtíðin var lagt niður
í nóvember árið 2000 og hefur ein-
göngu verið með sölu á minning-
arkortum og jólamerkjum. Margrét
Kröyer, formaður Framtíðarinnar,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
trúlega væru þetta síðustu gjafirnar
sem Framtíðin afhenti.
„Við erum fimm í stjórninni og hef-
ur sala jólamerkja aðallega hvílt á
okkur sl. þrjú ár. Við erum orðin
gömul, það er engin endurnýjun í fé-
laginu og nú er svo komið að við
treystum okkur ekki til að standa í
sölunni lengur. Það er sárt að þurfa
að hætta útgáfu jólamerkjanna, sem
félagið hefur gefið út nær óslitið frá
árinu 1937. Margir safnarnar hafa
verið fastir áskrifendur að merkj-
unum, bæði hér heima og erlendis.“
Hugmyndina að útgáfu jólamerkja
til fjáröflunar átti danski póst-
afgreiðslumaðurinn Einar Hoböll.
Hann vann við jólapóstinn árið 1903
en fyrsta jólamerkið var gefið út ári
síðar. Margrét sagði að það hefði
orðið mikil breyting hjá póstinum,
sem væri hættur að nota frímerki í
sama mæli og áður og eins væru fyr-
irtæki hætt að senda jólapóst en
styrktu ákveðin góð málefni í stað-
inn.
Útgáfa minningarkortanna heldur
áfram og Dvalarheimilið Hlíð tekur
að sér umsjón með sölu þeirra en
ágóðinn rennur til heimilisins. Minn-
ingarkortin verða seld á sömu stöð-
um og áður, í Blómabúðinnni Akri,
Bókabúð Jónasar og í Hlíð. Margrét
vildi nota tækifærið og þakka þeim
fjölmörgu fyrirtækjum, bönkunum á
Akureyri og bæjarbúum öllum fyrir
frábæran stuðning í áratugi. Án
þessa mikla stuðnings hefði Fram-
tíðin aldrei áorkað því sem hún gerði.
Framtíðin – Styrktarsjóður aldraðra færði Dvalarheimilinu Hlíð gjafir
Síðustu gjafirnar
sem Framtíðin afhendir
Morgunblaðið/Kristján
Ný sjúkralyfta. Fulltrúar frá Dvalarheimilinu Hlíð og Framtíðinni .
BÚSETI á Akur-
eyri er nú með til
skoðunar að reisa
íbúðabyggð á svæði
austan tjarnar við
Eyjafjarðarbraut
eystri, sunnan
Leiruvegar, en ef af
verður er rætt um
að þarna gætu risið
97 íbúðir. Þá á Búseti í viðræðum
við umhverfisráð Akureyrar um
að fá byggingasvæði í Nausta-
hverfi fyrir allt að 100 íbúðir.
Hugmyndin er að félagið myndi
annast skipulagningu slíks svæð-
is, innan ramma aðalskipulags og
hönnun íbúða í samræmi við óskir
þess fólks sem þar mun búa. Ýms-
ar nýjungar eru til skoðunar í
þessu sambandi, s.s. eins og fé-
lagsaðstaða, aðstaða fyrir börn,
bílageymslur og fleira. Gert er ráð
fyrir að byggingaáfangi af þessu
tagi yrði 4–5 ár í vinnslu.
Búseti á Akureyri er 20 ára í
dag, félagið var
stofnað 27. mars
1984. Félagið á nú
og rekur 107 íbúðir,
þar af hafa 63 íbúðir
verið byggðar á
undanförnum
þremur árum. Í
byggingu eru 12
íbúðir við Stallatún
sem verða afhentar í vor og fram á
sumar. Þá er að hefjast bygging
18 íbúða við Lækjartún og verða
þær afhentar í desember næst-
komandi og fram á sumarið 2005.
Öllum þessum íbúðum hefur verið
úthlutað til félagsmanna ef undan
eru skildar örfáar sem afhentar
verða um mitt næsta ár. Félagið
hefur lánsheimildir til byggingar
á 10 íbúðum til viðbótar á næsta
ári, en ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvar þær verða.
Stefna félagsins er að byggja 20
nýjar íbúðir á ári á meðan eftir-
spurn er fyrir hendi.
Búseti á Akureyri 20 ára
Hugmynd að tæp-
lega 100 íbúða
hverfi við Leiruveg
SMS tónar og tákn