Morgunblaðið - 27.03.2004, Síða 26
SUÐURNES
26 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Það er gott að vera í Hafnarfirði
ar
gu
s
04
-0
15
3
Tilvalin gjöf til fermingarbarnsins sem vex og dafnar um ókomin ár!
• Þú velur binditímann • Hagstæð ávöxtun • Enginn kostnaður
Komdu í heimsókn – við tökum vel á móti þér!
Allir 14 ára unglingar, sem búa í Hafnarfirði,
Garðabæ og Bessastaðahreppi, fá gefins
reiknivél frá SPH.
– með ánægju!
GJAFABRÉF SPH
Strandgötu 65 • 220 Hafnarfjörður • fjorukrain.is
Hótel Víking og t veir öðruvísi
veitingastaðir
borðapantanir í síma 565 1213
Strandgötu 33 - Hafnarfirði - Sími 565 4533 - www.albatros.is
Úrval af golfvörum
til fermingargjafa
Glæsilegt úrval fermingargjafa
Pennasett og ferðatöskur á tilboði
Opið: mán - föst 09 - 18 og laug 10 - 16
Nike vörurnar
komnar
Reykjavíkurvegi 60 · 220 Hafnarfi rði
Sími 555 2887
Þú ættir að smakka
nýju ostarúlluna með
MANGÓ og JALAPENO
Ostahúsið - Strandgötu 75 - Sími: 565 3940
Nú á tilboði í Hagkaupum
NÝTT
Skóhöllin Firði, S: 555 4420
Mikið úrval
Frábær verð
Miðlun ehf
UNDIRBÚNINGUR gufuaflsvirkj-
unar á Reykjanesi gengur vel, að því
er fram kom á aðalfundi Hitaveitu
Suðurnesja hf. í gær. Vonast er til að
skrifað verði undir orkusölusamn-
inga við Norðurál hf. fyrir páska.
Ákveðið hefur verið að taka tilboði í
Fuji-hverfla fyrir virkjunina.
Til þess að ráðast í virkjun sem
þessa þarf ellefu opinber leyfi og úr-
skurði. Í tilviku Reykjanesvirkjunar
eru þessi leyfi hins vegar heldur
fleiri vegna þess að sum þarf að
sækja til tveggja sveitarfélaga. Júl-
íus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suð-
urnesja hf., sagði á aðalfundi félags-
ins í gær að flest leyfanna væru
fengin og önnur myndu skila sér í
hús næstu dagana. Endanlegt
starfsleyfi verður þó ekki gefið út
fyrr en virkjunin verður tilbúin.
Hitaveitan hefur keypt land undir
virkjunina og svæðið hefur verið
skipulagt. Þar verður byggt tæplega
3.000 fermetra orkuver og sagði Júl-
íus að helst þyrfti að vera hægt að
byrja á þeirri framkvæmd á vormán-
uðum. Framkvæmdin verður boðin
út á Evrópska efnahagssvæðinu.
Gert er ráð fyrir því að um miðjan
næsta mánuð verði unnt að senda út
forvalstilkynningu.
Jarðboranir hf. hafa borað sex há-
hitaborholur og er samið hefur verið
við fyrirtækið um borun fjögurra til
viðbótar. Er það talið nægja um-
ræddri virkjun.
Ekki hefur verið ákveðið hvort
keyptir verða tveir 40 MW hverflar í
virkjunina eða tveir 50 MW hverflar
og því ekki ljóst hvort afkastageta
vélanna verður 80 eða 100 megavött
samtals. Sex fyrirtæki sendu inn til-
boð í hverflana og ákvað stjórn fyr-
irtækisins í gær að ganga til samn-
inga við japanska fyrirtækið
Sumitomo um kaup á hverflum frá
Fuji. Kaupverð hefur verið áætlað
nálægt hálfum öðrum milljarði kr.
Þá hafa kaup á eimsvölum og gas-
sogskerfum verið boðin út. Fram
kom hjá Júlíusi að mikilvægt er að
ganga frá kaupum á öllum þessum
tækjum sem fyrst, til þess að strang-
ar tímaáætlanir standist en gang-
setja á virkjunina í byrjun maí 2006.
Skrifað undir fyrir páska
Enn hefur ekki verið gengið end-
anlega frá samningum við Norðurál
hf. sem hyggst nota rafmagnið
vegna stækkunar álversins á Grund-
artanga en Júlíus sagðist í gær von-
ast til að skrifað yrði undir fyrir
páska. Báðir aðilar stefndu ákveðið
að því.
Fram kom hjá honum á fundinum
helst hafi valdið vandræðum samn-
ingaviðræðunum væri hið nýja flutn-
ingsfyrirtæki raforku sem verið er
að koma á fót. Rifjaði hann upp
áhyggjur sínar vegna stofnunar
þessa „blessaða“ fyrirtækis, eins og
hann komst að orði og sagðist frekar
hafa vanmetið vandamálin sem af því
hlytust. „Í öllum viðræðum þarf
þetta fyrirtæki að hafa allt á hreinu
og velta allri áhættu á framleið-
endur. Engin tengsl verða við álverð
eða gengi og ýmsir þjónustuþættir
eiga að vera nánast á dagprísum eft-
ir því hvað tilboð Landsvirkjun –
orkusvið býður hverju sinni. Með því
eykst mjög áhætta framleiðenda
sem hafa þá alla ál- og gengisáhætt-
una,“ sagði Júlíus. Tók hann svo til
orða að þeir sem rækju flutningsfyr-
irtækið vildu ekki einungis vera með
belti og axlabönd í þessum við-
skipum heldur einnig klæðast sam-
festingi. Taldi hann þó að samningar
myndu nást að lokum. Hann gat þess
að miðað við þann ramma sem nú
lægi fyrir mundi flutningurinn taka
um 30% teknanna af stóriðjusamn-
ingnum en þetta hlutfall gæti bæði
hækkað og lækkað eftir aðstæðum á
gjaldeyris- og álmörkuðum.
Kostnaður við virkjunina er áætl-
aður hátt í 8 milljarðar kr. og að auki
hálfur milljarður vegna línulagn-
ingar sem tengir virkjunina við raf-
orkukerfið. Um síðustu áramót var
búið að leggja um einn milljarð í til-
raunaboranir og fleira og áætlað er
að fjárfesta fyrir 2,5 milljarða í virkj-
uninni á þessu ári. Áætlað er að 75 til
80% kostnaðarins verði tekinn að
láni en undirbúningur fjármögnunar
er vel á veg kominn. Taldi Júlíus
miklar líkur á að Norræni fjárfest-
ingarbankinn NIB kæmi með um
helming þess lánsfjár sem Hitaveit-
an þyrfti vegna verkefnisins. Þá
hefði Evrópski fjárfestingabankinn
EIB málið til skoðunar og fleiri
bankar.
Undirbúningur Hitaveitu Suðurnesja á Reykjanesvirkjun gengur vel
Gengið til samninga um
kaup á hverflum frá Fuji
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Handhafar hlutabréfa: Þeir sem fóru með atkvæðisrétt eigenda sátu á fremsta bekk á aðalfundi Hitaveitu Suð-
urnesja í gær. Hér sást fjórir þeirra, frá vinstri. Ómar Jónsson úr Grindavík, Þórir Skarphéðinsson úr við-
skiptaráðuneytinu, Gunnar Svavarsson úr Hafnarfirði og Böðvar Jónsson úr Reykjanesbæ.
ELLERT Eiríksson, fyrrverandi
bæjarstjóri í Reykjanesbæ, var
kjörinn formaður stjórnar Hita-
veitu Suður-
nesja hf. á fundi
sem nýkjörin
stjórn hélt strax
að loknum aðal-
fundi í gær. Ell-
ert tekur við af
Birni Herbert
Guðbjörnssyni
framkvæmda-
stjóra sem var
formaður á liðnu
starfsári.
Samstaða var um kjör stjórnar.
Árni Sigfússon, Björn Herbert
Guðbjörnsson og Ellert Eiríksson
eru fulltrúar Reykjanesbæjar, aðr-
ir stjórnarmenn eru Gunnar Svav-
arsson úr Hafnarfirði, Jón H.
Norðfjörð úr Sandgerði, Magnús
Gunnarsson, fulltrúi ríkisins, og
Ómar Jónsson úr Grindavík. Er
þetta óbreytt stjórn nema hvað
Jón H. Norðfjörð kom í stjórnina í
staðinn fyrir Lúðvík Bergvinsson
úr Vestmananeyjum en þessir
eignaraðilar standa saman að
stjórnarkjöri og skiptast á um að
tilnefna fulltrúa í stjórn. Þá til-
nefndi fjármálaráðherra Magnús
Gunnarsson, fyrrverandi bæjar-
stjóra í Hafnarfirði, í stjórnina.
Kemur hann í stað Óskars Þór-
mundssonar sem viðskiptaráð-
herra skipaði á síðasta ári.
Á fyrsta fundi stjórnar, sem
haldinn var strax að loknum aðal-
fundi Hitaveitunnar í gær, var Ell-
ert kosinn formaður, Ómar Jóns-
son varaformaður og Gunnar
Svavarsson ritari. Ellert var
stjórnarformaður starfstímabilið
2002 til 2003 en Björn Herbert á
nýliðnu tímabili. Með breyttri
skipan fulltrúa ríkisvaldsins hafa
valdahlutföllin í stjórninni breyst
aftur og Ellert endurheimti for-
mannssætið.
Ellert for-
maður á
nýjan leik
Ellert Eiríksson