Morgunblaðið - 27.03.2004, Page 29

Morgunblaðið - 27.03.2004, Page 29
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 29 N O N N I O G M A N N I I Y D D A / s ia .i s / N M 1 1 7 7 5 Aðalfundur Hampiðjunnar hf. Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður hald- inn í fundarsal félagsins, Bíldshöfða 9, Reykjavík, föstudaginn 2. apríl 2004 og hefst kl. 16:00. Dagskrá fundarins: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tillaga um heimild félagsins til að kaupa eigin hluti samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga. 3. Önnur mál sem löglega eru upp borin. Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðalfundi skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda, munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, Bíldshöfða 9, Reykjavík, hluthöfum til sýnis, sjö dögum fyrir aðalfund. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn en hyggjast gefa umboð verða að gera það skriflega. Stjórn Hampiðjunnar hf. Húsavík | Fyrir skömmu fengu þau sem komu að gerð geisla- disksins „Í faðmi mínum“ afhentan gulldisk í tilefni þess að 5.000 ein- tök af honum höfðu selst. Sá áfangi náðist reyndar í desember sl. og diskurinn hefur selst gott betur en það, 8000 eintök eru nú seld. Það var útgefandinn, Skúli Sævarsson, sem afhenti gulldisk- inn við athöfn á Gamla-Bauk við Húsavíkurhöfn. Það var Anna Soffía Halldórs- dóttir sem átti hugmyndina að gerð þessa geisladisks. Hún átti nokkuð safn texta í fórum sínum, texta sem hún hafði samið til minningar um ungan son sinn, Pétur Davíð Pétursson sem lést árið 1999. Hún kom að máli við þá Kristján Halldórsson og Jósep Sig- urðsson, tónlistamenn og laga- smiði, um það hvort þeir væru til í að semja lög við þessa texta með það að markmiði að koma þeim á geisladisk. Þeir tóku áskoruninni og sömdu öll lögin á disknum að frátöldu lagi sem Lára Sóley Jó- hannsdóttir samdi. Borgar Þór- arinsson var fenginn til að útsetja lögin og stjórna upptökum auk þess sem hann leikur á flest hljóð- færin. Hetjurnar, stuðningsfélag að- standenda langveikra barna á Norðurlandi, fær allan ágóða af sölu geisladisksins. Sigurlaug Sig- urðardóttir sem sæti á í stjórn fé- lagsins kom til Húsavíkur til að taka við gulldiski og þakkaði um leið fyrir ómetanlegan stuðning. Hún sagði þeirra litla félag vera orðið stórt vegna þessa frábæra framtaks Önnu Soffíu og félaga. Anna Soffía og félagar hennar ætla ekki að láta staðar numið hér, innan skamms hefjast upp- tökur á nýjum geisladiski. Á hon- um, eins og þeim fyrri, verða lög við texta Önnu Soffíu. Eins og var með fyrri diskinn „Í faðmi mínum“ munu húsvískir listamenn syngja lögin í bland við þjóðþekktari raddir. Þær raddir eiga m.a. Margrét Eir, Regína Ósk og Hera Björk og Jón Sigurðsson. Að sögn Önnu Soffíu Halldórs- dóttur mun allur ágóði af nýja disknum renna til félagsins Barna- geð. Ljósmynd/Hafþór Þau sem fengu gulldisk fyrir geisladiskinn „Í faðmi mínum“ ásamt Skúla Sævarssyniútgefanda: Fv. Skúli, Kristján Halldórsson, Anna Soffía Halldórsdóttir, Jósep Sigurðsson, Borgar Þórarinsson og Sigurlaug Sigurðardóttir frá Hetjunum. Hetjurnar, stuðningsfélag aðstandenda langveikra barna á Norðurlandi, fær ágóða af sölu disksins. Fengu gulldisk fyrir „Í faðmi mínum“ Grímsey | Sæfari, ferjan okkar Grímseyinga, kom heldur betur drekkhlaðin að bryggju í aukaferð sinni hér eitt kvöldið. Hún var stút- full af stórtækum vinnutækjum til flugvallargerðar. Á síðasta ári var hafist handa við endurbætur og end- urbyggingu flugbrautarinnar á Grímseyjarflugvelli. En það er ein- mitt þessi braut sem gerir það að verkum að íbúum hér finnast þeir á engan hátt einangraðir, því yfir vet- urinn eru þrjár fastar flugferðir í viku og í sumar verður flogið alla daga vikunnar! Brynjólfur Árnason, flugvallarvörður og sveitarstjórnar- maður, sagði að nú væru fram- kvæmdir að hefjast á ný, eftir hlé frá því í desember. Það er Borgarverk í Borgarnesi sem sér um vinnuna. Tveir Borgarverksmenn eru þeg- ar byrjaðir en fleiri bætast við síðar. Það sem gert var 2003 var að skipta um jarðveginn í flugbrautinni og byggja öryggissvæði. Í dag er komið að því að undirbúa brautina fyrir klæðingu og setja upp ný brautar- ljós. Stefnt er að því að „ný“ flug- braut verði tilbúin 30. júní. Eða eins og Brynjólfur flugvallarvörður sagði: „Aldrei meiri drulla í vorleys- ingum – bætt öryggi og grímseyskir flugfarþegar og ferðamenn ekki eins háðir veðri og vindum.“ Morgunblaðið/Helga Mattína Ný og betri flugbraut! Hólmavík | Árshátíð Grunnskólans á Hólmavík fór fram í lok síðustu viku og sóttu hana á þriðja hundr- að manns. Segja má að það hafi verið uppselt því sætin í Félags- heimilinu voru á þrotum. Grunn- skólinn stendur fyrir árshátíð nem- enda annað hvert ár og heldur síðan þemaviku hitt árið. Yngri bekkirnir flytja leik- eða söngatriði undir stjórn sinna bekkjarkennara og að þessu sinni gat að líta söng- syrpu í IDOL-stíl, leikritið um Hlina kóngsson, atriði úr Grease og söngleikinn Hljómsveitin. Auk þess söng skólakórinn nokk- ur lög undir stjórn Stefaníu Sig- urgeirsdóttur. Í hléi voru seldar kaffiveitingar á vegum foreldra- félagsins. Að því loknu var sýnt nýtt íslenskt leikverk, Þrymskviða hin nýrri eftir þær mæðgur Hrafn- hildi Guðbjörnsdóttur, kennara við skólann, og Hörpu Hlín Haralds- dóttur kennaranema. Það voru nemendur í 8.–10. bekk sem fóru með hlutverkin og gerðu auk þess sviðsmynd og veglega leikskrá fyr- ir árshátíðina. Leikstjóri í Þryms- kviðu var Kristín Sigurrós Einars- dóttir kennari og naut hún aðstoðar leikara í Leikfélagi Hólmavíkur en góð reynsla er komin á samstarf þeirra við skól- ann. Tónlistarstjóri var Bjarni Óm- ar Haraldsson tónlistarkennari sem í samstarfi við sex manna nemendahljómsveit skreytti verkið með fjölbreyttri tónlist. Árshátíðin er stærsta fjáröflun nemenda- félagsins og gat Victor Örn Vict- orsson skólastjóri þess í upphafi hátíðarinnar að hún hefði verið bú- in að borga sig áður en sýningin hófst, enda voru nemendur afar duglegir við auglýsingasölu og metaðsókn var á sýninguna. Á þriðja hundrað manns á árshátíð Grunnskólans Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Úr atriði 1. og 2. bekkjar: Fremst eru Guðmundur Ari Magnússon og Odd- ur Kári Ómarsson. Á bak við þá má sjá Stellu Guðrúnu Jóhannsdóttur og Brynju Karen Daníelsdóttur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.