Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 30
LANDIÐ
30 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hvolsvöllur | Mikið líf hefur færst í
skákiðkun ungmenna á Suðurlandi
eins og annars staðar á landinu. Blásið
hefur verið lífi í mót og keppnir sem
hafa legið í dvala einhver undanfarin
ár. M.a. var sveitakeppni Skákfélags
Selfoss og nágrennis haldið á Hvols-
velli sl. föstudag. Mættu 14 sveitir til
leiks, 3 í eldri flokki og 11 í yngri
flokki, frá 8 skólum á Suðurlandi. Alls
voru keppendur 63. Keppnin fór vel
fram og var mjög jöfn. Urðu sigurveg-
arar í eldri flokki Vallaskóli á Selfossi
með 10 og ½ vinning og í yngri flokki
sigraði Barnaskóli Vestmannaeyja, A-
sveit, með 20 og ½ vinning.
Mikið líf í
skákinni
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Keppendur fyrir utan Hvolsskóla: Glaðbeittir að lokinni drengilegri og jafnri keppni.
Djúpivogur | Óróleika hefur gætt í
atvinnulífinu á Djúpavogi frá því að
upplýst var um kaup Eignarhalds-
félagsins Kers hf. á sjávarútvegsfyr-
irtækinu Festi á Djúpavogi.
Björn Hafþór Guðmundsson sveit-
arstjóri birtir á vef sveitarfélagsins
fréttatilkynningu, þar sem hörmuð
er núverandi staða í atvinnulífinu
vegna sölunnar og sagt að frétta-
flutningur og fleiri þættir hafi skap-
að spennu og umfram allt óvissu-
ástand hjá fjölmörgum íbúum
byggðarlagsins.
Höfum ekki rétta sambandið
„Í dag er málum þannig háttað að
sveitarstjórnir hafa mjög takmark-
aða möguleika á að hafa afskipti af
eignayfirfærslum milli fyrirtækja á
hinum „almenna markaði“ og við hér
á Djúpavogi höfum greinilega ekki
rétta sambandið. Þetta hefur einmitt
komið sterklega í ljós í viðleitni
sveitarstjórnar Djúpavogshrepps á
síðustu vikum, þegar hún hefur
reynt að komast að borðinu þar sem
höndlað er með þær eignir og afla-
heimildir sem nú virðast í uppnámi
hér á Djúpavogi,“ segir m.a. í til-
kynningunni.
Bíða ennþá svars
Björn Hafþór segir liggja fyrir að
sveitarstjórn hafi sent Keri erindi,
þar sem lýst var vilja til samninga-
viðræðna um stærstan hluta eigna
og aflaheimilda Festar. Var Vísir hf.
nefnt þar til sögunnar sem bakhjarl
sveitarstjórnar í slíkum viðræðum,
enda er Vísir með umtalsverða starf-
semi á Djúpavogi. Ekki hafi borist
svar við erindinu.
„Ekki liggur heldur fyrir ákvörð-
un forsvarsmanna Vísis hf. um um-
svif fyrirtækisins hér í framtíðinni.
Þau kunna að sjálfsögðu að ráðast af
málalyktum, en þó miklu fremur af
möguleikum fyrirtækisins að stunda
hér áfram vinnslu síldar af jafn mikl-
um þrótti og til þessa og eiga þess
jafnframt kost að losna við síldarúr-
gang á svipaðan hátt og verið hefur.“
Hægt er að skoða tilkynninguna í
heild sinni á vefnum www.djupivog-
ur.is.
Djúpa-
vogsbúar
beðnir um
að halda
ró sinni
Hafa ekki gefið eignir Festar upp á
bátinn: Sveitarstjórn Djúpavogs
bíður svars frá Keri.