Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 32
LISTIR 32 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Í ÖLLUM sölum Listasafns Íslands er að hefjast sýning sem veitir yf- irlit yfir þau margvíslegu viðfangs- efni sem íslenskir listamenn feng- ust við fyrstu þrjá áratugi 20. aldar bæði í málara- og höggmyndalist. Sýningin verður opnuð kl. 15 í dag og nefnist Íslensk myndlist 1900– 1930. Landslag, þjóðsögur, manna- myndir, goðsögur og uppstillingar voru allt áleitin myndefni á þessu tímabili. Fyrstu þrír áratugir 20. aldar voru umbrotatímar í íslensku samfélagi. Íslendingar fengu heimastjórn árið 1904 og fullveldi frá danska konunginum árið 1918. Íslenskt bæjarsamfélag tók örum breytingum á þessum tíma og menningarsamfélagið einnig. Fyrstu íslensku listmálararnir komu heim eftir nám í Danmörku í byrjun aldarinnar og hófu að sýna verk sín. Mikilvægi þess að skapa sjálfsímynd þjóðar sem laut yf- irráðum erlends ríkis kemur fram á þessum tíma og það var ekki síst með myndefni málaranna og með yrkisefni skáldanna sem þjóðin var vakin til vitundar um þjóð- areinkenni og þann fjársjóð sem Ís- lendingur áttu í náttúru sinni og sögu. Á sýningunni verða um 100 verk eftir 26 listamenn. Verkin eru úr eigu Listasafnsins, annarra safna eða fengin að láni úr einkaeigu. Sýningin hefur að leiðarljósi að sýna þau mismunandi viðfangsefni sem listamennirnir fengust við á þessum tíma og skoða þá öru þróun sem verður í myndmáli málara og myndhöggvara á fyrstu áratugum 20. aldar. Sýningin stendur til 2. maí. Snæfell. Freymóður Jóhannsson, 1926. Eitt verkanna á sýningunni í Listasafni Íslands sem opnuð verður í dag. Verk tuttugu og sex listamanna á umbrotatímum UNGUR píanóleikari frá Síberíu, Denis Matsu- ev, vakti gríðarlega hrifningu fyrir þremur árum þegar hann kom fram með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands. Þá var þriðji píanókonsert Rakhmanínovs á efnisskránni og var leikur Matsuevs svo glæsilegur að maður féll í stafi. Eftirvæntingin var því mikil í Háskólabíói á tónleikum Sinfóníunnar síðastliðið fimmtudagskvöld, Matsuev var kominn aftur og á dagskránni hvorki meira né minna en fyrsti píanó- konsert Tsjajkovskís, eitt vinsælasta tónverk sög- unnar. Matsuev vann gullverðlaunin í Tsjajkovskí- keppninni árið 1998 (ekki fyrir tveimur árum eins og stóð í tónleikaskránni), en fyrir þá sem ekki vita er keppnin, sem haldin er reglulega í Moskvu, ein sú virtasta í tónlistarheiminum. Fyrsta keppnin var haldin árið 1958 og síðan þá hafa nokkrir píanóleik- arar hafið feril sinn þar, t.d. sjálfur Ashkenazy. Matsuev er því enginn aukvisi og óhætt er að full- yrða að aðdáendur hans hafi ekki orðið fyrir von- brigðum á fimmtudagskvöldið. Túlkun hans var þrungin fítonskrafti án nokkurrar tæknilegrar fyr- irstöðu; erfiðustu áttundahlaup og önnur áhættu- atriði léku í höndum hans og voru mögnuðustu kafl- arnir svo áhrifamiklir að maður leitaði ósjálfrátt að sætisólum til að spenna sig fastan. Flugeldasýningin var tempruð með mýkri köfl- um sem Matsuev gerði prýðileg skil; innhverf byrj- unin á hæga kaflanum var í senn blátt áfram og skáldleg, án þess að eðlislægur sætleiki tónlistar- innar væri yfirdrifinn. Er ekki annað hægt að segja en að þetta hafi verið frábær píanóleikur. Hljómsveitin spilaði nánast alltaf af öryggi, stjórnandinn, Arvo Volmer, var greinilega með sitt á hreinu því einleikarinn og allir hinir hljóðfæra- leikararnir voru ávallt samtaka. Margt í hljómsveit- arleiknum rann fallega saman við rödd píanósins, t.d. var flautusóló Hallfríðar Ólafsdóttur einkar vel heppnað. Strengjaleikararnir voru sömuleiðis í góðu formi þó strengjaplokkið á undan flautusól- óinu hefði mátt vera nákvæmara. Sellóleikararnir áttu stundum erfitt í öðrum verkum efnisskrárinnar, Hátíðarforleik op. 96 eftir Sjostakovítsj og Petrúsku eftir Stravinskí. Auð- heyrt var að á köflum voru þeir ekki alveg að spila sömu nóturnar og var samhljómurinn falskur. Sem betur fer gerðist það ekki oft. Hátíðarforleikur Sjostakovítsj er óttalega lítil- fjörlegur miðað við margt annað sem hann samdi, en balletverkið Petrúska er ódauðlegt snilldarverk. Fyrir utan ónákvæmni sellóleikaranna var frammi- staða Sinfóníunnar til fyrirmyndar, túlkunin undir stjórn Volmers var litrík og lífleg og margir hljóð- færaleikararnir áttu glæsta spretti. Fiðlurnar voru í heild pottþéttar, píanóleikur Guðríðar Sigurðar- dóttur var hnitmiðaður; sömu sögu er að segja um trompetleik Eiríks Arnar Pálssonar og klarinettu- leik Einars Jóhannessonar. Í stuttu máli voru þetta skemmtilegir tónleikar þar sem Matsuev var toppurinn; megi hann koma hingað aftur og aftur. Tsjajkovskí sprengdur „Voru mögnuðustu kaflarnir svo áhrifamiklir að maður leitaði ósjálfrátt að sætisólum til að spenna sig fastan,“ segir Jónas Sen meðal ann- ars í umsögninni um píanóleik Denis Matsuevs. TÓNLIST Háskólabíó Sjostakovítsj: Hátíðarforleikur op. 96; Tsjajkovskí: Pí- anókonsert nr. 1; Stravinskí: Petrúska. Einleikari: Denis Matsuev; stjórnandi: Arvo Volmer. Fimmtudagur 25. mars. SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Jónas Sen Kling & Bang, Laugavegi 23 Sýningu Eirúnar Sigurðardóttur lýkur á sunnudag. Á sýningunni, „Sundur – Saman“, hefur Eirún flutt til landsins ritarafugl. Opið fimmtudag til sunnudags kl. 14–18. Sýningu lýkur VERKEFNIÐ Handverk og hönn- un er tíu ára um þessar mundir og verður opnuð sýning í sýning- arsalnum, Aðalstræti 12, kl. 16 í dag, laugardag. Á sýningunni er bæði hefðbundinn listiðnaður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni, verk tuttugu og þriggja listamanna. Sýningin verður síðan sett upp á nokkrum stöðum á landinu. Fyrst í Listasafni Árnesinga, Hveragerði í maí. Næsti viðkomustaður verður Norska húsið í Stykkishólmi. Ferða- lagið mun síðan halda áfram og fer sýningin til Ísafjarðar, Akureyrar, að Skriðuklaustri, í Reykjanesbæ og til Hafnar í Hornafirði. Verkin á sýninguna voru valin af nefndinni sem skipuð var Aðalsteini Ingólfssyni listfræðingi, Eyjólfi Pálssyni hönnuði og Guðnýju Magn- úsdóttur leirlistamanni. Sýningin stendur til 25. apríl. Opið alla daga, nema mánudaga, kl. 13– 17. Þetta verk eftir Margréti Jónsdótt- ur er meðal verka á afmælissýningu Handverks og hönnunar. Listiðnaður og hönnun á afmælis- sýningu ♦♦♦ SKÓLAKÓR Kársness og Tónmenntarkennarafélag Íslands standa fyrir söng- viku barnakóra, „Europa Cantat Junior“, dagana 12.– 18. júlí nk. í Kársnesskóla og Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs. Europa Cantat eru ein stærstu kórasamtök í heiminum og standa árlega fyrir ýmsum kóramótum og námskeiðum í samvinnu við ýmis kórasamtök víðs vegar um Evrópu. „Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 300 erlend ungmenni og 100 íslensk,“ segir Þórunn Björnsdóttir stjórnandi Skólakórs Kárs- ness. „Við fengum mun betri viðtökur erlendis frá en við höfðum gert ráð fyrir og þurftum því að neita nokkr- um kórum um þátttöku. Það koma tveir kórar frá Spáni, tveir frá Þýskalandi, einn frá Hollandi, einn frá Frakk- landi, einn frá Rúmeníu og einn frá Kína. Krökkunum, sem eru á aldrinum 12–18 ára, verður skipt í fimm vinnuhópa, „ateliers“, sem munu æfa mjög fallega, skemmtilega og forvitnilega tónlist undir stjórn frábærra barnakórastjórnenda.“ Fimm hópar verða í boði og verða jafnmargir stjórn- endur. Fyrst ber að nefna námskeið fyrir lítt reynda kórsöngvara, stjórnandi er Arthur Robson frá Eng- landi, þjóðlög og lög eftir norræn tónskáld undir stjórn Jóns Stefánssonar, söngvar frá Austur-Evrópu, stjórnandi er Gabriella Thész frá Ungverjaland, söngvar frá Nýfundnalandi og Kanada, stjórnandi er Susan Knight, og námskeið fyrir reynda kórsöngvara undir stjórn Michaels Gohl frá Sviss. Söngvika barnakóra í Kópavogi Morgunblaðið/Ásdís Í júlí næstkomandi býðst barnakórum á öllum stigum færi á að efla sig og styrkja á söngviku barnakóra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.