Morgunblaðið - 27.03.2004, Page 34
LISTIR
34 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Næsta v ika menning@mbl.is
Laugardagur
Neskirkja kl. 14 Hljómsveit Tón-
listarskólans í Reykjavík flytur
Stúlkuna frá Arlés, Svítu nr. 2 í út-
setningu Fritz Hoffmann eftir
Georges Bizet, Konsert fyrir fagott
og hljómsveit í F-dúr op. 75 eftir
Carl Maria von Weber. Einleikari á
fagott er Sigríður Kristjánsdóttir.
Lokaverkið er sinfónía í h-moll
(ófullgerða sinfónían) D 759 eftir
Franz Schubert. Stjórnandi er
Gunnsteinn Ólafsson.
Gerðarsafn kl. 14 Sýning á verk-
um Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar,
JBK Ransu og Guðrúnar Veru
Hjartardóttur. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11–17.
Listasafn Íslands kl. 15 Sýningin
Íslensk myndlist 1900–1930 verður
opnuð í öllum sölum safnsins.
Borgarleikhúsið kl. 15.15 Caput
flytur verk eftir Svein Lúðvík
Björnsson: Egophonic I–V fyrir ein-
leikshljóðfæri og tónband II–V kafl-
inn er frumfluttur. Flytjendur eru
Eydís Franzdóttir, óbó, Guðni
Franzson, klarinett, Kolbeinn
Bjarnason, flauta, Pétur Jónasson,
gítar, og Sigurður Halldórsson,
selló.
Langholtskirkja kl. 17 Söngsveit-
in Fílharmonía og hljómsveit flytja
tvö kórverk, Dixit Dominus eftir G.
F. Handel og Pákumessu eftir J.
Haydn. P. Einsöngvarar eru Hlín
Pétursdóttir sópran, Xu Wen sópr-
an, Sesselja Kristjánsdóttir mezzo-
sópran, Eyjólfur Eyjólfsson tenór og
Davíð Ólafsson bassi. Stjórnandi er
Óliver Kentish.
Hátíðarsalur Frímúrarareglunn-
ar, Skúlagötu 55, kl. 17 Frímúrara-
kórinn flytur m.a. þekkt lög úr söng-
leikjum og kvikmyndum auk
hefðbundinna karlakórslaga. Ein-
söngvarar eru Jóhann Sigurðarson,
Friðbjörn G. Jónsson og Eiríkur
Hreinn Helgason. Jónas Þórir Þór-
isson og Hjörleifur Valsson leika á
píanó og fiðlu. Stjórnandi er Jón
Kristinn Cortez.
Hveragerðiskirkja kl. 17 Karla-
kórinn Heimir úr Skagafirði heldur
tónleika undir stjórn Stefáns R.
Gíslasonar. Undirleikari er Thomas
R. Higgerson og einsöngvarar eru
Margrét S. Stefánsdóttir og Sigfús
Pétursson.
Thorvaldsen bar við Austurvöll,
kl. 17 Ólöf Björg Björnsdóttir opnar
sýninguna „Næturgalin(n) í morg-
unkyrrðinni“. Ólöf Björg er útskrif-
uð með BA-gráðu frá LHÍ. Einnig
hefur hún stundað nám á Spáni og
numið hjá kóreskum meistara í mál-
aralist. Hún hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga, m.a. á Kjarvalsstöðum
og Art Hobler í Porto, Portúgal, og
haldið nokkrar einkasýningar. Sýn-
ingin stendur til 7. maí.
Sögufélag í Fischersundi kl.
17.15 Vigfús Geirdal sagnfræðingur
flytur fyrirlestur á fundi Sagnfræð-
ingafélags Íslands. Erindið nefnist
„Saga Vestur-Íslendinga: Safn til
sögu Íslands eða innlegg í fjölmenn-
ingarsögu Vesturheims?“ Umræður
að fyrirlestri loknum.
Vigfús er sjálfstætt starfandi
fræðimaður í ReykjavíkurAkademí-
unni og hefur m.a. fengist við rann-
sóknir á sögu Vestur-Íslendinga.
Allir eru velkomnir.
Gallerí Tukt, Hinu húsinu Nú
stendur yfir sýning listnema á tillög-
um að veggspjaldi Unglistar 2004.
Nemarnir eru á fyrsta ári í grafískri
hönnun við Listaháskóla Íslands.
Ein af tillögunum verður síðan valin
til að vera veggspjald unglistar 2004
sem haldin verður í nóvember. Sýn-
ingin stendur til 29. apríl.
Sunnudagur
Ýmir kl. 14 og kl. 17 Karlakór
Reykjavíkur, eldri kór, og Karlakór-
inn Heimir. Stjórnandi er Kjartan
Sigurjónsson.
Þjóðmenningarhús kl. 14 Dag-
skrá um skáld mánaðarins. Þórunn
Valdimarsdóttir sagnfræðingur og
rithöfundur segir frá Matthíasi
Jochumssyni ungum en hún hefur
unnið að ævisögu Matthíasar um
nokkurt skeið. Ólafur Kjartan Sig-
urðarson syngur lög við ljóð alda-
mótaskálda við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar. Skáld mánaðar-
ins eru að þessu sinni fjögur, Matt-
hías Jochumsson, Theodóra Thor-
oddsen, Steingrímur Thorsteinsson
og Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum. Í
bókasal stendur yfir sýning á verk-
um þeirra. Aðgangur er ókeypis.
Hafnarborg kl. 14 og 16 Ragn-
heiður Gestsdóttir les úr barnabók-
um í tilefni af sýningu sinni sem nú
stendur yfir í Hafnarborg. Þar sýnir
hún frumgerðir myndlýsinga úr
barnabókum.
Gunnarsstofnun, Skriðuklaustri
kl. 14.30 Einar Már Guðmundsson
les úr verkum sínum og fjallar um
hugðarefni sín. Auk þess mun
franska listakonan Anne Pesce sýna
vídeóverk sem hún hefur unnið síð-
ustu vikur í gestaíbúðinni í Klaustr-
inu. Listaverk í eigu Gunnarsstofn-
unar eru til sýnis, einnig nokkrir
munir frá Þjóðminjasafni Íslands.
Verk eftir Anne Pesce verða jafn-
framt til sýnis í galleríi Klaustri.
Hallgrímskirkja kl. 16 Magnificat
eftir Bach og Buxtehude, og kant-
atan Önd mín miklar Drottin eftir
Bach. Hátíðar-
tónleikar í tilefni
af boðunardegi
Maríu. Flytjend-
ur eru Mótettu-
kór Hallgríms-
kirkju,
Kammersveit
Hallgrímskirkju,
Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir
mezzósópran,
Magnús Baldvins-
son bassi, Marta Guðrún Halldórs-
dóttir sópran og Gunnar Guðbjörns-
son tenór. Stjórnandi Hörður
Áskelsson.
Neskirkja kl. 17 Borgarkórinn
syngur íslensk og erlend sönglög,
kirkjuleg verk og veraldleg frá ýms-
um tímum tónlistarsögunnar. Ein-
söngvari með kórnum er Þórunn
Guðmundsdóttir sópransöngkona. Á
flygilinn leikur
Ólafur Vignir Al-
bertsson. Stjórn-
andi er Sigvaldi
Snær Kaldalóns.
Salurinn kl. 20
Miklós Dalmay
flytur ungverska
píanótónlist:
Chapelle de Guill-
aume Tell, Les
cloches de Gen-
éve, Le mal du pays, Eglogue og
Vallée d’Obermann eftir Franz
Liszt, Leikir I og II (Játékok) eftir
György Kurtág og Suite op. 14 og
Allegro barbaro eftir Béla Bartók.
Hafnarborg kl. 20 Tríó Reykja-
víkur frumflytur verk eftir Gerald
M. Shapiro, Piano Trio #2, sem er
sérstaklega samið fyrir tríóið. Gestir
þeirra á tónleikunum eru fiðluleik-
arinn Almita Vamos og víóluleikar-
inn Roland Vamos.
Hótel Borg kl. 21 Jónsson/Grön-
dal-kvintett leikur á tónleikum Jazz-
klúbbsins Múlans. Fluttur verður ís-
lenskur nútímadjass. Kvintettinn
skipa Haukur Gröndal, Ólafur Jóns-
son, Agnar Már Magnússon, Morten
Lundsby og Erik Qvick.
Borgarleikhúsið kl. 21 Leikhóp-
urinn á Senunni frumsýnir kabarett-
inn Paris at night á Litla sviðinu.
Kabarettinn er byggður á ljóðum
eftir Jacques Prévert sem Sigurður
Pálsson hefur þýtt. Jóhanna Vigdís
Arnardóttir og Felix Bergsson eru
tvö á sviðinu með þriggja manna
hljómsveit undir stjórn Karls Ol-
geirssonar. Leikstjóri er Kolbrún
Halldórsdóttir.
Mánudagur
Listaháskóli Íslands Laugarnes-
vegi 91, kl.12.30 Bryndís Snæ-
björnsdóttir myndlistarmaður
fjallar um eigin verk. Bryndís er
prófessor við Valand-listaháskólann
í Gautaborg en býr í Englandi.
Ráðhús Reykjavíkur kl. 20 Stór-
sveit Reykjavíkur heldur tónleika í
tilefni af 60 ára afmæli Þóris Bald-
urssonar. Þórir
verður stjórn-
andi, útsetjari og
einleikari með
sveitinni en tón-
leikarnir eru
haldnir á afmælis-
daginn sjálfan.
Auk þess koma
við sögu Savanna-
tríóið, Hljómar
frá Keflavík, Björgvin Halldórsson
og Andrea Gylfadóttir.
Salurinn kl. 20 Ungverjarnir
Barnabás Kele-
men fiðluleikari
og Gergely Bog-
ányi píanóleikari
flytja Sónötu í c-
moll fyrir fiðlu og
píanó eftir
Beethoven, Sóló-
sónötu fyrir fiðlu
eftir Bartók, Són-
ötu í d-moll eftir
Brahms og Rapsódíu
nr. 2 eftir Bartók. Þeir eiga báðir
glæstan feril að baki og koma við í
Salnum á leið sinni til tónleikahalds í
Carnegie Hall í New York.
Þriðjudagur
Listasafn Íslands kl. 12.10–12.40
Rakel Pétursdóttir deildarstjóri
fræðsludeildar verður með leiðsögn
um sýninguna Íslensk myndlist
1900–1930.
Íslenska óperan kl. 12.15 Buxna-
meyjar og blómasendlar er yfirskrift
hádegistónleikanna. Flutt verða at-
riði úr óperunni Rósariddaranum
eftir Richard Strauss, tengd saman
með sönglögum Strauss. Söngvarar
eru Hulda Björk Garðarsdóttir sópr-
an, Sesselja Kristjánsdóttir mezzó-
sópran, Garðar Thór Cortes tenór,
Ólafur Kjartan Sigurðarson baríton
og Davíð Ólafsson bassi. Kurt Kop-
ecky leikur á píanó.
Salurinn kl. 20 Hátíðatónleikar í
tilefni 40 ára afmælis Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar.
Langholtskirkja kl. 20 Söngsveit-
in Fílharmonía, einsöngvarar og
hljómsveit flytja Dixit Dominus eftir
G. F. Handel og Pákumessu eftir J.
Haydn.
Goethe-Zentrum, Laugavegi 18,
kl. 20 Holly-Jane Rahlens les upp úr
bók sinni „Prinz William, Maximilian
Minsky und ich“. Fyrir bókina
hreppti hún Þýsku unglingabóka-
verðlaunin árið 2003.
Miðvikudagur
Langholtskirkja kl. 20 Vox aca-
demica og Háskólakórinn halda tón-
leika ásamt hljómsveitinni Jón Leifs
Camerata. Einsöngvari er hinn ell-
efu ára gamli Ísak Ríkharðsson.
Flutt verður Night eftir Báru Gríms-
dóttur, Christ Lag in Todes Banden
eftir Johann Sebastian Bach og
Chichester Psalms eftir Leonard
Bernstein. Hljómsveitina skipa 30
hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands. Stjórnandi er Hákon
Leifsson.
Loftkastalinn kl. 20 Vortónleikar
Lúðrasveitarinnar Svans. Stjórn-
andi er Rúnar Óskarsson. Nú um
stundir hefur sveitin spilað í leikrit-
inu Meistarinn og Margaríta sem
sýnt er í Hafnafjarðaleikhúsinu.
Salurinn kl. 20 Tónskóli Sigur-
sveins D. Kristinssonar heldur há-
tíðatónleika á 40 ára afmæli skólans.
Fimmtudagur
Langholts-
kirkja kl. 20
Karlakórinn
Stefnir flytur
kunn íslensk og
erlend sönglög.
Frumflutt verða
tvö lög eftir Atla
Guðlaugsson
söngstjóra, „Út-
reiðatúr“ við
texta eftir formann
kórsins, Hörð Björgvinsson, og „Svo
mælti sumarnóttin“, við ljóð Sverris
Pálssonar. Einsöngvari er Elín Ósk
Óskarsdóttir. Undirleikari er Sig-
urður Marteinsson.
Elín Ósk
Óskarsdóttir
Magnús
Baldvinsson
Barnabás
Kelemen
Þórunn
Guðmundsdóttir
Þórir Baldursson
Morgunblaðið/Golli
Kjartan Sigurjónsson heldur hér um tónsprotann á æfingu Eldri félaga Karlakórs Reykjavíkur.
Eldri félagar KarlakórsReykjavíkur og Karla-kórinn Heimir í Skaga-firði halda sameig-
inlegar söngskemmtanir í Ými við
Skógarhlíð á sunnudag, kl. 14 og
kl. 17. Söngstjóri eldri félaga er
Kjartan Sigurjónsson. Einsöngvari
er Eiríkur Hreinn Helgason og
undirleik annast Bjarni Þ. Jón-
atansson. Söngstjóri Karlakórsins
Heimis er Stefán R. Gíslason, ein-
söngvarar eru
Margrét Stef-
ánsdóttir og Sigfús
Pétursson en und-
irleikari Thomas R.
Higgerson.
Fyrir ári voru eldri félagar
Karlakórs Reykjavíkur gestir
Karlakórsins Heimis í Skagafirði
og héldu með þeim tónleika í Mið-
garði. Að hætti góðra gesta endur-
gjalda þeir heimsóknina og bjóða
nú Heimismönnum í tónleikasalinn
sinn í Ými við Skógarhlíð. „Við
syngjum hálfa tónleika og gestir
okkar hálfa,“ segir Kjartan „og
saman syngjum við tvö lög.“
Kjartan hefur stjórnað Eldri kór
Karlakórs Reykjavíkur á annan
áratug og þekkir söngmenn flesta
vel. „Það er lítið um kornunga
menn í okkar röðum en kórinn er
þannig til komin að eldri félögum
úr Karlakórnum þótti of mikið að
mæta á æfingar tvisvar í viku og
vildu minnka við sig án þess að
klippa á söngtaugina. Þá var gripið
til þess ráðs að stofna þennan kór
eldri félaga og hann hefur starfað
með miklum blóma allt frá upp-
hafi. Nú hefur hann á að skipa 50
söngvönum mönnum.“
Þegar Kjartan er spurður að því
hvort stemning í karlakórum sé
svipuð og þekkist í hópíþróttum,
svarar hann því til að svo geti vel
verið. „Félagslífið í kórnum er af-
spyrnugott en það er söngurinn
sem sameinar fyrst og fremst. Til-
fellið er að menn loka sig frá dags-
ins önn í ljúfum söng og lyfta sér í
hæðir. Það má t.d. sjá á því hversu
vel menn mæta á æfingar. Einu
sinni í viku æfum við og það er yfir
90% mæting. Við höfum náð býsna
góðum árangri á hinum ang-
urværa væng söngsins en erum þó
engar liðleskjur þegar kemur að
hressilegum söng, það er nauðsyn-
legt að rífa vel í öðru hvoru. Á tón-
leikum hef ég oft þann háttinn á að
spjalla við áheyrendur á léttum
nótum og reyni að ná til þeirra í
gegnum húmorinn. Það brýtur nið-
ur vegg milli flytjenda og áheyr-
enda ef hlátur er með í för. Söng-
urinn verður líka léttari og allt fær
á sig bjartan sólskinsblæ. En ég hef
þó ekki gefið mig út fyrir að vera
atvinnuhúmoristi,“ segir Kjartan
hressilega.
Það sem sjaldan heyrist
„Við byrjun vanalega æfingar í
október og erum oftast út apríl, þá
er hápunktinum náð,“ segir Kjart-
an þegar hann er spurður um
starfsárið. „Við reynum fyrir okk-
ur með efnisskrána á æfinga-
tímabilinu, hendum út því sem ekki
syngst vel og hlúum að öðru. En í
aðalatriðum erum við með hefð-
bundin karlakóralög, en flytjum
gjarnan það sem sjaldan heyrist. Á
tónleikunum nú flytjum við t.d. lög
sem ég hef raddsett sjálfur. Nú svo
flytjum við alveg yndislegt lag eftir
Pálmar Eyjólfsson sem ekki hefur
mikið heyrst. Lagið er við ljóð
Hannesar Hafsteins og heitir Sjó-
mannasöngur. Svo flytjum við Her-
mannakórinn úr Faust eftir Gou-
nod, það er mjög hressilegt lag og
gaman að flytja það.“
Kjartan segir vetrardagskránni
ekki alveg lokið með þessum tón-
leikum, því kórinn klykkir út með
söngferðalagi. „Við högum okkur
að hætti farfuglanna og leggjum í
söngferðalag 17. apríl. Lendum á
Snæfellsnesinu og höldum tónleika
á Hellissandi og í Stykkishólmi.“
Á angurværum væng
STIKLA
Kórtónleikar
í Ými
helgag@mbl.is