Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 36
Á HVERJU sumri koma nokkur hundruð manns frá u.þ.b. 25 löndum til Oxford til að sækja nám við Christ Church-háskólann. Meðal þeirra eru amerískir forstjórar, hundabúseigendur frá Suður- Afríku, danskir kvensjúkdómalækn- ar og brasilískar húsmæður á aldr- inum 22 til 92 ára. Fyrst var boðið upp á sumarnám- skeið við Christ Church árið 1990 og er hægt að velja um 50 vikunám- skeið sem haldin eru á sex vikna tímabili í júlí og ágúst. Boðið er upp á nám í heimspeki, kvikmyndum, bókmenntum Jane Austen og J.R.R Tolkiens, miðaldaklaustrum, bresk- um görðum og morðsögum með sögusviðið í sjálfri Oxford svo eitt- hvað sé nefnt. Kennarar eru ýmist frá Oxford eða öðrum háskólum, sem og leiðbeinendur sem valdir eru vegna sérfræðiþekkingar sinnar. Nemendur gista í herbergjum sem mörg hver hafa sameiginlegar setustofur og deila baðherbergjum einnig með öðrum, en einnig er hægt að fá stærri herbergi með sér bað- herbergi. Nokkuð er um að sömu nemendurnir komi ár eftir ár og sum námskeiðin fyllast fljótt. Sumarnámskeiðin ganga undir nafninu „The Oxford Experience“, og eru haldin á tímabilinu 4. júlí til 14. ágúst og er boðið upp á 10 nám- skeið í hverri viku. Aðeins 12 nem- endur eru á hverju námskeiði. Hægt er að sækja um fram í miðjan maí, en lengur um þau námskeið sem ekki eru orðin fullbókuð þá. Kostn- aður fyrir vikunámskeið nemur 615 pundum fyrir íbúa Evrópusam- bandsins en 855 pund fyrir nem- endur utan þess. Í gjaldinu er inni- falin kennsla, húsnæði og fullt fæði. Skoðunarferðir þarf að greiða fyrir aukalega og eins ef viðkomandi vill herbergi með sér baðherbergi.  OXFORD | Fjölbreyttir námsmöguleikar í sumarleyfinu Lært á lífið á sumarnámskeiði Program admin. the Oxford Ex- perience, University of Oxford, Dept. for Continuing Education, 1 Wellington Square, Oxford OX1 2JA, U.K. Sími: (44-1865) 280-350, fax (44-1865) 270-314. Veffang: www.conted.ox.ac.uk/ international-programmes/ OxfordExperience.htm. Netfang: ipoxexp@conted.ox- .ac.uk; Morgunblaðið/Ómar Christ Church: Matsalur skólans. FERÐALÖG 36 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ SÍÐASTA sumar lagði Söngfjelag eldri borgara í Reykjavík upp í ferð til Finnlands, Rússlands og Eist- lands. Í hópnum voru 54 einstaklingar. Þorsteinn Magnússon var far- arstjóri, Kristín Sæunn Pjet- ursdóttir er stjórnandi kórsins og meðleikari er Hólmfríður Sigurð- ardóttir píanóleikari. Blaðamaður hitti hópinn á Grand Hótel þegar ferðin var rifjuð upp og myndir skoð- aðar. „Ferðin var frábær, hún krafðist mikils undirbúnings og vinnu við æf- ingar, en það stóðu sig allir ótrúlega vel,“ sagði Kristín sem hefur stjórn- að kórnum frá árinu 1987 en Söngfje- lagið var stofnað árið 1986. „Við vor- um með stíft prógram, fulla efnisskrá og frábæran einsöngvara, Þorstein Bjarnar bariton,“ sagði hún. „Ég hef bjargfasta trú á gildi markvissrar tónlistariðkunar eldra fólks, hún þjálfar m.a. hugann og styrkir minnið.“ Margir virtust sam- mála um að það hafi verið magnað að fara til Pétursborgar í Rúss- landi og mikil reynsla að syngja þar. Kletts- kirkjan í Helsinki var einnig mjög minnis- stæð. Nokkrir nefndu að stríðsminjasafnið í Tallin hefði verið áhrifamikið. Hápunktar ferðarinnar Elfa Thoroddsen fór með í ferðina og segist hafa verið í „klappliðinu“. Henni þótti ferðin frábær, Pétursborg eft- irminnilegust. Bjarni Bragi Jónsson hagfræðingur sagði að ferðin hafi heppnast einstaklega vel og verið viðburður sem ætti eftir að lifa áfram með honum. Hann nefndi Borgå og Klettskirkjuna en þangað kom fjöldi áheyrenda, meðal annarra félagar úr Söngfélagi sænskumælandi Finna og félagar úr samtökum eldri borgara. „Það risti djúpt að hitta Eistana, en land þeirra er sorgmóðugt land,“ sagði hann. Eins og menn muna voru Finnar allra þjóða höfðinglegastir þegar gaus í Vestmannaeyjum og gáfu hingað mörg hús. Því þótti viðeigandi að færa Finnum hraungrýti úr gos- inu og var hraunmolum raðað á borð í anddyri kirkjunnar og tónleikagest- um boðið að taka sér mola heim. Jón Baldvin Hannibalsson sendiherra tók að sér að koma afgangi hraunsins til skólabarna í Finnlandi. Páll Sigurðsson, fyrrv. ráðuneyt- isstjóri, var sérlega hrifinn af Péturs- borg og Tallin. Hann sagði að ekkert hefði klikkað í ferðinni nema rúturnar í Rúss- landi sem voru ótrúlega lélegar. Elías Valgeirsson rafvirki er elsti kór- félaginn, 92 ára gamall. Hann sagði að í hópn- um hafi verið líkt og all- ir væru á sama aldri. „Aldurinn var auka- atriði,“ sagði hann og að ferðin hafi verið ein- staklega góð, „gott veð- ur og góð fararstjórn, gott skipulag,“ sagði hann. Bryndís Víglunds- dóttir, sem tók þátt í því að skipuleggja, ferðina nefnir minn- isstæð atvik úr ferðinni. Á áttunda degi í Pétursborg var slagveður, rok og rigning. Lagt var í skoðunarferð um borgina kl. 8.30. Í borginni eru 120 söfn, fjöldi háskóla, óperuhúsa og leikhúsa. Þar er Marmarahöllin og Vetrarhöllin sem hópurinn skoðaði eftir að hafa beðið í langri biðröð í rigningu til að komast inn. Söngfjelagið hélt svo, eftir stífa skoðunarferð, tónleika í stórglæsi- legri neðanjarðarhvelfingu sem er safn og minnismerki um þá sem féllu í umsátrinu um Leningrad 1941– 1945. Flestir þeirra sem féllu voru konur og börn. Boð hjá sendiherra Kórfélagar skiptust á að skrifa í dagbók sem er viðburðarík enda spannar hún marga sögulega staði. Annan dag ferðarinnar var sungið í Klettskirkjunni sem á sér sennilega ekki hliðstæðu í öllum heiminum, því hún er höggvin í klett. Á þriðja degi ferðarinnar þáði kór- inn gott heimboð til Jóns Baldvins sendiherra og Bryndísar Schram. Á fjórða degi var haldið til Borgå og var Borgar Garðarsson leikari leiðsögumaður hópsins. Fjórði dag- urinn var reyndar þjóðhátíðardag- urinn 17. júní. Sungið var fyrir eldri borgara og borgarstjórinn í Borgå hafði móttöku fyrir hópinn. Þetta er aðeins dæmi úr ógleymanlegri ferð. Bryndís Víglundsdóttir sagði að meðalaldur kórfélaga væri um 75 ár og að allir hafi mætt löngum dögum í ferðinni með dugnaði og gleði, en enginn kvartað. „Það skipti okkur miklu að fá tilfinningu fyrir stöð- unum og menningu þeirra,“ sagði hún og því hafi þau haft nóg að gera, að skoða og fræðast frá því snemma á morgnana þangað til seint á kvöld- in þá níu daga sem ferðin stóð. Dýrleif Jónsdóttir kórfélagi skrif- ar í lok dagbókarinnar um ferðina: „Stóru ferðinni okkar var lokið og við öll, 54 talsins, komin heim, heilu og höldnu. Við þökkum guði og góðum stjórnendum fyrir farsæla og eft- irminnilega ferð. Við upplifðum margt, sáum ótrúlegar hallir, kirkjur, byggingar o.fl. Við sungum fimm konserta og við ýmis tækifæri lag og lag, t.d. í kirkjum og heimilum eldri borgara sem við heimsóttum. Við vorum jú í söngför. Vonandi geymist margt í minni okkar, ekki síst það að okkur gekk vel að syngja og við sungum af hjartans lyst.“  SÖNGFERÐ | Ævintýri Söngfjelagsins Eftirminnilegt: Kórfélögum fannst magnað að syngja í Klettskirkju í Finnlandi – hún er höggvin í klett. Aldurinn er aukaatriði Söngfjelag eldri borgara í Reykjavík fór í ógleymanlega ferð til Finnlands, Eistlands og Rússlands á liðnu ári. Félagar hittust síðar og rifjuðu upp helstu viðburði þessa ferðalags. Bryndís Víglundsdóttir: Tilfinning fyrir stöð- unum mikilvæg. Pétur mikli keisari er nefndur faðir Pétursborgar, en borgin var árið 1703 kölluð „glugginn“ hans til Evrópu. Pétursborg átti að sameina rússneska hefð en hafa evrópskt yf- irbragð. Petursborg er sögð menn- ingarmiðstöð Rússlands, og hefur undanfarin ár verið á hraðri upp- leið sem ein af höfuðborgum Evr- ópu. Hún er næst stærsta borg Rússlands. Í Pétursborg eru óviðjafnanlegar byggingar og ólýsanleg torg, lista- söfn með verkum eftir menn eins og Leonardo Da Vinci og Raphael. Dæmi um gersemar í borginni er Hermitage listasafnið fræga sem var áður vetrarhöll keisarafjöl- skyldunnar og Péturshof sem var sumarhöllin fyrir utan borgina. Pétursborg TENGLAR ..................................................... www.tallinn.ee/eng www.original-st-petersburg.com www.russia-travel.com www.hel.fi www.russia-travel.com/Exc- ursionsSPB.htm guhe@mbl.is Dómkirkjan í Tallin. Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku. Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur, allar tryggingar. (Afgr. gjöld á flugvöllum). Aðrir litlir og stórir bílar 6-7 manna, minibus og rútur. Sumarhús og íbúðir. Norðurlönd og Mið - Evrópa. Hótel. Heimagisting. Bændagisting. www.fylkir.is sími 456-3745 Bílaleigubílar Sumarhús DANMÖRKU Laugavegi 32 sími 561 0075 Glæsilegt úrval af yfirhöfnum Kringlunni, s. 588 1680 Seltjarnanesi s. 561 1680 iðunn tískuverslun DILBERT mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.