Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 37
FERÐALÖG
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 37
Á VEGUM ferðaskrifstofunnar
Langferða verður boðið upp á ferðir
til grísku eyjarinnar Zakynthos í
sumar. Eyjan er ein Jónísku eyjanna
undan Peloponskaganum við vest-
urströnd Grikklands. Að sögn Tóm-
asar Tómassonar framkvæmdastjóra
er eyjan vel þekkt í Evrópu sem
áfangastaður meðal Englendinga og
Norðurlandabúa. „Íslendingar eiga
sér ákveðna draumsýn um grísku
eyjarnar,“ segir hann. „Þær eiga að
vera litlar með úrval af fallegum
ströndum, þar sem boðið er upp á
grískan mat. Þessi eyja uppfyllir
þessar óskir. Hún er lítil, falleg eyja
og óvenju gróðursæl vegna rakans yf-
ir vetrarmánuðina, sem er mun meiri
miðað við eyjar í Eyjahafinu. Það sér-
staka við þessa eyju er að snemma
vors skríður ein tegund af risaskjald-
bökum á land að næturlagi og verpir í
fjörusandinum. Búið var að ganga
ansi nærri þessari tegund um tíma og
þess vegna hefur sumstaðar verið
gripið til tímabundinnar friðunar í
nokkrar vikur snemma vors til að
koma í veg fyrir að baðstrandargestir
stígi á eggin og brjóti. Ég hef heyrt
að á þessum tíma eigi skjaldbökurnar
til að svamla um í sjónum innan um
baðstrandargesti.“
Ferðaskrifstofan býður upp á tvær
kynnisferðir á sérstökum kjörum í
júní, 1. júní og 8. júní. Flogið er að
morgni með Iceland Express til
Kaupmannahafnar og þaðan sam-
dægurs beint til Zakynthos. Á heim-
leiðinni er flogið um Kaupmannahöfn
og áfram samdægurs til Íslands.
„Aðalsamstarfsaðili okkar er
Kuoni Scandinavia og ferðaskrif-
stofan Apollo, sem er stærsti ferða-
skipuleggjandi Grikkja á Norður-
löndum, en Apollo býður yfir 30
áfangastaði í leiguflugi frá Kaup-
mannahöfn til flestra þeirra,“ segir
Tómas. „Við völdum Zakynthos sem
ákvörðunarstað vegna þess að þetta
er dæmigerð grísk eyja og að hægt er
að komast þangað samdægurs.“
GRIKKLAND | Zakynthos í Jóníska eyjaklasanum
Strendur Zakynthos: Eyjan er lítil og þykir óvenju gróðursæl.
Risaskjaldbökur
og náttúrfegurð
www.kuoni.is
www.apollorejser.dk
www.zakynthosnet.gr
www.zanteweb.gr
Washington í blóma
MÖRGUM þykir Washington, höfuðborg
Bandaríkjanna, fallegust á vorin. Í borg-
inni er mikill gróður og í lok mars og
byrjun apríl blómstra kirsuberjatrén
sem setja svo sterkan svip á borgina á
þessum árstíma. Sumum þykir ekkert
jafnast á við fegurð trjánna í blóma og
ýmislegt er gert í borginni á hverju ári
þegar hin ljósbleiku blóm þeirra skarta
sínu fegursta. Í borginni eru um það bil
3.700 kirsuberjatré og þeim til heiðurs
er haldin Kirsuberjahátíð frá 27. mars
til 11. apríl og markar hátíðin venjulega
upphafið á ferðamannatímabilinu í
Washington D.C. 3. apríl verður farin ár-
leg skrúðganga, en kirsuberjatrén í
Washington eru aðallega afkomendur
trjáa sem Japan gaf Bandaríkjunum ár-
ið 1912 í tilefni af 60 ára vináttu-
sambandi þjóðanna. Þegar kirsuberja-
trén fella blómin taka glóðarósirnar við,
en þær eru dökkbleik tegund alparósa,
og lífga upp á borgina. Í tilefni kirsu-
berjahátíðarinnar verður ýmislegt í boði
í Washington og ættu ferðalangar ekki
að missa af götuhátíðinni sem verður 3.
apríl frá hádegi til kl. 18.00 á 12th
Street og Pennsylvania Avenue í Norð-
vesturhluta Washington.
Vínskóli í Róm
Þegar gengið er niður Spænsku tröpp-
urnar og aðeins til hægri er komið að
byggingu sem árum saman var heimili
fjölskyldu í Róm og var seinna notuð
sem leikmynd fyrir eina af myndum
Bertoluccis. Nú er byggingin í eigu Rob-
erto Wirth sem er einnig eigandi Hass-
ler-hótelsins sem er einmitt staðsett
fyrir ofan tröppurnar, en hann hefur
lagt mikið í að koma á fót uppáhalds-
verkefni sínu, fyrsta vínskólanum í
Róm, International Wine Academy of
Roma.
Skólinn er nýlega tekinn til starfa en
býður upp á ýmiss konar námskeið. Þar
af eru tvö námskeið sem henta vel
þeim ferðamönnum sem hafa áhuga á
að blanda vínsmökkun og kynnisferð-
um um borgina saman. Annars vegar
er um að ræða vínsmökkun sem boðið
er upp á á hverju virku kvöldi og er
ágætis upphitun fyrir kvöldverð í borg-
inni. Engin þörf er á að bóka fyrirfram,
heldur mætir fólk kl. 18.00 við inngang-
inn á Vicolo del Bottino, sem er lítið
sund sem liggur að Piazza di Spagna.
Hins vegar er um að ræða hálfsdags
námskeið og er hádegisverður innifal-
inn. Panta þarf fyrirfram. Hægt er að fá
gistingu með morgunverði á Hassler
Hotel.
Nýr rússibani í Tívolíinu í
Kaupmannahöfn
Tívolíið í Kaupmannahöfn, sem starfað
hefur frá árinu 1843, opnar 16. apríl
næstkomandi og segja sumir að þegar
það gerist sé sumarið komið í Dan-
mörku. Sama dag verður stærsti rússi-
bani í Danmörku tekinn í notkun, en á
honum eru þrjár lykkjur og nær hann
80 km hraða á klukkustund. Hægt er
að kaupa miða inn í Tívolíið við inngang-
inn og borga sérstaklega fyrir einstakar
ferðir. Auk þess er hægt að kaupa miða
sem gildir fyrir eins mörg tæki og þú
vilt. Þriðji möguleikinn er að kaupa miða
sem gildir einu sinni í hvert tæki. Tívolí
opnar kl. 11 á morgnana og um kl. 11.30
eru nokkur tæki komin í gang. Öll tæki
eru hins vegar í gangi frá kl. 14.00 og
fram að lokun. Panta þarf miða fyrir
ýmsar uppákomur í Tívólí í miðasölunni.
Fólki er bent á að verða sér úti um
bæklinginn Tivoli Guide við innganginn.
Þar er að finna kort og ýmsar gagn-
legar upplýsingar bæði á dönsku og
ensku.
Einn veitingastöðanna í Tívolí, The Paul,
er einn þriggja veitingastaða í Dan-
mörku sem nýlega hlutu hina eftirsóttu
viðurkenningu, Michelin-stjörnuna.
Tivoli
Vesterbrogade 3P
Postboks 2331630
København V
Sími: +45 33 15 10 01
Miðasala: +45 33 15 10 12
Netfang: info@tivoli.dk
Veffang: www.tivoli.dk/
Nánari upplýsingar um vín-
smökkun og námskeið í The Int-
ernational Wine Academy of
Roma:
Veffang:
www.wineacademyroma.com
Sími: 0039 0669 90878
Netfang: morriconi@w-
ineacademyroma.com
Hassler Hotel
Veffang:
www.hotelhasslerroma.com
Sími: 0039 0669 9340
Netfang:
info@hotelhasslerroma.com
Nánari upplýsingar um Kirsu-
berjahátíðina í Washington:
Veffang: www.washington.org
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk
sími 004532975530 • gsm 004528488905
Kaupmannahöfn - La Villa
Alltaf ód‡rast á netinuÍSLE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
22
35
0
1
0/
20
03
Glasgow 14.490 kr.
London 16.900 kr.
Kaupmhöfn 16.900 kr.
Hamborg 16.900 kr.
Berlín 16.900 kr.
Nýr netsmellur
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
Nýttu þér áratuga reynslu
okkar og traust í
fasteignaviðskiptum
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
Velkomin í Stykkishólm!
Fjölbreytt afþreying - fjölbreytt þjónusta - í fallegum bæ!