Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 38
DAGLEGT LÍF
38 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Við erum einfaldlega aðreyna að vekja athyglifólks á því hvernig þaðsjálft getur með heilbrigðu
líferni fyrirbyggt sjúkdóma og aðra
óáran, sagði Unnur Halldórsdóttir,
sem undanfarin þriðjudagskvöld hef-
ur ásamt hópi aðventista staðið að
fræðslu og fyrirlestrum fyrir áhuga-
sama um betri heilsu og bætt líf í
Suðurhlíðarskóla. „Við erum ekki að
troða neinum boðskap upp á neinn og
mælum heldur ekki með neinum sér-
stökum kúrum, en við leggjum
áherslu á heilbrigt líferni og var-
anlega lífsstílsbreytingu.“
Unnur, sem búsett var vestanhafs
í um þrjátíu ár en fluttist til Íslands á
ný fyrir tíu árum, hefur lengi ástund-
að líferni, sem stuðlar að heilbrigðri
sál í hraustum líkama, en það var
ekki fyrr en hún kynntist af eigin
raun heilsuhælinu Weimar Institute í
Norður-Karólínu í Bandaríkjunum,
að hún sá með eigin augum hverju
lífsstílsbreyting ein og sér getur
áorkað enda hafi hún horft upp á
dæmi þess að sykursýkisjúklingar
hafi losnað við innsúlínsprautur með
því einu að taka eigið mataræði og
hreyfingu í gegn.
„Við leggjum áherslu á átta
meginatriði, standi vilji manna til
þess að lifa heilbrigðu lífi,“ segir
Unnur um leið og hún leiðir blaða-
mann um sali Suðurhlíðarskóla, þar
sem átta fræðslubása er að finna með
stórum veggspjöldum. „Ameríkanar
kalla þessa stefnu „newstart“, en
hver stafur í orðinu stendur fyrir
ákveðinn lífsstíl. N-ið stendur fyrir
„nutrition“ eða næringu, e-ið fyrir
„exercise“ eða æfingu, w-ið fyrir
„water“ eða vatn, s-ið fyrir „sun-
shine“ eða sólskin, t-ið fyrir „temper-
ance“ eða bindindi, a-ið fyrir „air“
eða loft, r-ið fyrir „rest“ eða hvíld og
t-ið fyrir „trust“ eða traust á Guði.
Í viðkomandi básum hefur svo ver-
ið hægt að fara í þol- og lungnaþol-
próf, blóðþrýstings- og fitumælingu,
nudd á herðar og háls og fræðslu um
heilsuspillandi streituvalda svo eitt-
hvað sé nefnt. Þá hefur Unnur fengið
fagfólk til að flytja heilsutengda fyr-
irlestra, svo sem um hreyfingu, tann-
hirðu, sykursýki, hjartasjúkdóma,
hvíld, meltingu og vatn. „Varðandi
vatnið, þá er það allra meina bót og
er gott að drekka sex til tíu vatnsglös
á dag. Það er þó mikill misskilningur
fólginn í því að vera að drekka vatn
eða annan vökva með mat. Það á
aldrei að gera því það kemur í veg
fyrir að meltingarvökvinn fái að
vinna eðlilega.“
Boðið hefur að auki verið upp á
sýnikennslu í matreiðslu grænmet-
isrétta og þegar Daglegt líf bar að
garði, voru hollir og hitaeininga-
snauðir brauðréttir á borðum. Það
var ekkert farið út í búð eftir majon-
esinu, heldur var mönnum kennt að
búa til sitt eigið majones, kotasælu
og paprikuost úr jurtaríkinu sem
ýmist má nota í brauðrétti eða sem
ídýfur og meðlæti á kex og græn-
meti.
Möndlumajones
(u.þ.b. tveir bollar)
½ bolli afhýddur möndluspænir (má
nota með hýði)
½–¾ bolli vatn eða sojamjólk
2 kúfaðar tsk. sojamjöl (má sleppa)
1 tsk. gerflögur (má sleppa)
¼ tsk. hvítlauksduft
¾ tsk. salt
MATARKISTAN | Gómsæta og heilsusamlega rétti má búa til úr jurtaríkinu
Lífsstílsbreyting
gerir kraftaverk
Morgunblaðið/Sverrir
Eðaldrykkur: „Vatn er allra meina bót,“ segir Unnur Halldórsdóttir, sem
segist drekka sex til tíu vatnsglös á dag, en hér notar Fadia Benjamin vatn
og salt til að örva blóðrás og mýkja húð Unnar.
Morgunblaðið/Sverrir
Sýnikennsla: Melanie Davíðsdóttir
er höfundur uppskrifta.
Unnur Halldórsdóttir er mikil áhugamann-
eskja um heilbrigða lífshætti og segir að
fólk geti gert svo margt í sínu daglega lífi
til að fyrirbyggja menningarsjúkdóma af
völdum lífsstíls. Jóhanna Ingvarsdóttir
sótti sér fræðslu um hollar lífsvenjur og
lærði að búa til brauðrétti úr jurtaríkinu.
Flottasta fermingarstæðan frá
Spilar MP3 og skrifanlega
diska og er með 5 diska
magasíni.
Stafrænt útvarp með 30
stöðva minni, svefnrofi og
fjarstýring
Verð aðeins 32.900
Opnunartími:
Mán-föst 11-18.30
Laugard 10-18
Sunnud 13-17
Skútuvogur 2 :: 104 Reykjavik
Sími: 522-9000 :: Fax: 522-9001
Skólavörðustígur 8, 101 Reykjavík - Pöntunarsími 562 2772
Halló Norðurlönd - vinur í vanda
Ertu að hugsa um að flytja til
annars Norðurlands?
Hefur þú siglt í strand í
kerfinu eftir flutning?
Halló Norðurlönd
er upplýsingaþjónusta
Norrænu
ráðherranefndarinnar.
Skoðaðu heimasíðuna
www.hallonorden.org,
þar finnur þú mikilvæg
netföng og símanúmer.
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
ATVINNA
mbl.is