Morgunblaðið - 27.03.2004, Page 39
1¼ bolli sólblómaolía
3 msk.sítrónusafi
½ msk. eplaedik
Blandið öllu
saman nema sól-
blómaolíu, sítrónu-
safa og eplaediki í mat-
vinnsluvél og bætið
vatninu/sojamjólkinni smám
saman út í til að byrja með.
Bætið síðan olíunni mjög hægt út í
þangað til hræran byrjar að þykkna
og svo sítrónusafanum og epla-
edikinu. Hrærið áfram í eina mínútu.
Geymist í þétt lokuðu íláti í 10–14
daga í kæliskáp.
Tófú kotasæla
500 g venjulegt tófú (ekki silken)
Látið vökvann renna af og stappið
með gaffli
2⁄3 bolli möndlumajones
2 tsk. laukduft
1 tsk. hvítlauksduft
1 tsk. salt
1 tsk. möluð dillfræ
Setjið allt í skál og hrærið vel sam-
an. Geymist í kæli, en það getur þurft
að setja smávegis af sojamjólk út í til
að þynna.
Tófú sýrður rjómi
1 bolli mjúkt tófú (silken style)
4 msk. olía
1 msk. sítrónusafi
1½ tsk. hunang
1⁄2 tsk. salt
Blandið öllu saman þangað til orð-
ið slétt og rjómakennt.
Paprikuostur
1 bolli kalt vatn
6 msk. agar-flögur
1 bolli sjóðandi vatn
1½ bolli kasjúhnetur
3 msk. gerflögur
2½ tsk. salt
2 tsk. laukduft
¼ tsk. hvítlauksduft
2 msk. sítrónusafi
½ bolli soðin rauð paprika í bitum
1 tsk. paprikuduft
Sjóðið paprikuna og agar-flögurn-
ar í einum bolla af köldu vatni þar til
paprikan er orðin mjúk. Á meðan má
blanda öllum hinum efnunum saman
og síðan er agar-blöndunni bætt sam-
an við. Blandið vel í blandara, en ekki
of lengi þar sem þetta storknar fljótt.
Hellið í smurt form, t.d. hunangsdoll-
ur, og kælið þar til osturinn er orðinn
stífur.
Paprikurúllu-
tertubrauð
1 rúllutertubrauð
300 g paprikuostur (sjá uppskrift)
100 g möndlumajones (sjá upp-
skrift)
3 msk. tófú sýrður rjómi (sjá
uppskrift)
1⁄3 græn paprika
1⁄3 rauð paprika
3 msk. maískorn
Season all krydd
möndlumajones
paprikuduft
Setjið paprikuostinn og majonesið
í skál og blandið saman. Blandið síð-
an tófú-kotasælunni saman við. Sker-
ið paprikurnar í litla teninga og
blandið saman við ásamt maís og
kryddið lítillega með Season all. Setj-
ið ostablönduna á rúllutertubrauðið
og rúllið upp. Smyrjið brauðtertuna
með þunnu lagi af möndlumajonesi
að utanverðu og stráið paprikudufti
yfir. Bakið við 200°C í um 20 mínútur.
join@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Ídýfur: Möndlumajones, tófú kota-
sælu og paprikuost má nota með-
ýmsu ólíku meðlæti.
Hollt: Brauðterta með möndlu-
majonesi í stað þess hefðbundna.
Paprikurúlluterta: Með papriku-
osti, möndlumajonesi og tófú
sýrðum rjóma.
Morgunblaðið/Sverrir
Morgunblaðið/Sverrir
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 39
tilvaldar til að taka með í bústaðinn
eða grípa er óvænta gesti ber að
garði.
Kornmjólk í stað
hefðbundinnar
Mjólk úr rísi, höfrum og spelti er
nú komin á markað hérlendis, en
um er að ræða norsku Graindrops
kornmjólkina sem Yggdrasill flytur
inn. Mjólkin er að sögn fyrirtæk-
SUÐUR-afrískar kryddblöndur frá
Nomu eru nú komnar á markað
hérlendis, en blöndurnar þykja
henta einkar vel við matargerð með
lítilli fyrirhöfn. Nomu- kryddið
varð á sínum tíma til í tilrauna-
eldhúsi Tracy Foulkes,
sem er vinsæll sjón-
varpskokkur í heima-
landi sínu, og er kryddið
ætlað jafnt fyrir kjöt,
fisk og grænmeti, en það
má nota þurrt, sem mar-
ineringu í sambland við
ólífuolíu og eins í ídýfur
og kaldar sósur. Krydd-
blöndurnar má m.a. finna
í versluninni La Vida,
Gallerí Kjöt, Nýja Kökuhús-
inu Auðbrekku og Blóma- og gjafa-
vöruversluninni á Sauðarkróki.
Kökubakstur á skotstundu
Matvælafyrirtækið Katla sendi
nýlega frá sér tvær nýjar gerðir af
tilbúnum kökublöndum, svo nefnt
Pönnukökumix og Súkkulaðiköku-
mix. Pönnukökumixið inniheldur
tvær 200 g pakkningar, en súkku-
laðikökumixið eina 500 g pakkn-
ingu. Blöndunum er ætlað að koma
til móts við þá sem hafa lítinn tíma
eða áhuga á heimabakstri. En auk
þess eru þær að sögn fyrirtækisins
isins góður valkostur fyrir þá sem
þjást af mjólkuróþoli eða ofnæmi
og eins fyrir þá sem ekki þola soja.
Kornmjólkin er unnin úr lífrænt
ræktuðu korni og er framleiðsla
hennar látin sæta mjög ströngum
gæðakröfum. Til að fá sætt bragð
af drykknum er svo notuð ævagöm-
ul japönsk aðferð, „koji“, sem notuð
er við að draga fram sæta bragðið í
korninu.
Morgunblaðið/Ásdís
Krydd í tilveruna: Fjölbreyttar kryddblöndur fyrir ýmiskonar matreiðslu.
Á RÖLTINU
Framand-
legar
krydd-
blöndur
Kökur og mjólk: Kökublöndur frá Kötlu og Graindrops kornmjólk.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt
www.sokkar.is
OROBLU
ráðgjafi
verður í dag
kl. 14-18
í Hringbrautar-
apóteki.
Sokkabuxur
fylgja öllum
Oroblu vörum
sem kaupauki.
Sigurbjörn Skarphéðinsson,
lögg. fasteignasali
Geirsgötu 9, 101 ReykjavíkSími 590 9500
OPIÐ HÚS - GAUKSÁS 21 - HAFNARFIRÐI
Opið hús kl. 15–17. Á frábærum
útsýnisstað rétt við Ásfjall fallegt
og rúmgott 182,1 fm raðhús
ásamt 36,7 fm innb. bílskúr, alls
218,8 fm. Aukaíbúð á jarðhæð.
Stórar svalir. Húsið er ekki full-
klárað. Verð 23 millj.
Uppl. veitir Páll Kolka í síma 590 9517.