Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. A ukin afköst og árangur í námi á öllum skólastigum ættu að vera kjörorð um- ræðu um menntamál. Tillögur um „styttingu“ framhaldsskólans taka alls ekki á meginkjarna málsins, sem er: Samþætting allra skólastiga, mikið brottfall fram- haldsskólanema og takmarkað námsframboð til þeirra, þróun nýrra námsleiða og kennsluaðferða til að koma til móts við nemendur á öllum aldri. Grunnskólinn hefur lengst – og eflst Á undanförnum árum hefur grunnskólinn í raun lengst um rúmlega tvö ár að mati þeirra sem stýra því skólastigi, án þess að ný markmið um árangur og afköst hafi verið sett fyrir landið í heild. Skólaárið hefur lengst, skóladagurinn einnig; samtals nemur þetta meira en tveimur árum. Reynsla okkar í Reykjavík sýnir að umtalsverður hópur nemenda getur flýtt fyrir sér með því að taka einingar á fram- haldsskólastigi þegar í 9. og 10. bekk grunnskólans. Sú er nú raunin og markmið okkar að fjölga enn í þessum hópi. Reykjavíkurborg er fyrir sitt leyti fyllilega reiðubúin að gera samning við ríkið um að taka fjölda framhaldsskólaáfanga inn í grunnskólann og auka námsframboð sitt til grunnskólanema og „flýta“ fyrir þeim eftir mætti og getu hvers og eins. Þannig gæti hugsanlega ein önn eða meira færst frá fram- haldsskólunum til grunnskólanna, en eftir sem áður fengu dugmiklir nemendur að hraða sér enn meira. Brottfallið er áfellisdómur Brottfallið er brýnasta vandamál framhaldsskól- anna og er í raun birtingarmynd þess að skólinn bregst þörfum unga fólksins. Hér er framhaldsskól- inn almennt á eftir þróun grunnskólans. Fjölmörg verkefni á grunnskólastigi sýna að bráð- gerir nemendur geta tileinkað sér meira nám en „staðalmyndin“ gerir ráð fyrir; hægfara nemendur njóta sín einnig betur í verkefnum sem eru sniðin fyrir þá; þeim líður betur og auka afköst sín. Þetta er afsprengi stefnu sem nú er í innleiðingu og kennd við einstaklingsmiðað nám og aukna samvinnu nem- enda. Þessa reynslu grunnskólanna ætti að færa yfir á framhaldsskólana. Í stað þess að telja framhalds- skólanámið í árum og hugsanlegri „styttingu“ á að mæta nemendum með afkastahvetjandi náms- aðferðum – bæði fyrir þá sem eru hraðfara, og eins hina sem mest hættan er á að verði brottfalli að bráð. Fyrsta skólastigið – leikskólinn Krafan um fjölbreyttara námsframboð við hæfi á líka að hljóma á fyrstu stigum menntakerfisins. Á dögunum hitti formaður fræðsluráðs Reykjavíkur 18 ára stúlku í Tékklandi, hún talaði góða ensku, enda lært það tungumál í 11 ár. Sama dag átti ég samtal við borgarfulltrúa frá Zagreb í Króatíu, þar byrja börnin að læra ensku sex ára. Í Reykjavík tökum við nú fyrstu skrefin í þá átt að samtvinna grunnskóla og leikskóla; það er mitt mat að leikskólarnir hafi þróast vel á liðnum árum og séu fyllilega til þess bærir að útfæra meira nám á sínum forsendum og veita áhugasömum nemendum aukin tækifæri, ekki síst fimm ára. Við eigum líka að gefa þeim nem- endum yngstu bekkja grunnskólans sem vilja bæta við sig í námi tækifæri til. Samkvæmt könnunu okkar í Reykjavík telja um 40% nemenda að gr skólinn sé ekki of erfiður, og ætla má að a.m.k geti bætt við sig námi. Örugglega gæti enn stæ hópur aukið afköst í námi umfram núverandi k Hvað mælir gegn því að setja sér það markmið senn verði tiltekið hlutfall grunnskólanemenda á fyrsta ári og á fyrstu árum grunnskólans ver boðið upp á tungumálanám með aðferðum leiks Aukin afköst í nám ’ Reykjavíkurborg er fyrir sileyti fyllilega reiðubúin að ge samning við ríkið um að taka fjölda framhaldsskólaáfanga í grunnskólann og auka náms framboð sitt til grunnskólane og ,,flýta“ fyrir þeim eftir mæ og getu hvers og eins þegar í framhaldsskóla kemur. ‘ Eftir Stefán Jón Hafstein Grunnskólanemendur í Langholtsskóla. „Ódýra E kki aftur!“ var ósjálfrátt svar embætt- ismanna Sameinuðu þjóðanna og rík- isstjórna fyrr á árinu þegar ljóst var að Haítí, fátækasta land á vesturhveli jarðar, stefndi óðfluga í algjöra ring- ulreið og byrjað var að ræða þá hugmynd að hefja nýja alþjóðlega íhlutun í landinu. Við höfðum verið þar og gert það tíu árum áður. Fjölþjóðlegt herlið fór til Haítí 1994, með sam- þykki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, og kom þjóðkjörnum forseta, Jean-Bertrand Aristide, aftur til valda. Hálfu ári síðar öxluðu Sameinuðu þjóð- irnar ábyrgðina á þessu verkefni. Heiðarleg tilraun var gerð til að koma landinu á réttan kjöl – þótt hún hafi eftir á að hyggja staðið of stutt – og til gera því kleift að viðhalda stöðugleika, einkum með því að koma á fót öflugu lögregluliði og sjá því fyrir þjálfun og búnaði. Samt erum við nú í sömu stöðu. Þegar Aristide forseti fór frá Haítí 28. febrúar hafði lögregluliðið leyst upp og landið var svo að segja á valdi vopn- aðra þorpara. Daginn eftir heimilaði öryggisráðið aftur íhlutun aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna og að þessu sinni eiga aðeins þrír mánuðir að líða þar til samtökin axla ábyrgðina í öryggismálum. Undirbúningshópur er nú á Haítí til að meta hvað gera þurfi og hvaða hlutverki Sameinuðu þjóðirnar eigi að gegna þar þegar fram líða stund- ir. Við getum verið viss um að verkefnið verður flókið. Öryggisráðið hefur lofað neyðarhjálp o efnahagsaðstoð, auk aðstoðar á sviði stjórnsýs mannréttinda og löggæslu. Ástandið er jafnvel enn skelfilegra núna en tíu árum. Haítíbúar eru vonsviknir og alþjóða samfélagið hefur valdið þeim vonbrigðum ekk ur en leiðtogar landsins. Atburðirnir í febrúar magnað sundrungu þjóðarinnar, þannig að erf að mynda nýja ríkisstjórn sem andstæðingar stuðningsmenn Aristide viðurkenna. Ættum við að hafa lært nú þegar að utanað andi aðilar geti ekki leyst vandamál Haítís? Þ er, þegar öllu er á botninn hvolft, land sem hé nýlega upp á 200 ára afmæli sjálfsfrelsunar u þrældómi og nýlendukúgun. Um tíma á fyrri h aldarinnar sem leið var landið bandarískt vern arsvæði. Ættum við ekki að láta landið vera o leyfa því að greiða sjálft úr vandanum? Sú tillaga er aðeins álitleg frá óhlutstæðu sj armiði. Haítí er augljóslega ekki fært um að l vandamálin af eigin rammleik og verði landinu ekki komið til hjálpar leiðir það til áframhalda eða enn meiri ringulreiðar. Heimur nútímans ekki við pólitísku tómarúmi, hvort sem það er fjöllum Afganistans eða við dyraþrep eina stó veldis heims. Á dögum hnattvæðingar er erfiðara en áður leiða hjá sér hörmungar annarra þjóða en me inbreytingin felst í því að landamæri hefta ek ringulreiðina. Hún á það til að breiðast út, hv sem það lýsir sér í flóttamannastraumi, hryðj Haítí: að þessu sinni ve Eftir Kofi A. Annan JAFNRÉTTISLÖGIN OG LA-MÁLIÐ Snemma árs 2002 var ráðið ístöðu leikhússtjóra LeikfélagsAkureyrar, eftir að staðan hafði verið auglýst laus til umsóknar. Úr hópi tólf umsækjenda, ellefu karla og einnar konu, var ráðinn karlmaður til starfans. Kvenumsækjandinn kærði ráðninguna til kærunefndar jafnréttismála, sem komst að þeirri niðurstöðu sumarið 2002 að konan hefði verið hæfari til starfans en karl- inn, sem ráðinn var. Í framhaldinu höfðaði Jafnréttisstofa fyrir hönd kærandans mál á hendur Leikfélag- inu og vann það fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra, sem dæmdi kær- andanum skaðabætur úr hendi leik- félagsins. Mál þetta vakti meiri athygli en ella vegna þess að formaður leikhúsráðs Leikfélags Akureyrar var Valgerður H. Bjarnadóttir, sem jafnframt gegndi starfi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Fyrirfram hefði eng- inn gert ráð fyrir öðru en að hún myndi gæta þess í hvívetna að um- sækjendum yrði ekki mismunað eftir kynferði. Niðurstaða jafnt kæru- nefndarinnar sem héraðsdóms kom því mörgum á óvart, en var engu að síður staðreynd og olli Valgerði álits- hnekki, sem síðan leiddi m.a. til þess að Árni Magnússon félagsmálaráð- herra gerði við hana samkomulag um að hún léti af störfum hjá Jafnrétt- isstofu. Enn hefur raunar ekki náðst samkomulag um starfslokagreiðslur Valgerðar. Jafnt í áliti kærunefndar jafnrétt- ismála sem í dómi héraðsdóms var fyrst og fremst horft til skriflegra gagna og formlegrar hæfni á borð við prófskírteini og starfsaldur þegar metið var hvort umsækjandinn væri hæfari til starfs leikhússtjóra, karl- inn sem hlaut það eða konan sem kærði ráðninguna. Hvorugur aðilinn féllst á það með leikhúsráðinu að það hefðu verið hin listrænu sjónarmið, sem fram komu í viðtölum við báða umsækjendur, sem ráðið hefðu úrslit- um um ráðninguna. Í janúar síðastliðnum sneri Hæsti- réttur hins vegar dómi héraðsdóms við. Hæstiréttur taldi að það væri meginregla vinnuréttar að atvinnu- rekandi hefði um það frjálsar hendur hvern hann veldi til starfa í sína þágu, þótt því vali væru settar skorður sem leiddu af ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla þegar karl og kona sæktu um sama starfið. Rétturinn tók gilt mat leik- húsráðsins á m.a. menntun umsækj- endanna og sjónarmiðum þeirra um listræn stefnumið í leikhúsinu, fjár- mál og rekstur þess, sem ollu því að karlinn var tekinn fram yfir konuna. Hæstiréttur taldi að kærandinn hefði ekki sýnt fram á að þetta mat hefði verið ómálefnalegt. Með þessum dómi hlaut Valgerður Bjarnadóttir auðvitað uppreisn æru, þótt hún hafi hvorki fengið starf sitt aftur né náð samkomulagi við ríkis- valdið um starfslokagreiðslur. Í gær birtist í Morgunblaðinu frétt um að Leikfélag Akureyrar hefði ráð- ið sér nýjan leikhússtjóra, án þess að auglýsa starfið, enda ber Leikfélag- inu ekki skylda til slíks. Út af fyrir sig þarf enginn að vera hissa á þeirri nið- urstöðu, eftir allan þann úlfaþyt sem síðasta leikhússtjóraráðning olli. Þessar málalyktir hljóta hins vegar að vekja fólk til umhugsunar um það hvort jafnréttislöggjöfin og fram- kvæmd hennar stuðli endilega að raunverulegu jafnrétti þegar kemur að ráðningum í störf. Allir, sem hafa ráðið fólk í vinnu, vita að prófskír- teini, vitnisburðir og orð á blaði segja ekki alla söguna um hæfni umsækj- anda um starf. Óformleg meðmæli og eftirgrennslan um reynslu fyrri at- vinnurekenda, mat á frammistöðu umsækjenda í viðtölum og fleiri þætt- ir, sem margir eru huglægir, spila þar inn í. Þegar farið er í hart og ráðn- ingar kærðar til kærunefndar eða dómstóla er hins vegar erfitt að taka tillit til þessara þátta. Í mati þessara aðila á því, hvor eða hver er hæfastur til að gegna starfi, er lítið rúm til að gera ráð fyrir dómgreind þeirra, sem réðu í starfið – en hún leikur þó stórt hlutverk, eins og allir vita. Það að ein af forystukonum jafn- réttishreyfingarinnar og fram- kvæmdastjóri Jafnréttisstofu skyldi fá á sig bæði neikvætt álit kæru- nefndar jafnréttismála og dóm hér- aðsdóms fyrir að hafa mismunað kynjunum sýnir hversu vandmeðfarin jafnréttislöggjöfin er að þessu leyti. Staðreyndin er sú, að í opinberum stofnunum, þar sem lögum sam- kvæmt ber að auglýsa störf laus til umsóknar, er ekki alltaf ráðinn sá einstaklingur til starfans sem stjórn- endur þeirra álíta í raun hæfastan, þrátt fyrir að hafa t.d. minni menntun en annar umsækjandi. Það er vegna þess að stjórnendurnir óttast að verða sakfelldir fyrir að hafa brotið jafnréttislög, ráði þeir karl í stöðuna, þrátt fyrir að vera jafnvissir í sinni sök og Valgerður Bjarnadóttir sagð- ist vera um að hún hefði ráðið rétta einstaklinginn í leikhússtjórastöðuna og ekki mismunað kynjunum. Þessi staða er ekki raunverulegu jafnrétti kynjanna til framdráttar. Hún leiðir annars vegar til þess að vinnuveitendur forðist að auglýsa störf, eins og Leikfélag Akureyrar. Þar með fá færri frambærilegir ein- staklingar, konur sem karlar, færi á að sækjast eftir þeim. Hins vegar leiðir hún til þess að sá málflutningur fær byr undir báða vængi að konur séu ráðnar til starfa þrátt fyrir að hæfari karlkyns umsækjendur hafi staðið til boða og þar með er gert lítið úr menntun þeirra og hæfileikum. Þeir, sem vilja stuðla að jafnrétti í raun, hljóta að velta fyrir sér hvort al- menn stefnumörkun í jafnréttismál- um af hálfu vinnuveitenda, jafnt op- inberra sem einkaaðila, sé ekki vænlegri til árangurs í þessum efnum en að jafnréttislögin vofi sífellt yfir sem refsivöndur þegar fólk er ráðið til starfa. Dómur Hæstaréttar mun reyndar að líkindum hafa þau áhrif að vinnuveitendur telji sig hafa frjálsari hendur í þessu efni, en menn hljóta þó að velta því fyrir sér, hvort rétt sé að endurskoða jafnréttislögin og fram- kvæmd þeirra í ljósi þeirrar reynslu, sem fékkst í máli Leikfélags Akur- eyrar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.