Morgunblaðið - 27.03.2004, Page 53

Morgunblaðið - 27.03.2004, Page 53
Bragi var stór maður og gildur, en undir hrjúfu yfirborðinu bjó næmur og einstaklega hlýr persónuleiki. Þótt Bragi væri fæddur og uppalinn á Siglufirði, var hann sannur Vopn- firðingur og bar hann hag þess byggðarlags ætíð mjög fyrir brjósti. Flug- og flugvallarmál voru eðlilega hans vettvangur og má, að öllum öðr- um ólöstuðum segja, að hann hafi ávallt verið fremsti hvatamaður að uppbyggingu flugvallarins þar á staðnum. Ég man vel eftir litla skúrnum, sem gegndi hlutverki bið- skýlis við flugvöllinn á Vopnafirði. Þessi skúr var á að giska 8 fermetrar að gólffleti. Þar voru engin húsgögn eða tól önnur en sveitasími á vegg. Nú eru þarna tækjageymsla með slökkvibíl og snjóruðningstækjum og glæsileg flugstöð. Flugbrautin hefur fengið varanlegt slitlag og blindaðflug er úr tveimur áttum. Sem framkvæmdastjóri Flug- félags Norðurlands um árabil átti ég náið samstarf við Braga enda var flugleiðin milli Akureyrar og Vopna- fjarðar besta og traustasta áætlun- arleið félagsins alla tíð. Ekkert var gert varðandi þessa flugleið nema að höfðu samráði við Braga. Bragi hik- aði heldur ekki við að segja sína meiningu og fylgdi henni vel eftir, ef honum þótti þurfa. Þannig menn er gott að hafa nálægt sér. Finnur Dýrfjörð fór fljótt að að- stoða föður sinn á flugvellinum og tók Finnur við stjórn flugvallarins fyrir nokkrum árum, en Bragi var áfram umboðsmaður flugfélagsins og var það til dauðadags. Sem flugmaður hlakkaði ég alltaf til komunnar til Vopnafjarðar. Hvergi voru mótökur hlýrri en þar – í fleiri en einum skilningi, því ætíð var heitt á könnunni hjá þeim feðg- um. Þótt Bragi sé horfinn af vett- vangi munu þeir, sem leið eiga um Vopnafjarðarflugvöll, hvort sem það eru flugmenn eða farþegar, njóta fórnfúss og óeigingjarns starfs Braga. Ég votta Sigrúnu og börnum þeirra hjóna mína dýpstu samúð. Sigurður Aðalsteinsson. Ég vil fyrir hönd Flugfélags Ís- lands kveðja hann Braga Dýrfjörð, eftir fjörutíu ára starf fyrir Flug- félagið og forvera þessa. Allir sem kynntust Braga muna vel eftir hon- um. Hann var áberandi hvar sem hann kom, var oft aðeins hrjúfur á yfirborði, en ljúfur mjög þar undir og mikill vinur vina sinna. Bragi hóf að vinna við flugrekstur á Vopnafirði á árinu 1964, þegar hann tók að sé af- greiðslu á flugvélum Trygga Helga- sonar, sem sá um póstflutninga á Vopnafjörð. Það félag var í raun und- anfari Flugfélags Norðurlands, en fyrir það félag var Bragi umboðs- maður frá árinu 1974. Hann var síð- an umboðsmaður Flugfélags Íslands frá stofnun þess félags á árinu 1997. Bragi var einnig starfsmaður Flug- málastjórnar á Vopnafirði frá árinu 1967. Þegar Bragi kom til vinnu á flug- vellinum á Vopnafirði, var þar einn rafmagnslaus kofi og bíll með tal- stöð. Það má segja að nær öll upp- bygging á aðstöðu á flugvellinum þar sé tilkomin vegna baráttu Braga og óeigingjarns starfs hans í þágu sam- gangna við Vopnafjörð. Við sem höf- um unnið með Braga í gegnum árin komum til með að sakna hans mikið úr hópnum. Það var alltaf gaman að hafa Braga með, hann hafði skoðanir og setti þær fram á skemmtilegan hátt. Þegar Bragi var heimsóttur á flugvöllinn bauð hann gjarnan uppá „Braga“ kaffi. Hann taldi þetta nauðsynlegan drykk, sérstaklega fyrir þá sem kviðu flugi. „Braga“ kaffið hans Braga samanstóð nefni- lega af kaffi, sem helst var Braga kaffi og síðan af öðrum veigum, sem slógu á kvíða viðkomandi. Menn fóru því yfirleitt léttari á lund frá honum Braga. Ég vil fyrir hönd samstarfsmanna Braga hjá Flugfélaginu þakka hon- um fyrir skemmtilega samleið og frábært samstarf á undanförnum ár- um og við sendum Sigrúnu og börn- um þeirra okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Jón Karl Ólafsson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 53 ✝ Rósa Gunnlaugs-dóttir fæddist á Eiði á Langanesi 11. nóvember 1911. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð 17. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þorbjörg Daní- elsdóttir og Gunn- laugur Jónasson, bændur á Eiði. 18 ára gömul flutti Rósa frá Eiði að Hrollaugsstöðum og hóf sambúð með Jóni Ólasyni, f. 11. mars 1901, d. 7. október 1945. Börn Rósu og Jóns eru tíu: Daníel, f. 1931, d. 1992, Þorbjörg, f. 1933, Þórunn, f. 1934, d. 1990, Steinunn Vilborg, f. 1936, Gunnlaugur, f. 1937, Pálmi Dagur, f. 1939, Óli Jóhannes, f. 1941, Rósa, f. 1942, Marinó, f. 1944, og Jón Óli, f. 1945. Rósa og Jón bjuggu fyrstu bú- skaparárin á Hrol- laugsstöðum en reistu síðan nýbýlið Ártún og hófu þar búskap árið 1938. Eftir andlát Jóns bjó Rósa áfram þrjú ár á Ártúnum en fluttist svo til Þórshafnar. Yngsta soninn, Sturlu, eignaðist hún árið 1954 með Einari Ólasyni, f. 11. nóvember 1891, d. 6. ágúst 1967. Afkomendur Rósu eru á annað hundraðið. Seint á sjöunda áratugnum fluttist Rósa frá Þórshöfn og í Kópavog þar sem hún bjó til dauðadags. Útför Rósu fer fram frá Kópa- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Rósa amma hefði orðið 93 ára í haust. Langri ævi er lokið. Í minn- ingunni er amma glæsileg kona, grönn og alltaf vel tilhöfð. Þegar við vorum börn bjó hún um tíma á heimilinu. Amma var stjórnsöm og alltaf að. Ef hún var ekki að prjóna þá var hún að reyna að koma skikki á okkur krakkana. Við systurnar vorum alls ekki nægj- anlega miklar dömur, ógreiddar og skítugar upp fyrir haus í útileikj- um sem frekar hentuðu drengjum að hennar mati. Hún gaf sér tíma til að lesa fyrir okkur, nennti alltaf að spila og segja okkur frá því hvernig var þegar hún var ung stúlka fyrir norðan. Einnig gerði hún sitt besta til að hjálpa okkur við prjónaskap og skyldustykki í handavinnu. Það var ótrúlegt hve mikið sokkar og önnur stykki lög- uðust við að komast í hendur ömmu. Við vorum með mikla hestadellu og hlustuðum hug- fangnar á ömmu segja okkur frá gæðingi sínum, Lukku. Sú hryssa var allra hesta best. Í Fannborg- inni bjó amma í mörg ár, þangað var alltaf gott að koma. Hún var höfðingi heim að sækja, átti alltaf eitthvað gott með kaffinu og hellti upp á sterkt og gott kaffi upp á gamla móðinn. Alltaf var vel tekið á móti okkur og við velkomnar. Amma upplifði miklar breytingar á langri ævi, nærri öld er langur tími og ótrúleg umskipti hafa orðið í þjóðfélaginu og öllum aðstæðum fólks. Það er dýrmætt að fá að tala við og kynnast fólki sem upplifað hefur þessa tíma. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og nú væri gott að geta spilað til baka og geta rætt meira við ömmu og átt með henni góðar stundir. Ásta og Ester Pálmadætur. Ég hef varla verið miklu eldri en fimm ára gamall þegar ég fór fyrst að hafa áhyggjur af því að Rósa amma væri orðin svo gömul að það væri stórkostleg hætta á því að hún myndi deyja. Þessar áhyggj- ur, sem ollu litlum strák talsverðu hugarvíli, reyndust sem betur fer óþarfar næsta aldarfjórðunginn eða svo. Undir hið síðasta var amma orðin heilsulaus og þegar kallið loksins kom var það henni líkn. Að sama skapi voru áhyggjur mínar ekki eins sárar. Ég man fyrst eftir Rósu ömmu þegar hún bjó hjá okkur fjölskyld- unni á Álfhólfsvegi 125. Maður gat nú ekki annað en litið upp til henn- ar; hér var komin „ekta“ amma, hún var bæði virðuleg og vel til höfð og auk þess sífellt með prjón- ana á lofti. Hún var þar að auki af- ar viljug til að setjast niður við spil enda mikill spilamaður. Og þótt hún hafi stundum verið ströng var það yfirleitt við aðra en mig. Það er því ekki að undra að með okkur hafi tekist ævarandi vinskapur. Seinna flutti amma í Fannborgina en heimsóknirnar þangað eru ógleymanlegar. Ekki brást að tekið var í slag, yfirleitt rússa eða manna, um leið og við ræddum það helsta sem á daga okkar hafði drifið frá síðustu heim- sókn. Ég kveð nú ömmu mína með þökkum fyrir öll þau ár sem hún lifði. Þau urðu miklu fleiri en ég hafði þorað að vona. Rúnar. RÓSA GUNN- LAUGSDÓTTIR Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, HALLDÓRS JÓNASSONAR, Skúlagötu 4, Stykkishólmi. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameins- deildar 11E á Landspítala við Hringbraut og starfsfólks St. Franciskusspítala, Stykkishólmi. Sigríður Pétursdóttir, Eggert Halldórsson, Þórir Halldórsson, Ann Linda Denner, Erla Halldórsdóttir, Ívar S. Kristinsson, Gyða Stefanía Halldórsdóttir, Hafliði Ingason og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og langafi, ÞRÁINN SIGURÐSSON frá Siglufirði, sem andaðist fimmtudaginn 18. mars, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudag- inn 29. mars kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknar- félög. Anna Þráinsdóttir, Ottar Storheim, Edda Þráinsdóttir, Bragi Þorbergsson, Ólöf Þráinsdóttir, John Allwood, Þráinn Ólafur Jensson, Sigríður Hauksdóttir, Vilhjálmur Sigurðsson, Sigríður Vilhjálmsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, BJARNI EINARSSON fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri og aðstoðarforstjóri Byggðastofnunar, Brekkugerði 30, Reykjavík, lést miðvikudaginn 24. mars. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 31. mars kl. 13.30. Gíslína Guðrún Friðbjörnsdóttir, Anna Margrét Bjarnadóttir, Gísli Rúnar Jónsson, Einar Björn Bjarnason, Guðrún Þóra Bjarnadóttir, Gunnlaugur Jón Rósarsson og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI PÁLMARSSON hljóðfærasmiður, Nóatúni 28, Reykjavík, lést á líknardeild Landakotsspítala miðviku- daginn 24. mars. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstu- daginn 2. apríl kl. 13.30. Guðbjörg Ágústa Björnsdóttir, Salbjörg Ágústa Bjarnadóttir, Björn Andrés Bjarnason, Sigurbjörg Hjörleifsdóttir, Ingvar Þór Bjarnason, Cathrine Bjarnason, Hrefna Birgitta Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL MELSTED, andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund fimmtudaginn 25. mars. Victor Melsted, Rannveig Árnadóttir, Halldór Melsted, Þórunn Kristinsdóttir, Hansína Melsted, Ævar Sigurðsson, Stefán Melsted, Kristín Árnadóttir, Páll Melsted, Guðlaug Elíasdóttir, Ruth Melsted, Ólafur Melsted, Valgerður Á. Sveinsdóttir, afa- og langafabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GRÍMUR JÓNSSON fyrrverandi héraðslæknir, Fjarðargötu 17, Hafnarfirði, lést á Landspítala Hringbraut þriðjudaginn 23. mars. Jarðsungið verður frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 30. mars kl. 13.30. Gerda Jónsson, Grímur Jón Grímsson, Helga Guðjónsdóttir, Lárus Grímsson, Jóhanna D. Kristmundsdóttir, Þórarinn Grímsson, Sigrún Sæmundsdóttir, Jónína Ragnheiður Grímsdóttir, Ágúst Ólafsson, Bergljót Grímsdóttir, Gunnar Jóhann Friðriksson, Egill Grímsson, Guðrún Garðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.