Morgunblaðið - 27.03.2004, Side 72
72 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Beini
© DARGAUD
Grettir
Grettir
Smáfólk
ÉG NÁÐI AÐ
VEIÐA MÚS!
AHEM
ERTU BÚINN AÐ VERA
AÐ LYFTA?
GETTU HVAÐ
GERÐIST SVO!
ERT ÞÚ AÐ SEGJA ÞESSA
SÖGU EÐA ÉG?
AFSAKIÐ!
HALLÓ!
HVAÐ ERTU AÐ GERA Í GARÐINUM
MÍNUM? Á MÍNU YFIRRÁÐASVÆÐI!
ÞÚ ERT SJÓNMENGUN OG ÆTTIR AÐ
VERA GRÝTTUR!
MORGUNINN BYRJAR
EKKI VEL Í ÞESSARI
SÖGU! ÉG ER STRAX
ORÐINN ÞREYTTUR
HALTU KJAFTI EINU SINNI OG
HLUSTAÐU Á GÁFULEGA
TILLÖGU!
SKO. SPURÐU MIG UM
EITTHVAÐ SEM VARÐAR
HAGSMUNI ALMENNINGS OG ÉG
SKAL SVARA ÞÉR
ER ÞETTA EINHVER
SPURNINGALEIKUR? ÉG LEM ÞIG Í KLESSU ÉF ÞÚ HÆTTIR
EKKI AÐ SPYRJA SVONA ASNALEGA!
RÓLEGUR! VIÐ
SKULUM NÚ
SJÁ...
AF HVERJU ERTU SVONA
FEITUR? ER ENGINN Í ÞESSUM BÆ
SEM GETUR SPURT
ALMENNILEGRA SPURNINGA?!
JÚ!
HVER?
ER ÞAÐ
SATT?
ÉG!
ÉG
SVER!
OK!
ÉG
BÍÐ!
AF HVERJU ERTU SVONA
GÁFAÐUR? HANN SAGÐIÞAÐ!
JAAHHÚÚÚÚ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
MIG LANGAR aðeins sem Eyjamað-
ur að stinga niður penna og gefa
landsmönnum aðra sýn á Vestmanna-
eyjar en birst hefur í fjölmiðlum und-
anfarið. Vestmannaeyjar eru um
margt sérstakt samfélag í sérstöku
umhverfi. Slíkt hefur bæði kosti og
galla.
Kostir Vestmannaeyja eru nálægð
við stórbrotna náttúru sem lætur
engan ósnortinn. Sjálfstætt samfélag
sem er sjálfu sér að mestu nægt á
ýmsum sviðum. Náið samfélag þar
sem allir leggjast á eitt og hjálpa til ef
eitthvað bjátar á. Fjölskylduvænt
samfélag þar sem fjölskyldunni gefst
m.a. kostur á að hittast í hádeginu og
borða saman. Vegalengdir eru stuttar
og lítið mál að fara með engum fyr-
irvara í heimsókn til ættingja og vina.
Íþróttalíf í Eyjum er með miklum
ágætum. Svo og félagslíf ýmiskonar.
Eyjamenn hafa líka verið þekktir fyr-
ir kraft og þor.
Ókostirnir eru m.a. erfiðar og
ónógar samgöngur. Veðurfar og afla-
brögð hafa áhrif á alla íbúa Eyjanna.
Nálægðin er mikil milli íbúa og því oft
erfitt þegar mismunandi skoðanir og
áherslur eru uppi. Það eru ýmsar
hefðir og fylkingar í Eyjum sem erfitt
er að brjóta á bak aftur eða breyta.
Þess vegna verður t.d. pólitíkin oft
mjög hörð og persónuleg. Það er ekki
hægt að fela sig í mannfjöldanum í
Eyjum. Fylgismenn ólíkra fylkinga
sem takast á komast ekki hjá því að
hittast í verslunum, bankanum eða
ferðast saman með flugi eða Herjólfi
svo dæmi séu nefnd.
Á undanförnum árum hefur dregið
af okkur Eyjamönnum og í stað þess
að geysast í sóknina höfum við verið í
varnarbaráttu og langt í frá sammála
um aðferð. Fyrir u.þ.b. ári síðan var
skipt um meirihluta í bæjarstjórn
Vestmannaeyja og vinstri menn kom-
ust til valda eftir 13 ára valdatíð sjálf-
stæðismanna. Eftir svo langa valdatíð
var ýmislegt sem þurfti að laga, hrista
upp í ýmsum málum og gera áherslu-
breytingar í öðrum. Þetta hefur hinn
nýi meirihluti verið að gera. Sjálf-
stæðismenn eru enn í sárum og sætta
sig ekki við að missa völdin, ekki bara
í bæjarstjórn heldur víða annars stað-
ar í bænum. Sumar þær ákvarðanir
sem teknar hafa verið, hafa líka verið
sársaukafullar fyrir einstaka bæjar-
búa eða hópa. Það er sá fórnarkostn-
aður sem við þurfum að greiða. Það er
trú okkar sem að meirihlutanum
standa að þær aðgerðir sem gripið
hefur verið til eigi eftir að skila ár-
angri á þann veg að við Eyjamenn
finnum aftur sjálfstraustið sem við
týndum, nýtum kraftinn sem við eig-
um og njótum alls þess besta sem
Eyjarnar hafa að bjóða. Nýjar leiðir
verða farnar í fjármálum bæjarins og
þeim snúið við af miklum myndar-
skap. Gangi þær hugmyndir eftir sem
verið er að vinna í, mun töluverðu
fjármagni spýtt inn í okkar litla hag-
kerfi. Skólamál bæjarins eru í gagn-
gerri endurskoðun. Með stofnun Ný-
sköpunarstofu og ráðningu markaðs-
og kynningarfulltrúa, sem unnin er í
sátt í bæjarstjórn, það hefur reyndar
ekki þótt fréttnæmt í fjölmiðlum er
stigið er skref í átt til markvissrar
uppbyggingar atvinnulífsins í Eyjum.
Vestmannaeyjar eins og mörg önnur
byggðarlög eru að berjast við að
halda þeim opinberu störfum sem til
skiptanna eru, þrátt fyrir byggða-
stefnu ríkistjórnarinnar. Við lifum
enn í voninni og trúum því að ríkis-
stjórnin standi við þá byggðastefnu
sem hún sjálf samdi og stuðli að því að
flytja störf út á land í stað þess að
koma þeim öllum fyrir í Reykjavík.
Er nærtækast að nefna Vaktstöð sigl-
inga sem hvergi á annars staðar
heima en í Eyjum.
Mynd fjölmiðla af Vestmannaeyj-
um hefur einkennst af pólitísku þrasi
og leiðindamálum sem upp hafa kom-
ið. Ég vildi með þessu línum benda á,
að það er annað og meira að gerast í
Eyjum en það. Með vinsemd og
kveðjum.
GUÐRÚN ERLINGSDÓTTIR,
forseti bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja.
Það er fjör í Eyjum
Frá Guðrúnu Erlingsdóttur:
EINHVERN veginn finnst mér
ástæða til að skrifa eftirfarandi.
Góður forstjóri hjá virtu fyrirtæki
hefur heila milljón króna á mánuði.
Undir hans ágætu stjórn starfa níu
þrælgóðar og flinkar konur við
saumaskap. Hver kona hefur eitt
hundrað þúsund á mánuði og þær ná
endum saman. Meðallaun hjá þessu
ágæta fyrirtæki eru því eitt hundrað
og níutíu þúsund á mánuði sem
gáfnastofnanir telja vel viðunandi.
Fyrirtækið gengur vel.
Átta af þessum konum halda fyr-
irtækinu vel gangandi á fjórða mán-
uð því forstjórafrúin fjölgaði mann-
kyni og forstjórinn því fjarverandi.
Níunda konan eignaðist líka unga
og því fjarverandi – en fær samt
áttatíu þúsund á mánuði. Forstjór-
inn, nýorðinn faðir, fær átta hundruð
þúsund á mánuði.
Yrði ekki „ungamóðirin“ alsæl yfir
því að samkvæmt einhverjum reikn-
ingshaus, miðað við meðaltal, þá
hefði hún hjá þessu fína fyrirtæki
fjögur hundruð og fjörutíu þúsund á
mánuði fyrir því nauðsynlegasta?
HELGI STEINGRÍMSSON,
Laugarnesvegi 88,
105 Reykjavík.
Meðaltal miðað
við mannfjölda
Frá Helga Steingrímssyni:
FASTEIGNIR mbl.is