Morgunblaðið - 27.03.2004, Síða 73
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 73
LEIKFÉLAG Menntaskólans í
Kópavogi, Sauðkindin, frumsýndi á
föstudaginn leikritið Stone Free.
Leikritið gerist á hippatímanum, á
útihátið þar sem Jimi Hendrix og
fleiri frægir tónlistamenn spila fyr-
ir hippana sem eru komnir langa
leið til að skemmta sér og deila
með öllum boðskap ástar og friðar.
Höfundur leikritsins er Jim
Cartwright og þýðandi er Magnús
Geir Þórðarson. Leikstjórar eru
Arnar Ingvarsson og Sverrir Árna-
son, aðstoðarleikstjóri er María
Rut Beck. Leikritið verður sýnt í
Félagsheimili Kópavogs í næstu
viku á mánudag, þriðjudag,
fimmtudag og föstudag og byrja
sýningarnar kl. 20. Hægt er að
nálgast miða í Menntaskólanum í
Kópavogi.
Leikfélag MK sýnir Stone Free
Morgunblaðið/Ómar
BORIST hefur eftirfarandi ályktun
frá stjórn Félags ungra framsókn-
armanna í Reykjavík suður:
„Stjórn Félags ungra framsóknar-
manna í Reykjavíkurkjördæmi suð-
ur skorar á íslensk stjórnvöld að
hefja viðræður við Evrópusamband-
ið hið fyrsta um mögulega aðild Ís-
lands að sambandinu. Á undanförn-
um árum hafa Íslendingar í auknum
mæli axlað ábyrgð og gert sig gild-
andi í alþjóðlegu samstarfi. Þann
áratug sem EES-samningurinn hef-
ur verið í gildi hefur hann nýst ís-
lenskum hagsmunum vel í meginat-
riðum og hefur leitt til réttarbóta í
þágu einstaklinga og fyrirtækja.
Þótt svo að tekist hafi að semja um
að EES-samningurinn haldi gildi
sínu gagnvart nýjum aðildarríkjum
ESB hefur samningurinn ekki
þróast nægilega í takt við þær breyt-
ingar sem orðið hafa á samstarfi
Evrópuríkja á þessu tímabili. Til
dæmis er ljóst að EES-samningur-
inn tryggir ekki nægilega vel að-
komu Íslendinga á ákvörðunarstigi
að málum sem varðað geta íslenska
hagsmuni miklu.
Stjórn FUF í Reykjavík suður tel-
ur að aðildarviðræður við Evrópu-
sambandið séu æskilegur vettvang-
ur til þess að láta reyna á hvort
hagsmunum Íslendinga verði betur
borgið innan sambandsins eða utan
og hvetur stjórnvöld til þess að óska
eftir því hið fyrsta að slíkar aðild-
arviðræður hefjist.“
Vilja hefja viðræður við ESB
Rangt farið
með nafn
Rangt var farið með nafn
Gunnars Dofra Ólafssonar í
myndatexta með umfjöllun um
Reykjavíkurráð ungmenna á
föstudag. Beðist er velvirðing-
ar á mistökunum.
Finnbogi er
Eyjólfsson
Föðurnafn Finnboga Eyj-
ólfssonar, starfsmanns Heklu
hf. í áratugi, misritaðist í
blaðinu í gær í frétt frá af-
hendingu bíls sem Hekla gaf
Borgarholtsskóla. Er beðist
velvirðingar á því.
LEIÐRÉTT