Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 75
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert mjög sjálfstæð/ur og
ferð þínar eigin leiðir. Þú ert
rökvís og einbeitt/ur. Með
þessu ári lýkur níu ára tíma-
bili í lífi þínu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Einhverra hluta vegna finnst
þér allir vera á þínu bandi í
dag. Þó þér finnist eitthvað
skipta miklu máli þá skiptir
það í raun litlu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Farðu varlega í innkaupum í
dag. Það er hætt við að þú
kaupir eitthvað í fljótfærni
sem þú munt að sjá eftir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er hætt við að þú lendir í
einhvers konar valdabaráttu.
Fólk virðist almennt standa í
þeirri trú að það viti hvað
öðrum sé fyrir bestu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur mikla orku í dag
sem þú ættir að reyna að
nýta þér í vinnunni. Þú ættir
líka að taka til í kringum þig
og henda gömlum hlutum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert óvenju tilfinningarík/
ur í dag og gætir því hæglega
orðið skotin/n í einhverjum.
Líka er hætt við að þú gerir
óþarflega mikið mál úr hlut-
unum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Samskipti þín við foreldrana
reyna á taugarnar. Fólk
stendur fast á sínu. Hlutirnir
eru þó einfaldari en þeir líta
út fyrir að vera.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Samskipti þín við aðra ganga
ekki sem skyldi í dag. Þú ert
óvenju tilfinninganæm/ur og
tekur hlutunum því persónu-
lega. Ekki láta sektarkennd
ná taki á þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert fædd/ur í merki ástríð-
unnar. Miklar tilfinninga-
sveiflur eru í loftinu. Rósemi
ýtir alltaf undir hamingju.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er hætt við að samskipti
þín við aðra komi þér úr jafn-
vægi í dag. Bældur ótti gæti
líka komið upp á yfirborðið.
Þetta er þó ekki rétti dag-
urinn til að taka mikilvægar
ákvarðanir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þetta er góður dagur til að
breyta og bæta í vinnunni.
Settu þér það markmið að
taka til í kringum þig og losa
þig við allan óþarfa.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Varastu að hella úr skálum
reiði þinnar yfir fólk í dag.
Það mun skila þér bestum
árangri að bíða með að ræða
hlutina þar til þér er runnin
reiðin.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert sérlega tilfinn-
inganæm/ur í dag og átt því á
hættu að missa einbeitinguna
og hæfileikann til að leggja
hlutlaust mat á hlutina. Forð-
astu að taka mikilvægar
ákvarðanir í dag.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HRÚTUR
HÁFJÖLLIN
Steingrímur Thorsteinsson.
LJÓÐABROT
Þú, bláfjalla geimur með heiðjöklahring,
um hásumar flý ég þér að hjarta.
Ó, tak mig í faðm. Minn söknuð burt ég syng
um sumarkvöld við álftavatnið bjarta.
Þín ásjóna, móðir, hér yfir mér skín
með alskærum tárum kristals dagga.
Und miðsumars himni sé hvílan mín.
Hér skaltu, Ísland, barni þínu vagga.
- - -
ÁRNAÐ HEILLA
Grúsk í gömlum brids-
skræðum leiðir í ljós að
sagnvísindi nútímans eru
beittari, en á hinn bóginn
hefur spilatækni lítið fleygt
fram. Lítum á þessar
dönsku fornminjar frá 1968:
Norður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠KD94
♥9743
♦Á74
♣K10
Vestur Austur
♠G10 ♠Á762
♥DG1062 ♥ÁK
♦632 ♦9
♣D72 ♣ÁG8543
Suður
♠853
♥85
♦KDG1085
♣96
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 hjarta Dobl 3 tíglar
Pass Pass Dobl Pass
Pass Pass
Danski landsliðshópurinn
var að reyna með sér í rú-
bertubrids og í sæti sagn-
hafa var Bent Aastrup. Út-
spilið var spaðagosi.
Aastrup lét kónginn úr
borði og annar þekktur
spilamaður Dana, Stig
Werdelin, tók með ás og
lagði ÁK í hjarta inn á bók.
Spilaði síðan spaða í fjórða
slag. Sagnhafa leist vel á
þróun mála, en sá þó fram á
viss vandræði vegna stífl-
unnar í spaðalitnum. Hann
kannaði tígulinn með tveim-
ur efstu, en þegar þrílitur
vesturs kom í ljós ákvað
Aastrup að spila öllum
trompunum.
Norður
♠94
♥--
♦--
♣K10
Vestur Austur
♠-- ♠76
♥DG ♥--
♦-- ♦--
♣D7 ♣ÁG
Suður
♠8
♥--
♦8
♣96
Í þessari stöðu spilaði
Aastrup síðasta trompinu
og henti lauftíu úr borði.
Werdelin átti ekkert svar
við hæfi. Spaða má hann
alls ekki henda, því þá má
yfirdrepa áttuna, svo hann
fleygði laufgosa. Þá tók
sagnhafi spaðaáttu og sendi
Werdelin svo inn á laufás,
sem varð að gefa blindum
síðasta slaginn. Þetta heitir
að „stikla á stóru“ og
þvingunin stiklusteins-
þvingun.
Vel spilað, en sagnir AV
eru ekki til eftirbreytni, því
þeir eiga fimm lauf á borð-
inu.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 27. mars, eiga 50
ára hjúskaparafmæli hjónin Steinunn Runólfsdóttir og Ing-
ólfur Pálsson, Réttarheiði 4, Hveragerði. Þau halda upp á
daginn í Reykjavík með fjölskyldu sinni.
1. d4 d6 2. Rf3 Bg4 3. c4 Rd7
4. Rc3 e5 5. g3 Rgf6 6. Bg2
c6 7. 0-0 Be7 8. h3 Bxf3 9.
exf3 0-0 10. f4 exd4 11. Dxd4
Db6 12. Dd3 Rc5 13. Dc2
Hfe8 14. Be3 Dc7 15. b4
Rcd7 16. Had1 Bf8 17. Hd3
a6 18. Hfd1 Hac8 19.
Hc1 Db8 20. Re2 d5
21. Db2 dxc4 22.
Hxc4 Dc7 23. Hc1
Rb6 24. Bd4 Rbd5
25. a3 De7 26. Rc3
Hcd8 27. Rxd5 Rxd5
28. Hcd1 De6 29.
Be5 Hd7 30. Kh2
Rb6 31. Hxd7 Rxd7
32. Bd4 Df5 33. Bf3
Db5 34. Dc2 Rb6 35.
Be4 Rc4 36. Bxh7+
Kh8 37. a4 Dh5 38.
Bd3 Ra3 39. Db3
Hd8 40. Be3 Rc4
Alþjóðlegi meist-
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
arinn Robert Markus
(2.527) frá Serbíu er ung og
upprennandi skákstjarna
sem varð á meðal efstu
manna á Reykjavíkur-
skákmótinu sem er nýlokið í
Ráðhúsi Reykjavíkur. Hann
hafði hvítt í stöðunni gegn
ástralska refnum Ian Rog-
ers (2.582). 41. Be2! og
svartur gafst upp enda fátt
varnar.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
MEÐ MORGUNKAFFINU
Mamma sleit allt sem ég sagði úr samhengi!
,
Afmælisþakkir
Bestu þakkir til allra sem heiðruðu mig með
heimsóknum, kveðjum og gjöfum vegna 70 ára
afmælis míns 4. mars sl.
Guð blessi ykkur öll.
Guðríður Bjarnadóttir.
„Ég veit þú kemur í kvöld til mín“
Harmonikudansleikur í kvöld í Glæsibæ kl. 21.30.
Húsið opnað kl. 21.00
Hljómsveitir Guðmundar Samúelssonar og Þórleifs Finnssonar
leika gömlu og nýju dansana til kl. 02.00 ásamt söngkonunni
Örnu Þorsteinsdóttur. „Láttu þér ekki leiðast, líttu við í Glæsibæ“.
Félag harmonikuunnenda í Reykjavík. F.H.U.R
Afmælisþakkir
Innilegar þakkir færi ég öllum vinum og vanda-
mönnum sem heiðruðu mig í tilefni af 80 ára af-
mæli mínu með blómum, skeytum, söng, marg-
víslegum gjöfum og ekki síður með nærveru
sinni. Góðir vinir eru gulls ígildi.
Sérstakar þakkir færi ég börnum mínum,
tengdabörnum og barnabörnum sem á sinn stór-
fenglega hátt gerðu mér þessi tímamót ógleym-
anleg. Hafið hjartans þökk fyrir.
Benedikt Lárusson,
Stykkishólmi.
Aðaltvímenningur BR
Nú er lokið 26 af 39 umferðum í
aðaltvímenningi Bridsfélags
Reykjavíkur og efstu pör eru:
Helgi Jónsson – Helgi Sigurðsson 411
Hrólfur Hjaltason – Oddur Hjaltason 356
Anton Haraldss. – Sigurbjörn Haraldss. 300
Eiríkur Hjaltason – Hjalti Elíasson 273
Guðrún Kr. Jóh. – Kristjana Steingr. 246
Sveinn R. Eiríksson – Erlendur Jónss. 203
Ekki verður spilað föstudaginn
26.03 vegna undanúrslita í Íslands-
mótinu í sveitakeppni.
Fyrsta umferð af þremur, í vortví-
menningi félagsins, fór fram mánu-
daginn 22. mars.
Úrslit hennar urðu þessi:
Björn Jónsson – Þórður Jónsson 207
Sverrir Jónsson – Atli Hjartarson 189
Ómar Óskarsson – Böðvar magnússon 188
Hulda Hjálmarsd. – Halldór Þórólfss. 187
Meðalskor var 165
Keppnin heldur áfram næstu tvo
mánudaga og þar sem tvö bestu
kvöld, af þremur, gilda til verðlauna,
er ekkert því til fyrirstöðu að bæta
við pörum.
Sveit Hjalta Bergmann leiðir
Halldórsmótið á Akureyri
Fyrsta kvöldinu af þremur er lok-
ið í Halldórsmótinu í sveitakeppni
hjá Bridsfélagi Akureyrar. Átta
sveitir taka þátt. Staðan er þessi:
Sv. Hjalta Bergmann 65
Sv. Gylfa Pálssonar 64
Sv. Stefáns Vilhjálmssonar 63
Sv. Sveinbjörns Sigurðssonar 53
Sunnudagskvöldið 21. mars var
spilaður eins kvölds tvímenningur.
10 pör tóku þátt. Úrslit voru:
Reynir Helgason – Stefán Sveinbjörnss. 29
Pétur Örn Guðjónsson – Una Sveinsd. 16
Stefán G Stefánsson – Björn Þorláksson 14
Gylfi Pálsson – Sveinn Pálsson 13
Gissur Jónasson – Hjalti Bergmann 9
Spilað er á sunnudags- og þriðju-
dagskvöldum klukkan 19.30 í Fé-
lagsheimilinu Hamri. Á þriðjudags-
kvöldum eru forgefin spil og
keppnisstjóri er á staðnum. Á næsta
þriðjudagskvöldi verður spilaður
eins kvölds einmenningur.
Bridsfélag yngri spilara
Átta pör mættu til leiks hjá félag-
inu og spiluðu tvímenning með
howell-fyrirkomulagi, 3 spil milli
para. Meðalskor var 63 stig. Mikil og
hörð keppni var um efstu sætin en
þeir félagar, Guðjón Hauksson og
Magnús Björn Bragason höfðu sigur
á endanum. Lokastaða efstu para
varð þannig:
Guðjón Hauksson – Magnús Bj. Bragas. 83
Kolbeinn Guðmundss. – Jón Ág. Jónss. 78
Ómar F. Ómarss. – Sigrún Sveinbjörnsd. 76
Grímur Kristinss. – Þorvaldur Guðjónss. 66
Bára V. Friðriksd. – Heiða Hrönn Sigm. 62
Spilað er á hverju miðvikudags-
kvöldi hjá Bridsfélagi yngri spilara
og hefst spilamennskan stundvís-
lega klukkan 19:30. Spilagjaldi stillt
í lágmark, aðeins 200 krónur á spil-
ara.
Frá eldri borgurum í Hafn-
arfirði
Þriðjudaginn 23. mars var spilað á
níu borðum. Meðalskor var 216. Úr-
slit urðu þessi.
N/S
Kristján Ólafss. – Friðrik Hermannss. 271
Sævar Magnúss. – Bjarnar Ingimarss. 265
Oddur Jónsson – Sigurjón Sigurjónss. 262
Jón Pálmason – Stefán Ólafsson 214
A/V
Bragi Björnss. – Auðunn Guðmundss. 279
Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 259
Einar Sveinsson – Anton Jónsson 238
Árni Guðmundsson – Hera Guðjónsd. 213
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á 15 borðum fimmtu-
daginn 15. marz. Miðlungur 264.
Beztum árangri náðu:
NS
Dóra Friðleifsdóttir – Jón Stefánsson 353
Guðmundur Tryggvas. – Einar Péturss. 315
Kristinn Guðmundss – Guðm. Magnús 302
Guðmundur Pálss. – Róbert Sigmundss. 297
AV
Jón Jóhannsson – Sigríður Gunnarsd. 342
Ásta Erlingsd. – Jóhanna Gunnlaugsd. 338
Þórdís Sólmundard. – Heiður Gestsd. 321
Helga Helgad. – Þórhildur Magnúsd. 309
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
SMS FRÉTTIR mbl.is