Morgunblaðið - 27.03.2004, Side 76
KNATTSPYRNA
76 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MICHAEL Owen missir nær örugg-
lega af landsleik Englendinga gegn
Svíum næsta miðvikudag. Owen fór
meiddur af velli í fyrrakvöld þegar
Liverpool tapaði fyrir Marseille,
2:1, í UEFA-bikarnum í knatt-
spyrnu. Hann tognaði aftan í læri
og leikur ekki gegn Leicester í úr-
valsdeildinni á morgun. Owen hef-
ur áður verið lengi frá vegna togn-
unar í læri og bæði Houllier og
Sven Göran Eriksson, landsliðs-
þjálfari Englands, lýstu í gær yfir
áhyggjum af því að það sama gæti
orðið uppi á teningnum hjá honum
að þessu sinni.
Owen ekki
með gegn
Svíum
ARSENAL getur á morgun orð-
ið fyrsta liðið í sögu efstu deildar í
ensku knattspyrnunni til að vera
ósigrað í fyrstu 30 leikjunum á
tímabilinu. Félagið deilir nú met-
inu með Leeds (1973–74) og Liver-
pool (1987–88) sem bæði töpuðu
fyrst í 30. leik sínum.
ARSENAL jafnar annað met ef
liðið tapar ekki gegn Manchester
United, með því að vera ósigrað í
30 leikjum í röð í efstu deild á
sama tímabilinu. Burnley lék þann
leik 1920–21 og varð þá enskur
meistari.
ARSENAL á samt enn langt í
land með að jafna met Nottingham
Forest sem var taplaust í 42 leikj-
um í röð í efstu deild. Það voru síð-
ustu 26 leikirnir tímabilið 1977–78
og fyrstu 16 leikirnir tímabilið
1978–79. Forest tapaði ekki leik í
deildinni í eitt ár og 20 daga.
ARSENAL getur í dag unnið 10.
leik sinn í röð í úrvalsdeildinni en
það hefur félagið gert tvisvar áður,
1997–98 og 2001–02, og vann
reyndar 13 í röð í seinna skiptið.
Manchester United hefur einu
sinni náð þessu, vann 11 leiki í röð
1999–2000.
ARSENE Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, er með und-
irtökin gegn starfsbróður sínum
hjá Manchester United, Alex
Ferguson. Þegar þeir hafa mæst
með lið sín hefur Wenger fagnað
10 sigrum en Ferguson 7 og 5 sinn-
um hafa liðin gert jafntefli.
MANCHESTER United vann
Arsenal síðast á Highbury fyrir
tæpum fimm árum. Það var 22.
ágúst 1999 þegar Roy Keane skor-
aði tvö mörk og United sigraði, 2:1.
TVEIR síðustu deildaleikir lið-
anna hafa endað með jafntefli. Á
Old Trafford, 0:0, í september, og
á Highbury, 2:2, í apríl á síðasta
ári.
Hvað
gerist?
Ámorgun eru þrjú mikilvæg stig íhúfi og þau geta farið langt með
að skera úr um hvar meistaraskjöld-
urinn hafnar í vor. Leikmenn Arsen-
al ganga til leiks fullir sjálfstrausts
eftir níu sigurleiki í röð í deildinni, og
níu stiga forskot á næsta lið, sem að
þessu sinni er Chelsea. Manchester
United er hins vegar 12 stigum á eft-
ir Arsenal þegar flautað er til leiks.
Meistararnir hafa átt erfitt upp-
dráttar undanfarnar vikur og leik-
urinn á morgun er nánast síðasta
hálmstráið fyrir Alex Ferguson og
hans menn. Þeir verða að hirða öll
þrjú stigin á Highbury til að eiga
raunhæfa möguleika á að rétta sinn
hlut og skáka Arsenal á lokaspretti
deildarinnar.
Þegar liðin mættust á Old Traf-
ford í september gekk mikið á. Ekk-
ert mark var reyndar skorað en leik-
menn Arsenal gerðu í leikslok aðsúg
að Ruud van Nistelrooy, marka-
maskínunni hjá United, og fimm
þeirra voru úrskurðaðir í leikbann í
kjölfarið. Hjá United voru Ryan
Giggs og Cristiano Ronaldo aðvar-
aðir af aganefndinni fyrir þeirra hlut
í látunum.
Ekkert hatur en alltaf
grunnt á því góða
Giggs, Walesbúinn leikni í liði
Manchester United, segir að leikir
gegn Arsenal verði alltaf spennu-
þrungnir og lítið megi út af bera, en
segir að engir leikmenn gangi til
leiks með því hugarfari að klekkja á
mótherjunum eða hefna sín eftir
fyrri átök.
„Ég tel að það ríki ekkert hatur á
milli leikmanna Arsenal og Man-
chester United en það er alltaf
grunnt á því góða þegar liðin mæt-
ast. Návígin eru hörð og kveikju-
þráður manna er stuttur, en það er
vel skiljanlegt því þessi lið hafa bar-
ist um meistaratitilinn í áraraðir.
Sagan segir okkur að það hefur oft
ýmislegt gengið á í viðureignum
þessara félaga svo ég tel ekki að við
séum meiri óvinir í dag en á árum áð-
ur. Ég vona bara að þessa leiks verði
minnst á réttum forsendum því þetta
ætti að verða stórkostlegur knatt-
spyrnuleikur. Við verðum mjög ein-
beittir, við þurfum á þremur stigum
að halda og það er allt sem við hugs-
um um. Andrúmsloftið verður
spennuþrungið en við förum ekki á
Highbury til að hefna okkar. Síðasti
leikur endaði á leiðinlegum nótum,
en þetta verður knattspyrnuleikur,
ekki bardagi,“ sagði Giggs.
Menn verða að
gleyma fyrri skærum
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, er á sama máli og seg-
ir að nú sé hvorki staður né stund
fyrir leikmenn sem vilji gera upp
einhverjar persónulegar sakir.
„Ég vil að við einbeitum okkur al-
gjörlega að því takmarki að vinna
leikinn og ná í stigin þrjú. Það er það
eina sem máli skiptir. Ég þarf ekki
að segja þetta við Patrick Vieira,
hann veit hvert hans hlutverk er, og
sama gildir um aðra leikmenn. Sig-
urinn er ákaflega mikilvægur, og við
getum knúið hann fram. Meistaratit-
illinn er í húfi, hann er sú hvatning
sem á að duga. Manchester United
er með nóg af snjöllum leikmönnum
sem geta gert okkur lífið leitt en við
verðum að gleyma fyrri skærum og
hugsa bara um þennan leik. Allir
heimaleikir okkar sem eftir eru á
tímabilinu hafa úrslitaáhrif, og þetta
er einn þeirra,“ sagði Wenger.
Cole ekki með Arsenal
en allir heilir hjá United
Ashley Cole leikur ekki með Ars-
enal á morgun. Hann meiddist á hné
í leiknum gegn Chelsea í Meistara-
deild Evrópu á miðvikudagskvöldið
og Gael Clichy, hinn ungi franski
bakvörður, tekur væntanlega stöðu
hans. Ray Parlour og Sylvain Wilt-
ord eru heldur ekki í hópnum vegna
meiðsla.
Lið Arsenal verður væntanlega
þannig skipað: Jens Lehmann –
Lauren, Kolo Toure, Sol Campbell,
Gael Clichy – Fredrik Ljungberg,
Patrick Vieira, Edu, Robert Pires –
Dennis Bergkamp, Thierry Henry.
Manchester United fær Gary
Neville aftur inn í hópinn eftir fjög-
urra leikja bann og Louis Saha hefur
jafnað sig eftir meiðsli í hásin. Þar
með eru allir í leikmannahópi United
tilbúnir, nema að sjálfsögðu Rio
Ferdinand sem er í keppnisbanni til
20. september.
Lið Manchester United verður
líklega þannig skipað: Tim Howard –
Gary Neville, Wes Brown, Mikael
Silvestre, John O’Shea – Ole Gunnar
Solskjær, Roy Keane, Paul Scholes,
Ryan Giggs – Louis Saha, Ruud van
Nistelrooy.
Reuters
Thierry Henry, Lauren, Patrick Vieira, Fredrick Ljungberg og Dennis Bergkamp hafa margoft fagnað sigri á þessari leiktíð.
„Knattspyrnuleikur,
ekki bardagi á Higbury“
STÓRVELDI undanfarinna ára í ensku knattspyrnunni, Arsenal og
Manchester United, mætast í miklu uppgjöri á Highbury í London á
morgun. Þessi tvö félög sem hafa nánast einokað toppsæti úrvals-
deildarinnar frá stofnun hennar fyrir tólf árum takast á með viku
millibili því um næstu helgi eigast þau aftur við og þá í undan-
úrslitum bikarkeppninnar. Þau skarta tveimur af mögnuðustu sókn-
armönnum deildarinnar, Thierry Henry og Ruud van Nistelrooy, og
ljóst að loft verður lævi blandið þegar Graham Poll flautar til leiks á
Highbury klukkan 15.05 að íslenskum tíma.
Reuters
Þrjú helstu tromp Manchester United-liðsins á góðri stund, Cristiano Ronaldo, fyrir miðju, ásamt
Ryan Giggs og Ruud van Nistelrooy. Fagna þeir á Highbury á morgun eða verða það heimamenn?