Morgunblaðið - 27.03.2004, Síða 77

Morgunblaðið - 27.03.2004, Síða 77
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 77  FJÓRIR glímukóngar taka þátt í sveitaglímu Íslands sem fram fer í íþróttahúsinu á Laugarvatni í dag. Þetta eru Ingibergur Sigurðsson, sjöfaldur glímukóngur, Jón Egill Unndórsson, Jóhannes Svein- björnsson og Ólafur Oddur Sig- urðsson, núverandi handhafi Grett- isbeltisins og þar af leiðandi glímukóngur. Ingibergur og Jón Egill glíma undir merkjum Íþrótta- bandalags Reykjavíkur en þeir Jó- hannes og Ólafur fyrir HSK.  INGIBERGUR hefur ekki tekið þátt í glímumóti í rúmt ár vegna meiðsla á öxl sem komu m.a. í veg fyrir að hann gæti varið Grettis- beltið síðasta vor.  STEINAR Tenden, norski knatt- spyrnumaðurinn sem lék með KA síðasta sumar, er genginn til liðs við sitt gamla félag í Noregi, Stryn, sem leikur í 3. deild. Tenden skor- aði 9 mörk fyrir KA í úrvalsdeild- inni í fyrra en Akureyrarfélagið ákvað samt að semja ekki við hann að nýju.  ALAN Smith hefur aldrei sagt að hann sé á förum frá Leeds United, segir umboðsmaður enska lands- liðsmannsins í knattspyrnu. Und- anfarið hefur verið fjallað nokkuð um það í enskum fjölmiðlum að Smith ætli sér að fara frá Leeds í sumar.  UMBOÐSMAÐURINN, Alex Black, segir að fregnirnar séu upp- spuni. „Alan hefur ekki talað við fjölmiðla í nokkrar vikur svo frétt- irnar eru ekki frá honum komnar. Hann hefur ekki óskað eftir sölu,“ sagði Black við BBC í gær. Smith hefur verið mikið orðaður við New- castle og sagt að Bobby Robson, knattspyrnustjórinn þar, vilji ólm- ur krækja í hann.  MARCO Tardelli, fyrrverandi landsliðsmaður Ítala í knattspyrnu, var í gær ráðinn landsliðsþjálfari Egypta. Markmið hans verður að tryggja Egyptum sæti í heims- meistarakeppninni í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi eftir tvö ár.  EMMANUEL Petit, leikmaður Chelsea, segist óska þess að Claud- io Ranieri, knattspyrnustjóri liðs- ins, haldi áfram hjá því en hætti ekki í sumar eins og þrálátur orð- rómur hefur verið uppi um. Petit segist reikna með hann verði ekki mikið lengur í herbúðum Chelsea hætti Ranieri að lokinni leiktíðinni.  NANDOR Fazekas, landsliðs- markvörður Ungverja í handknatt- leik, hefur gert samning við þýska 2. deildarliðið TuS N-Lübbecke um að leika með liðinu á næstu leiktíð en þá leikur liðið að öllu óbreyttu í 1. deildinni. Fazekas, sem er 28 ára gamall, leikur nú með fremsta handknattleiksliði Ungverja, Fotex Veszprem, og hefur gert undanfar- in ár. FÓLK ÍSLANDSMÓTIÐ í borðtennis verður haldið í íþróttahúsi TBR við Gnoðarvog í Reykjavík um helgina. Það hefst klukkan 10 í dag og lýkur með úrslita- leikjum í meistaraflokkum karla og kvenna sem hefjast klukkan 14 á morg- un. Guðmundur E. Stephensen, sem leik- ur með norska liðinu B-72, er kominn til landsins og freistar þess að verða Ís- landsmeistari í meistaraflokki karla ell- efta árið í röð. Halldóra S. Ólafs er Ís- landsmeistari kvenna en hún og Guðmundur urðu bæði þrefaldir meist- arar á síðasta Íslandsmóti, fyrir ári. Nær Guð- mundur ellefta titlinum í röð? GERARD Houllier, knattspyrnustjóri Liver- pool, kennir dómaranum alfarið um að lið hans skyldi falla út í 16-liða úrslitum UEFA- bikarsins í fyrrakvöld. Liverpool tapaði þá fyrir Marseille í Frakklandi, 2:1, en fyrri leiknum á Anfield lauk með jafntefli, 1:1. Eftir að Emile Heskey kom Liverpool yfir snemma leiks fékk Marseille vítaspyrnu og Igor Biscan var um leið rekinn af velli fyrir að brjóta á Steve Marlet. Liverpool lék því með tíu menn gegn ellefu í 54 mínútur og Marseille náði að skora sigurmark sitt snemma í síðari hálfleik. „Atvikið átti sér stað 3–4 metra utan víta- teigs og dómarinn beitti hagnaðarreglunni og lét leikinn halda áfram. Það var gjör- samlega út í hött að dæma vítaspyrnu og þessi dómur hafði úrslitaáhrif. Á þeirri stundu vorum við með undirtökin í leiknum og áhorfendur voru farnir að að snúast gegn sínum mönnum. Enginn leikmanna Marseille virtist biðja um vítaspyrnu og ég hélt að við fengjum markspyrnu,“ sagði Houllier. Á sjónvarpsmyndum sást að Biscan togaði í Marlet áður en franski sóknarmaðurinn reyndi markskot sem geigaði. „Víta- spyrnudómurinn og rauða spjaldið áttu full- an rétt á sér. Þegar aftasti maður brýtur af sér á þennan hátt eru reglurnar skýrar, hann er rekinn af velli,“ sagði Jose Anigo, þjálfari Marseille. John Arne Riise, bakvörður Liverpool, segir að enginn í liðinu áfellist hinn króat- íska Biscan fyrir þetta atvik. „Við kennum honum engan veginn um þetta, það getur komið fyrir alla að fá rautt spjald, og við hefðum einfaldlega getað varist betur í leiknum. Það er ekki mitt að gagnrýna dóm- gæsluna en ég sá ekki betur en að dómarinn beitti hagnaði eftir brot utan vítateigs. Þetta eru mikil vonbrigði, við ætluðum að vinna þennan bikar, en nú verðum við að taka okkur saman í andlitinu og ná því takmarki okkar að enda í fjórða sæti úrvalsdeild- arinnar og komast í Meistaradeild Evrópu. Það er félaginu gífurlega mikilvægt,“ sagði Riise. Houllier kennir dómaranum um tapið fyrir Marseille Reuters Gerard Houllier Friðrik sagði við Morgunblaðið ígær að þessi ákvörðun hefði leg- ið fyrir í nokkurn tíma. „Ég var bú- inn að ákveða það með fjölskyldu minni að ég myndi taka mér frí frá þjálfun að þessu tímabili loknu. Ég er búinn að vera á fullu í körfubolt- anum í sautján ár, sem leikmaður og síðan sem þjálfari, og þetta er orðinn ansi langur tími. Ég er orðinn mett- ur af körfubolta í bili, auk þess sem ég held að það sé gott fyrir Njarðvík- urliðið að fá nýtt blóð í þjálfunina. Fjögur ár með sama þjálfarann er langur tími fyrir hvaða lið sem er,“ sagði Friðrik. Dómararnir hrifust með stemningunni í húsinu Hann hefði að vonum viljað stýra liðinu aðeins lengur á yfirstandandi tímabili og er mjög ósáttur við hvernig Njarðvík féll úr keppni í fyrrakvöld. „Dómgæslan í Stykkishólmi er sú skrautlegasta sem ég hef séð, sér- staklega í fjórða leikhluta. Dómar- arnir hrifust greinilega með stemmningunni í húsinu og færðu Snæfelli sigurinn. En leikmenn Snæ- fells eiga samt sem áður heiður skil- inn fyrir að gefast ekki upp í erfiðri stöðu og það þarf enginn að skamm- ast sín fyrir að falla úr keppni fyrir þessu liði, þó það sé óþarfi að gera það á þennan hátt. Snæfell er mjög gott lið sem á góða möguleika í úr- slitaeinvíginu um Íslandsmeistara- titilinn, hvort sem það mætir Grinda- vík eða Keflavík. Þetta er firnasterkt fimm manna lið og með sterkan heimavöll, þar sem það á að geta nýtt sér heimavallarréttinn í úrslitaleikj- unum. Vinni Snæfell fyrsta leikinn á sínum heimavelli er liðið í góðum málum,“ sagði Friðrik Ragnarsson. Friðrik er hættur með Njarðvík FRIÐRIK Ragnarsson er hættur sem þjálfari úrvalsdeildarliðs Njarðvíkinga í körfuknattleik. Hann lauk sínu fjórða tímabili sem þjálfari liðsins í fyrrakvöld þegar Njarðvík féll út fyrir Snæfelli í und- anúrslitum úrvalsdeildarinnar. Friðrik stýrði liði Njarðvíkur ásamt Teiti Örlygssyni tímabilið 2000–2001 og hefur síðan verið einn með liðið undanfarin þrjú ár. REYKJAVÍKURÚRVAL sund- manna tekur þátt í alþjóðlegu sund- móti í Köge í Danmörku um helgina. Á mótinu keppa alls um 600 sundmenn frá 38 sundfélögum frá öllum Norðurlöndum. Á vegum Íþróttabandalags Reykjavíkur keppa 15 sundmenn frá Ægi, KR, Fjölni, og Ármanni. Mótið er bæði einstaklingskeppni og liðakeppni. Í Reykjavíkurúrvalið voru valdir sundmenn fæddir 1990 og eldri samkvæmt afrekalista SSÍ. Á myndinni að ofan eru sund- mennirnir ásamt þjálfurum sínum áður haldið var af stað, efst eru þjálfararnir, Arna Þórey Svein- björnsdóttir Ægi og Mads Claussen KR , og Gústaf Adólf Hjaltason, far- arstjóri. Sundmennirnir eru Krist- ján Jóhannessson, KR, Jón Símon Gíslason, Ægi, Oddur Örnólfsson, Ægi, Flora Montagni, KR, Hjörtur Már Reynisson, KR, Auður Sif Jóns- dóttir, Ægi, Baldur Snær Jónsson, Ægi, Árni Már Árnason, Ægi, Jó- hanna Gerða Gústafsdóttir, Ægi, Eva Hannesdóttir, KR, Ásbjörg Gústafsdóttir, Ægi, Birna Sif Magn- úsdóttir, Ægi, Hólmgeir Reynisson, KR, Katrín Gunnarsdóttir, Ár- manni, Sigrún Brá Sverrisdóttir, Fjölni. Ljósmynd/Jóhann A. Kristjánsson. Reykjavík- urúrvalið keppir í Köge
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.