Morgunblaðið - 27.03.2004, Qupperneq 79
78 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Guðmundur E. Stephensen,
Íslandsmeistari í MFL karla 94, 95,
96, 97, 98, 99, 2000, 2001,
2002 og 2003
Kl. 11.40
úrslit 2. flokkur karla
og kvenna.
Kl. 12.00
úrslit 1. flokkur kvenna
og karla.
Kl. 12.30
úrslit tvíliðaleikur karla
og kvenna.
Kl. 14.00
úrslitaleikir í
meistaraflokkum karla
og kvenna.
TBR-Íþróttahúsið
Mótið hefst laugardaginn 27. mars
kl. 10 með tvenndarkeppni.
Sunnudaginn 28. mars hefjast
undanúrslitaleikir kl. 11.
Íslandsmótið í borðtennis 2004
Verðlaunaafhending sunnud. 28. mars kl. 14.45.
Áhugamenn um borðtennis fjölmennið!
FRIÐRIK Ragnarsson, fráfarandi þjálfari körfuknattleiksliðs Njarðvík-
inga, sagði við Morgunblaðið í gær að körfuknattleikshreyfingin þyrfti
að fara í algjöra naflaskoðun. Sérstaklega hvað varðaði reglur um
bandaríska leikmenn. Í vetur hafa sum úrvalsdeildarfélaganna verið
með þrjá slíka í sínum röðum og Friðrik segir að það sé óheillavænleg
þróun fyrir íslenskan körfuknattleik.
„Ég hef tekið saman hvað það hefur kostað félögin að fá til sín
bandaríska leikmenn frá árinu 1990 og það eru í það minnsta 300 millj-
ónir króna. Á sama tíma berjast þau í bökkum við að ná endum saman
og fæst þeirra hafa til dæmis getað ráðið þjálfara til heils árs í senn.
Ég vildi gjarnan sjá þessar 300 milljónir renna til uppbyggingarstarfs í
félögunum næstu fjórtán árin en ekki í bandaríska leikmenn. Hvað
hafa þeir skilið eftir sig? Ekki hefur áhorfendum fjölgað.“
Hann sagðist reikna með því að á næsta tímabili yrði leyfðir tveir
bandarískir leikmenn í hverju liði. „Mér heyrist að það sé niðurstaðan
eftir formannafund á dögunum. En tveir er alltof mikið, einn er há-
mark.
Vissulega er sú úrslitakeppni sem nú stendur yfir stórskemmtileg og
gæði körfuboltans hjá fjórum efstu liðunum eru mikil en það réttlætir
ekki þennan kostnað sem lagður er í bandarísku leikmennina,“ sagði
Friðrik Ragnarsson.
Hafa eytt 300 milljónum í
bandaríska leikmenn
Gestirnir komu ákveðnir til leiks íRöstinni í gær og einungis eitt
lið var lengstum á
vellinum í fyrri hálf-
leik. Sumir áhang-
enda heimamanna
fannst liðið sitt flensulegt, alla vega
hálf slappt í fyrri hálfleik. Gestirnir
voru yfir allan fyrri hálfleik og náðu
19 stiga forustu þegar 4 mínútur voru
eftir af öðrum leikhluta 26:47.
Heimamenn löguðu stöðuna aðeins
en fyrri hálfleikur var algjörlega eign
gestanna sem fóru til búningsher-
bergja með frekar lítið forskot miðað
við yfirburðina, 46:55.
Engin breyting varð á muninum á
liðunum í þriðja leikhluta sem gest-
irnir höfðu einnig frumkvæðið í og
þegar síðasti leikhluti hófst var stað-
an 69:77 fyrir Keflavík.
Við upphaf fjórða leikhluta hrökk
Anthony Jones í gang hjá Grindvík-
ingum og átti mjög góða rispu en
fékk sína aðra tæknivillu eftir 4 og
hálfa mínútu en hafði þá skorað 11
stig í leikhlutanum. Gestirnir nýttu
sér þetta og náðu að jafna leikinn en
þá höfðu heimamenn í fyrsta skipti
komist yfir skömmu áður.
Eftir þetta skiptust liðin á að taka
forustu en í framlengingu fór leikur-
inn 94:94. Heimamenn, sem höfðu þá
misst Anthony Jones og Jackie Ro-
gers af velli en þeir höfðu verið áber-
andi í sóknarleik þeirra, tóku vel við
sér og skoruðu fyrstu fimm stigin í
framlengingu en Keflvíkingar náðu
að rétta sinn hlut og minnkuðu mun-
inn í eitt stig 101:100. Þegar staðan
er 106:102 fyrir heimamenn tóku
Keflvíkingar leikhlé þegar 27,9 sek-
úndur voru eftir. Magnús Gunnars-
son setti niður ótrúlegt þriggja stiga
skot og minnkaði muninn í 106:105.
Grindvíkingar fengu frábært færi
sem misfórst og Keflvíkingar fengu
færi hinum megin en skot þeirra mis-
fórst einnig og lokastaðan 106:105.
Bestir í liði gestanna voru þeir
Derrick Allen og Fannar Ólafsson.
Hjá heimamönnum voru þeir Darrel
Lewis og Anthony Jones bestir.
„Þetta var svakalegur leikur. Við
vorum betri enda finnst mér við vera
með betra lið. Vorum ekki nógu klár-
ir í leiknum. Þegar komið er út í
svona leiki þá er þetta ekki spurning
um getu heldur hugarfar. Menn
verða að vera með hausinn í lagi og
spila það sem lagt er upp. Þetta gekk
ekki en nú er það sunnudagurinn og
svo aftur hér á þriðjudag,“ sagði Fal-
ur Harðarson, annar af þjálfurum
Keflavíkur, eftir leikinn.
„Þetta var magnaður leikur. Góð
auglýsing fyrir íþróttina en leikurinn
var heldur kaflaskiptur. Þeir áttu
fyrri hálfleik og við vorum ekki með.
Við lékum verr en illa en náðum að
klóra í bakkann undir lok fyrri hálf-
leiks. Vorum ekki sáttir við okkar
spilamennsku okkar í fyrri hálfleik
og vorum ákveðnir að sýna stuðn-
ingsmönnum okkar annan leik. Þetta
var frábær endurkoma og við efld-
umst við að missa leikmenn af velli.
Mér fannst við koma sterkir til baka
og náðum að sýna góðan karakter í
síðari hálfleik og í framlengingunni
en þar ráðast hlutir oft af litlum hlut-
um. Þeir gátu alveg stolið þessu eins
og við gátum tryggt þetta í lokin,“
sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálf-
ari Grindvíkinga.
Morgunblaðið/Einar Falur
Keflvíkingurinn Gunnar Einarsson reynir að gæta Darrel Lewis, leikmanns Grindavíkur.
Æsilegur lokakafli
ÞRIÐJI leikur Grindvíkinga og Keflvíkinga í undanúrslitum Íslands-
mótsins í körfuknattleik í gærkvöldi var frábær skemmtun sem
endaði í framlengingu í stöðinni 94:94. Heimamenn í Grindavík
höfðu betur eftir mikinn darraðardans í framlengingunni 106:105
en Keflvíkingar áttu færi til að tryggja sér sigur í blálokin en tókst
ekki. Staðan því 2:1 fyrir Grindavík.
Garðar P.
Vignisson
skrifar
Naumt
tap U17
ÍSLENSKA landsliðið, skipað
17 ára strákum og yngri, tap-
aði naumlega fyrir Englend-
ingum milliriðli Evr-
ópukeppninnar í gærkvöldi.
Englendingar skoruðu eina
mark leiksins á síðustu mín-
útunni og fögnuðu sigri og
efsta sætinu í riðlinum, en
það er það sæti sem gefur
rétt til að komast á næsta stig
hennar.
Að sögn Ástráðs Gunn-
arssonar, eins fararstjóra
KSÍ með liðinu, var leikurinn
mjög vel leikinn og skemmti-
legur. „Það var grátbölvað
að fá þetta mark á sig. Þeir
fengu ódýra aukaspyrnu og
komu boltanum fyrir og leik-
maður þeirra skallaði í mark-
ið. Ég held að bæði lið hefðu
getað sætt sig við markalaust
jafntefli,“ sagði Ástráður.
Íslenska liðið fékk betri
færi í fyrri hálfleik en heima-
menn voru mun meira með
boltann. Mikil barátta var í
leiknum og „hart tekist á.
Svona alvöru enskur bolti,“
sagði Ástráður.
Fyrr í gær unnu Armenar
lið Noregs 4:1 en Íslendingar
mæta þeim á sunnudaginn.
ÍBV hefur samið við Hrafn Dav-
íðsson, knattspyrnumarkvörð úr
Fylki, sem hefur verið í herbúðum
Eyjamanna síðustu vikurnar. Hrafn
er tvítugur og verður varamarkvörð-
ur fyrir Birki Kristinsson í sumar.
Hann kemur í staðinn fyrir Ígor
Bjarna Kostic sem er genginn til liðs
við Skála í Færeyjum.
RAGNA Ingólfsdóttir badminton-
kona komst í gær í 16 manna úrslit í
einliðaleik á Opna pólska meistara-
mótinu þegar hún bar sigurorð af
Fan Frances Liu frá Singapúr í
tveimur lotum. Sara Jónsdóttir féll
hins vegar úr keppni þegar hún tap-
aði fyrir Jody Patrick frá Kanada í
tveimur lotum.
BRANKO Bulatovic, fram-
kvæmdastjóri knattspyrnusam-
bands Serbíu og Svartfjallalands, er
alvarlega særður á hálsi eftir að
hann varð fyrir skotárás fyrir utan
höfuðstöðvar sambandsins í Bel-
grad.
ÖLLUM leikjum helgarinnar í
landinu hefur verið frestað og
Stojkovic, forseti sambandsins,
sagði að íhugað væri að aflýsa vin-
áttulandsleik gegn Noregi sem fram
á að fara á miðvikudag.
FÓLK
ÍÞRÓTTIR