Morgunblaðið - 27.03.2004, Side 88
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
EINN kunnasti kántrítónlistarmaður sög-
unnar, kvikmyndaleikarinn og lagahöfund-
urinn Kris Kristofferson, heldur tónleika í
Laugardalshöll 14. júní
nk.
Kristofferson er þre-
faldur Grammy-verð-
launahafi og hefur samið
fjölmörg lög, sem hann og
aðrir listamenn hafa kom-
ið í toppsæti vinsældalista,
einkum á 8. áratug síð-
ustu aldar. Samdi hann
meðal annars lögin „Me &
Bobby McGee“ sem kunn-
ast er með Janis Joplin, „Help Me Make It
Through The Night“ og „Sunday Morning
Coming Down“ sem Johnny Cash gerði að
sínu.
KK og Ríó tríóið munu hita upp fyrir
Kristofferson á tónleikunum í Höllinni. /81
Kris Kristoffer-
son til Íslands
Kris Kristofferson
FRIÐRIK Ragnarsson körfuknattleiksþjálfari
segir að íslensk félög hafi eytt um 300 millj-
ónum króna í bandaríska leikmenn á und-
anförnum árum. Hann segir að það sé óheilla-
vænleg þróun fyrir íslenskan körfuknattleik
þegar allt að þrír bandarískir leikmenn séu í
liðunum, þeir hafi lítið skilið eftir sig og ekki
stuðlað að fjölgun áhorfenda. Hann vill að
þessum fjárhæðum verði á næstu árum frekar
varið til uppbyggingarstarfs. /79
Um 300 milljónir í
bandaríska leikmenn
HÁTT á fjórða hundrað manns sótti ráðstefnu
um málefni fatlaðra á vegum félagsmálaráðu-
neytisins undir yfirskriftinni Góðar fyrir-
myndir á Nordica hóteli í gær. Á ráðstefn-
unni, sem jafnframt var lokaviðburður í
skipulagðri dagskrá Evrópuárs fatlaðra, var
fjallað um það sem vel hefur tekist í þágu fatl-
aðra á árinu og kynntar þær framfarir sem átt
hafa sér stað og þótt hafa sérstaklega áhuga-
verðar. Meðal annars voru kynnt verkefni
sem hlutu styrk úr styrkjasjóði Evrópuárs
fatlaðra.
Árni Magnússon félagsmálaráðherra sagði
m.a. í ræðu við setningu ráðstefnunnar að
tengsl hinna fötluðu og umhverfisins sem þeir
byggju í skiptu sköpum um áhrif fötlunar á líf
einstaklinga. „Í stað þess að fatlaðir lagi sig að
samfélaginu er það ekki síður hlutverk sam-
félagsins að laga sig að þörfum fatlaðra. Hlut-
verk samfélags framtíðarinnar er ekki síst að
skapa góðar ytri aðstæður sem nýst gætu fötl-
uðum sem ófötluðum,“ sagði ráðherra.
Þá voru hugmyndir Hugarafls kynntar á
ráðstefnunni en hópurinn hefur þróað við-
skiptahugmynd um rekstur kaffihúss í mið-
borginni þar sem geðsjúkir sjá alfarið um
reksturinn. Standa vonir til þess að hægt
verði að hleypa rekstrinum af stokkunum á
næstu misserum, eða um leið og peningar til
rekstrarins hafa safnast. Elín Ebba Ásmunds-
dóttir, forstöðuþjálfi geðsviðs LSH og lektor
við Háskólann á Akureyri, sagði atvinnulífið
að mörgu leyti ekki undir það búið að taka við
geðsjúkum í vinnu því þeir eigi erfitt með að
laga sig að hefðbundnum vinnutíma frá
morgni til kvölds.
„Hlutverk samfélagsins að
laga sig að þörfum fatlaðra“
Morgunblaðið/Golli
Netvafrar …/10
Á fjórða hundrað
manns sóttu ráðstefnu
um málefni fatlaðra
MEIRI líkur en minni eru taldar á því að
Jón Garðar Ögmundsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri veitingastaðarins Hard Rock,
kaupi McDonald’s á Íslandi. Eigendur
McDonald’s eru hjónin Kjartan Örn Kjart-
ansson og Gyða Guðmundsdóttir. Hard
Rock er í eigu fjárfestingarfélagsins Gaums.
Jón Garðar var áður framkvæmdastjóri
Pizza Hut, sem Gaumur á 40% hlut í. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins eru
samningar um sölu Gaums á Pizza Hut á
lokastigi. /14
McDonald’s að
skipta um eigendur
sæti bæði í ólympíuliðinu í
efnafræði og stærðfræði og þá
hafi hann ekki hikað andartak
við að velja stærðfræðina og
stefni á að reyna að ná góðum
árangri í ólympíukeppninni í
Aþenu nú í sumar.
Spurður um ástundunina í
stærðfræði segir Höskuldur að
fyrir utan námið sjálft á eðl-
isfræðibraut I í MR sé æfinga-
kennsla á hverjum laugardegi
þar sem farið sé í „öðruvísi“
stærðfræði. Auk þess sé síðan
sérstök þjálfun fyrir ólympíu-
leikana á sumrin.
Höskuldur segir að sér
gangi eiginlega vel í öllum fög-
um. „Mér finnst t.d. þýska og
íslenska mjög skemmtileg fög
og ég vann þýskuþrautina.“
Fyrir utan námið segist Höskuldur spila
golf á sumrin, sér þyki það mjög skemmtileg
íþrótt. Á veturna fari hann reglulega í fót-
bolta með bekkjarfélögunum.
Höskuldur segist ekki vera búinn að
ákveða hvað hann geri eftir stúdentspróf en
líklega muni hann leggja fyrir sig einhverja
raungreinina í háskóla, hugsanlega stærð-
fræði.
HÖSKULDUR Pétur Halldórsson
í 5. bekk Menntaskólans í Reykja-
vík sigraði annað árið í röð í
landskeppni í stærðfræði með 60
stig af 60 mögulegum. Höskuldur
bætti síðan um betur og sigraði
einnig í landskeppninni í efna-
fræði en þar var hann að taka
þátt í fyrsta sinn. Þá varð hann
annar í eðlisfræðikeppninni.
„Sá sem varð í 2. sæti var með
58 stig og við erum báðir miklir
reynsluboltar í stærðfræðinni
þannig að ég held að prófið í
stærðfræðinni hafi verið frekar
auðvelt,“ segir Höskuldur í sam-
tali við Morgunblaðið og bætir við
að þegar hann sigraði í fyrra hafi
hann náð um 50 stigum af 60
mögulegum.
Höskuldur segir að sér hafi alla tíð gengið
vel í stærðfræði og óhætt sé að segja að hún
sé hans uppáhaldsfag þótt honum gangi
reyndar vel í mörgum öðrum fögum.
En sigur í efnafræðinni líka? „Það er langt
í frá að efnafræðin sé mitt eftirlætisfag,“ seg-
ir Höskuldur. „Ég reikna með að ég sé góður
í stærðfræði af því ég get hugsað skýrt og
það gagnast mér líka í efnafræðinni.“
Höskuldur segir að sér hafi verið boðið
Sigraði bæði í stærð-
fræði og efnafræði
Drjúgur keppandi í raungreinakeppnum
Höskuldur Pétur Hall-
dórsson með heim-
ilislæðuna Bangsínu.
ÍBÚÐ í húsi við Skólastíg á Akureyri stór-
skemmdist í eldsvoða í gær þegar kviknaði í af
ókunnugum orsökum. Þrjár íbúðir eru í hús-
inu, sem er steinhús á tveimur hæðum auk
kjallara. Enginn var heima við þegar tilkynn-
ing barst um eldinn klukkan 17.24.
Íbúðin sem kviknaði í er á miðhæð hússins.
Allt tiltækt lið Slökkviliðsins á Akureyri, fimm-
tán slökkviliðsmenn á tveimur dælubílum, var
kallað út og var svefnherbergi í íbúðinni alelda
þegar að var komið. Slökkviliðinu hafði tekist
að slökkva eldinn um klukkan 18 og olli elds-
voðinn ekki teljandi skemmdum á hinum íbúð-
unum. Að sögn varðstjóra slökkviliðsins gekk
slökkvistarf vel. Tildrög eldsvoðans eru í rann-
sókn hjá lögreglunni á Akureyri.
Íbúð stórskemmdist í bruna
Morgunblaðið/Kristján
Reykkafarar í Slökkviliði Akureyrar að störfum í íbúðinni við Skólastíg á Akureyri.