Pressan - 27.02.1992, Blaðsíða 26

Pressan - 27.02.1992, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR PRESSAN 27 FEBRÚAR 1992 L í K A M I N N HVAÐA LÍKAMSRÆKT HEFURPU PRÓFAÐ? BÁRA LYNGDAL magnúsdóttir leikarí Handbolta Fótbolta LEIKFIMI Fimleika skíði Líkamsrækt Hafsteinn PÉTURSSON veitingamaöur á Staöið á Öndinni Handbolta SUND GÖNGUFERÐIR Kjartan Bjargmunds- SON leikarí Erfiðisvinnu ermeö hreinræktaöa vöðva af eriiöisvinnu eins og megnið afaiþýðu íslands SUND viö og viö JÓHANNES VlÐAR BJARNASON veitingamaður i Fjörukránni FÓTBOLTA SUND TÓMAS TÓMASSON óperusöngvari Dans Lyftingar SUND HLAUP 200.000 GRETTUR í EINNI HRUKKU Það þarf 200.000 grettur til að mynda eina hrukku, en þær eru óumflýjanlegar með öllu. Slaki í húðinni ágerist með aldrinum og gerir að verkum að þér líður eins og þú sért klædd í of stóra flík. Vitneskj- an um að húð kvenna er um 15 „árum“ eldri en karlmanna er ef til vill einhverjum nokkur sárabót. HVERSU GÖMUL ER HÚÐIN? Tvítug: Engin vandamál, engar hrukkur. Þrítug: Láréttar línur setja mark sitt á andlitið og gera það ábúðarfullt. Húðin þornar og brjóst kvenna missa stinnleik- ann. Fertug: Pokar undir augun- um eru orðnir viðvarandi. Húðin undir kjálkum og á hálsi fer að slakna, og hrukkur dýpka. Fimmtug: Enn meiri slaki og hrukkur verða nú mjög áberandi. Börnin láta athuga- semdir flakka. Sextug: Eyrnasneplar fara að lafa og nefið verður ein- hvern veginn meira áberandi. Litaraft getur breyst. heillaráð Stundaðu heil- brigt líferni. Hættu að reykja og borðaðu léttari fæðu, of snöggur megrunarkúr er þó ekki ráðlegur og hraður fitu- missir getur eyðilagt húðina. Farðu í röskari gönguferðir en út að bíl og fáðu þér vítamín. Mundu það líka að sólin er stórhættuleg húðinni. Ef þú hefur hins vegar óstöðvandi löngun til að fara lengri leiðina skaltu hunsa þessi ráð og fara í fegrunaraðgerð þegar í óefni stefnir. BEIN EÐA BEINN Er farið að braka í þér? Ekkert skrítið, beinin eldast líka. HVERSU GÖMUL ERU BEININ? Tvítug - þrítug: Glæsileg bygging, stinnur kroppur og fimar hreyfingar. Fertug: Morgunleikfímin tekur nýja stefnu því þú átt erf- itt með að snerta tæmar núorð- ið. Þú finnur fyrir verkjum í liðamótum og þú heldur að þeir hverfi. Sem þeir og gera... í bili. Fimmtug: Nú fara að gera vart við sig áður óþekktir verk- ir í mjöðmum og öxlum. Háls- rígur ágerist. Sextug: Liðamót eru stöð- ugt stirðari. Sjötug: Bakið fer að bogna og almennur stirðleiki er áber- andi. Beinþynning herjar á þess- um aldri á einn af hverjum tíu mönnum og fjórar af hverjum tíu konum. heillaráð Regluleg hreyf- ing í gegnum lífið. Fátt er betra en góðar göngur og sund. VÖEJVAR í CÓÐD FORMI Vöðvauppbygging kynj- anna eru ólík, en karlmenn eru upp á sitt besta í kringum þrí- tugt. Þá fer styrkur þeirra hægt og rólega niður á við og dalar mikið þegar fimmtugsaldrin- um er náð. Vöðvar kvenna eru ekki eins sterkir og fara að slakna strax upp úr þrítugu. HVERSU GAMLIR ERU VÖÐV- ARNIR? Tvítugur maður ætti að geta gert 45-50 armbeygjur án þess að blása úr nös. Þrítugur er hann kominn niður í 40-45 og tíu árum síðar niður í 35-40. 25-35 æfingar getur hann af- rekað þegar hann stendur á fimmtugu en sextugur 10-20. Konur eru ekki frægar fyrir að stunda armbeygjur en þær sem kvarta undan slöppum lær-, maga- og rassvöðvum eru á leið yfir landamærin og ættu að fara að athuga sinn gang. HEILLARÁÐ Puða, púla Og auka styrkinn. Stunda leikfimi reglulega og muna það að böm eru engin afsökun fyrir því að komast ekki í ræktina! EKTATENNUROG FALSKAR Með nútímatannhirðu ætti enginn að eiga það á hættu lengur að fá falskar í ferming- argjöf. Ef foreldrar þínir voru sæmilega tenntir og þú hefur farið eftir ráðum tannálfsins ættirðu að vera sæmilega staddur um sjötugsaldurinn. HVERSU GAMLAR ERU TENN- URNAR? Fullorðinstennur eiga það sameiginlegt heilafrumum að geta ekki endumýjað sig verði þær fyrir skemmdum. Ef þú finnur um fertugt að úr gómn- um blæðir og tennur fara að losna er eins gott að drífa sig til tannlæknis. Fram að þeim tíma ætti allt að vera í lagi. HEILLARÁÐ Burstinn er eins og allir vita númer eitt, tvö og þrjú. Notaðu síðan allar þær tann- hreinsiaðferðir sem þekktar eru en reiknaðu þó ekki með að þær séu eins áhrifaríkar og auglýsingar gefa til kynna. MELTINCIN BREYTIST LÍTIÐ Meltingareiginleikar líkam- ans breytast, en þó ekki eins mikið og við mætti búast. Að vísu er líklegt að þú getir ekki borðað eins mikið hangikjöt og þú gerðir, sveskjur verða æ tíðari á morgunverðarborðinu, þorsti sækir sfður að þér en klósettferðir verða hins vegar tíðari. Smámál miðað við margt annað. HVERSU GÖMUL ERU MELTING- ARFÆRIN? Tvítug - þrítug: Þú getur látið allt ofan í þig og finnur ekki fyrir neinu. Fertug: Þú ert saddari en venjulega eftir góða máltíð og höfuðverkur segir duglega til sín þegar þú hefur fengið þér eitt staup með kaffinu. Fimmtug: Brjóstsviði áger- ist og þú heldur stöðugt að þetta sé eitthvað alvarlegra en það í raun er. Sextug: Maginn hægir á starfsemi sinni og segir oft duglega til sín. HEILLARÁÐ Rétt fæða er það sem gildir. Trefjar eru bestu vinir meltingarfæranna og það þarf að auka magn þeirra í fæðunni töluvert þegar fólk eldist. Drekktu ótakmark- að magn af vatni og kláraðu að borða í það minnsta þremur tímum fyrir svefn. Víns ber að neyta í hófi, eins og alþjóð veit. LUNGUN BESTI MÆLI- KVARÐINN Virkni lungnanna er besti mælikvarði á líffræðilegan aldur manna. í kringum tvftugt eru þau á hátindi virkni sinnar sem minnkar, undir venjuleg- um kringumstæðum, upp frá því um 1 prósent á ári. Hraði þessa ferlis margfaldast hins vegar ef fólk finnur hjá sér þá hvöt að púa sígarettur og nnur reykmyndandi fyrirbæri í tíma og ótíma. Það er mikilvægt að fara í læknisskoðun reglulega eftir fertugsaldurinn, en með slíku eftirliti er oft hægt að uppgötva leynda sjúkdóma áð- ur en þeir ná valdi á heilsu manna. HVERSU GÖMUL ERU LUNGUN? Það er erfitt að meta hvar á aldursskeiðinu lungun eru stödd. Nokkur merki má hins vegar koma auga á. í fyrsta lagi er erfiðara að halda niðri í sér andanum. I öðru lagi eru göngur upp stiga ágæt próf. Þegar lungun ætla hreinlega út úr manni á annarri hæð er það venjulega vísbending um að nú fari að borga sig að taka lyftuna. HEILLARÁÐ Virkni lungna fellur um fjórðung milli þrf- tugs og sjötugs. Meðal reykingamanna fell- ur hún hins vegar um helming milli þessara aldursskeiða. Hættu því að reykja, ef þú ert ekki þegar búinn að því. Hvers kyns úthaldsæfingar auka þrek og talið er að gulrótarát hafi góð áhrif. HJARTA MANNSINS Veikt hjarta á ekki endilega rætur að rekja til aldurs og geta því legið allt aðrar ástæður að baki hjartakvillum. Það er jafnframt þekkt stærð að karl- menn þurfa að vera mun meira á varðbergi gagnvart þeim en konur. Eftirfarandi pistill er því sérstaklega ætlaður karl- mönnum. HVERSU GAMALT ER HJARTAD? Tvítugt - þrítugt: Allt eins og það á að vera og hjartað pumpar eðlilega. Andlegt ójafnvægi getur þó truflað starfsemina en þá er eina ráðið að fara í gott frí. Fertugt: Ef þú reykir, borð- ar óholla fæður og hreyfir þig lítið sem ekkert ertu á hraðri leið inn í áhættuhóp. Fimmtugt - sextugt: Á þessum aldri er líklegast að þú getir orðið fyrir hjartaáfalli. Hættan eykst til muna eftir 55 ára aldurinn. Líkumar á því að karlmaður fái hjartaáfall eru einn á móti fimm, en hlutfallið er mun lægra meðal kvenna. Sjötugt: Á þessum aldri getur hjartað allt eins verið sem á táningsaldri... það fer eftir því hvaða lífsstfll hefur verið ofan á í tilverunni. heillaráÐ Ef þú hefur ver- ið með sjálfum þér síðustu ár veistu að sjálfsögðu að lágt fitumagn í mat er töfraorð og reykingar eru á bannlista. Æf- ingar eru á heillalistanum, en það þarf líka að framkvæma þær og það minnst þrisvar í viku. HEILINN HELDURSÉR Heilinn er líffæri sem heldur sér vel og fólk verður ekki vart við aldur fyrr en minnisleysi er farið að hijá það alvarlega. Rýmun heilans er því ákaflega lítil framan af og kernur helst fram í minnkandi eftirtekt og hægari viðbrögðum. Það má hins vegar halda sér ungum í toppstykkinu með því að fylgj- ast vel með. Ekki rykfalla! HVERSU GAMALL ER HEILINN? Því hefur verið haldið fram að heilbrigð hugsun hyrfi með hækkandi aldri. Æ fleiri rann- sóknir afsanna þessa kenningu og benda til að andlegt ástand einstaklings og vakandi hugar- far séu með mikilvægari þátt- um í viðhaldi heilans. Þegar sjötugsaldri er náð aukast þó líkumar til niuna á hvers kyns hrömun. heillaráð Notaðu það sem þú hefur og mundu að hvers kyns örvun er nauðsyn- leg þessu líffæri. KYNLÍFID ELDIST LÍKA Hér koma slæmu fréttimar. Eftir því sem fólk eldist verður kynlíf stöðugt minni hluti til- verunnar. Karlmenn eiga í sí- fellt meira basli við að láta liminn harðna og löngun dvín hjá báðum kynjum. Það eru kannski góðu fréttirnar að þú færð hvötum þínum lullnægt í réttu hlutfalli við löngun. HVERSU GAMLAR ERU HVAT- IRNAR? „Aldur" kynlífsins er af- skaplega persónubundinn, en karlmenn eiga erfiðara með að leyna honum en konur. Ung- Iingsdrengur getur látið lim sinn harðna nokkrum mínútum eftir sáðlát en það tekur tvítug- an mann um hálftíma að ná sama markmiði. Maður á fimmtugsaldri þarf hins vegar að bíða allt að heilum sólar- hring. Það er algengt meðal karlmanna að þeir neita að horfast í augu við minnkandi kyngetu og á miðjum aldri eru því oft vandamál samfara. Það eru hins vegar engar leiðir til varnar, þetta hellist yfir alla og þá er bara að sætta sig við orð- inn hlut. HEILLARÁÐ Njóttu þess meðan tími gefst til. VANDINN MED ÞYNGDINA Offita er algengt vandamál, en auðvitað algerleg óþarft. Það eina sem gildir er að hemja græðgina og láta réttar fæðutegundir ofan í sig. Getur reynst erfitt, en engar afsakan- ir duga fyrir björgunarbeltum og þykkum lærurn á miðjum aldri; þetta má allt skrifa á óhollustu og hreyfingarleysi. ALDUR KÍLÓGRAMMA Þegar fólk eldist minnkar brennsla og aukakflóin eiga það til að hlaðast upp. Konur finna fyrir þessu mun fyrr en karlmenn og barneignir setja einnig strik í reikninginn. Þeim ber því að vara sig strax upp úr tvítugu. Það fer hins vegar oft að halla undan fæti þegar karlmenn nálgast fer- tugsaldurinn. Einn af hverjum fimm karlmönnum á við of- fituvandamál að stríða undir þrítugu, en þeir hinir sömu ættu að taka sig á og aðrir að láta það víti verða sér til vam- aðar. heillaráð Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.