Pressan - 27.02.1992, Side 31

Pressan - 27.02.1992, Side 31
FIMMTUDAGUR PRESSAN 27. FEBRÚAR 1992 31 EINAR KÁRASON BÓKMENNTIRNAR ERU ARBRÖCÐ ÍSLENDINCA „ Upplestur fyrir fólk í sal er góð aðferð til að prufukeyra texta. Ýmsir fingurbrjótar sem manni yfirsjást á pappímum verða œpandi hallœrislegir í upplestri. Það á til dœmis við um allskyns tilgerð í stíl. Framhaldsskólanemar eru nokkuð góðir áheyrendur, og reyndar ýrnsir fleiri sem ég hef lesið fyrir, kiwanismerm, saumaklúbbar, fangar; maður finnur strax hvernig stemmn- ingin í salnum hrynur ef maður œtlar að breiða yfir hug- myndaleysi með því að fœra orðalagið í einhvern barokk- skrúða. “ Það er Einar Kárason rithöf- undur sem er að segja frá reynslu sinni af því að lesa upp úr skáldsögu sem hann hefur í smíðum, en þar er ekki ein- göngu um lestur að ræða því að hann, ásamt nokkrum félögum sínum úr hópi skálda og djassmús- rkanta, býður um þessar mundir þeim sem heyra vilja upp á dagskrá með upp- lestri og hljóðfæra- slætti. Einar er sjálfsagt þekktastur fyrir hin- ar svokölluðu Eyja- bækur; Fyrirheitna landið, Þar sem djöflaeyjan ns og Gulleyjuna. Bækur þessar, sem mynda einskonar heild, hafa notið mikilla vinsælda og þykja að öðrum bókum ólöstuðum lýsa ótrúlega vel lífsbar- áttu og draumum fátækra borgarbúa á fimmta og sjötta áratug aldarinnar. Leikgerð eftir Eyja- sögunum, sern Kjartan Ragnarsson skrifaði og setti upp í yfírgefnu fisk- verkunarhúsi á Meistaravöllum fyrir fáeinum árum, naut mikilla vin- sælda. Það sama má segja um viðbrögð lesenda í nágranna- löndunum, en bæk- urnar hafa þegar verið þýddar á sex tungumál. Einar segist hafa kvatt Thulekampsverkefnið með kurt og pí í ágúst 1989 eftir að hafa verið með það í takinu, með hléum, meira og minna í átta ár. „Og það var nú alveg kom- inn tími til að segja bless þótt kynni mín af þessu söguefni hafi verið ánægjuleg. Eg spannaði það tímabil sem ég hafði ætlað mér og það var nokkur léttir að verða laus frá þessu verkefni. Það er ótímabært að ætla að lýsa því hvemig það sem ég er að fást við núna mun líta út á endanum. En ég held að það henti ágætlega mínum stíl að hafa ekki of fábreytilegt safn af söguhetjum, ég hef mest gaman af að fást við persónur bæði smáar og stórar. Og ef um er að ræða margar persónur og drjúgan tíma þá er erfitt að gera því skil nema í löngu máli.“ ÞAÐ EINASEM MA£>- UR KANN, - EF ÉC KANN ÞÁ NOKKUÐ En var það eitthvað eitt öðru fremur sem olli því að þú ákvaðst að reyna fyrir sér sem rithöfundur? „Við þessari spumingu verður maður eiginlega að dikta upp nýja lygi hverju sinni. Ég hef nú líklega verið frekar ungur þegar fyrst hvarflaði að mér að þetta væri kannski ekki svo afleitur starfi. Nú svo hafa bara málin artað sig þannig að þetta er það eina sem maður kann, - ef maður kann þá eitthvað. Annars má kannski segja - ef það er eitt- hvað eitt öðru fremur sem hafði áhrif á þá ákvörðun mína að reyna að leggja fyrir mig ritstörf - að það hafí verið tap Islendinga gegn Dönum árið 1968, 14-2- leikurinn frægi. Þar með dóu vonimar um að komast í landsliðið í fótbolta. Og einhvern nýjan draum varð maður að eignast í staðinn." Einar segir annars um sög- una sem hann er með í smfð- um, að „þótt hún fjalli um allt aðra hluti en þær bækur sem ég hef áður skrifað, þá vona ég nú að menn muni kannast eitt- hvað við þann stíl sem var á þeim bókum. Það má segja að hver höfundur velji sér nokkuð sína hundaþúfu og hver maður reynir að átta sig á því hvar hæfileikar hans liggja. Til dæmis má segja um djúpar heimspekilegar analýsur í skáldsöguformi að þar er ég því miður ekki á heimavelli". KVIKMYND FYRIU ALDAMÓT Einar sýndi á sér nýja hlið þegar hann samdi, ásamt leik- stjóranum Friðriki Þór Frið- rikssyni, handritið að kvik- myndinni „Skyttunum“. Einar segir að það hafi verið áður en fyrsta bókin úr Eyjaþríleiknum kom út að þeir félagar hafi gert með sér heiðursmannasam- komulag um að Friðrik mundi gera kvikmynd upp úr öllu saman þegar verkið lægi allt fyrir. Nokkuð er liðið síðan Einar gekk frá handriti að þeirri mynd, en ennþá hefur ekki fengist fé til að hleypa verkinu af stokkunum. „En samkomulagið milli okkar Friðriks er í fullu gildi. Friðrik hefur verið að garfa í því á undanfömum árum að afla fjár til verksins og hann hefur m.a. sótt um hjá Kvik- myndasjóðnum, en það hefur því miður ekki verið hægt að sinna ’okkur þar ennþá. En þetta veiður kvikmyndað og frumsýnt að minnsta kosti fyr- ir aldamót, það er engin hætta á öðm. Erlendis hafa ýmsir framleiðendur mikið álit á Friðriki og hafa gefíð ádrátt um að leggja peninga í púkkið og svo hjálpar til að þessar bækur eru orðnar þekktar á Norðurlöndunum og verða síð- an gefnar út í Þýskalandi innan skamms.“ Einar segir að á Norðurlönd- unum hafí viðhorfið til ís- lenskra bóka verið að breytast gríðarlega á allra síðustu árum. „Ég er svo sem ekki klár á því hvað veldur þessu. Þar hafa að vísu á síðustu árum verið að koma út bækur eftir íslenska höfunda sem fengið hafa ótrúlega góðar viðtökur. Það er dálítið vinsælt viðhorf héma heima að á íslandi sé ekkert að gerast í bókmenntun- um, það er ekkert óeðlilegt þótt þær raddir heyrist og þetta hefur kannski alltaf verið þannig. En það er alveg óhætt að segja að bókafólk annars staðar á Norðurlöndum lítur ekki þannig á málin. Þegar ég fyrir svona fimm árum var fyrst að hitta norræna útgef- endur, sem virtust ekki alveg ófáanlegir til að gefa út ís- Ienskar bókmenntir, þá fann maður að það var í og með vegna þess að þeir álitu það skyldu sína og göfugt hlutverk að sinna eitthvað þessum ein- angruðu og sérlunduðu ná- grönnum í Norður- Atlantshaf- inu. Að sýna þann höfðings- skap að gefa út eina íslenska bók mundi vera fjöður í þeirra hatt. Ég vissi t.d. af útgefanda í Danmörku sem sagði að sér hefði litist vel á Djöflaeyjuna þegar hann fékk útdrátt úr henni. Hann hefði hinsvegar nú þegar gefið út bók eftir ís- lending og þar með var málið útrætt. En þetta viðhorf er al- veg gjörbreytt og íslenskum bókmenntum hefur tekist að fá á sig gæðastimpil. Enda er málum nú þannig háttað að við emm orðin miklu óduglegri TRÚ- við að þýða bækur af öðrum Norðurlandamálum en þeir okkur. Ég hef það á tilfinning- unni að ungir nonænir höfund- ar, sem eitthvert tak er í, líti orðið hingað í leit að einhverju sem kalla mætti norræna sjálfsmynd." EILÍFÐARMÁLIN SKIL- CREINDÁ HAC- KVÆMNISFORSEND- UM Um 1980 bjó Einar í Kaup- mannahöfn og hann segir að sér hafi fundist bókmennta- menn þarlendir vera dálítið smeykir við hinn stóra um- heim og upplifað sig dálítið sem útkjálkabúa. „Menn þar töldu margir fyr- irfram vonlaust að ætla að miða sig við hinar miklu heimsbókmenntir, þeir ættu þess vegna bara að rækta sína garðholu en vera ekki að láta sig dreyma um að skrifa bók- menntir á einhvem óskil- greindan heimsmælikvarða. Og þarna erum við kannski komnir að atriði sem er megin- styrkur íslenskra bókmennta og kemur þessum nágrönnum okkar þægilega á óvart, en það er einhver bjartsýni og sigur- vissa sem íslenskir höfundar sjá enga ástæðu til að neita sér um. Þjóðin er kannski fámenn og sérvitur, landið lítið og af- skekkt, en hér hafa samt verið skrifaðar heimsbókmenntir í þúsund ár. Það vita allir ís- lenskir höfundar að stærð rikja og veldi hefur ekkert með það að gera hvort þar er hægt að skapa merkilegar bókmenntir. Ég hef hitt unga og metnaðar- fulla norræna höfunda sem eru rnjög hrifnir af þessu íslenska sjálfstrausti og hafa smitast af því sjálfir; kannski er einhver norrænn renessans í uppsigl- ingu eins og gerðist í lok síð- ustu aldar.“ Attu einhverja sérstaka skýringu á því hvað íslending- ar hafa verið duglegir að skrifa bókmenntir, er það hugsanlega eitthvað f hinni svokölluðu þjóðarvitund sem veldur þessu? „Það er náttúrlega ekki gott að segja, en strax á þjóðveldis- öld var grunnurinn að þessu öllu lagður og þar kemur margt til. Það að hópar manna skuli taka sig upp og nema nýtt land - það kallar á sögur. Svo hlýt- ur heiðni Islendinga að vega þungt, að Islendingar hafa aldrei tekið trúarbrögð nema í nteðallagi alvarlega. Spurning- ar um eilífðarmálin hafa Is- lendingar haft tilhneigingu til að vega og meta dálítið útfrá hagkvæmnisástæðum. Það eru til þjóðir sem væru til í að láta lífið í heilu lagi fyrir heittelsk- uð trúarbrögð sín, en það þurfti ekki nema orðheppinn stjórn- vitring til að fá Islend- inga til að snúa baki við goðum sínum og kristnast, með þeim rökum að annars yrði svo mikill ófriður og vesen. Þannig að hér- lendir menn hafa ekki í trúarbrögðunum feng- ið svör við þeirri gátu hvers vegna þeir eru það sem þeir eru. Þess vegna urðu menn að búa til goðsögn um til- gang tilverunnar og þannig urðu fornbók- menntirnar til, þar birt- ast hin eiginlegu trúar- brögð okkar. Og með þessum fornbók- menntum var eigin- lega búin til sú jörð sem íslenskir höfundar hafa staðið á síðan. Þær raddir heyrast oft að hinar stóru bók- menntir okkar - hvort sem það eru Sögurnar, Eddukvæðin eða Hall- dór Laxness og aðrir snillingar nútímabók- menntanna - liggi eins og farg á nýgræðingn- um; allt nýtt sem gert er hljóti að koðna nið- ur í skugga þessara risa. En þessu er þver- öfugt farið. Viðmiðun- in við umrædda stór- meistara gefur nútfma- höfundum ekki færi á öðru en að leggja sig alla fram, gera til sín ýtrustu kröfur. ÖIl glæsilegustu lista- verk mannsandans eiga rót sína í þrá mannsins til að líkja eftir því fullkomna, hinni eilífu tign sköpunarverksins og guð- dómsins. Vegna þess að fyrir- ntyndirnar eru til, ímyndaðar eða ekki, þá vaknar upp hjá mönnum kraftur til að skapa stórbrotin verk. Og íslenskir höfundar verða að eiga sér þá hugsjón að í það minnsta líkja eftir snilld þessara meistara sem hafa skrifað á íslensku. Annars geta þeir bara farið að gráta, eða kannski dundað við að skrifa saman litlar og ljótar vandamálabækur.“ BJörn E Hafberg „ÍSLENSKIR HÖFUNDAR VERÐA AÐ EIGA SÉR ÞÁ HUGSJÓN AÐ í ÞAÐ MINNSTA LÍKJA EFTIR SNILLD ÞESSARA MEIST- ARA SEM HAFA SKRIFAÐ Á ÍSLENSKU. ANNARS GETA ÞEIR BARA FARIÐ AÐ CRÁTA, EÐA KANNSKI DUNDAÐ VIÐ AÐ SKRIFA SAMAN LITLAR OC LJÓTAR VANDAMÁLABÆKUR."

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.