Pressan - 27.02.1992, Qupperneq 32
r
32
FIMMTUDAGUR PRESSAN 27. FEBRÚAR 1992
Ú T L Ö N D
S L Ú D U R
BRÚÐKAUP í CAMP DAVID
Dorothy Le-
Blond, dóttir Ge-
orge og Barböru
Bush, hefur til-
kynnt að hún
hyggist giftast í
annað sinn.
Brúðguminn til-
vonandi er Ro-
bert nokkur
Koch, en sá er
nánasti ráðgjafi
Richards Gep-
hardts, sem er
Og enn stækkar fjölskyldan
þingllokksformaður demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings.
Brúðkaupið fer fram í Camp David, en dagsetning hefur ekki
verið gefin upp enn. Dorothy á tvö böm af fyrra hjónabandi.
SAMSÆRITIL SÖLU
I framhaldi af kvikmyndinni
JFK er nú komin út myndsnælda
vestur í Bandaríkjunum, sem ber
nafnið The Jim Garrison Tapes.
Þar er samsæriskenning þeirra
Jims Garrisons og Olivers Stones
rakin í smáatriðum. Gagnrýnend-
um ber saman um að sannleiks-
gildi snældunnar sé álíka mikið
og myndarinnar eða nær ekkert.
LENÍN AFMÁDUR
Síðasta vígið austur í Moskvu
er að falla. Rússneski seðlabank-
inn hefur tilkynnt að á næstunni
verði vangamyndum af Lenín
kippt út af rúbluseðlunum. Enn er
ekki búið að ákveða hverjir taka
við af þessum fmmkvöðli Sovét-
kommúnismans, en nú er mynd
hans á 10, 25, 50 og 100 rúblna-
seðlunum.
Fómartamb mónetarista
Garrison ásamt grunuöum
HORNSTEINN MARKAÐSVÆÐINGAR
Teningunum er kastað
Sylvester Stallone var
ekki fyrr búinn að taka við
menningarorðu í París en
hann brá sér til Búdapest í
Ungverjalandi til að gera sitt
við að móta hina nýju
heimsmynd.
Þar lagði Stallone hom-
steininn að spilavíti í banda-
rískum stfl.
„Það er mér sönn ánægja
að taka þátt í breytingunum í
Ungveijalandi," sagði leik-
arinn heimskunni. Spilavítið
á að heita Las Vegas Casino
og verður aðallega ætlað
ferðamönnum og nýríkum
Ungverjum.
ÚR KONUNGSSTÚLITIL BENNY HILL
Michael Jackson er nýkominn
úr ömurlegri Afríkuferð, þar sem
hann var meðal annars krýndur
konungur einhvers ættbálks.
Hann kom við í Lundúnum á
leiðinni heim en hékk inni á hót-
elherbergi mestallan tímann. Hið
eina sem hann gerði annað var að
fara í vaxmyndasafn Madame
Tussaud til að skoða vaxmynd af
sjálfum sér og hins vegar að
heimsækja „gamanlcikarann"
Benny Hill á sjúkrahús, en Jack-
son mun hafa sérstakt dálæti á honum. Benny, sem var að jafna
sig eftir vægt hjartaáfall, var útskrifaður á mánudag.
Úr öskunni í eldinn.
Cos Anaeles
Hugsum smátt
fyrir Rússa
Robert Strauss, sendiherra okkar í Rússlandi, hefur viðrað
nokkrar athyglisverðar hugmyndir um hvernig byggja megi á
rústum hins sovéska hagkerfis. Þær snúast um það hvernig
Bandaríkjamenn geti best og skjótast komið Rússum til hjálpar. A
sama tíma og aðrir hugleiða stórkostlegar og tröllauknar áætlanir
um neyðaraðstoð og lán hugsar Strauss smátt. Hér eru nokkrar
hugmyndir:
• Opnuð verði eins og tylft kjörbúða í einkaeign, sem geti betur
komið í umferð matvöru en ríkið getur og auk þess sýnt fram á að
einstaklingsframtakið virkar og þannig styrkt Jeltsín.
• Bandarískur járnbrautaverkfræðingur endurskipuleggi hið af-
ar stóra og vonlausa jámbrautakerfi landsins.
• Olíusérfræðingar leiðbeini við að reka olíulindir hagkvæmar,
sem aftur myndu afla gjaldeyris.
• Landbúnaðarráðunautar verði sendir um allar sveitir.
Sendiherrann hugsar smátt og það mun vafalaust skila sér ríku-
lega.
Fall fararheill?
Hrösun Clintons Knight-máe,
Eftir óvænt úrslit forkosning-
anna í New Hampshire hafa síð-
ari úrslit verið frekar í samræmi
við það er menn áður hugðu.
George Bush Bandaríkjafor-
seti hefur sótt í sig veðrið gegn
íhaldsmanninum Pat Buchanan
og línur eru að mestu farnar að
skýrast demókratamegin. Það
verður þó ekki fyrr en annan
þriðjudag — „súper-þriðjudag“
sem svo er nefndur vegna fjölda
forkosninga, 11 alls — sem unnt
er að fara að spá í þær af ein-
hverju viti. Og það er mikið í
húfi.
Formlega ræðir hér um for-
setaefnisútnefningu Demókrata-
flokksins og á næstu tveimur vik-
um þurfa frambjóðendumir að
þeysa milli fjölda ríkja og gera
hosur sínar grænar fyrir kjósend-
um. Sennilega er þetta harðasta
barátta, sem nokkur bandarískur
stjómmálamaður getur tekið þátt
í. Þegar skyggnst er bak við
tjöldin líkist baráttan hins vegar
afar flóknu tafli með endalausum
varaleikjum, dulinni hemaðar-
list, völdunum, hrókeringum og
skákum. Og það er ekki auðvelt
að leika til sigurs í þessu tafli.
Þegar Tsongas hóf að kaupa
auglýsingatíma í Atlanta, höfuð-
borg Georgíu, sannfærðust að-
stoðarmenn Clintons um að hann
ætlaði sér að berjast af alvöm
þar. Ef það er tilfellið (og það er
engan veginn víst) þarf Clinton
að líkindum að eyða meiru þar
sjálfur og grynnka þannig á sjóð-
um, sem ella nýttust annars stað-
w.
í Maryland gáfu liðsmenn
Clintons til kynna í sfðustu viku
að þeir ætluðu aðeins að heyja
málamyndakosningabaráttu þar.
Á hinn bóginn er kjósendahópur-
inn afar álitlegur fyrir Clinton og
yfirburðasigur Tsongas þar yrði
honum dýrkeyptur. Þess vegna
telja sumir að yfirlýsingar Clin-
tons-manna séu til þess eins
fallnar að vekja falska öryggistil-
ftnningu hjá stuðningsmönnum
Tsongas og þvf engin leið að vita
hvað gerist fyrr en of seint.
Og það er mikið í húfi. Skrið-
kraftur framboðanna og trúverð-
ugleiki, hvort Bob Kerrey og
Tom Harkin komast á annað
borð áfram í baráttunni, fmynd
þeirra Tsongas og Clintons, og
að lokum — fyrir þann einn, sem
eftir mun standa — möguleikinn
á að velta sitjandi forseta og
komast í Hvíta húsið.
Fyrir alla fjóra (og Jerry
Brown, fyrrverandi ríkisstjóra
Kalifomíu, að auki) er markmið-
ið að komast sem allra lengst
næsta þriðjudag til þess að sýna
fram á að framboð þeirra eigi sér
lífsvon, séu í uppsveiflu og þess
virði að gefa peninga til fyrir
„súper-þriðjudag“ í næstu viku.
Náist þetta markmið geta
menn farið að beita sér af alvöru
hinn 17. mars þegar mikilvægar
forkosningar eru haldnar í Mich-
igan og lllinois.
Gerist ekkert verulega óvænt
virðist þó kristalklárt að baráttan
stendur milli þeirra Tsongas og
Clintons. Hinir geta annaðhvort
bitist um varaforsetaefnisstólinn
eða vonast eftir betra veðri næst.
Samkvæmt skoðanakönnun
meðal kjósenda demókrata um
Bandaríkin öll, sem gerð var af
New York Times og fréttastofu
CBS, vilja 29% að Clinton hljóti
útnefninguna, 24% Tsongas, en
stuðningur við aðra er mun
dreifðari. Það hjálpar Clinton
líka að mun fleiri telja hann lík-
legan til að sigra George Bush í
kosningum en Tsongas.
Tsongas á í nokkrum erfið-
leikum, aðallega vegna þess að
lið hans er ungt og óreynt og
fæstir í því hafa komið nálægt
kosningabaráttu á landsvísu áð-
ur. Hann reiðir sig því meira á
„súper-þriðjudaginn“ en flestir
telja hollt.
Og þrátt fyrir að Clinton haft
lent í öðru sæti í New Hampshire
og enn séu uppi efasemdir um
hjónabandshollustu hans og
frammistöðu á meðan Víetnam-
stríðinu stóð hefur hann forskot á
Tsongas á mörgum vígstöðvum.
I fyrsta lagi er hann eini fram-
bjóðandinn, sem rekur alvöru
kosningabaráttu á landsvísu, með
starfsfólk á launum og fjölda
stuðningsmanna í röðum emb-
ættismanna demókrata á öllum
stjómsýslustigum ríkjanna, sem
kosið verður í þriðjudaginn 10.
Honum hefur einnig gengið
langbest demókrata við að afla
framlaga í kosningasjóði sína og
er talið að hann haft jafnvirði um
120 milljóna króna handbært og
jafnvirði 60 milljóna á leiðinni
frá hinu opinbera. Þá sakar það
ekki að hann er best þekktur allra
frambjóðendanna í Suðurríkjun-
um, en það er einmitt þar sem
kosið verður þriðjudaginn 10.
mars og getur riðið baggamuninn
um framhaldið.
I Flórída hvílir til dæmis kosn-
ingabrátta Tsongas á einum
starfsmanni og símsvaranum
hans. Þar hefur Clinton hins veg-
ar að minnsta kosti 32 starfs-
menn í fullu starfi. í Flórída
verða kjörnir 148 landsfundar-
fulltrúar en það er aðeins í Texas,
sem fleiri fulltrúar verða valdir á
þriðjudag. Stuðningsmenn Tson-
gas játa að Flórída sé verulega
veikur hlekkur og segja ástæðuna
vera einfalda: fjárskort.
Merle Black, sérfræðingur f
stjómmálum Suðurríkjanna við
Emory-háskóla í Atlanta, telur að
Tsongas hljóti litla náð hjá
demókrötum þar syðra. „Hvort
sem það er réttmætt eða ekki, þá
er litið á hann sem skilgetið af-
kvæmi Mikes Dukakis."
Black spáir því að Clinton fái
um helming fulltrúa Georgt'u
hinn 3. mars og fái nær alla full-
trúa í afgangi Suðurríkjanna á
„súper-þriðjudeginum“. Aðrir
telja óvarlegt að spá honum svo
miklu fylgi, enn geti komið til
nýjar uppljóstranir um einkalíf
hans. Og hver veit, á næstu
tveimur vikum getur allt gerst.
Andrés Magnússon.
Að neðan sést hvernig forkosningar demókrata í
Bandaríkjunum raðast á næstu mánuði. Nokkur
svæðaskipting er milli mánaða. Aðalstraumhvörfin
verða væntanlega á „súper-þriðjudegi“ hinn 10. mars,
en afar ósennilegt er að úrslitin ráðist fyrr kosið
verður í New York og Kaliforníu. Í-..VÚ„n, -n-
Febrúar nKosningan □ Liönai^ ^7 en tfl tflnefn-1.
inyar þarí 2.144
WK\\ ( '
PMSSAN/AM