Pressan - 27.02.1992, Page 38
38
FIMMTUDAGUR PKESSAN 27. FEBRÚAR 1992
't *
Fræbbb.aml,íman98^«"st<'
„ó,T„93vaSon.Kn.«Æs«,^
valgaröur Guðiónsaon. StfinOór!
nn stefán Guöjónsson.
höfunda
íslensi
atlassíns, Arm
naníel JuUu^-
trá Aturl«l
aö stofna hljow
4
oq verða frð^
íár eru liðin tíu ár frá því kvikmynd-
in „Rokk íReykjavík“
var frumsýnd. Myndin vakti mikla
athygli á sínum tíma og sýndist sitt
hverjum um ágæti þeirrar lífssýnar
sem þar kom fram. Þetta var í end-
ann á pönktímabilinu svokallaða og
það voru allir í hljómsveit.
Pönkararnir gáfu skít í systemið og
hugsunarhátt fullorðna fólksins.
Unga fólkið taldi sig hafa eitthvað að
segja og var óhrætt við að segja það
á sinn hátt; með tónlistinni, fram-
komu og klæðaburði.
Gamlar konur jesúsuðu sig og
horfðu forviða á barnabörnin.
Foreldrar vissu ekki hvað var að
gerast og áttu ekki orð. I rauninni
voru allir sem áttu að teljast komnir
til vits og ára kjaftstopp.
En nú er pönktímabilið liðið og
pönkararnir svokölluðu velflestir um
og yfir þrítugt í dag. En
hvar eru þeir nú? Hvað
varð um meðlimi hljóm-
sveitanna sem mest
voru áberandi á þess-
um tíma? Okkur lék for-
vitni á að vita eitthvað
um þá og þefuðum uppi
nokkra sem áberandi
voru á þessum tíma.
Fræbbblarnir voru ein af
þeim sveitum sem hvað mest
bar á á þessum gróskutímum.
í Fræbbblunum á þeim tíma
sem Rokk í Reykjavík var
gerð voru þeir Valgarður
Guðjónsson, Stefán Guð-
jónsson, Tryggvi Þór
Tryggvason, Steinþór Stef-
ánsson og Kristinn Stein-
grímsson.
„Þetta var rosalega
skemmtilegur tími og ég
sakna hans alltaf svolítið,"
segir Valgarður, sem nú er
kerfisfræðingur hjá Verk- og
kerfisfræðistofunni. Fræbbbl-
arnir gáfu út þrjár stórar plöt-
ur á ferli sínum; 18, 14 og 4
laga. Tvær litlar og einnig áttu
þeir lög á tveimur safnplötum.
Var einhver heimspeki
þama í gangi á þessum tíma?
, Já, en ég held nú að hún hafi
verið töluvert öðruvísi hjá
okkur en flestum öðmm. Hún
gekk nú svona í stuttu máli út
á það að skemmta sér og hafa
gaman af þessu. Að minnsta
kosti horfði ég eingöngu á
tónlistina. I kringum svona
hreyfingu eða hóp kvikna
náttúrlega ýmsar hugmyndir.
Það var þarna fullt af nýlista-
fólki sem var með einhverjar
hugmyndir og heimspeki sem
það festi á þessa tónlist án
þess að við hefðum nokkuð
með það að gera.“
En tónlistin, var hún
góð?„Ég
held að þetta
hafi verið
góð tónlist.
Þetta var að
minnsta kosti
sú tónlist sem
ég hafði gam-
an af að hlusta
á. Það var ekki
þannig að við
vildum vera að
elta einhvetja
tískubylgju
heldur var þetta
það sem við
höfðum gaman
af að gera. Við
skildum reyndar
aldrei af hverju það voru ekki
fleiri sem höfðu gaman af
þessu og af hverju þetta gekk
ekki erlendis. Við bara föttuð-
um það ekki, okkur fannst
þetta svo gott,“ svarar Val-
garður. Hann segist þó ekki
hlusta mikið á þessa tónlist
núorðið en samt alltaf öðru
hverju. Þeir sem búnir eru að
útspila gömlu plöturnar með
Fræbbblunum ættu að kætast
við þær fréttir að nú stendur
til að gefa út á diski allt það
efni sem Fræbbblamir þrykktu
á plast.
f UPPHAFI GRÍN UM
SKÓLAMEISTARANN
„Ég hafði nú aldrei spilað á
hljóðfæri áður en ég byrjaði í
þessari hljómsveit. Mér var
bara sagt að ég væri trommu-
leikari," segir Stefán, tromm-
ari Fræbbblanna. „Ég held að
þetta hafi verið þreyta með
þessa poppmúsík sem var.
Hún var orðin ömurleg og við
vildum breyta þessu. Við
höfðum ávæning af því hvað
var að gerast í Bretlandi og
okkur leist mjög vel á það.
Upp úr því fórum
----- við nú að spila,“
segir hann um til-
urð Fræbbblanna.
„Þetta átti nú að
era grín fyrst. Við
^tluðum að gera
;óðlátlegt grín að
akkar ástsæla
skólameistara í
Menntaskólanum
í Kópavogi, Ing-
ólfi Þorkelssyni,
en ekki syngja
níð um hann,
eins og einhverj-
ir hafa viljað
skilja þetta,“
heldur Stefán
áfram.
Þeir gerðu góðlátlegt grín
að latínu- og grískuáhuga Ing-
ólfs og gerðu um hann ís-
lenskan texta við lag eftir Sex
Pistols. „Maður sér það núna,
þegar maður er farinn að stúd-
era meira, að maður hefði átt
að hlusta betur á latínukennsl-
una hjá honum,“ segir Stefán,
sem nú nemur sagnfræði í Há-
skólanum. „Þetta voru mjög
skemmtilegir tímar. Það var
eitthvað að gerast, einhver
spenna í loftinu. Maður var
náttúrlega ungur og bjartsýnn
og hélt að það yrði alltaf
svona
segja og gera og
blómstraði. Diskótímabilið
var búið að tröllríða öllu og
það var komin í þetta mikil
þreyta og það varð sprenging.
Þetta
gaman, segir
Stefán.
Kristinn hefur tekið sér frí
frá námi í Tækniskólanum og
vinnur núna hjá Vélamiðstöð
Reykjavíkurborgar. Þeir Krist
inn, Stefán og
voru goðir tim-
ar. Maður kemur til með að
tala um þetta þegar maður sest
í stólinn á elliheimilinu og
horfir út um gluggann," segir
fjortán ara
0 Reykjavik
Vonbrígðum
Reykjavik
Valgarður
spila núna
saman í
hljómsveit-
inni „Glott“,
sem lætur til
sín heyra op-
inberlega á
næstunni.
Tryggvi Þór
vinnur hjá
Securitas.
Steinþór er
látinn.
EITTHVAÐ
TIL A€>
MINNAST í
ELLINNI
„Þama var
heil kynslóð
sem hafði
eitthvað að