Pressan - 27.02.1992, Blaðsíða 46

Pressan - 27.02.1992, Blaðsíða 46
Alþj óðaólympíunefndin HEIMILAR ÍSLENDINGUM AÐ NOTA HORMÓNAL Það er einfaldlega ekki hægt að horfa upp á þetta lengur, - segir Juan Antonio Samaranch, forseti ólympíu- nefndarinnar. Úttekt Þjóðhagsstofnunar SNIÐUGRA AÐ KVEIKJA í BÚNAÐAR- BANKANUM EN EINKA- VÆÐA HANN Tryggingaverðmætið meira en hugsanlegt söluverð Pótt sumum þyki gaman aö hlæja að íslendinaunum heféa Reynslan frá frystihúsunum sýnir að góð íkveikja er gulls ekki húmor fyrir því, - segir Samaranch. ígildi, - segir Þórður Friðjónsson. Opinber heimsókn Davíðs Oddssonar til Bretiands BRETAR VIUA FÁ HELGA HALLVARÐS- SON FRAM- SELDAN - sekur um þorskastríðsglæpi Félag fyrrverandi togaraskipstjóra í Grimsby sakar Helga Hallvarðsson um þorskastríðsglæpi í bréfi sem breska utanríkisráðuneytið afhenti Davíð. 8. TÖLUBLAÐ 3. ÁRGANGUR FIMMTUDAGURINN 27. FEBRÚAR 1992 STOFNAÐ 1990 HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJÓMAR Viðar Tryggvason heldur því fram að Þjóðviljinn hafi ekki dáið heldur komi nú út í Havana. ÞJÓÐVILJINN SÁST Á GÖT- UM HAVANA - ég hrökk í kút þegar blaðsölubarnið hrópaði nafn blaðsins, - segir Viðar Tryggvason ferðamaður Hayana26Jfibráar „Eg heyrði strákinn hrópa nafn Þjóðviljans og leit við. Þá sá ég hann halda á blaðinu þar sem hann gekk fyrir horn. Ég tók á rás á eftir honum en rétt náði að sjá hann hverfa inn í mannþröng- ina. Síðan sá ég hann ekki meir,“ segir Viðar Tryggvason, ferðalangur sem staddur var í Havana á Kúbu í byrjun vikunnar. Viðar heldur því fram að Þjóðviljinn sé á lffi og komi út í Havana. „Ég veit að margir aðdá- endur blaðsins eiga erfitt með að trúa því að það sé dáið. Þeir geta bara ekki trúað því að það hafl ein- faldlega lagt upp laupana. Og miðað við það sem ég sá hafa þeir haft rétt fyrir sér. Blaðið virðist bara hafa ver- ið orðið þreytt á athyglinni á íslandi," sagði Viðar. 56 ára húsmóðir í Breiðholti BÝÐST TIL AÐ BAKA UPP í SKATTASKULD - hljómar mjög girnilega, - segir Friðrik Sophusson fjármálaráðherra Revkiavlk. 27. febrúar „Mlér datt þetta í hug þeg- ar ég las viðtal við hann Jó- hann Bergþórsson í Hag- virki. Hann vill leggja vegi upp í sína skattaskuld. Ég er ekki góð í að leggja vegi en ég er ágæt í bakkelsinu,“ sagði Guðríður Friðriksdótt- ir, 56 ára gömul húsmóðir í Breiðholti, sem hefur boðist til að baka upp í 24 þúsund króna skattaskuld sína. „Við munum að sjálfsögðu skoða þetta eins og önnur er- indi sem hingað berast,“ sagði Samkvæmt skoðanakönn- un Gallup á Islandi um sagn- fræðiþekkingu nemenda í grunnskólum landsins er hún almennt góð. Á því er þó ein undantekning. Þegar nemendurnir voru beðnir að nefna nöfn einhverra einok- unarkaupmanna nefndu 85 prósent þeirra Ólaf G. Ein- arsson menntamálaráð- herra. „Ég bara skil þetta ekki,“ sagði Svanhildur Kaaber, for- maður Kennarasambandsins. „Bömin hljóta að hafa þetta frá foreldrum sínum. Einu skiptin sem kennarar fjalla um Ólaf er þegar þeir reyna að tryggja að málstaður hans komist til skila.“ Það vekur athygli að þau 15 prósent nemenda sem skrifuðu ekki að Ólafur væri eindkunar- kaupmaður sögðu að hánn hefði hálshöggvið Jón Arason. Friðrik Sophusson. „Guðríður lét sýnishom fylgja með bréfi sínu og ég verð að segja að mér lfst ágætlega á þetta mál eftir að hafa bragðað á því.“ Friðrik sagði að töluvert hefði verið um erindi fólks sem vildi borga skattana sína í fríðu. „Kona nokkur bauðst til að pijóna peysur á okkur ráðherr- ana en mér leist hins vegar illa á sniðið. Og svo er alltaf eitt- hvað um að konur bjóði ýmis- legt sem kannski á ekki erindi í blöð,“ sagði Friðrik. Þessir nemendUr vom allir úr sama skólanum. „Þetta sýnir að kennarar hafa ekki tekið sig saman um að rægja Ólaf,“ sagði Svan- hildur. Guðríður býður ráðherrun- uni bakkeisi upp í skatta- skuld sína. 85 prósent nemenda í grunnskólum telja Ólaf G. Einarsson vera einokunar- kaupmann. Lausn á vanda fiskvinnslunnar KRÍTAR- KORTASKULD- UM BREYTT í LÁN Akureyri. 26. febrúar „Þetta sýnir að rflds- stjórnin ætlar að koma af ábyrgð og festu inn í þessa Poretelnn Pálsson samninga. Með þessu hef- ur hún höggvið á rót vandans,“ sagði Árni Benediktsson hjá Félagi Sambandsfrystihúsa, að- spurður um útleik ríkis- stjórnarinnar varðandi vanda sjávarútvegsfyrir- tækja. Aðgerðir stjómvalda fel- ast í því að skuldum eigenda og stjómenda sjávarútvegs- íyrirtækja hjá greiðslukorta- fyrirtækjunum er breytt í langtímalán. Þá hefur ríkis- stjómin boðist til að skoða nánar skuldir verkstjóra og annarra yfirmanna. „Það vom einungis tveir kostir í stöðunni,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráðherra. „Annars veg- ar að fella gengið um 20 til 30 prósent eða ráðast að rót vandans. Það er ljóst að ef fyrirtækin hafa ekki efni á að halda eigendum sínum uppi verða stjómvöld að grípa inn í.“ 85 prósent skólabarna TELJA AÐ ÓLAFUR G. EINARSSON HAFI VERIÐ EINOKUNARKAUPMAÐUR - samkvæmt skoðanakönnun Gallup um sagnfræðiþekkingu grunnskólanema cordata 386SX tölva á aðeins 99.900 krónur! 80386-16 örgjörvi 1Mb minni (8Mb möguleg) 42Mb diskur 1.44Mb 3.5" drif VGA litaskjár 101 hnappa lyklaborð Genius mús Windows 3.0a MS-DOS 5.0 Cordata CS7100 hefur svo sannarlega fengið góðar viðtökur undanfarna mánuði. Á meðan birgðir endast seljum við þessar áreiðanlegu tölvur á sama baneitraða tilboðsverðinu. Nú er lag að að eignast 386 tölvu á sannkölluðu þjóðarsáttarverði. MICROTÖLVAN Tilbúin til notkunar straxl Suðurlandsbraut 12 - sími 688944 - fax 679976

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.