Pressan - 26.03.1992, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. MARS 1992
F Y R S T
F
R E M S T
GUÐMUNDUR H. GARÐARSSON. Sá fram á hálfgert atvinnu-
leysi. VÍGLUNDUR PORSTEINSSON. Guömundurstuddi hann
og hann studdi Guðmund á móti.
GUÐMUNDUR PASS-
ARSINN HLUT
Þegar stjómarskipti urðu í Líf-
eyrissjóði verslunarmanna fyrir
skömmu stóð til að Guðjón
Oddsson, fulltrúi Kaupmanna-
samtakanna, yrði formaður,
enda komin röðin að kaupmönn-
um að fá formannssætið. Fráfar-
andi formaður, Guðmundur H.
Garðarsson, sá hins vegar fram
á hálfgert atvinnuleysi þegar
hann léti af formennsku og greip
til sinna ráða. Hann bauð Víg-
lundi Þorsteinssyni, fulltrúa
Vinnuveitendasambandsins og
Félags íslenskra iðnrekenda, að
styðja hann í formannssætið
gegn því að Guðmundur héldi
áfram sætum sínum í ýmsum
nefndum og ráðum á vegum Líf-
eyrissjóðsins, svo sem í stjóm
Eignarhaldsfélags Verslunar-
bankans, bankaráði íslands-
banka og stjóm Fjárfestingarfé-
lagsins. Þetta gekk eftir, Víg-
lundur er orðinn formaður og
Guðmundur sér fram á næg
verkefni þótt hann sé ekki stjóm-
arformaður Lífeyrissjóðsins
lengur. Það mun hafa hjálpað
Guðmundi í plottinu að Guðjón
var af mörgum talinn óheppileg-
ur í formannssætið vegna setu
sinnar í stjóm Stöðvar 2 og þar-
afleiðandi tengsla við Eignar-
haldsfélagið og svo galt hann
þess náttúrlega að vera náffændi
Harðar Sigurgestssonar, for-
stjóra Eimskips.
MÍR BREYTIRNAFNI
SÍNUÍMÍR
MÍR, félagið Menningar-
tengsl íslands og Ráðstjómar-
ríkjanna, er ekki á því að gefast
upp þótt heimsmyndin hafi snú-
ist á hvolf. Eftir nokkra tilvistar-
kreppu hefur félagið gengið í
endumýjun lífdaga, þótt ennþá
sitji reyndar sama fólkið í stjóm-
inni og forðum. Á aðalfundi fé-
lagsins, sem haldinn var um síð-
ustu helgi, var ákveðið að breyta
lögum félagsins. Það heldur nú
ekki lengur uppi tengslum við
Ráðstjómarríkin sálugu, heldur
er markmið þess að „vinna að
sem víðtækustum menningar-
legum samskiptum Islendinga
annars vegar og hins vegar
Rússa og annarra þjóða, er
byggja þau lönd sem áður vom
innan Ráðstjómarríkjanna".
Með þessari lagabreytingu er
félaginu semsagt kleift að halda
sínu ágæta nafni, MIR, sem
kvað þýða „friður“ á rússnesku.
Og stjómin heldur sér líka
óbreytt, hún var öll endurkjörin á
aðalfundinum. Formaður er sem
fyrr Ivar H. Jónsson, fjármála-
stjóri Þjóðleikhússins, Gunn-
laugur Einarsson er varafor-
maður, en aðrir í stjóm eru
Bergþóra Einarsdóttir, Einar
D. Bragason, Guðmundur
Bjarnleifsson, Helgi Kristjáns-
son, Jóhann Björnsson, Jón
Steinsson, Kristján Andrés-
son, Kristján Þorkelsson,
Margrét Guðnadóttir, Ragn-
hildur Rósa Þórarinsdóttir, Sig-
rún Guðmundsdóttir, Stefán G.
Vigfússon og Vilborg H. Krist-
jánsdóttir.
Athyglisverð klásúla er
reyndar í hinni nýju stefnuskrá
félagsins. Fyrir utan að efla
menningartengsl er það einnig
markmið MIR „að varðveita og
kynna eftir því sem við á þau
margvíslegu gögn um fyrrum
Ráðstjómarríki, sem í eigu fé-
lagsins eru“.
GLATT Á HJALLA
HJÁ KÚBUVINUM
Kúbuvinir standa náttúrlega
ekki á jafnmiklum tímamótum
og gamlir Sovétvinir, enda hang-
ir Fidel Castró ennþá í embætti.
Vináttufélag fslands og Kúbu
ætlar að gleðjast á laugardaginn í
tilefni þess að liðin em tuttugu ár
frá því félagið var stofnað. Fyrr
um daginn verður haldinn aðal-
fundur, en ekki er vitað til þess
að þar verði teknar neinar
ákvarðanir sem eiga eftir að
marka spor í söguna, hvað þá
PÉTUR SKEAAMTIR SÉR
MEÐ KRAFTAJÖTNUM
„Margir okkar höfðu ekki séð þennan mann,
bara kynnst honum í gegnum fjölmiðla. Við höfð-
um hins vegar heyrt að þetta væri skemmtilegur
og litríkur náungi," segir Sigurður Gestsson, for-
svarsmaður vaxtarræktarmanna á Akureyri. Fé-
lag þeirra hélt árshátíð um síðustu helgi og bauð
þangað sem heiðursgesti sjálfum Pétri Péturs-
syni lækni, sem hefur orðið frægur fyrir aníTað en
að tala hlýlega um kraftajötna.
„Pétur brást okkur heldur ekki,“ segir Sigurður.
„Hann var geysilega skemmtilegur, flutti prýði-
lega ræðu og fór með kveðskap eftir
sjálfan sig. Þetta er bráðskemmti-
legur náungi.“
;— En var þá saminn friður
milli kraftamanna og Péturs?
„Þeir eru fáir hér fyrir norð-
an sem hafa átt í stríði við
hann. Það hafa aðal-
lega verið sunnan-
menn. Hins vegar bað
hann menn afsökunar
á orðum sem hann
hafði látið falla og
sagði að hann hefði
talað heldur ónákvæmt
Hann tók ekki orð sín
aftur, en sagði að þau
hefðu getað komið illa við
ýmsa sem áttu enga sök.“
— Nú virðist ætla að
verða framhald á mála-
rekstri kraftlyftingamanna gegn Pétri?
„Við erum auðvitað ekki sáttir við ummæli
hans. Hins vegar emm við á því að þetta mál megi
falla niður. Þetta fer að verða nóg. Við kæmm
okkur ekki um að vera á milli þótt einhveijir fyrir
sunnnan séu í stríði við Pétur."
Þess má svo geta að á árshátíðinni var Pétri
lækni afhent mánaðarkort í Vaxtarræktina á Ak-
ureyri. Það gildir fýrir aprílmánuð. „Við bíðum
spenntir eftir að sjá hann,“ segir Sigurður Gests-
son.
koma stjómvöldum á Kúbu í
opna skjöldu.
Sérstaklega velkomnir á árs-
hátíðina em boðnir þeir sem hafa
tekið þátt í vinnuferðum til
Kúbu, en félagið hefur staðið
fyrir þeim síðan 1973. Þeir fá að
hlýða á ávarp formanns Vináttu-
félagsins, Ingibjargar Har-
aldsdóttur rithöfundar, en einn-
ig tölu Emils Hannesar Val-
geirssonar sem hann nefnir
„Kúbuferðin mín“. Þvínæst
flytja Guðmundur Hallvarðs-
son gítarleikari og Steinunn
Sveinbjarnardóttir söngkona
lög eftir sænska skáldið Bell-
man. Loks verður kúbanskt
diskótek, en þó ekki nema til
miðnættis.
Árshátíðin verður haldin í
MIR-salnum við Vatnsstíg.
ÍSLENDINGAR
FUNDU UPP SKÁLD-
SÖGUNA
„Þetta er mikil list. Á óblíðri
eyju, í myrkri og roki, fundu Is-
lendingar upp skáldsöguna.“
Þetta skrifar blaðamaður þess
víðlesna franska tímarits
L’Evénement du Jeudi f tilefni af
víkingasýningunni miklu sem
hefst í París næstkomandi mið-
vikudag, 1. apríl. Hann spyr
hvemig þjóð sem enn þann dag í
dag hafi ekki fleiri íbúa en miðl-
ungsbær í Frakklandi hafi getað
skrifað þessi meistaraverk
heimsbókmenntanna, íslend-
ingasögumar? Og honum verður
reyndar svarafátt, eins og fleir-
um. Hann vitnar í Jorge Luis
Borges, þann snjalla rithöfund
frá Argentínu, sem hafði mikla
ást á Islendingasögum. Borges
mun hafa skrifað að þessi upp-
götvun — sögumar, skáldsagan
íslenska — hafi haft álíka litla
þýðingu fyrir afdrif heimsins og
fundur Vínlands.
Blaðamaðurinn franski kvart-
ar sáran yfrr því hversu lítt Is-
lendingasögumar séu kunnar þar
í landi, hann segir að þekkingar-
og sinnuleysið sé eins og ífosið
Atlantshaf. Ymsar þýðingar séu
reyndar til en þær hafi farið
hljótt. Þetta stangast reyndar
svolítið á við það sem oft má
lesa og heyra í fjölmiðlum hér
— að Islendingasögur séu hafð-
ar í miklum hávegum í útlönd-
um. Víkingasýningin er haldin í
glæstustu sýningarhöll Parísar
og virðist ætla að vekja mikla at-
hygli. I tengslum við sýninguna
verður líka haldið málþing um
vflcingatímann og þar fær Jónas
Kristjánsson, forstöðumaður
Handritastofnunar, það hlutverk
að halda nafni sagnanna á lofti
ásamt Régis Boyer, prófessor
við Sorbonne-háskóla.
EFTIRSÓTT STAÐA
FLUGMÁLASTJÓRA
Staða flugmálastjóra virðist
vera eftirsótt hnoss og kváðu all-
margir hafa sýnt henni áhuga, en
sem kunnugt er sagði Pétur
Einarsson flugmálastjóri nýlega
upp störfum. Þrír menn em eink-
um taldir líklegir eftirmenn Pét-
urs, þeir Haukur Hauksson
varaflugmálastjóri, Þorgeir
Pálsson, verkfræðiprófessor við
Háskóla íslands, og Sigfús Er-
lingsson hjá Flugleiðum vestan-
hafs. En fleiri em nefndir til sög-
unnar og taldir hafa áhuga, til að
mynda þeir Grétar Óskarsson,
framkvæmdastjóri loftferðaeftir-
lits, Erling Aspelund, ráðgjafi
hjá Sambandinu, Guðjón Peter-
sen, framkvæmdastjóri Al-
mannavama, Guðbjörn Charl-
esson, umdæmisstjóri flugmála-
stjómar á Vesturlandi, og Þor-
steinn Þorsteinsson, flugvéla-
verkfræðingur og fyrrverandi
flugrekstrarstjóri hjá Amarflugi.
Umsóknarfrestur rennur þó ekki
út fyrr en 10. apríl næstkomandi,
en stöðuveitingin er í höndum
Halldórs Blöndal.
ÍVAR H. JÓNSSON. MÍR ætlar að kynna margvísleg gögn um fyrrum Ráöstjórnarríki. INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR. Kúbuvinafélag-
ið 20 ára og heldur sínu slriki. PÉTUR EINARSSON.Margir vilja koma í hans stað, svo embættiö hlýtur aö vera gott. SIGFÚS ER-
LINGSSON. Flugleiðamönnum væri sjálfsagt ekkert óljúft að sjá hann í embætti flugmálastjóra. HALLDÓR BLÖNDAL. Umsóknarfrest-
ur er til 10. apríl og þá ákveður hann. JÓNAS KRISTJÁNSSON. Heldur nafni íslendingasagna á lofti í Frakklandi.
Ætlar þú að gera til-
boð, Guttormur?
Nei. Því sá sem gerir tilboð í
átöppunarverksmiöjuna á lífsitt
og limi undir því hvort forstjóra
ATVR þóknast aö selja þœr teg-
undir sem framleiddar veröa í
verksmiðjunni. “
Nú stendur til aö selja áfengisverk-
smiðju Áfengis- og tóbaksverslunar
ríkisins. Guttormur Einarsson rak á
sínum tíma Ámuna og stofnaði
Bjórsamlagið, en rekstur þess var
stöðvaður af lögreglunni.
LÍTILRÆÐI
FLOSI ÓLAFSSON
afplatónskri ást
Á löngum ferli mínum sem
rithöfundur, skáld og — e.t.v.
öðru fremur — dálkahöfundur
hef ég ætíð bæði í ljóðum og
lausu máli gert mér far um að
drepa niður þar sem æðasláttur
mannlegs samfélags er hvað ör-
astur, kanna hvað er efst á baugi
hverju sinni, vera virkur í þjóð-
málaumræðu líðandi stundar og
umfram allt að gaumgæfa dag-
blöðin sem endurspegla gleði og
sorgir mannlegrar tilvistar,
lukku og lánleysi.
Á hverjum morgni opnast
fyrir manni óravíddir nýrra
sanninda í dagblöðunum, hul-
unni er bókstaflega svipt af
leyndardómum sem hafa blund-
að í undirmeðvitund hins upp-
lýsta lesanda, en blasa svo allt-
íeinu við mönnum á þrykki sem
kjami málsins.
Um þessar mundir eru fjöl-
miðlar, hver hugsandi maður og
mér er nær að halda heims-
byggðin öll harmi slegin yftr
hinu átakanlega skilnaðarmáli
hertogahjónanna af Jórvík.
Hljóður tregi setur mark sitt á
heimsbyggð alla og upplýst fólk
reynir að höndla sannleikann
um skilnað hertogahjónanna
tyrir atbeina fjölmiðla.
Og hin hljóða spum brennur á
háum sem lágum.
Hvað fór úrskeiðis? Hvað
brast? Hvemig gliðnaði ástar-
samband hinna dáðu, virtu og
elskuðu hertogahjóna?
Og maður spyr mann. Hvar
var hinn veiki hlekkur?
Eða einsog skáldið sagði í
kvæðinu „Söknuði":
— Hvar... Ó, hvar?
Menn hafa verið að geta sér
þess til að glaumgosinn Steve
Wyatt frá Texas haft farið uppá
Söru Ferguson meðan hertoginn
var að æfa stríðsleik í breska
flotanum, en eftir því sem næst
verður komist í fjölmiðlum
munu glaumgosinn og hertog-
ynjan aldrei hafa stigið skreftð
til fulls, samfarir þeirra verið
andlegs eðhs.
Glaumgosinn heldur því
nefnilega fram að samband
þeirra hafi verið „platónskt",
eins og það er kallað.
Við skulum bara vona til guðs
að svo sé.
Þessi stórtíðindi öll hafa beint
athygli fjölmiðla mjög að plat-
ónskri ást almennt í mannlegum
samskiptum.
Af þeim toga er tvímælalaust
frásögn DV á fimmtudaginn var
af „platónsku" ástaratferli hins
þrítuga Edgars Jones í St. Louis
í Bandaríkjunum. Fréttin birtist
undir fyrirsögninni:
TÁSJÚGARIÁKÆRÐUR
Síðan er frá því sagt að Edgar
jressi haft leikið þann leik í vetur
að fara út að skokka, en fallið í
þá freistni að fella ungar konur
til jarðar, færa þær úr skónurn
og sjúga á þeim tæmar. Þó ekki
fyrr en hann var búinn að færa
þær úr sokkunum lika.
Atferli Edgars Jones í St.
Louis hefur komið af stað ftjórri
umræðu um það hvort tásog sé
kynferðislegt eða platónskt at-
ferli og um þetta atriði mun vera
ágreiningur milli bretadrottn-
ingar og hertogynjunnar af
York.
Birtar hafa verið í fjölmiðlum
myndir af glaumgosanum frá
Texas og hertogynjunni af York
þar sem þau eru að sjúga tæmar
hvort á öðm og em myndimar
öðm fremur taldar undirstrika
platónskt samband — þ.e.a.s. ef
hjúin færa sig ekki úr stað.
Eða einsog segir í vísupartin-
um góða:
—Það var semsagt þetta
sem þótti helst að fi'étta.