Pressan - 26.03.1992, Blaðsíða 44
44
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. MARS 1992
Guðrún Dögg Guðmunds-
dóttir er nítján ára nemi í
máladeild Menntaskólans í
Reykjavík. Guðrún er
einnig forseti Listanefndar
MR. Hún er krabbi og á
föstu.
í hverju felst starf for-
manns Listanefndar?
„Það felst í að sjá um og
skipuleggja ýmsar menning-
arlegar uppákomur í skólan-
um og er töluvert starf.“
Hvað borðarðu í morgun-
mat? „Bara loft held ég.“
Kanntu að elda? „Ég er
mjög húsleg."
Hvar vildirðu helst búa ef
þú ættir þess ekki kost að
búa á Islandi? „í Prag eða
Moskvu, þar er skemmtileg
menning.“
Hvernig strákar eru mest
kynæsandi? „Ég bara hef
ekki hugmynd um það.“
Ertu daðrari? „Það kemur
fyrir."
Hefurðu lesið biblíuna?
„Að stærstum hluta."
Ertu trúuð? „Nei.“
Gætirðu hugsað þér að
reykja hass? „No comm-
ent.“
Syngurðu í baði? „Já, ég
held ég sé haldin sjálfspynt-
ingarhvöt."
Hvaða ilmvatn notarðu?
„Bahlé.“
Ferðu ein í bíó? „Já, já.“
Hvað er þér verst við?
„Misheppnað spaghetti car-
bonada."
Hefurðu verið til vand-
ræða drukkin? „Nei.“
Hvaða orð lýsir þér best?
„Spumingarmerki.“
Áttu þér mottó í lífinu?
„Nei.“
KOM
SYNGJ-
ANPI í
HEIMINN
„Ég hef nú sungið held ég frá
fæðingu. Sfðan í haust hef ég
verið í hljómsveit sem heitir
Burkni og í fyrra varð ég í öðru
sæti í söngkeppni MR og ég og
stelpumar sem sungu hjá mér
bakraddir höfum verið að söngla
saman síðan við byrjuðum í MR
og höfum sungið á árshátíðum
og við önnur tækifæri," segir
Margrét Sigurðardóttir, sigur-
vegari Söngkeppni framhalds-
skólanna.
Keppnin var haldin fyrir réttri
viku og Margrét bar sigur úr být-
um með laginu „Leitin að látúns-
barkanum“ sem Stuðmenn
Margrét Siguröardóttir, list-
feng stúlka sem veröur
kannski læknir.
sungu í eina tíð en alls voru þátt-
takendur 22.
Hún Margrét er önnum kafm
kona, það er ekki nóg með að
stelpan syngi heldur er hún líka
formaður Herranætur og leikur
Stínu vinnukonu og fleiri hlut-
verk í Sölku Völku. Svo hefur
hún lært á píanó í ein 12 ár og þá
má lflca geta þess að einu sinni
var hún í ballett. Það er því í
mörg hom að líta og námið bæt-
ist auðvitað ofan á þetta allt sam-
an. Margrét segist líka óska þess
að hún hefði betri tíma til að
sinna þessu öllu.
Stúlka með alla þessa hæfi-
leika á listasviðinu hlýtur að ætla
að starfa við list í framtíðinni.
Eða hvað, þú ætlar kannski bara
að verða læknir? „Það kemur nú
reyndar alveg úl greina að verða
læknir. En annars hef ég ekki
hugmynd um það hvað ég geri -
tíminn verður bara að leiða það í
ljós,“ svarar hún.
TYRKI
Hingað til lands er kominn
tyrkneski tónlistarmaðurinn Ha-
dji Tekbilek. Hann er í fremstu
röð tyrkneskra djasstónlistar-
manna en er kannski ekki síður
þekktur sem flytjandi þjóðlegrar
tyrkneskar tónlistar.
Það er Steingrímur Guð-
mundsson trommuleikari sem
stendur fyrir komu Hadji hingað,
en honum kynntist Steingnmur
þegar hann var við nám í Creati-
ve Music Foundation í Banda-
rikjunum. Hadji mun leika með
hljómsveitinni Súld á nokkrum
tónleikum. Þeir fyrstu voru
reyndar í gærkvöldi á Púlsinum
en í kvöld, fimmtudagskvöld, og
á sunnudagskvöldið verða einn-
ig tónleikar, sömuleiðis á Púlsin-
um. Forsala aðgöngumiða á
þessa tónleika er í verslunum
Skífúnnar og rennur allur ágóði
til styrktar Sophíu Hansen og
þeim sem eiga um sárt að binda á
í SÚLD
jarðskjálftasvæðunum í Tyrk-
landi.
Hljómsveitina Súld skipa, auk
Steingríms, þeir Tryggvi Hiibner
gítarleikari og bassaleikarinn
Páll Pálsson.
Hadji Tekbilek leikur til
styrktar Sophíu Hansen og
fórnarlömbum jaröskjálfta í
Tyrklandi.
VÍNIf>
Jón Birgir
Pétursson
blaðamaður
„Ég er hrifinn af koníaki á
góðum stundum og hrifnastur
er ég af Remy Martin.“
Asgeir og Marta hættu aö dansa og sneru sér aö þjálfun hunda.
UR PURRKNUM I HUNDANA
„Þetta er dálítið óvanalegur
ferill. Ég veit ekki hvort það er
bogmaðurinn í manni sem gerir
það að verkum að maður skiptir
svona um en ég held að ég skipti
ekki aftur,“ segir Asgeir Braga-
son. Sjálfsagt muna margir eftir
Asgeiri frá pönkámnum en hann
var þá trommuleikari þeirrar dá-
samlegu sveitar Purrks Pilnikks.
Eftir Purrks-tímabilið hélt
hann til Ameríku að læra dans en
söðlaði um á síðasta ári og fór í
talsvert mikið öðruvísi skóla.
Nánar tiltekið fóru hann og
Marta Rut Guðlaugsdóttir, kona
hans, til Englands þar sem Marta
fór í læri í hegðunarfræði hunda
hjá doktor Roger Mugford. Síð-
an héldu þau til Skotlands og
fóru í Elmwood College að læra
hundaþjálfun. Þau útskrifuðust
þaðan með láði og eru núna búin
að opna eigin hundaþjálfunar-
skóla.
„Þetta var mjög skemmtilegt
og athyglisvert nám. Við teljum
að áhugi fólks á hundum og
hundarækt fari vaxandi og það er
mjög mikilvægt fyrir hunda að
fara á námskeið. Þar læra þeir að
lynda við aðra hunda og einnig
fólk, þeir læra einnig að haga sér
vel og hlýða heimilisfólkinu,"
heldur Ásgeir áfram.
Hann segir að vel þjálfaður
hundur veiti eiganda sínum mun
meiri ánægju en hundur sem er
illa þjálfaður. Þannig að eigi
menn hund sem þarfnast leið-
sagnar þá er að hafa samband við
Ásgeir í s jma 51616.
En er Ásgeir hættur í tónlist-
inni? „Tónlistin er baktería sem
ekki er hægt að losna við,“ er
svarið.
PINNER
Bára Lyngdal
Magnúsdóttir
leikari
Bára var ekki lengi að
velja matargesú í drauma-
kvöldverðinn sinn og urðu
eftirfarandi fyrir valinu:
Ásta og Harpa Arnar-
dætur
svo hægt sé að kríla
Robert de Niro
til að horfa á
Saffo
til að skapa ástar-
stemmningu yfir eftirrétt-
inum
Woody Allen
sem veislustjóri því
hann er svo fyndinn
Mia Farrow
því hún er svo frek
Orson Welles
með því skilyrði að hann
sé ekki of dómínerandi
Fassbinder
og
Hanna Schygulla
til að sjá um aðalréttinn
AI Pacino
leynigestur sem heldur
spennu í veislunni
Galina Vishnevskaja
sem söngstjóri
Nú er ég loksins búinn að átta
mig á hvers vegna ég drekk
svona mikið brennivín. Það er
vegna þess að ég er náttúruunn-
andi. Eg elska náttúruna og sér-
staklega þá íslensku upp tilfjalla.
Þess vegna versla ég við Áfeng-
is- og tóbaksverslun ríkisins.
Hann Höskuldur sér síðan um
að kotna peningunum mínum til
Ferðafélagsins. Því þótt ég vilji
allt fyrir náttúruna gera er ég
ekki svo ofstækisfullur að ég
mundi láta Ferðafélagið fá aur-
ana beint.
KLASSÍKIN
• Sinfónían & Márta Fábián. Márta
þessi kemur frá Ungverjalandi og spil-
ar á hljóðfæri sem heitir cembalon,
ákaflega þjóðlegt strengjaspil sem
leikið er á með tveimur hömrum. Ýmis
tónskáld kváðu hafa heillast af leik
Mörtu og samið fyrir hana verk. Ann-
ars eru þetta mestanpart ungverskir
tónleikar, þarna verða spiluð veik eftir
Liszt, Kodály og Györgi Ranki, en
raunar líka eftir Rúmenann Georges
Enescu. Háskólabíó fim kl. 20. \
• Pfslarsagan. Tónleikar, en Ifka f
aðra röndina samfelld dagskrá úr bók-
PLATAN
Fireandlce
Yngwie J. Malmsteen
Nýjasta plata sænska gít-
argaldramannsins sannar
eina ferðina enn að hann er
einn tæknilega besti gítar-
leikari heims. Hins vegar af-
hjúpar hún hversu einhæfur
lagahöfundur hann er. Þetta
var í lagi á fyrstu plötunni en
er orðið þreytt fimm plötum
síðar. Hann tekur tilbrigði
um Bach og frygíska skala
óaðfinnanlega á hundrað
kílómetra hraða, en það
hrekkur ekki úl. Góð skífa
fyrir gítaríf ík en fáa aðra.
menntum, eins og þaö var kallað f eina
tíð. Heimir Pálsson hefur tekið saman
kafla úr nútímabókmenntum sem
tengjast píslarsögunni (það er annars
furðulegt hvað gamlir kommar fara að
hneigjast til trúar með aldrinum), en
gítarieikarinn Uwe Eschner spilar tón-
verkið Píslarsagan í níu myndum eftir
Hermann Reuther. Hallgrímskirkja
sun. kl. 17.
• Reykjavikurkvartettinn. Þeir slá
ekki slöku við í Tónlistarfélagi Akureyr-
ar, heldur standa fyrir prýðilegum tón-
leikum flestar helgar. Á sunnudag
koma systumar Rut og Inga Rós Ing-
ólfsdætur þangað norður ásamt Guð-
mundi Kristmundssyni og Zbignew
Dubik og leika verk eftir Jón Leifs,
Mozart og Dvorák. Akureyrarkirkja sun
kl. 17.
MYNDLIST
• Bjarni Þórarinsson. Bjami efnir til
svokallaös .Sjónþings" í Nýló og sýn-
ingar um leið. Þar verður, skilst manni,
sett á laggirnar „Vísiakademía", en
hornsteinar hennar eru sjónhátta-
fræði, benduheimspeki, vísihandrita-
fræði, vísibókmenntir, vísitungumála-
fræði, vísiskýringafræði, vísimyndun-
arfræöi, vísimynstursfræði, vísitákn-
fræði og vísilíffræði. Við opnunina
verða uppákomur. Skrítið, en samtdá-
litið brilljant.
• Ráðhildur Ingadóttir. Gljáandi gul-
ar olíumyndir, fletir, áferð. Helber for-
malismi kannski þar sem allt hverfist
um sjálft sig, en samt ekki laust við að
sumar myndirnar minni á sólina eða
stelpu á gulum kjól. Gallerí 11 við
Skólavöröustig, en búið um helgina.
• Safn Einars Jonssonar er dásam-
lega klástrófóbísk draugaborg og
stemmningin þannig aö annaöhvort
lætur maður hrífast með eða verður
blátt áfram ómótt. Höggmyndagarður-
inn fyrir utan er hins vegar bjartur í
góðu veðri. Myndheimur Einars er
auðvitað stóreinkennilegur; fullur af
mýstík, symbólisma og þjóðrembings-
legum ofvexti sem manni finnst aö í
öðrum löndum hafi náð fullum þroska í
fasisma. Málverkin Einars ern svo sér-
stakrar athygli verð. Þau minna á
hippatímann.
ÓKEYPIS
• Þingpallarnir eru náttúrlega orð-
lagðir fyrir hvaö þeir laða að sér skrítin
eintök, neftóbakskaria, aldraða fram-
sóknarmenn sem hafa aldrei fest yndi
á mölinni, og kannski fólk sem enginn
vill fá í heimsókn. Stundum fyllast þeir
lika af þungbúnum opinberum starfs-
mönnum, kennurum eða fóstrum,
sem telja sig berjast í heilögum rétti.
Þingpallarnir eru semsagt ekkert sér-
staklega fýsilegur kostur, og kannski
alveg ómögulegur ef Sýn fer að senda
út frá Alþingi. En þarna er þó alltént
húsaskjól og ákveöin lágmarks-
skemmtun, sem getur komið að gagni
undir mánaöamót þegar enginn á
lengur fyrir kaffi.
SJÓNVARP
• Gettu betur. Þetta eru rosalega
skemmtilegir þættir, þráft fyrir miklar
málalengingar og óskaplegt klapp.
Maður verður bjartsýnn af að horfa á
þessa sviphreinu og fróðu unglinga og
keppnin sjálf er miklu skemmtilegri en
bé-vesenið. Stundum kemur líka fram
1 2 3 4 3 1 7 8 9 TC
■ " " ■
13 14 ” 16
17 18 19 20
21 22 23 24
25 26 27
28
29 30 31 32 33 34 35
36 37 38 39
40 41 42 43
44 45 1 46 47
■ 48 49 ■
50 ll 51
ÞUNGA GÁTAN
LÁRÉTT 1 hljóta 6 áköf 11 jxigular 12 laumuspil 13 hjartapoki 15 karl-
mannsnafh 17 undirförul 18 rándýr 20 náttúrufar 21 kvendýr 23 rispa 24 ald-
in 25 kvaka 27 erfiðar 28 prestur 29 datt 32 deila 36 egg 37 vafa 39 tarfur
40 hross 41 nálar 43 eira 44 skordýr 46 vorkennt 48 félagi 49 vaxi 50 angrað-
ir 51 stormhviða
LOÐRETT 1 rök 2 altarisbrauð 3 svik 4 nísk 5 sigir 6 veiju 7 seiðkona
8 hlass 9 fitu 10 álitlegir 14 fugl 16 kvenmannsnafh 19 óþokki 22 hagur
24 friðsöm 26 rödd 27 sonur 29 hæða 30 dund 31 sleifína 33 kássan 34 hug
35 óhreinkaðir 37 hlífir 38 rifrildi 41 snáði 42 fé 45 ágæt 47 svörður