Pressan - 26.03.1992, Síða 20
20
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. MARS 1992
Styrkir ríkisins til listamanna
108 stöðugildi
listamanna
á launum hjá ríkinu
Á síðustu fimm árum hafa 469 einstaklingar fengið ýmiss konar lisiamannastyrki úr ríkissjóði. Alls nema styrkirnir
um 325 milljónum. Þeir sem fá hæstu styrkina fá um 50 þúsund krónur á mánuði úr ríkissjóði fyrir utan tekjur sem
þeir hafa af vinnu sinni. Það er því hægt að líta á þá sem nokkurs konar ríkislistamenn.
Styrkhæstu myndlistarmennirnir
1. Sigurður Örlygsson 2.136.000
2. Guðrún Kristjánsdóttir 1.438.000
3. Georg Guðni Hauksson 1.274.000
4. Magnús Kjartansson 1.224.000
5. Hulda Hákon 1.199.000
6. Elías B. Halldórsson 1.181.000
7. Gestur Þorgrímsson 1.141.000
8. Ásgeröur Búadóttir 1.053.000
9. Sverrir Ólafsson 989.000
10. Tumi Magnússon 984.000
Ingólfur Arnarsson 984.000
Allar upphæöir eru á verölagi dagsins í dag.
Styrkhæstu rithöfundarnir
1-3 .Hannes Pétursson 3.785.000
Indriði G. Þorsteinsson 3.785.000
Matthías Johannessen 3.785.000
4-5. Svava Jakobsdóttir 3.197.000
Thor Vilhjálmsson 3.197.000
6-7.Stefán H. Grímsson 2.967.000
Þorsteinn frá Hamri 2.967.000
8. Vigdís Grímsdóttir 2.937.000
9. Guðbergur Bergsson 2.819.000
10. Steinunn Sigurðardóttir 2.656.000
Allar upphæöir eru á verölagi dagsins í dag.
Styrkhæstu tónlistarmennirnir
1. Jón Nordal 3.785.000
2. Leifur Þórarinsson 1.645.000
3. Sigrún Eðvaldsdóttir 1.629.000
4. Sigfús Halldórsson 1.303.000
5. Hallgrímur Helgason 1.252.000
6. FinnurTorfi Stefánsson 1.170.000
7. Gunnar R. Sveinsson 1.152.000
8. Snorri Sigfús Birgisson 1.147.000
9. Atli Heimir Sveinsson 1.043.000
10. Jónas Tómasson 1.039.000
Allar upphæöir eru á verölagi dagsins í dag.
Styrkir sem ríldð hefur veitt
listamönnum beint skiptast í
fernt; heiðurslaun listamanna
samkvæmt ákvörðun Alþingis,
listamannalaun, laun úr Rithöf-
undasjóði og starfslaun lista-
manna.
Arið 1987 námu þessir styrkir
samtals 54,3 milljónum á verð-
lagi dagsins í dag. í fyrra voru
þeir komnir upp í 70,4 milljónir.
A þessu fimm ára tímabili
voru styrkir veittir til 469 ein-
staklinga og fengu flestir þeirra
einhverja styrki oftar en einu
sinni. Það lætur því nærri að
fimmhundruðasti hver Islend-
ingur hafi fengið einhvers konar
listamannastyrk á síðustu fimm
árum.
Styrkimir vom mjög misháir.
Allt frá 3 milljónum og 785
þúsundum og niður í rúmar 82
þúsund krónur. Ef þessum fjár-
hæðum er skipt niður á mánuði
hafa þeir styrkhæstu haft að
meðaltali 75.700 krónur á mán-
uði frá ríkinu. Þeir sem hafa
borið minnst úr býtum hafa hins
vegar ekki verið með nema um
1.653 krónur á mánuði.
UNGIR MENNINNAN UM
LÍFEYRISÞEGANA í HEIÐ-
URSLAUNUNUM
Hæstu styrkimir eru veittir
sem heiðurslaun listamanna. Ar-
ið 1991 fóm 14 milljónir til 18
listamanna.
Það má segja að þeir skiptist í
tvo hópa.
Annars vegar eru aldraðir
listamenn sem í raun hafa lokið
starfsferli sínum. Meðal þeirra
má nefna af heiðurslaunalistan-
um frá í fyrra; Halldór Laxness,
Finn Jónsson, Man'u Markan
og Jóhann Briem. Sú er enda
skoðun margra að heiðurslaunin
séu í raun lífeyrissjóður stærstu
listamanna þjóðarinnar. Þar sem
þeir tengdust engum lífeyris-
sjóði á starfstíma sínum sé eðli-
legt að ríkið greiði þeim lífeyri
að launum fyrir framlag þeirra
til listarinnar.
Hinn hópur listamannanna á
heiðurslaununum er hins vegar
enn í fullu fjöri. Meðal þeirra
má nefna Matthías Jóhannes-
sen, Hannes Pétursson, Indriða
G. Þorsteinsson og Jón Nordal.
Það er ekki hægt að líta á styrki
til þessara manna sem lífeyris-
greiðslur. Einn þeirra, Jón Nor-
dal, er meira að segja á launa-
skrá ríkisins sem skólastjóri
Tónlistarskólans í Reykjavík.
í samantekt yfir styrkhæstu
listamennina hér á síðunni eru
því heiðurslaun yngri mannanna
tekin með öðmm styrkj-
um til starfandi lista-
manna. Það dugir þeim
til að verða efstir, hver í
sínum flokki.
Nú um áramót voru
tveir nýir listamenn
teknir upp í heiðursflokk
Alþingis; þau Thor Vil-
hjálmsson og Herdís
Þorvaldsdóttir. Sú
ákvörðun bendir til að
ekki sé ætlunin að
breyta heiðurslaunum
alfarið í lífeyrisgreiðslu-
sjóð.
SJÁLF LISTA-
MANNALAUNIN
HAFA VERIÐ LÖGÐ
AF
I fyrra voru lista-
mannalaun veitt í síðasta
skipti. I ár verða þeir
fjármunir sem voru
lagðir til þeirra felldir
inn í starfslaunasjóði
listamanna. Þeir munu
því renna til færri, sem
fá að sama skapi hærri
upphæðir í hendur.
Þeir sem á annað borð
fengu listamannalaunin
gömlu fengu þau út æv-
ina. Hvert ár fengu um
eitt hundrað manns
launin. Arið 1987 námu
þau um 111 þúsundum
króna að núvirði en í
fyrra voru þau komin
niður í um 82 þúsund
krónur.
Vegna lítillar endur-
nýjunar var lítið af yngri lista-
mönnum á listanum yfir þá sem
fengu listamannalaun í síðasta
skipti í fyrra. Meðalaldur styrk-
þeganna var líklega nálægt 70
ámm. Mjög fáir yngri en fímm-
tugt hrepptu hluta af þeim.
Listamannalaunin voru veitt
af þingskipaðri nefnd.
RITHÖFUNDARNIR FÁ
LANGHÆSTU STYRKINA
Fyrir utan heiðurslaun Al-
TOPPARN I R I TONLIST
Leifur Þórarinsson
Sigrún Eðvaldsdóttir
Indriði G. Þorsteinsson
Hannes Pétursson
Matthías Johannessen
þingis og listamannalaun geta
listamenn fengið styrki úr
tveimur áttum; úr Launasjóði
rithöfunda annars vegar og
starfslaun listamanna hins veg-
ar.
I fyrra voru veittar 25 millj-
ónir úr Launasjóði rithöfunda en
22,5 milljónir í gegnum starfs-
laun rithöfunda. Fyrir fimm ár-
um var munurinn á þessum
sjóðum meiri. Þá fékk Rithöf-
Einar Már Guðmundsson, Pét-
ur Gunnarsson og Birgir Sig-
urðsson. Allt þetta fólk var með
meira en 50 þúsund krónur á
mánuði úr ríkissjóði að meðal-
tali á þessu fimm ára tímabili.
TÓNLISTARMENN OG
M YNDLIST ARMENN FÁ
EINNIG DRJÚGA STYRKI
Tónlistarmenn og myndlistar-
Sigrún Eðvaldsdóttir fékk rétt
örlitlu minna en Leifur.
108 STÖÐUGILDI í LIST-
INNI
Þéssir styrkir úr ríkissjóði
segja ekkert til um laun lista-
mannanna. Þeir hafa að sjálf-
sögðu tekjur af vinnu sinni og
leggjast styrkimir ofan á þær.
Þeir eru óafturkræfir. Þótt rit-
undasjóðurinn helmingi meira
fé til ráðstöfunar en rann til
starfslaunanna.
Það sýnir vel hversu öflugur
Rithöfundasjóðurinn hefur verið
að af þeim 84 listamönnum sem
fengu eina milljón eða meira í
styrk úr ríkissjóði vom 63 rit-
höfundar.
Þeir rithöfundar sem fá mest
úr Rithöfundasjóðnum, Thor
Vilhjálmsson og Svava Jakobs-
dóttir, fengu samtals 3 milljónir
197 þúsund krónur á þessu
fimm ára tímabili ef listamanna-
laun þeirra eru talin með. Ef
þessari upphæð er skipt niður í
mánaðarkaup fengu þau um 64
þúsund krónur á mánuði frá rík-
inu.
Þeir sem á eftir fylgja fengu
lítið eitt minna; Þorsteinn frá
Hamri, Stefán Hörður Gríms-
son, Vigdís Grímsdóttir, Guð-
bergur Bergsson, Steinunn Sig-
urðardóttir, Þórarinn Eldjárn,
menn skipta með sér starfslaun-
um listamanna, þótt einn og
einn rithöfundur slæðist með í
úthlutun úr þeim sjóð. Eins og
áður sagði hefur hann verið að
sækja í sig veðrið á undanfom-
um ámm og er nú aðeins um 10
prósentum minni en Rithöf-
undasjóðurinn. En vegna þess
hversu ntiklu minni hann var í
upphafi þess fimm ára tímabils
sem hér er skoðað standast tón-
listar- og myndlistarmenn engan
samanburð við rithöfundana í
þessari samantekL
Sigurður Örlygsson hefur
fengið hæstu styrkina í gegn-
um starfslaun listamanna eða
2 milljónir og 136 þúsund
krónur. Það gera um 42.700
krónur á mánuði að meðaltali.
Fyrir utan Jón Nordal, sem
fær heiðurslaun Alþingis, er
Leifur Þórarinsson styrkhæsti
tónlistarmaðurinn. Hann fékk
á tímabilinu 1 milljón og 645
þúsund krónur eða um 32.900
krónur á mánuði að jafnaði.
höfundur skrifi margfalda met-
sölubók á styrk frá ríkinu greiðir
hann styrkinn ekki til baka.
Eins og áður sagði veitti ríkið
samtals um 325 milljónir í
styrki sem renna beint til lista-
manna á þessu fimm ára tíma-
bili. Ef reikna ætti út hvað það
eru mörg stöðugildi væri ekki
ósanngjarnt að reikna með
lægstu launum til listamannanna
þar sem þau leggjast ofan á önn-
ur laun. Miðað við 50 þúsund
krónur á mánuði heldur ríkið
því úti um 108 stöðugildum
listamanna. Það em fleiri stöðu-
gildi en flestar stofnanir ríkisins
geta státað af.
Hins vegar eru þessi stöðu-
gildi setin af 469 einstaklingum.
Margir þeirra verða því að sætta
sig við að fá aðeins hlutastarf í
listinni frá ríkinu á meðan aðrir
sitja þar í fullu starfi.
Gunnar bman tgiisson