Pressan - 26.03.1992, Page 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. MARS 1992
21
Yfirlýsing um tapað lán
Lífeyrissjóðs Dagsbrún-
ar og Framsóknar
Vegna fréttar í PRESSUNNI og
Ríkisútvarpinu í dag um tapað lán
Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og Fram-
sóknar til KRON vegna kaupa á
verslunarhúsinu Þönglabakka 1 í
Reykjavík óskar stjóm Verkamanna-
félagsins Dagsbrúnar að taka fram
eftirfarandi:
Verkamannafélagið Dagsbrún sem
slíkt hefur enga fjármuni lánað og
því engu tapað vegna þessara við-
skipta Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og
Framsóknar og KRON. Verka-
mannafélagið Dagsbrún lánar ekki
félögum og fyrirtækjum úti í bæ. Líf-
eyrissjóður Dagsbrúnar og Fram-
sóknar er sjálfstæð stofnun með
sjálfstæða stjórn. Hana skipa tveir
fulltrúar atvinnurekenda, einn fulltrúi
Verkakvennafélagsins Framsóknar
og einn fulltrúi Dagsbrúnar. Þessi
stjóm samþykkti umrædda lánveit-
ingu einróma. Sjóðurinn ávaxtar fjár-
muni sína í bönkum, með kaupum á
tryggum veðskuldabréfum og með
lánum með tryggum fasteignaveðum.
Þegar ákvörðun var tekin um það í
stjórn Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og
Framsóknar að ávaxta lítinn hluta
fjármuna sjóðsins með kaupum á
skuldabréfi með veði í Þönglabakka
1 var farið í einu og öllu eftir ströng-
um reglum sjóðsins um slík veðlán.
Fjármunir sjóðsins voru taldir
tryggðir með veði í umræddri eign,
enda námu veðskuldir á húsinu þá
innan við 45% af brunabótamati
eignarinnar og skuldabréf Lífeyris-
sjóðs Dagsbrúnar og Framsóknar því
rýmilega innan þeirra marka sem
sjóðurinn setur, sem er að heildarveð
á viðkomandi fasteign verði að vera
innan við 50% af brunabótamati.
Á undanfömum fjórum árum hefur
markaðsverð verslunarhúsnæðis í
Reykjavík hins vegar hríðfallið. Það,
ásamt gjaldþroti Kaupfélags Reykja-
víkur og nágrennis, hefur valdið því
að umrædd eign hefur nú verið seld á
nauðungaruppboði. Á því uppboði
tókst fulltrúum Lífeyrissjóðs Dags-
brúnar og Framsóknar ekki að
tryggja hagsmuni sjóðsins gagnvart
öðrum lánardrottnum KRON og er
því útlit fyrir að stjóm sjóðsins neyð-
ist til að afskrifa umrædda kröfu,
sem nú nemur 31 milljón króna en
var upphaflega 22 milljónir.
Það hefur því miður orðið hlutskipti
margra lífeyrissjóða að tapa hluta út-
lánaðra fjármuna sinna. Þetta er hins
vegar fyrsta og eina tapaða veðskuld
Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og Fram-
sóknar í yfir 20 ára sögu sjóðsins.
Rekstur sjóðsins hefur jafnan þótt til
fyrirmyndar, rekstrarkostnaður hans
verið með því lægsta sem þekkist í
landinu og ávöxtun á fé sjóðsins með
því besta sem gerist hjá íslenskum
lífeyrissjóðum.
Stjórn Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður.
Meira um lán lífeyris-
sjóðs Dagsbrúnar til
KRON
„í síðasta tölublaði PRESSUNN-
AR er fjallað um að Lífeyrissjóður
Dagsbrúnar og Framsóknar hafi orð-
ið að afskrifa 35.000.000 kr. lán veitt
KRON árið 1989. í greininni er ég
nefndur til sögu af varaformanni
Dagsbrúnar. Að gefnu tilefni vil ég
taka það fram, að ég hafði engin af-
skipti 'af samningaviðræðum aðila
um lánið, hvorki á vegum KRON né
Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og Fram-
sóknar og Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar. Þegar málið kom upp
hafði ég samband við framkvæmda-
stjóra lífeyrissjóðsins og tjáði honum
að ég væri vanhæfur í málinu og gæti
ekki haft afskipti af því. Forsvars-
mönnum Dagsbrúnar var kunnugt
um þessa afstöðu mína. Það skal tek-
ið fram að varaformaður Dagsbrúnar,
sem þá var einnig stjómarformaður
lífeyrissjóðsins, leitaði ekki til mín
varðandi málið og ég ræddi það ekki
við hann.“ Atli Gíslason hrl.
laugardag og sunnudag
Nauta-, lamba- og
svínagrillsteiUur
m/öllu tilheyrandi,
kr. 695,-
Barnaboxin með
Ofurjarlinum
(hamborgari, franskar, kók,
ofurjarlablaðra, sælgæti o.fl.),
kr. 395,-
BESTU KAUPIN
í STEIKUM
GÓÐA HELGI
DETTUI
LUKKUP0TTINN!
TILBOÐ VEGNA
BREYTINGA
- ALLT AÐ
43% AFSLÁTTUR Af
RÚMUM OG
FATASKÁPUM!
Verslunin Vatnsrúm hf.
í Skeifunni 11, Reykja-
vík, stækkarnú um
helming. í tilefni af því
og til að rýma fyrir nýj-
um vörum bjóðum við
nú lækkað verð á tak-
mörkuðu magni afrúm-
um og skápum.
Eingöngu vönduð rúm
og gæðadýnur.
Dæmi um verð og afslætti:
Öll rúm með fulldempaðri dýnu
Kassasang, takmarkað magn
Rúm með náttborðum og höfóagafli
Rúm með náttborðum og höfðagafli
Rúm með náttborðum
Glæsilegt sett:
Rúm, náttborð,
höfðagafl og stór skápur;
verð án dýnu
Fullt verð Stgrverð:
82.360 47.215
143.419 94.875
169.520 124.949
113.919 77.175
396.408 257.666
Fyrstir koma...fyrstir fá!
Vatnsrumhf
Skeifunni 11 a, sími 688466
munalán