Pressan - 26.03.1992, Side 25
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. MARS 1992
T Ö L V U R
25
SIGURÐUfí SIGUfíÐSSON Efí LIÐLEGA
ÞFIÍTUGUfí MAÐUfí, BLINDUfí OG
ÍHJÓLASTÓL.
NÝTT TÖLVUFOfífílT GEFUfí HONUM
TÆKIFÆfíl Á AÐ LESA OG SKfílFA.
Þau sátu tvö í tölvustofu
Starfsþjálfunar fatlaðra og
ræddu verkefni í íslensku sín á
milli og við tölvuna sem svaraði
með málmkenndri rödd. Hann
heitir Sigurður Sigurðsson og er
liðlega þrítugur. Blindur og í
hjólastól. Hún heitir Dóra Páls-
dóttir og er sérkennari.
Tölvan sem þau voru í sam-
ræðum við er reynsluútgáfa af tal-
tölvu þeirri sem verið er að hanna
hérlendis á íslenskt mál og sagt er
frá hér á öðrum stað. Sigurður var
að æfa sig á endingum orða sem
ýmist enda á einu enni eða tveim-
ur. I hvert sinn sem hann sló inn
staf tilkynnti rödd tölvunnar um
hvaða staf var að ræða.
„Eg komst fyrst í tæri við
svona taltölvu úti í Danmörku og
er raunar með talvél heima sem
talar dönsku. Nú er ég búinn að
læra mikið í fingrasetningu en á
nokkuð eftir í að læra þær skip-
anir sem þarf að nota við tölv-
una. En þetta gengur vel og tal-
vélin breytir rnjög miklu fyrir
mig,“ sagði Sigurður.
Dóra sagði að Sigurður væri í
einkatímum hjá sér fjórum sinn-
um í viku og tæki góðum fram-
förum. Einnig væri hann tvo
tíma í viku með öðrum nemend-
um í tölvunámi og auk þess
gerði hann heimaverkefni.
„Það hefur sýnt sig að kennsla
á tölvur hefur gjörbreytt mögu-
leikum margra fatlaðra til sjálfs-
hjálpar. Héðan útskrifast ein-
staklingar sem hafa í framhaldi
af náminu fengið störf í atvinnu-
lífinu og geta nú unnið fyrir sér.
Þetta er stór spamaður fyrir
þjóðfélagið," sagði Dóra Páls-
dóttir.
Fötlun Sigurðar bar að með
næsta óvenjulegum hætti. Allt
fram til 13 ára aldurs var hann
heilbrigðurog venjulegurdrengur.
„Þá lenti ég í slysi og hand-
leggsbrotnaði. Þegar ég fór í að-
gerð vegna handleggsins var
mér gefin sprauta sem olli því að
ég lamaðist, missti minnið og
sjónina. Það kom í ljós að ég var
með ofnæmi fyrir þessu lyfi án
þess að nokkur vissi um það.
Mér skilst að þetta ofnæmi sé í
þremur ættum hér á landi,“ sagði
Sigurður.
Hann hefur farið í endurhæf-
ingu hérlendis og erlendis. Sagð-
ist vera búinn að reyna allar
meðferðir sem hægt væri að
hugsa sér, þar á meðal nálar-
stungumeðferð og svæðameð-
ferð. Hann hefur ekki látið erfið-
leikana buga sig. Er léttur á bár-
unni og segir tölvunámið hafa
hjálpað sér ntikið til að efla
sjálfstraustið.
Guðrún Hannesdóttir, skóla-
stjóri Starfsþjálfunar fatlaðra,
sagði megináherslu lagða á
greinar sem koma að gagni úti á
vinnumarkaði. Þar mætti nefna
tölvunotkun, bókfærslu, verslun-
arreikning, fslensku og ensku,
auk samfélagsfræði. Reiknað er
með að námið standi yfir þrjár
annir. Öryrkjabandalag íslands
ber ábyrgð á rekstrinum en fjár-
hagsleg ábyrgð er í höndum fé-
lagsmálaráðuneytisins.
--—
Sigurður og Dóra við taltölvuna.
i