Pressan - 26.03.1992, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. MARS 1992
37
Mannfjöldinn streymir eftir
götunni en á bekk í Austurstræti
situr vera írá öðrum hnetti. Hún
er með hárið fléttað og greitt eft-
ir kúnstarinnar reglum, klædd
ótrúlegum fötum, ögrandi og
forvitin á svip. Þetta er Védís.
Hún er allt öðru vísi en hinir. Og
vill vera það. En þótt hún ögri
öllum hinum er það kannski
innst inni sterk þrá til að ná sam-
bandi við annað fólk og hafa eitt-
hvað til málanna að leggja, sem
knýr hana áffam.
Það eru ár og dagar síðan Vé-
dís vakti athygli vegfarenda í
Austurstræti og síðan em liðin
mörg ferðalög. En þar sem við
sitjum á Hótel Borg dregur hún
að sér athygli gesta í Gyllta saln-
um.
AÐALHLUTVERK: ÉG
„Eg vil ekki vera litlaus vera
í þjóðfélaginu. Frá því ég man
eftir mér þótti mér það hrylli-
leg tilhugsun að hverfa í fjöld-
ann. Eg upplifði mig öðruvísi.
Eg er sérstök og vildi vekja at-
hygli á því. Ein besta leiðin
var að klæða sig sérkennilega.
Eg hef alltaf verið svona. Mér
þykir gaman að láta taka eftir
mér, ég vil taka mitt pláss í
heiminum. Mín leið var að
performera, leika, dansa,
syngja, sýna mig á sviði. Eg
vil vera sýnileg. Þegar ég var
lítil stjómaði ég leikjunum og
setti sjálfa mig í aðalhlutverk-
ið, lék fyrir vini og fjölskyld-
una.
Eg fór 15 ára á leiklistar-
námskeið hjá Helga Skúlasyni
og þá skildi ég inní merg og
bein að ég vildi helga leiklist-
inni krafta mína í lífinu. En gat
ekki beðið eftir að reyna við
Leiklistarskólann svo ég fór til
Danmerkur á lýðháskóla og
valdi leiklist. Það var góður
tími og ég ákvað að læra lát-
bragðsleik í Barcelona. Þann-
ig gat ég séð mig um í heimin-
um, lært spænskuna og kynnst
kroppnum. Eg lagði af stað á
puttanum gegnum Evrópu og
lenti í ýmsum ævintýrum."
„Við lékum
líka erótíska leiki
þar sem áhorf-
endur voru þátt-
takendur."
SÝNDIERÓTÍSKA
DANSA
- En hvað með látbragðs-
leiklistarskólann?
,,Eg varð ástfangin. Eg
kynntist manninum mínum
þegar ég kom loks til Spánar.
Hann var að leita að dansfé-
laga og ég sló til. Við æfðum
nokkur spor, byrjuðum að
sýna og síðan dönsuðum við í
sjö ár. Sýndum erótíska dansa
á diskótekum, hótelum og næt-
urklúbbum. Það er kallað „er-
otic-acrobat-couple“. Þetta er
besti skólinn sem ég hef
kynnst, við urðum að treysta á
okkur, gera allt sjálf. Það kost-
aði vandvirkni að finna rétta
músík, búa til söguþráð, bún-
inga og dans. Eg vildi ekki
vera í glitrandi kjólum með
fjaðurskraut, fannst það gam-
aldags og vildi hafa búningana
óvenjulega. Síðasta árið lét ég
mig þó hafa það að glitra og
leyfði fólki að fá sitt fjaður-
skraut. Við ferðuðumst mikið
og þótt atvinnuöryggið væri
ótryggt var nóg að gera fyrir
okkur. Við vorum okkar eigin
herrar og ágætir dansarar.
Hefðum getað komist inní
leikhúsin. Þá hefði ég viljað
leika dramatísk hlutverk.
Dramatíkin hefur alltaf höfðað
sterkast til mín.“
BRJALAÐ VILLIDYR
„Það kitlar hégómagimdina
að sjá andlit sitt á hvíta tjaldinu
en það er ekkert sem gefur eins
mikið og að leika á sviði. Það
er kikk. Nötra og skjálfa á
sviðinu og finna strauma frá
áhorfendum.
Við bjuggum
meðal annars til
kung-fu-atriði
þar sem var bar-
ist upp á líf og
dauða. Þegar
sigurvegarinn
dregur hettuna
af hinum sjá
hann og áhorf-
endur að þetta
er kona. Maður-
inn minn lærði
kung-fu og ég
hafði lært akaí-
dó, japanska
sjálfsvarnarlist
sem oft er köll-
uð „friðarsinn-
inn“ meðal
austurlenskra
sjálfsvarnar-
lista. Akaídó er
falleg list,
heimspekin á
bak hana við er
sú, að maður
gengur sinn veg
að settu marki
og ef hindranir
verða á vegin-
um bægir mað-
ur þeim frá á
eins friðsamleg-
an hátt og unnt
er. Akaídó felur
í sér dans og
mýkri hreyfing-
ar en til dæmis
karate þar sem
meira er spark-
að. Eitt bragðið
er að ef tveir
menn ætla að
taka þann þriðja
í burtu með
valdi, þá hugsar
hann sig niður í
gólfið og þá er
ekki hægt að
lyfta honum. Eg
hef reynt þetta
bragð og það
verkar.
Svo hafði ég
gaman af því að
dansa ein. Eg not-
aði til dæmis tónlist
Earthu Kitt og lék
oft brjálað villi-
dýr.“
DUKKA OG
HAFMEYJA
- Kanntu fleiri
sögur?
„Einu sinni var
fiskimaður sem
reri til fiskjar en
fékk ekki bein úr
sjó. En viti menn,
hann veiðir haf-
meyju og þau
elskast. Þegar ég
segi elskast, þá
meina ég að við
lékum það. Eftir
það hverfur haf-
meyjan í djúpið
og sést aldrei aft-
ur. Einmanaleik-
inn heltekur fiski-
manninn. Svo var
einu sinni töfra-
maður sem átti
svartan töfrakassa og galdraði
svarta veru með „mímógrímu"
upp úr kassanum. Veran und-
arlega dansar við hann en
hverfur síðan ofan í kassann.
Töframaðurinn freistar þess að
galdra hana til sín aftur, hókus-
pókus-pílarókus: Hann finnur
veruna, dansar við hana og
sveiflar henni til og frá og
þeytir henni loks í gólfið. Þá
kemur í ljós að þetta er bara
dúkka. Við lékum líka erótíska
leiki þar sem áhorfendur voru
þátttakendur."
ESJAN ER
ERÓTÍSK
- Varðstu vör
við fordóma
vegna dansanna ykkar?
„Eg hef aldrei sýnt heima
því ég hef lítið verið á Islandi
„Ég er vön
nekt. Nekt er
falleg."
ar. Ekki bara í
kynlífi. Ég hef
séð erótík í fá-
ránlegustu hlut-
um. Mér hefur
meiraðsegja þótt Esjan erótísk.
Ég get verið erótískari með
handklæði utan um mig en
PMSSAN/ Jim Smart
EG ER EKKI MEIRI KYN-
VERA EN...
„Ég er vön nekt. Nekt er fal-
leg. Og eðlilegur hluti af lífinu
síðan ég var lítil. Mamma er
listmálari og þegar ég heim-
sótti hana í skólann sá ég nakin
módel. Nekt
var aldrei
feimnismál
heima hjá mér.
Ég kynntist
nekt í högg-
myndum, leik-
list og bók-
menntum. Þeg-
ar ég var fjög-
urra ára á Lauf-
ásborg komu
útvarpsmenn
að athuga hvað
fimm ára
krakkar vissu
um kynlíf. Það
varð fátt um
svör en fóstr-
urnar sögðu að
þarna væri ein
yngri sem vissi
ýmislegt og
þætti gaman að
tala. Þeir tóku
viðtal við mig
en því var
aldrei útvarp-
að.
En þótt ég
eigi auðveldara
með að sýna
mig nakta en
flestir aðrir er
ég ósköp norm-
al. Ég er ekkert
meiri kynvera
en stallsystur
mínar. Ég er
jafnvel meira
gamaldags en
þær. Erótík býr
í okkur öllum
og umhverfinu.
Af hverju ekki
að láta hana
koma út?
Njóta? Og að
dansa og per-
formera hefur
gefið mér mik-
ið og ég sé ekki
eftir þessum
tíma.“
vera
sýnile
Talað við Védísi Leifs-
dóttur um nekt, ljóð, út-
þrá og heimþrá
síðustu ár. Ég sýndi vinkonum
mínum einu sinni myndbönd
af dönsunum. A eftir varð
dauðaþögn. Ég varð eldrauð,
þetta var svo óþægilegt.
Seinna komu þær til mín í ein-
rúmi og voru hrifnar. Ég sýndi
fyrir Islendinga á Kanaríeyj-
um, en við bjuggum þar í fjög-
ur ár. Þeim þótti gaman að ég
var íslendingur og komu aftur
vegna þess. En ég lít á dansana
mína sem erótík, ekki klám.
Við höfum þörf fyrir erótík.
Erótík er falleg, hún er allstað-
nakin. Það sem við gerðum var
erótík. Ég hef séð pornó-sjó,
en það er allt annað. Munurinn
felst í því að þá hefur fólk
hreinlega samfarir á sviðinu.
Ekkert gefið í skyn eða skilið
eftir til að spá í. Pornóið er
hrátt. Þegar maður túlkar er-
ótík verður að gera það heiðar-
lega. A tímabili sýndum við
sadó- masó-atriði en hættum
því. Mér fannst það gömul
tugga, eitthvað sem svo margir
voru að gera. En kannski höf-
um við hneykslað einhverja."
ELSKAÐI
STRÁKANA
OGMÖMMU
OG SÓLINA
- Af hverju
komstu heim?
„Ég var með
heimþrá. Mér
fannst ég vera
orðin tilfinninga-
lega flöt, það var
alltaf sama veðr-
ið. Ég vildi fá
mitt rok. Veðra-
brigði. Það vant-
aði ólguna í veðr-
ið og smám sam-
an fannst mér
vanta alla ólgu í
mig. Það var Is-
lendingurinn í
mér sem kvein-
aði. En ég er til-
finningalega
klofin í sambandi
við Spán og Is-
land. Ég var farin
að hugsa á
spænsku og hef
sterkar taugar til
Spánar en ræt-
urnar liggja á Islandi. Þær tog-
uðu í mig. Ég fann svo sterkt
þegar ég kom í heimsókn fyrir
nokkrum árum að ég er íslend-
ingur. Ég elskaði sólina, fjöll-
in, grasið, strákana og
mömmu. Það var skrítin og
sterk tilfinning. En ég hef allt-
af haft ævintýraþrá. Þegar ég
var lítil dreymdi mig um að
komast til Parísar. Ég er fegin
að hafa haft tækifæri til að
ferðast. Það eykur víðsýni.
Sjáöldrin víkka af því að kom-
ast út fyrir landsteinana. Eftir
allt flakkið veit ég að ísland er
besti staðurinn. Ég saknaði
líka góðra vina. Á Spáni sner-
ist allt um kaffihúsatengsl. Hér
á ég vini og góða fjölskyldu."
ÉG ER OFURNÆM FYRIR
TÍMA
- Hvernig er að vinna sem
módel í Myndlistarskólanum?
„Þegar ég sé málverk af
sjálfri mér finnst mér oft að ég
eigi heilmikið í því. Ég er að
gefa þegar ég sit fyrir. Ég get
ekki alveg útskýrt þetta. Mað-
ur þarf ekki að hafa fullkom-
inn líkama til að vera gott
módel. Fólk er ekki að teikna
fegurð heldur línur, form,
hreyfingu og líkamsbyggingu.
Þetta snýst um persónuleik-
ann. Ég var ung þegar ég byrj-
aði að sitja fyrir. Fyrst reyndi
ég alltaf að drepa tímann,
hugsa eitthvað sérstakt. Núna
hugsa ég ekki neitt. Það er eins
og hugleiðsla og er gott ástand.
Maður verður ofumæmur fyrir
tíma. Tímaskyn mitt hefur
þroskast. Mér finnst gaman að
reyna erfiðar stellingar. Ég vil
leggja hart að mér, reyna á lík-
amann. Ég er svona dráttardýr.
Líkamleg vinna á vel við mig.
Mér finnst gott að svitna og
finna hjartað slá.“
„Ég elskaði
sólina, fjöllin,
grasið, strákana
og mömmu."
HEIMILI í FERÐATÖSKU
„Það er yfirleitt hópur nem-
enda sem teiknar mig eða mál-
ar. En ég væri til í það hvenær
sem er að sitja fyrir hjá einum.
Ég sat fyrir hjá málara útí Nor-
egi. Hann sagði að ég væri eins
og skjaldbaka sem labbaði um
heiminn með búslóðina á bak-
inu. Ég á heima í ferðatösku.
Það hefur alltaf verið þannig.
Ég þrái að eignast heimili en
veit ekki hvort það verður
nokkurn tíma. Hvort sem þú
trúir því eða ekki, þá er ég
krabbi og rísandi krabbi. Ég
var alltaf á móti krabbanum og
sagði ef ég var spurð: „Ja, ég
er voða mikið ljón.“ Það er
ljónið sem skreytir sig með
þessum stóru eyrnalokkum
sem ég er með en krabbinn vill
eignast heimilið sitt.“
ÞEGAR MÉR LÍÐUR
FURÐULEGA
- Og þú yrkir Ijóð.
„Ég settist ekki niður einn
góðan veðurdag og vildi verða
ljóðskáld. Ljóðin mín hafa
bara komið. Öft til að fá útrás
fyrir ástarsöknuð. Þegar mér
líður furðulega. Ég var feimin í
byrjun og sýndi engum ljóðin
mín. Svo braut ég múrinn þeg-
ar ég las upp á Hótel Borg og
birti ljóð í Tímariti Máls og
menningar. Um daginn las ég
upp á Púlsinum og geri það
kannski aftur í vor. En ég kalla
mig ekki ljóðskáld og ég hef
aldrei farið til útgefanda. Ég
hefði kannski ort meira ef ég
hefði verið á Islandi. Það þarf
sjálfstraust gagnvart tungu-
málinu til að yrkja. En ég hef
tekið eftir því að fólk sem
sjaldan eða aldrei les ljóð, það
fílar ljóðin mín. Maður þarf
ekki að vera gáfnaljós úr há-
skólanum til að skilja þau. Og
ég hef alltaf verið dugleg við
að skrifa sendibréf. Sumar vin-
konur mínar eiga tuttugu blað-
síðna bréf frá mér þar sem ég
lýsi ævintýralegum ferðalög-
um og furðulegu fólki sem ég
hef hitt á leiðum mínum."
EUsabet Jökulsdóttlr