Pressan - 15.04.1992, Page 16
16
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 15.APRÍL1992
Útskrifa 20
læknum of
mikið á ári
Um þessar mundir eru 400 ís-
lenskir læknar við framhalds-
nám eða störf í útlöndum. Á
hverju ári eru útskrifaðir 36
læknar hér á landi á sama tíma
og þörfm er sögð 12 til 14 læknar
á ári fram til aldamóta.
í Stúdentablaðinu er haft eftir
Kristjáni Oddssyni, lækni á
Borgarspítalanum, að ef 80 pró-
sent þeirra lækna sem nú eru er-
lendis kæmu heim skyndilega
myndi það valda 20 til 25 pró-
senta atvinnuleysi í stéttinni.
Fjöldi íslenskra lækna erlendis
feli því í sér dulbúið atvinnu-
leysi. Að óbreyttu er talið að at-
vinnuleysi íslenskra lækna auk-
ist á næstu árum og nái hámarki
árið 2010. Erlendis hefur verið
gripið til strangra fjöldatakmark-
ana til að atvinnuleysi lækna
verði komið í jafnvægi árið
2005.
Ásdls Erlingsdóttir, aöaleig-
andl OZZ hf.
Kona Úlfars
í veitinga-
rekstri
í PRESSUNNÍhefur ítarlega
verið sagt frá viðskiptaveldi Ulf-
ars Nathanaelssonar. Því til við-
bótar má nefna félag nokkurt
sem heitir OZZ hf. og er skráð á
Mávanes 2 í Garðabæ. Hlutafé er
500.000 krónur og eigaÁsÆv Er-
lingsdóttir, eiginkona Ulfars, og
Erlingur Pétur Ulfarsson, sonur
hans, mestallt hlutaféð. Félagið
var stofnað 12. ágúst 1991 og
hefur meðal annars rekið veit-
ingastaðinn Apríl í Haíharstræti,
en þar var áður til húsa Fimman
sem Vilhjálmur Svan og Þorleif-
ur Einarsson ráku í eina tíð.
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR hefur reksturinn verið
boðinn til sölu undanfarið.
Frístund
Börnin verða
að fara úr
stjórninní
,Það hefúr verið haft samband
við þetta fólk og því sagt að
þessu verði að kippa í liðinn og
skipa nýja aðila í stjóm félags-
ins,“ sagði Benedikt Þórðarson,
forstöðumaður Hlutafélagaskrár,
þegar hann var spurður um við-
brögð stofnunarinnar við þvf að í
fyrirtækinu ÁBS Frístund væru
12 og 15 ára böm skráð í stjóm
eins og greint var ffá í PRESS-
UNNI fyrir viku. Það em böm
>Astþórs Bjarna Sigurðssonar í
Frístund sem þama um ræðir.
Benedikt sagði að vanalega
rækju starfsmenn Hlutafélaga-
skrár augun í slíkt við skráningu
og þá væm gerðar athugasemdir.
Þetta tilvik hefði hins vegar farið
framhjá þeim. Sagði hann að ef
eigendumir gerðu ekki breytingu
yrði fyrirtækið skráð án stjómar.
Kostnaður Alþingis vegna
setu varaþingmanna er nú kom-
inn upp í 5,6 milljónir króna, en á
yfirstandandi þingi hafa 49 vara-
menn komið inn á þing. Fara
þeir því að nálgast þingmanna-
töluna sjálfa en þá verður hægt
að segja að Alþingi hafi endur-
nýjað sjálft sig. Eftir þvf sem
komist verður næst hafa þeir
aldrei verið fleiri.
Varaþingmenn fá aldrei laun
fyrir minna en tvær vikur. Laun
þeirra em hlutfall af þingfarar-
kaupi og em nú 5.757 krónur á
dag eða 80.598 krónur fýrir tvær
vikur og getur aldrei orðið
minna. En með því er ekki öll
sagan sögð. Á þessa upphæð
leggst orlof, 8.197 krónur, og líf-
eyrissjóðsgjald og tryggingaið-
gjald upp á samtals 10.656 krón-
ur. Samtals gerir þetta 99.450
krónur. Þetta er sú upphæð sem
það kostar þingið að lágmarki að
Hjálmar Jónsson og Magnús
þingmennirnir.
kalla inn varaþingmann.
í langflestum tilvikum halda
þeir þingmenn sem hverfa af
þingi í skamman tíma þingfarar-
kaupi sínu. Þeir missa aðeins
laun ef þeir þurfa að sinna einka-
erindum en ekki ef þeir veikjast
eða þurfa að sinna opinberum er-
indagjörðum. Þann 3. mars
höfðu varaþingmenn sest á þing
í 34 skipti og aðeins var tvisvar
um einkaerindi viðkomandi
þingmanns að ræða. í mars hefúr
mönnum hins vegar verið orðið
mál að breyta til, því þennan eina
mánuð komu 16 varaþingmenn
inn.
JÓN BALDVIN MINNST
VIÐ
Það er eðlilegt að ráðherramir
séu minna við en þingmenn,
enda hafa þeir meiri skyldum að
gegna erlendis. Sömuleiðis er
eðlilegt að utanríkisráðherra sé
: Mest notuðu vara-
mest á ferðinni, en Jón Baldvin
Hannibalsson hefur verið fjar-
verandi 64 daga. Eitthvað af því
skýrist af bakuppskurðinum
ffæga. Jón Baldvin hefur farið út
af þingi fjórum sinnum.
Næsti maður á eftir Jóni Bald-
vini hefúr farið tvisvar, en þeir
Matthías Bjarnason og Vil-
hjálmur Egilsson hafa tekið sér
löng hlé. Hefur Vilhjálmur tvisv-
ar farið af þingi og verið 40 daga
fjarverandi.
Þeir sem voru fyrstir til að
kalla inn varamann gerðu það 7.
október — þegar vika var liðin
af þingtímanum. Þá þurftu þau
Geir H. Haarde, Einar K. Guð-
ftnnsson, Gunnlaugur Stefáns-
son, Margrét Frímannsdóttir og
Olafur G. Einarsson að bregða
sérfrá.
PRESTURINN OG VEÐUR-
FRÆÐINGURINN MEST
NOTUÐAÐIR
Þeir varaþingmenn sem mest
hafa verið notaðir eru Hjálmar
Jónsson, prestur í Skagafirði og
sjálfstæðismaður, og Magnús
Jónsson, veðurfræðingur og
krati. Þeir hafa komið inn þrisvar
hvor, en Hjálmar hefur verið
lengur eða í 54 daga. Það færir
honum 310.878 krónur í laun.
Nokkur fjöldi hefúr hins vegar
komið inn á þing tvisvar í vetur.
Fyrir Sjálfstæðisflokk eru það;
María E. Ingvadóttir, Þuríður
Pálsdóttir og Guðjón A. Krist-
jánsson. Hjá Alþýðuflokki; Her-
mann Níelsson, Valgerður
Gunnarsdóttir og Pétur Sigurðs-
son. Hjá Framsóknarflokki hefúr
ElítiR. Líndal komið tvisvar inn.
JÓHANN EINIALLABALL-
INN SEM SIHJR STÖÐUGT
Hlutfallslega hafa þingmenn
Alþýðubandalags skipt mest út,
sem er dálftið einkennilegt,
vegna þess að þeir eru í stjómar-
andstöðu. Jóhann Ársælsson er
eini þingmaður þeirra sem situr
stöðugt og kallar ekki inn vara-
þingmann. Alþýðubandalagið
vill hins vegar ekki nota hvem
varamann oftar en einu sinni og
því hafa átta þingmenn kallað
inn tíu varaþingmenn.
Kvennalistinn hefur aftur á
móti verið hófstilltur í skipting-
um að þessu sinni, en lengi vel
var það stefna þeirra að „nota“
varaþingmenn mikið til að veita
sem flestum konum þingreynslu.
Á vegum Kvennalistans hafa
Anna Ólafsdóttir Bjömsson,
Kristín Ástgeirsdóttir og Kristín
Einarsdóttir kallað inn vara-
menn, en þær Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir hafa setið sem
fastast.
Sá þingmaður sem hefur kost-
að íslenska skattgreiðendur
minnst vegna varaþingmanna er
þó líklega Eggert Haukdal sem
setið hefur á þingi síðan 1978.
Hann hefur aldrei kallað inn
varamann öðmvísi en að hverfa
sjálfúr af launaskrá. Eggert hefur
í sjö skipti horfið af þingi á þess-
um 14 árum og í öll skiptin í
einkaerindum — aldrei til að
sinna opinberum skyldustörfum.
Haraldur Jónsson og
Siguröur Már Jónsson
Jón Baidvin Hannibalsson:
Bakiö og EES töföu hann frá
þingi, en hann hefur fjórum
sinnum kailaö inn varamann.
Jóhann Ársælsson: Situr
fastast af alþýöubandalags-
mönnum, sem hafa kallaö til
10 nýja varaþingmenn.
D E B E T
„Það er mjög gott að vinna með Guðmundi. Þegar
hann var kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins í borg-
inni kom vel í ljós hversu agaður hann er og hann kom
miklu í verk á skömmum tíma. Hefur mikla yfirsýn
yfir þau mál sem fjallað er um hverju sinni,“ segir
Kjartan Magnússon, formaður Heimdallar. „Þeg-
ar ég var með honum í pólitík í gamla daga þótti mér
hann mjög skyldurækinn. Hann tók allt mjög alvar-
lega sem hann ætlaði sér og er metnaðargjam,“ segir
Pétur Tyrfingsson, fyrrum skoðanabróðir Guð-
mundar í Fylkingunni. „Hann er mikill hugsjóna-
maður í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur og ein-
lægur í áhuga sínum á að skila störfum sínum óaðfinn-
anlega og láta gott af sér leiða. Framúrskarandi heið-
arlegur og drengilegur,“ segir Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. „Hann er
greindur, fróður og hefur lifandi áhuga á hugmynd-
um. Stefnufastur og vandaður maður,“ segir Hanncs
Hólmstcinn Gissurarson lektor.
Guömundur Magnússon settur þjóöminjavöröur
Það hefúr ef til vill háð honum á stundum hversu
diplómatískur hann er. Ég veit ekki með nýja starfið,
en í pólitíska starfinu getur það haft galla í for með
sér,“ segir Kjartan Magnússon. „Mér líkar ekki ka-
rakterinn; hann er þurr og drumbslegur snobbari,
teprulegur og dómharður. Enda stóð hann stutt í okkar
pólitfk, hún stangaðist á við metnað hans og snobb,“
segir Pétur Tyrfingsson. „Það er óskaplega ámælis-
vert og mikill galli á honum að hann skuli hafa hætt að
starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn," segir Kjartan
Gunnarsson. „Hann er þungur á bárunni og ef til vill
fullíhaldssamur, en það kann að vera kostur á þjóð-
minjaverði,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son.
Mcnntamálaráðhcrra hcfur sett Guðmund Magnússon í starf þjóðminjavarðar.