Pressan - 15.04.1992, Qupperneq 19
PRBSSAN 17. APRÍL 1992
19
S T J
Ó R N M Á L HAN'
hvers er stjórnmálafrœðinám?
Stundum sækja á mig efasemdir um
hagnýtt gildi stjómmálafræðináms. Svo
vill tÚ, að á Alþingi íslendinga sitja tveir
rnenn, sem lokið hafa háskólaprófum í
stjómmálafræði, þeir Ólafur Grímsson
fyrir Alþýðubandalag og Einar Guðfmns-
son fyrir Sjálfstæðisflokk. Em þeir öðmm
fyrirmynd um prúðmannlegt orðfæri?
Hafa þeir lyft umræðum á þingi upp í
veldi vísindanna, þar sem frjáls sannleiks-
leit kemur í stað óheftrar hagsmuna-
gæslu?
Eg efast um það og skal nefna dæmi
máli mínu til stuðnings. Þegar Davíð
Oddsson orðaði þá hugsun, að hið opin-
bera gæti hugsanlega aðstoðað fólk til að
flytja ffá stöðum, þar sem það situr fast í
óseljanlegum eignum, rauk stjómmála-
fræðingurinn Einar Guðfmnsson upp í
ræðustól á Alþingi og sagði, að ekki yrði
þolað að flytja menn hreppaflutningum á
milli staða.
Einar ætti að vita betur. Hreppaflutn-
ingar voru, að ómagar vom fluttir, oftast
nauðugir viljugir, á þann hrepp, sem hafði
framfærsluskyldu við þá. Hugmynd for-
sætisráðherra, sem var raunar ofarlega á
baugi á viðreisnarárunum, er hins vegar
um að milda það högg, sem markaðsöflin
geta óneitanlega gefið fólki í byggðum,
sem forsendur em brostnar undan... Sam-
kvæmt könnunum Félagsvísindastofn-
unar nýtur sú hugmynd mikils fylgis í
söjálbýli.
Dæmin af stjómmálafræðingnum Ólafi
Grímssyni em auðvitað fleiri en tölu
verður á komið. Hann er strákslegastur
þingmanna í orðavali og óvandaðastur í
öllum vinnubrögðum. Þegar Davíð Odds-
son benti á, að Ólafur hefði sýnt ógætni
með því að láta fjármálaráðuneytið skipta
við sömu auglýsingastofu og Alþýðu-
bandalagið, á meðan hann réð báðum
húsum, rauk Ólafur upp í ræðustól á Al-
þingi og sagði, að athugasemd forsætis-
ráðherra bæri vitni um „skítlegt eðli“.
PRESSAN benti skömmu síðar á það,
að nokkmm ámm áður hefði Ólafur ekki
átt nægilega sterk orð til að lýsa hneyksl-
un sinni og fyrirlitningu, þegar Jón Bald-
vin Hannibalsson lét Alþýðuflokkinn
skipta við sömu auglýsingastofu og hann
hafði látið fjármálaráðuneytið versla við,
á meðan hann var þar húsbóndi!
Ekki væri vanþörf á að bæta umræðu-
venjur í íslenskum stjómmálaum. í því
umbótastarfi ættu íslenskir stjómmála-
ffæðingar að vera fyrstir í flokki. En raun-
Á Alþingi íslendinga sitja
tveir menn, sem lokið
hafa háskólaprófum í
stjórnmálafrœði, þeir
Olafur Grímsson og
Einar Guðfinnsson. Eru
þeir öðrum fyrirmynd um
prúðmannlegt orðfœri?
Hafa þeir lyft umrœðum
á þingi upp í veldi vísind-
anna, þar sem frjáls
sannleiksleit kemur í
stað óheftrar hagsmuna-
gœslii?
in hefur fram að þessu orðið önnur. Af er
sú tíð, er úr Háskólanum komu menn á
Alþingi eins og Einar Amórsson, Bjami
Benediktsson og Ólafúr Bjömsson._
Höfundur er lektor í stjórnmálafræöi
V I Ð S K I P T I
ÓLAFUR HANNIBALSSON
Með öfugum klónum
Það kemur sennilega fáum á óvart að
ríkisstjórninni tókst að klúðra fyrsta
skrefmu í átt til einkavæðingar. Klúður
virðist beinlínis orðið helsta vömmerki
þessarar ríkisstjómar. Líka þegar um er
að ræða mál, sem virðast líkleg til vin-
sælda meðal almennings, tekst ríkis-
stjóminni að leggja þau fram með þeim
hætti að egna ekki bara flokksbundna
fylgismenn sína til andstöðu og upp-
reisnar, heldur og fleiri eða færri þing-
menn stjómarflokkanna.
Þegar ég var að alast upp vestur á
Fjörðum var ekki töluð nein tæpitunga,
þegar menn sáu hrakleg vinnubrögð.
Þá var gjaman tekið svo til orða, að það
væri eins og „andskotinn hefði gert
þetta með öfugum klónum fyrir aftan
rassgatið á sér“ („aftan bak“ ef menn
vildu vera kurteisir). Þetta á við um
einkavæðingaráform ríkisstjómarinnar.
Sjálfsagt var að bregða skjótt við og
koma ríkinu út úr vonlausum rekstri
eins og Alafossi og Skipaútgerð ríkis-
ins, sem gleypa milljónir króna á dag í
fjárframlögum úr ríkissjóði. Ekki er
hægt að sjá neina þörf á sltkum hraða í
sambandi við einkavæðingu bankanna.
Nefnd er að störfúm til að skoða einka-
væðingu ríkisfyrirtækja í heild sinni.
Hvers vegna má ekki bíða eftir að hún
skili áliti? Það hefur legið ljóst fyrir að
margir þingmanna vilja skoða þessi
mál í samhengi og sjá þá fyrst fmm-
varp að löggjöf um heilbrigða við-
skiptahœtti og varnir gegn hringa-
myndunum, áður en þeir gera upp hug
sinn um ráðstöfun eigna almennings á
almennan markað. Ummæli ráðamanna
upp á síðkastið hafa líka orðið til þess
að vekja tortryggni um tilganginn með
einkavæðingu yfirleitt. Ummæli fjár-
málaráðherrans um að sjálfsagt væri að
selja Búnaðarbankann á hálfvirði komu
„ábyrgðarvæða" (!) bankana. Nýleg
reynsla erlendis frá er ekki til þess fall-
in að vekja mönnum bjartsýni um
„ábyrgðarvæðingu" með einkarekstri
þessara stofnana, nema því betur sé bú-
ið um hnútana með eftirlit með allri
fjármálastarfsemi. Það hefur komið æ
„...það er ekki líklegt til „ábyrgðarvæðingar“ fyrir-
tækja að gefa þau, eða selja á hálfvirði, þeim sem
þegar ráða alltof miklu í íslenskum fjármálaheimi“
eins og skrattinn úr sauðarleggnum inn
í þessa umræðu. Ekki bætti forsætis-
ráðherrann úr skák, þegar hann kom
fram í sjónvarpi að afloknu skyndi-
námskeiði í einkavæðingu á vegum
breska íhaldsflokksins. Þá varð honum
tíðræddast um hversu lítið væri að
óttast þótt einokunarstofnanir í al-
mannaþjónustu væru einkavæddar.
Ráðið væri að setja upp á móti þeim
svo og svo stórar ríkisreknar eftirl-
itsstofnanir. Og svo sá ég nýlega
auglýsingu um einhvem umræðufund
um einkavæðingu á vegum Alþýðu-
flokksins, þar sem spurt var hvort ætti
að einkavœða lögreglunaV.
Er að furða þótt spurt sé, hvort þessir
menn séu að reyna að koma óorði á
einkavæðingu yfirleitt, áður en menn
em komnir á byrjunarreit?
Það er talað um að með þessu sé bara
verið að stíga fyrsta skrefið: Að
betur í ljós að bankar em þess eðlis, að
þótt opinberri ábyrgð á innstæðum
þeirra sé aflétt hefur ekkert ríkisvald
efni á því að láta þá fara á hausinn svo
sem þeir verðskulda, því að það getur
skapað panikk meðal almennings og
kippt stoðunum undan öllu efnahags-
kerfi viðkomandi þjóðar. I Noregi vom
til skamms tíma allir bankar einka-
bankar. Þeir eru nú nær allir komnir
meira og minna á hendur ríkisins.
Stærsti banki Danmerkur var nú á dög-
unum að leita ásjár ríkisins. Sparisjóða-
hneykslið í Bandaríkjunum er talið
munu kosta skattgreiðendur allt að 500
milljörðum dollara þegar öll kurl em
komin til grafar. Þar létti Reagan öllum
hömlum af útlánastarfsemi þeirra en
„gleymdi" að afnema ríkisábyrgð af
innistæðunum. Óprúttnir fjármála-
braskarar geta því hellt sér út í vafasöm
og áhættusöm viðskipti í skjóli þess, að
ríkismamma (skattgreiðendur) muni
alltaf taka á sig versta skellinn, fremur
en láta bankana fara í gjaldþrot. Allir
stærstu einkabankar Bandaríkjanna
eiga í vök að verjast eftir yfirtökuæðið
á síðasta áratug, sem oftar en ekki var
fjármagnað með bókhaldskúnstum og
verðbréfabraski, sem lítil raunveruleg
verðmæti stóðu að baki. Það virðist
jafnauðvelt að draga „ábyrgðarvædda"
einkaframtaksmenn á asnaeyrunum og
pólitískt skipaða flokksgæðinga.
Það er líka misskilningur hjá Jóni
Sigurðssyni, ef hann heldur að for-
ganga hans um einkavæðingu Útvegs-
bankans sáluga hafi skapað honum
slíkt traust, að hann þurfi ekki að vanda
undirbúning að frekari einkavæðingu
ríkisbankanna til hins ýtrasta.
Þeim sem að staðaldri lesa þetta blað
ætti líka að vera ljóst, að það er ekki
líklegt til „ábyrgðarvæðingar" fyrir-
tækja að gefa þau, eða selja á hálfvirði,
þeim sem þegar ráða alltof miklu í ís-
lenskum fjármálaheimi. Mönnunum,
sem löngum hafa skartað með núver-
andi fjármálaráðherra og forsætisráð-
herra sem fundarstjóra á aðalfundum
sínum.
Svo undarlegt sem það kann að virð-
ast verður nefnilega að framkvæma
einkavæðingu með aðferðum áætlunar-
búskapar. Þar dugar ekki að vinna með
öfugum klónum fyrir aftan bak.
F J O L M I
L A R
Þjóðarsál og kartöflur
Þegar ég var í aðeins rólegri vinnu en
ég er í nú hlustaði ég reglulega á Þjóðar-
sálina á Rás 2. Ég hafði hana í gangi á
meðan ég eldaði og skrældi kartöflumar.
Ég skræli nefnilega kartöflumar áður
en ég sýð þær til að geta skorið þær í
tvennt og hent þeim sem hafa hringrot í
sér. Eftir því sem vorið nálgast fækkar
þeim kartöflum sem lenda í pottinum.
Síðast fékk ég átta kartöflur úr tveggja
kílóa poka.
En hvað um það. Um daginn ætlaði ég
að vera góður við mig og fór heim fyrir
sex, náði í búð og var mættur heim rúm-
lega sex til að skræla kartöflumar mínar
og hlusta á Þjóðarsálina. Það var þá sem
ég náði átta kartöflum úr tveggja kílóa
pokanum.
Þjóðarsálin hafði ekkert mikið breyst
frá því ég hlustaði síðast fyrir einhverjum
mánuðum. Ef eitthvað var hafði hún
versnað eins og kartöflumar.
Mér fannst eins og Stefán Jón Hafstein
væri alveg hættur að hafa gaman af þessu
verki. Hann var önugur við suma eins og
fyrr en alls ekki eins skemmtilega önug-
ur og mig minnti að hann væri. Og hann
var líka fljótur að koma sér upp skoðun
sem var öndverð við skoðun viðmæland-
ans, en þær skoðanir sem hann fann vom
ekkert sérlega skemmtilegar. Sumar
jafhvel enn venjulegri, vitlausari og leið-
inlegri en skoðanir viðmælendanna.
Mér fannst líka eins og þeir sem
hringdu inn og kvörtuðu ynnu við það.
Ég fékk á tilfinninguna að megnið af
fólkinu væri að hringja inn í sjötta eða
sautjánda skipti. Sumir heilsuðu Stefáni
meira að segja með því að þakka honum
fyrir síðast og Stefán gat ekki leynt æ-ert-
það-þú-aftur-tóninum.
Þetta er allt voðalega sorglegt. Ekki
s t s t
fyrir það
að við þessu er ekkert að gera. Það er að
minnsta kosti ekki hægt að loka Þjóðar-
sálinni. Hún er fyrir löngu orðin magn-
aðri en svo.
Þjóðarsálin er orðin eins og kartöflum-
ar. Maður er löngu kominn yfir að nenna
að tuða yfir þeim. Og eins og með kart-
öflumar lætur maður sig hafa það. Mað-
ur sættir sig frekar við hringrotið en að
venja sig á hrísgrjón.
Gunnar Smári Egilsson
„Það er einlæg
skoðun stjórn-
enda Mjólkursam-
sölunnar að í
þessu máli hafi
fyrirtækið hreinan
skjöld og mark-
mið þess um
vandaða þjónustu
og heiðarlega við-
skiptahætti hafi
hvívetna verið
haldið.“
Guðlaugur Björgvinsson einokari.
cVccccv et-
iítAj'ucevip.öm, cí, 'uccccclcv-
CíécvcU'W
„Menn ræða um hlutina og
þetta er eiginlega eins og komm-
úna hjá okkur, ég stjóma bara
æfingunum."
Tómas Holton
aðalritari.
eAÁZ itíUwwwTwv?
„Ég er helmingi eldri en sá
næstelsti í fyrirtækinu."
Jóhannes Jónsson
bónuskóngur.
"£av jcZ fx.o&rt'tci' c\Í)
ve.’ca. c\Í)
tc\L^c\. /rWv
„Gera verður þá kröfu til láns-
umsækjenda að þeir leggi ffam
raunhæfar rekstraráætlanir, sem
sýni án allrar óskhyggju hvemig
greiða eigi til baka þau lán sem
sótt er um.“
Geir A. Gunnlaugsson
lánsmaður.
/\jt
(, vccí, jci, LrCV'CC
cyœ-i!
beúti a.oAÍ!
„Ég á þetta nafhi mínu að
þakka. Þetta er mikill sigur fyrir
Mussolini-fjölskylduna."
Alessandra Mussolini
þingmaöur.
je.cýcv'), cyvc\-c)u,í. tscr'ccý-
c\A, eÁAi, óýcíLju,v/
, J>að er betra að sleppa veisl-
um en að spara til þeiira."
Ólafur Jónsson
veislufulltrúi.
e^ccLccViico-clcvcccti
d^Jc\ccctibc\cv&c\ccS ?
„Guð einn má því vita hvað
Landsbankinn tapar á gjaldþrotí
fyrirtækisins.“
Sverrir Hermannsson
vinur Eykons í (snó.
(^þídciLc'cticvcv
k,\,c\tc\cvc\c\
„Það er mikil umræða í
flokknum um fólk og steíhu-
mið.“
Guðmundur Árni Stefánsson
varamaður.