Pressan - 15.04.1992, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 15. APRIL 1992
35
LÍFIÐ EFTIR VINNU
BARIR
• Um síðastliðna helgi var opnaöur
nýr bar í Tryggvagötu, þar sem áður
var staðið á öndinni. Nýi staöurinn
heitir Grjótið og sinnir sérstaklega
þörfum rokkunnenda. Allri slíkri sér-
hæfingu ber að fagna. Hins vegar
verður að segjast eins og er, að inn-
rétting ber ekki nein sérstök merki
rokkáhuga ef undan eru skilin gömul
þungarokksplaköt og mótorhjólshræ í
andyrinu. Gestirnir voru í leðraðra lagi,
enda hálstau bannað inni á staðnum.
Tónlistin, sem leikin var í hljómsveitar-
pásum var hins vegar ómarkviss og
ekkert sérstaklega til þess fallin að
gleðja rokkunnendur. Fyrst að verið er
að þessu á annaö borö eiga aðstand-
endur staðarins að sjá sóma sinn í því
að þora að leika Metallica, Anthrax,
Slayer, CelticFrost, Sepultura og þaö-
an af þyngra efni. Meira að segja í
Þjóðleikhúskjallaranum er hægt að
hlusta á Doors og þaðan af rólegra
efni. Vonandi þarf staðurinn bara að
slípast til og þá hefur hann alla burði til
þess að verða alvöru rokkstaður.
Pjetur er með mörg járn í eldinum þessa dagana og hefur í
ýmsu að snúast.
P.S. CAMLI LUNDUR
Hraw/Jt»gni
Hrafnhildur Halldórsdóttir
dagskrárgerðarkona
,JÉg hef dreift kröftunum dá-
lítið. Þetta er spumingin um
brauðstritið; ég vildi frekarfá
mér hlutastarf hjá Sjón-
varpinu en deyja úr sulti í
þakherbergi einhvers
staðar," segir myndlistar-
maðurinn, rokkarinn og
grafíkerinn Pjetur Stef-
ártsson og er að svara
þeirri spumingu hvemig
standi á því að svo lítið hef-
ur borið á honum undanfarið.
Pjetur hefur dvalist töluvert
erlendis undanfarin misseri og
unnið þar og skoðað söfri, „verið
að víkka sjóndeildarhringinn",
eins og hann segir sjálfur. Nú um
páskana, nánar tiltekið 16. til 20.
apríl, sýnir Pjetur í Gamla Lundi
á Akureyri blýants- og tússteikn-
ingar sem hann hefur unnið á
síðustu þremur árunt. A næst-
unni ætlar Pjetur einnig að sýna á
Höfn í Homafírði og á Seyðis-
firði.
En allt um það. Pjetur er líka
tónlistarmaður og sjálfsagt muna
allir eftir því bráðgóða rokklagi
Ung, gröð og rík.
P.S. og co. eru komnir af stað
aftur og vinna nú að nýrri plötu.
A henni verða Pjetri til aðstoðar
Tryggvi Htibner, Halldór Lárus-
son, Sigfus Ottarsson, Björgvin
Gíslason, Pat Tennis, Rúnar
Gunnarsson og Jón Olafsson
bassaleikari. Ekki er neitt ákveð-
ið með hvenær platan kemur út
en við bíðum spennt.
STÚLKA KÖLLUÐ
NONNI
Hingað til lands er
kornin hollenska
blúsrokksveitin A
Girl called Johnny.
Það er svo sem ekkert
skrítið að þessi bless-
aða sveit skuli heita
þessu naftti, söngvari
hennar er nefnilega
stúlka sem einmitt er
kölluð Johnny.
Að sögn Jens
Hanssonar, saxófón-
ieikara Sálarinnar
hans Jóns míns, sem
ber hitann og þung-
ann af hingaðkomu
Johnny, er hún hreint
frábær söngkona og
minnir talsvert á ekki
ómerkari söngkonu
en Janis Joplin.
Auk Johnny eru í
bandinu Jan Vand-
ermay gítaristi, Rudy
Engelbert bassaleik-
ari, Christian Musier
trommari og M.J.
Lav leikur á gítar.
„Þetta em allt saman
ntjög góðir hljóðfæraleikarar. Ég hef heyrt í þeim og bandið er frá-
bært, ég mæli með þeim,“ segir Jens og meðan enginn annar er til
vitnis tökum við hann að sjálfsögðu trúanlegan.
A Girl called Johnny spilar á Púlsinum í kvöld, 15. apríl, og líka
þann 20. Lipstick lovers hita upp bæði kvöldin.
An þess að það komi málinu beint við má geta þess að Rudy Eng-
elbert lék um tíma með þýsku rokkdrottningunni Nínu Hagen og var
meira að segja sambýlismaður hennar um skeið.
Y N D
N
Áður en Sævar Karl Ólason seldi allri karlþjóðinni Boss-
jakkaföt var hann bara venjulegur strákur með strítt hár. Nú,
tæpum tuttugu árum og 125.679 Boss-jakkafötum síðar, er
hann allur orðinn settlegri og velmegunarlegri. Hann er kom-
inn með svip sem aðeins þeir sem verða að stofnun í samfélag-
inu ná. Einskonar Jóhannesar Nordal-svip.
„Komið þið sœl. Því miður
þá eru Hrafnhildur og Smári
ekki heima núna. En þau eru
mjög samviskusöm og
hringja til baka um leið og
þau koma heim. Skildu bara
ejtir skilaboð, hvar og hve-
nœr, klukkan hvað. “
POPPIÐ
• Heitur is er nýstofnuð hljómsveit
sem spilar á Gauki á Stöng í kvöld. í
þessari sveit er margt ágætra manna,
svo sem; Edda Borg (konur eru líka
menn), Björn Thoroddsen og Bjarni
Sveinbjörnsson. Þau leika víst blús-
rokk í hressari kantinum. Að minnsta
kosti segir Úlfar það.
• Völuspá. Þaö er ekki nóg með að
það megi lesa hana sér til ánægju um
páskana heldur verður líka hægt að
hlusta á hana í kvöld á Firöinum. Það
er að segja hljómsveitina Völuspá,
ekki bókina. Við fjölyrðum ekki meira
um þetta. En hljómsveitina skipa þeir
Björgvin Gíslason, Haraldur Þor-
steinsson, Jón Ólafsson bassaleikari,
Ríó tríó-maðurinn með alskeggiö, Ág-
úst Atlason, og kannski einhverjir fleiri.
• Lipstick lovers spila frumsamda
tónlist og uppáhaldslögin sín á Blús-
bamum í kvöld. Vúllí búllí. Þetta sem
þú ert að lesa núna er bara til uppfyll-
ingar, það var svo fjári tíkarlegt að hafa
þetta baratværlínur.
KÓNCULÓARSOKKABUXUR í HVERSDA6NUM
Sveinn Líndal
Jóhannsson,
verslunarstjóri
Skífunnar í
Kringlunni.
Hvað ætlar þú að gera
um páskana Sveinn
poppari?
„Það er á dagskránni að
vinna að BA-ritgerð minni í
stjómmálaffæði. Þá vinnu
ætla ég að krydda með hæfi-
legum skammti af bjór og
skemmtun en þess á milli
ætla ég að sitja inni við og
skrifa.“
öllu er á botninn hvolft hefur Holtið allt-
af vinninginn, ekki síst vegna þess
hversu íhaldssamur staðurinn er og
mikill stöðugleiki í eldamennsku, fram-
reiðslu og allri umgjörð. Grillið á Hótel
Sögu hefur aldrei náð þeim upphæö-
um í matargerðarlistinni sem Holtið er
orðlagt fyrir. Hins vegar geta menn
setið þar hátt uppi, snætt ágætan mat,
og horft yfir borgina eins og kóngar í
ríki sínu eitt kvöld.
LEIKHÚS
• Allt lokað. Þaðervitaskuld einsog
hver önnur della aö stóru atvinnuleik-
húsin I Reykjavík skuli ekki sýna af
grimmd og ákafa yfir páskana. Því
hvenær hefur hinn vinnandi lýður svo-
sem betri tíma til að fara í leikhús en
einmitt þá, og er ekki líka heppilegast
að fara í leikhús á stórhátíðum þegar
maður er hvort sem er í sparifötunum.
(staðinn taka Þjóðleikhúsið og Leikfé-
lag Reykjavíkur sér gott páskafri, sem
minnir okkur á að leikararnir eru opin-
berir starfsmenn, og líka í hjartanu oft
átíðum.
• Islandsklukkan. Leikfélag Akur-
eyrar gerir Reykjavfkurleikhúsunum
skömm til og sýnir leikgerð (slands-
klukkunnar flesta hátíðardagana. Sýn-
ingin er í meira lagi hefðbundin, þetta
er sú islandsklukka sem er þjóðinni
kær og kannski engin ástæða til að of-
urselja hana einhverri tilraunastarf-
semi. Kannski er hún enn frekari
ástæöa til aö sjá (slandskiukkuna sú
uppgötvun sem einhverjir hafa gert að
verkiö fjalli í raun um aðild íslands aö
Evrópubandalaginu. Leikfélag Akur-
eyrarmiö., fim., lau. & mán. kl. 20.30
• La Bohéme.Furöulega geta (s-
verið íyrr en nú í vetur sem hún
fór að taka skriftimar alvarlega
að einhverju ráði. Og það með
hreint ekki slæmum árangri því
rúmlega 100 smásögur bárust í
keppnina.
En ætíar Vala að leggja fyrir
sig skriftir? „Framtíðin er óráð-
in en það er gott og gaman að fá
svona viðurkenningu lýrir það
sem maður gerir. Það dregur að
minnsta kosti ekki úr manni að
halda áfram,“ segir Vala.
Annars virðist skáldgyðjunni
vera sérstaklega vel við nema í
MH því sigurvegari í ljóða-
keppninni var líka þaðan. Hann
heitir Jón Yngvi Jóhannsson en
það reyndist bara ómögulegt að
ná í hann drenginn, þannig að
ljóðið verður að bíða betri tíma.
skrifað með ypsiloni og kemur þessu
ekkert við. Þetta er sveit sem spilar á
Dansbarnum í kvöld og þótt þeir séu
bara tveir félagarnir þá spila þeir
ágætavel.
• BP-blúsband skemmtir þeim sem
sækja Feita dverginn heim í kvöld.
Þetta er tríó skipaö meðlimum úr
hljómsveitinni Fressmönnum. Við
minnum á þá staðreynd aö British
Petroleum er ekki lengur startrækt hér
á landi og því ætti þetta að vera Olís-
blúsband. En erlendu áhrifin sækja
alls staðar á.
• El puerco og ennisrakaðir skötu-
selir leika ekki á Tveimur vinum í
kvöld. Nei, en jjeir verða þar á annan í
páskum. Svínið og selirnir hafa ekki
komið fram lengi, að minnsta kosti hef-
ur þá lítiö fariö fyrir því. Einu sinni gáfu
þeir út plötu. Honk.
VEITINGAHÚS
• Þaö er víst hefð og hefur verið
bundið' í lögreglusamþykktum aö á
stórhátíð eins og páskunum skuli veit-
ingahús vera harðlokuð. Á þessu hafa
reyndar orðiö nokkrar undantekningar
hin síðari ár, en í mörgum tilvikum hafa
þaö verið staðir sem ætla að krækja í
gesti á þeirri forsendu einni að það sé
opiö, ekki vegna þess að maturinn sé
neitt sérlega merkilegur. Við þessu
ástandi er best að bregðast meö því
að fara almennilega út að borða um
páskana, gera það með stæl, á veit-
ingastaö sem varla lokar af svo litlu til-
efni. Sitja lengi, í sallaró, yfir þríréttaöri
máltíð, góðu rauðvíni, kaffi og koníaki.
Þar eru vitaskuld hótelin f fremstu röð.
Kannski slaga einhver veitingahús
tímabundið upp (Hótel Holt, en þegar
Kóngulóarstelpan Vala skrifar og
skrifar og hefur þegar fengiö fyrstu
viðurkenningu sína fyrir ritstörf.
mánuð eða þar um bil er vænt-
anleg bók frá Vöku-
Helgafelli með því
bitastæðasta úr sam-
keppninni.
Vala segist alltaf
hafa skrifað töluvert
en það hafi þó ekki
• Sniglabandiö bankar upp á hjá
Kára, Jónasi og mömmu hans á
Tveimur vinum í kvöld. Það þarf svo
ekkert aö segja mikið frekar, það vita
allir að Skúli, Ploderinn, Drösullinn og
félagar þeirra svíkja engan.
• Sín. Þama ekki um að ræða sjón-
varpsstöðina, enda er nafn hennar
„Þetta er svona lítil saga úr
hversdagslífinu og gerist á
Blúsbamum," segir Vala Bald-
ursdóttir, höfundur smásögunn-
ar Kóngulóarsokkabuxur sem
bar sigur úr býtum í smá-
sagna- og ljóðakeppni fram-
haldsskólanna. Vala er 19 ára
og nemi á félagsfræðibraut við
Menntaskólann í Hamrahlíð.
Hún segir að sagan sé ekki al-
veg ósönn en vill engu ljóstra
upp um innihaldið. Sem er
kannski ekkert skrítið þvf eftir
Vlf>
MÆLUM
MEÐ
Að fólk sæki um sem leikarar hjá
Light Nights
fín sumarvinna fyrir þá 1.800
námsmenn sem horfa ffam á atvinnu-
leysi
Þjóðargrafreitnum á Þingvöll-
um
þangað er góður páskabíltúr
Fleiri hryggðarvökum
til dæmis við kynbótastöðina í
Hrísey og bara hvar sem er
Páskaeggjum með meira og
betra nanimi
ekki bara tveimur hörðum kara-
mellum, nokkrum kúlum og einum
brjóstsykri
INNI
Smábamasund. Það er mikið inni
(og gott) að eiga lítil og sæt böm
sem heita stómm og ábúðarmiklum
nöfnum (Amljótur, Álfgrímur, Þor-
gerður, en ekki Yrsa Mjöll eða
Burkni Snær); hafa komið þeim í
heiminn mitt í hjartahlýjunni og
umhyggjunni og heimilisbragnum á
Fæðingarheimilinu, búa f fallega
uppgerðri en þó ekki fburðarmikilli
íbúð í steinhúsi fyrir vestan
Kringlumýri, vera umhverfisvænn
án þess það fari þó nokkum tfma út
í heimskulegar öfgar, áhugasamur
um menningu, leikhús og þjóðmál
án þess það verði þó nokkum tíma
að kjánalegri áráttu. Njóta fjölmiðla
í hófi. Eiga passlegt safn geisla-
diska, þar sem er hæfilega mikið af
vönduðu en þó framsæknu rokki,
helstu perlum sígildrar tónlistar, að
ógleymdum svolítið obskúrum
ftölskum og frönskum flytjendum.
K .æða börnin af kostgæfni með til-
liti til lita og mynstra, en þó alltaf af
fyllstu smekkvísi. Setja skemmti-
legar húfur á litlu kollana. Punktur-
inn yfir i-ið er samt smábamasund-
ið sem snjall íþróttakennari í Mos-
fellssveit innleiddi fyrir nokkru.
Lfklega er alveg rétt að það auki
bæði styrk og sjálfstæði litlu barn-
anna, en þó er það varla neitt hjá því
hvað foreldrarnir taka sig vel út.
ÚTI
Orðtök. Allar gömlu tuggurnar
úr máli kotbænda og þurrabúðar-
fólks sem íslensku nútímafólki er
uppálagt að nota eins og það væri
lifandi tungumál; allur sá staðlaði
talsmáti upprunninn úr heyskap,
fráfæmm og sjósókn á opnum bát-
um sem kemur ekki hætishót við
fólki sem fer allra sinna ferða á jap-
önskum bílum. Málshæltir sem
koma eins og gluggapóstur upp úr
páskaeggjum, svo andlausir að þeir
eru sennilega búnir til í kaffitíman-
um í súkkulaðifabríkkunni eða í
einhverjum afdal sem Byggðastofn-
un hefur ekki einu sinni uppgötvað
(leiðinlegasta persónan í íslenskum
bókmenntum er reyndar vinnumað-
urinn sem alltaf svaraði í málshátt-
um). Og — í framhaldi af því —
páskaegg, eða þessar súkkulaði-
klessur í sellófani sem fslendingar
brúka sem páskaegg. Einu sinni var
ekkert gotterí að hafa á íslandi
nema kókosbollur, lindubuff og sír-
íuslengjur. Á þeim tíma mótaðist
líka hið íslenska páskaegg. Síðan
varð allt frjálst og inn í landið
flæddi háþróað útlenskt gotterí. Og
íslenska gottið skánaði líka, smátt
og smátt og með semingi sælgætis-
framleiðenda. Nema páskaeggið —
það er ennþá eins og á haftatíman-
um.