Pressan - 28.05.1992, Síða 14
14
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. MAÍ 1992
Titringurinn í Alþýðuflokknum
MIKIL OÁNÆGJA MEO
JON BALDVIN EN
MINNISAMS1ABA OM
X ■ ■
I ■■ ■ ■ ■■ ■■ ■ ■■ I ■ ■ Alþýðuflokkurinn virðist ekki reiðubúinn að kjósa Jó-
IBIIII | 1 ■ hönnu Sigurðardóttur formann, þrátt fyrir óumdeildar
Smj H ■ ■■■ ■y,y H ■ vinsældir hennar í flokknum. Jón Baldvin sýnist traustur í
S I \ 1 ■■ sessh en beðið er eftir yfirlýsingum Guðmundar Árna Stef-
■■ ■ I ■■ ■ ■ I ■ ■■ ánssonar á þingi ungkrata nú um helgina.
Jón Baldvin fékk
falleinkunn hjá
helmingnum
Úlkoma Jóhönnu Siguröar-
dóttur og Jóns Baldvins Hanni-
balssonar úr skoðanakönnun
Skáís fyrir PRESSUNA var ólík.
Jóhanna fékk hæstu meðalein-
kunn sem ráðherra hefur fengiö
og var langt fyrir ofan næsta
mann. Jón Baldvin fékk hins
vegar næstlægstu meðalein-
kunnina var einn þriggja ráð-
herra sem fengu falleinkunn.
Samanburðurinn er Jóhönnu
í hag í öllum tilfellum:
Jóhannafékk7,1 í meöalein-
kunn en Jón fékk 4,5. 13 pró-
sent þátttakenda gáfu Jóhönnu
10 en aðeins 4 prósent Jóni.
Jóhanna fékk 8 til 10 frá 48
prósentum þátttakenda en Jón
aðeins frá 20 prósentum.
Jón Baldvin fékk núll frá 18
Niðurstöður í einkunnagjöf-
um fólks um ráðherra benda til
þess að það gæti orðið Alþýðu-
flokknum farsælt að skipta um
formann. Losa sig við næstóvin-
sælasta ráðherrann, Jón Baldvin
Hannibalsson, og setja í hans
stað þann langvinsælasta, Jó-
hönnu Sigurðardóttur. Þó virðist
afar ólíklegt að sú verði niður-
staðan á flokksþinginu sem
haldið verður um miðjan júní.
Vegna þess að stuðningur við
störf þeirra er mjög viðlíka með-
al flokksmanna og vegna þess að
þótt flokkurinn styðji Jóhönnu
sem varaformann og til að vera
Jóhanna virðist hann ekki reiðu-
búinn að gera hana að formanni.
Þó er töluverður skjálfti innan
flokksins og ljóst að kratar vilja
vera viðbúnir hinu óvænta þegar
á þingið kemur. Óánægjan sem
einkum hefur birst í véfréttastíl í
fjölmiðlum veldur óvissutitringi
sem enginn virðist geta hent
reiður á. Til marks um það var
kjördæmisþing flokksins í
Reykjanesi á þriðjudagskvöld.
Meðal fundarmanna voru þeir
sem hafa lýst efasemdum um
forystu Jóns Baldvins, en fúnd-
inum lauk með því að samþykkt
var samhljóða afdráttarlaus
stuðningsyfirlýsing við hann.
Nú standa yfír kosningar full-
trúa á flokksþing, meðal annars
um helgina hjá stærsta félaginu,
Alþýðuflokksfélagi Reykjavík-
ur. Þar er framboð meira en eftir-
spum og hafa verið í gangi með-
al flokksmanna listar með nöíh-
um þeirra sem tilteknir hópar
vilja að komist að sem fulltrúar.
Meðal annars hefur hópur stuðn-
ingsmanna Jóhönnu dreift lista
með um þrjátíu nöfnum sem
brýnt er talið að hljóti kosningu.
Félagið á rétt á rúmlega fimmtíu
fulltrúum af 330 á þinginu.
Samband ungra jafnaðar-
manna velur sína fulltrúa um
helgina og verður Guðmundur
Arni Stefánsson gestur þar. Sú
skoðun er áleitin innan flokksins
að þar muni hann gefa yfirlýs-
ingu um ffamboð til formanns,
enda hafi hann þegar tryggt sér
hálft annað hundrað atkvæða ef
til formannskosninga kæmi. I
samtali við PRESSUNA vildi
Guðmundur Ami ekki neita
þessu, sagðist ekki halda ræðu
án þess að gefa einhverjar yfir-
lýsingar. Hann vildi ekki segja
hvers eðlis þær yrðu. Hann vildi
„Ekki stikkfrí í pólitík"
segir Jón Baldvin Hannibalsson
„Guð láti á gott vita ef eitt-
hvað er að marka þetta,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson og
var þá að vísa til útkomu Al-
þýðuflokksins úr skoðana-
könnun Skáls.
„Einkunnagjöf ráðherra er
náttúrlega af því tagi að það
deilir enginn við dómarann,
þótt ég hafi lúmskt gaman af
því að ráða í hvað ræður ein-
kunnagjöfinni. Ég spyr sjálfan
mig hvort falleinkunn upp á4,5
endurspegli mat þjóðarinnar á
þýðingarmestu milliríkjasamn-
ingum sem henni hafa hlotnast
á lýðveldistímanum eða hvort
hún endurspeglar einungis þá
staðreynd að formaður Al-
þýðuflokksins er umdeildur.
Hann er ekki stikkfrí í pólitík
og hann kemur ekki ábyrgðinni
af óvinsælum verkum yfir á
aðra.“
Hvernig útskýrirðu gengi
Jóhönnu?
„Allir vita að hún er góð
kona og góðs makleg."
Hvað segir þetta flokknum
um hvað hann á að gera á
flokksþinginu?
„Enn með þeim fyrirvara
að eitthvað sé að marka þetta,
þá stendur Alþýðuflokkurinn
betur en nokkru sinni síðan
hann hóf stjómarþátttöku ár-
ið 1987. Sú skoðun virðist
vera röng, að einarðleg fram-
ganga við nauðsynlegar kerf-
isbreytingar í ríkisfjármálum
bitni á flokknum og hann lifi
það ekki af. Flokkurinn á
ekki að heykjast á því verki,
heldur ljúka því.“
Gœti hann ekki líka dregið
þá ályktun að betra vœri að
hafa í formannssœti vinsœl-
asta ráðherrann fremur en
þann nœstóvinsœlasta?
„Jú, ef það væri rökrétt
niðurstaða af því sem ég
sagði áðan, að menn vilji að
Alþýðuflokkurinn haldi
áfram á sömu braut og ef
menn treysta vinsælasta ráð-
herranum til að ganga vask-
lega fram í þeim verkum.“
PRESSAN gerði ítrekaðar
tilraunir til að ná tali af Jó-
hönnu Sigurðardóttur, en hún
sinnti ekki skilaboðum.
heldur ekki segja álit sitt á niður-
stöðum í skoðanakönnun Skáís.
Aðrir drógu mjög ákveðnar
ályktanir af könnuninni. „Ég hef
þegar lýst yfir að ég telji tíma-
bært að skipta um forystu og
þessar einkunnir sýna að þjóðin
er sammála því. Það verður svo
að koma í ljós hvort flokksþingið
er sammála. Það kemur ekki á
óvart að formaðurinn nýtur ekki
trausts, því hann nýtur ekki
trausts hjá mér,“ sagði Bjarni P.
Magnússon, sveitarstjóri og fyrr-
um borgarfulltrúi flokksins, sem
reyndar hefur lýst stuðningi við
Guðmund Ama sem formann.
, Jóhanna er afskaplega heiðar-
leg og samkvæm sjálfii sér, hún
er það sem Jón Baldvin hefur
sagst vera en er ekki. Um for-
ystuhæfileika hennar skal ég
ekkert segja, en ef ég ætti að
velja á milli þeirra hika ég ekki
við að velja hana.“
Annar stuðningsmaður Jó-
hönnu er ÓUm Þorvarðardóttir,
borgarfulltrúi Nýs vettvangs.
„Það er engin tilviljun að Jó-
hanna fær hæsta einkunn, því
hún hefur það orð á sér að vera
heilsteyptur stjómmálamaður,“
sagði hún. „Þessi könnun er hins
vegar um álit fólks á eintak-
lingum sem ráðherrum en ekki
sem forystumönnum flokka og
varasamt að draga of margar
ályktaniraf því.“
Sem er það sem ræður úrslit-
um á flokksþinginu. ,£g held að
flokkurinn láti ekki einhverjar
vinsældakannanir fjölmiðla
hafa áhrif á sig,“ sagði Össur
Skarphéðinsson þingflokks-
formaður. „Það virðist sem
þau njóti mjög álíka stuðn-
ings hjá flokksfólkinu, en
það er líka Ijóst að flokks-
fólki þykir mjög vænt um
Jóhönnu Sigurðardóttur."
Sá hópur sem er
óánægður með Jón Baldvin
virðist eiga tveggja kosta
völ. Annars vegar að fara í
formannskjör til að láta í Ijós
óánægjuna, ef hann telur sig
hafa fylgi til þess. Hins vegar
að Jóhanna dragi sig til baka
og eftirláti Guðmundi Ama
varaformannssætið. Það er
einn af kostunum sem hún er
nú að íhuga.
Ef ekki verða átök um
menn á þinginu er sýnilegt að
línur muni skerpast í málefn-
um, sérstaklega í velferðarmál-
um svonefndum. Jón Baldvin
hefur talað opinberlega fyrir
býsna róttækuni breytingum
þar, en undirbúningshópur fyrir
þingið í þeim málaflokki lýtur
forystu Jóhönnu. Þar hafa hug-
„Skemmtiefni en ekki vísindi"
segir Jón Sigurðsson
„Þetta er samkvæmisleikur,
en ekki skoðanakönnun," sagði
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra aðspurður um skoðana-
könnun Skáís. „Tölugildi em
ekki af skynsamlegu viti í
svona samkvæmisleik. Það
hefur enga merkingu að tölu-
setja viðhorf fólks til ráðherra
og starfa þeirra á þennan hátt.
Þetta gefur hins vegar einhveij-
ar vísbendingar um vinsældir
og um það ætla ég ekki að segja
meira.“
„Hvaða ályktanir á Al-
þýðuflokkurinn að draga af
þessu varðandiforystuna?"
„Engar sérstakar ályktanir,
bara skemmta sér við að
skoða þetta. Þetta er
skemmtiefhi en ekki vísindi.“
myndir Jóns — til dæmis um að
láta þá greiða fyrir ýmsa þjón-
ustu sem efni hafa á — ekki ver-
ið uppi á borðum og hann sjálfur
hefiir ekki komið að þeirri vinnu.
Karl Th. Birgisson
prósentum þeirra sem tóku
þátt. Jóhanna fékk núll frá 1
prósenti þátttakenda. Jón
Baldvin fékk falleinkunn; 4 eða
minna, frá 50 prósentum þátt-
takenda en Jóhanna fékk fall-
einkunn frá 10 prósentum.
Þegar afstaöa stuönings-
manna Alþýðuflokks er skoðuð
kemur í Ijós að 39 prósent
þeirra gáfu Jóhönnu 10 en 23
prósent Jóni. 90 prósent gáfu
Jóhönnu hæstu einkunn, 8 til
10, og 85 prósent Jóni. Jón
fékk hins vegar falleinkunn frá
13 prósentum kratanna
en Jóhanna aðeins frá
1,5 prósentum þeirra.
Jóhanna fékk 8,7 í
meðaleinkunn frá kröt-
um en Jón 8,2.