Pressan


Pressan - 28.05.1992, Qupperneq 24

Pressan - 28.05.1992, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR PRESSAN 28.MAÍ 1992 E R L E N T „Ég ætla ekkert aö kaupa, mig langar bara aö skoöa...“ Naína Jeltsín, eiginkona Borísar Rússlandsforseta, var á ferö í Hol- landi á dögunum til aö afla fjár handa ungum fórnarlömbum Tsjernobyl-slyssins. Þegar hún var spurð hvort hana langaöi aö sjá ein- hverja markveröa staöi i Hollandi lét hún þá ósk eina í Ijósi aö hún fengi aö skoða stórmarkað. Kaupmáttur op- inberra starfs- manna minnkar enn Undirbúningi umhverfisráðstefn- urnar f Ríó er svo að segja lokið og á sumum vfgstöðvum mæti halda aö ráðstefnan væri þegar hafin. Þannig munu vændiskonurnar frir utan Help, stærsta diskótek borgar- innar, þegar hafa hækkað þóknun sína um helming og er talið aö hún muni enn hækka þegar rjómi um- hverfisskriffinna heimsins kemur í bæinn. Þakka þér, Jeeves I kjölfar óeirðanna í Los Angeles hefur eftirspurn eftir breskum einka- þjónum vaxið stórlega, en margir þeirra eru fyrrverandi hermenn, sem hafa hlotiö þjálfun sem lífveröir auk hinna hefðbundnu starfa eins og aö strauja dagblöðin, blanda afréttara og vera herranum innan handar um hvaðeina. Er aldrei friöur? íbúum í svefnhverfi skammt frá San Francisco brá heldur betur í brún þegar meölimir vélhjólagengisins Hells Angels festu kaup á húsi í hverfinu, fluttu inn og hófu umsvifa- laust taumlaust samkvæmislíf. Sáu íbúarnir fram á svefnlausar nætur og lækkandi fasteignaverð. Fyrsta kvörtun til lögreglunnar var þó af öörum toga en búist hafði verið viö, því á laugardagsmorgni hringdu englarnir sjálfir í lögregluna og kvörtuðu undan hryllilegum hávaða frá garðsláttuvélum nágrannanna. Suður-Afríka Armani-öreigarnir flýja Soweto Þegar F.W. de Klerk, forseti Suður-Afríku, tilkynnti það 2. febrúar árið 1990 að Nelson Mandela, leiðtoga Afríska þjóð- arráðsins (ANC), yrði sleppt úr haldi, vöknuðu vonir um að loksins yrði endi bundinn á að- skilnaðarstefnuna og annað óréttlæti minnihlutastjómarinnar gagnvart svertingjum. Hlutskipti flestra þeirra hefur þó lítið breyst til hins betra síðan og ef eitthvað er hafa hinir snauðu orðið enn snauðari. Átök kynþátta svartra hafa magnast og ofbeldisverkum svartra gegn svörtum hefur síst fækkað, en fyrst og fremst eru það Inkatha- hreyfmg Zúlú- manna og ANC, sem eigast við. Ekki síst á það við í gömlu blökkumannahverfunum á borð við Soweto og Alexandra, en ein afleiðing þess er að flestir leið- togar Afríska þjóðarráðsins hafa flutt búferlum í fínni hverfi, sem áður voru einvörðungu opin hvítum. Þrátt fyrir að fangaklefi Man- dela í 23 ár hafi líkast til verið besti fangaklefi í Suður-Afríku var hann enginn svíta. Hið nýja Framhliö hinnar nýju villu Nelsons Mandela. heimili hans í Houghton-hverfi, sem er nokkurs konar Amames Jóhannesarborgar, er aftur á móti hið glæsilegasta. Húsið keypti Mandela eftir skilnaðinn við Winnie, en hún dvelst enn í tröll- aukinni villu þeirra í Soweto á hæð, sem aðrir íbúar nefna Be- verly Hill. Athygli vakti hversu lágt verð Mandela galt fyrir húsið, því það Frjálst siónvarp í Rúmeníu Þrátt fyrir að flestir telji lýð- ræðisþróun í Rúmeníu með allra hægasta móti varð Rúm- enía samt sent áður fyrsta ríkið austan jámtjaldsins sundur- ryðgaða til að leyfa rekstur frjálsrar sjónvarpsstöðvar. Stöð tvö þeirra Rúmena er þó ekki enn farin í loftið, en gert er ráð fyrir að útsendingar geti hafist innan nokkurra vikna. í fyrstu verður sent út sex stundir á virkum dögum og sjö stundir unt helgar. Þau ný- mæli verða í dagskránni að sex auglýsingamínútur verða seld- ar á hverri klukkustund, en að öðm leyti á dagskráin að helg- ast af fréttum, sjónvarpsleikrit- um, kvikmyndum, spuminga- þáttum og léttri skemmtan. Það er breskt fyrirtæki, sem á 80% af stöðinni á móti rúm- enska ríkissjónvarpinu, en að- alfjárfestirinn er grískur sjón- varpsmógúll, Minos Kyriakou að nafni. Talsmenn stöðvarinn- ar segjast ætla að legggja ríka áherslu á gæði efnisins og fyr- irhuga að við stöðina starfi um 240 manns. Talið er að í upp- hafi nái um fjórðungur Rúm- ena útsendingum stöðvarinnar og um tveir þriðju að ári liðnu. kostaði hann aðeins um 10 millj- ónir íslenskra króna. Þar sem menn hafa borgað meira fyrir auðar lóðir í hverfinu, hafa menn sagt sem svo að annaðhvort sé hús Mandela að hruni komið eða þá að seljandinn, sem er vellauð- ugur iðnrekandi, hafi viljað koma sér í mjúkinn hjá ANC. Hið síðamefnda kæmi ekki á óvart, því að undanfömu hafa sögur gengið fjöllum hærra um hvemig ýmsir leiðtogar ANC hvítum viðskiptajöfrum. Áður en Mandela keypti húsið gisti hann til dæmis í nokkrar vikur í höll forstjóra stærsta trygginga- fyrirtækis landsins. Og í fyrra keypti Oliver Tambo, forseti ANC, ekki minna slot fyrir jafn- virði um 200 milljóna íslenskra króna. Fatasmekkur ANC-foryst- unnar vekur ekki minni athygh, því foringjamir klæðast allir klæðskerasaumuðum fötum ffá únum. Það þótti til dæmis hálf- vandræðalegt í veislu, sem hald- in var til heiðurs David Dinkins, hinum þeldökka borgarstjóra New York-borgar, að heiðurs- gesturinn var sá eini, sem klædd- ist litríkum afrískum kufli. Og þegar ráðherrar minnihluta- stjómarinnar hitta leiðtoga ANC em þeir eins og kaupfélagsstjór- ar í samanburði. Thabo Mbeki, skuggautanrík- isráðherra ANC, ekur um allt í hvítum blæju-BMW af dýmstu gerð og bjó til skamms tíma í svítunni á fínasta hótelinu í land- inu. Og Cyril Ramaphosa, fram- kvæmdastjóri ANC, sem á ámm áður var formaður verkalýðsfé- lags svartra námumanna, fer nú um hveija helgi á silungsveiðar með toppunum hjá námusam- steypunni Anglo-American. Einn örfárra leiðtoga ANC, sem ekki hafa fjarlægst rætur sínar, er hinn 79 ára gamli vara- forseti ANC, Walter Sisulu, en hann býr enn í sama rauða múr- steinshúsinu í Soweto og hann flutti inn í 1941. Það er kannski heldur engin tilviljun að hann er sá leiðtoga ANC, sem mestrar virðingar nýtur hjá svartri alþýðu hafi þegið alls kyns greiða af Armani eða Savile Row í Lund- Syndir feðranna Breyskleiki vígðra þjóna kaþ- ólsku kirkjunnar hefur verið nokkuð til umræðu að undan- fömu eftir að í hámæli komst að írski biskupinn Eamonn Casey hefði átt í langvinnu ástarsam- bandi við bandaríska konu, getið við henni son og síðan stolist í safnaðarbaukinn þegar upp á vinskapinn slettist og konan krafði hann um meðlag. í kaþ- ólskum sið á íslandi til foma þótti reyndar engum neitt óeðli- legt við að klerkar ænu konur og böm, en nú — þrátt fyrir meint umburðarlyndi 20. aldar manns- ins — þykir þetta öldungis ófært. Hins vegar er líkast til algeng- ara en margur hyggur að kaþ- Grenier-hjónin ásamt dóttur sinni. MAGNEA MATTHÍASDÓTTIR Fjaðrafok faríseanna „[SyndinJ getur verið hórdómur eða tóbaksreykingar, þátt- taka í stjórnmálum eða keppnisíþróttum eða — og „uhyggen spredersig“— jafnvel sú hrœðilega synd að hvetja ungt fólk til framhaldsnáms... “ Hér í Danave'.di talar varla nokkur maður um annað en veðrið þessa dagana, enda búið að vera 25° hiti og heiðríkja upp á hvem dag og spáir öðm eins næstu viku. Innfæddir gæla við þá hugmynd að nú komi annað eins sumar og ’47, sem enn seiðir fram draumkenndan svip á langminnugum og fullorðnum Dönum. En þegar menn geta fengið af sér að tala um annað en sól og sumar, er það ekki yfirvofandi silfurbrúðkaup drottningarinnar eða þjóðarat- kvæðagreiðslan á þriðjudaginn um Maastricht-samkomulagið, þrátt fyrir allar milljónimar, sem já-menn splæsa til að fá þjóðina til að kjósa rétt. Skoðanakann- anir sýna enn hnífjafnt hlutfall milli já-manna og nei-manna, 20% eða svo eiga enn eftir að gera upp hug sinn, 3% ætla ekki að kjósa, en til mikillar mildi virðast allir búnir að átta sig á því að atkvæðagreiðslan á að fara fram. Batnandi manni er best að lifa, líka í þessari blíðu. Nei, það sem helst hefur hrist upp í mönnum er sértrúarsöíri- uður, sem telur um það bil 16.600 manns í 235 sóknum um allt land. Þetta eru Vottar Je- hóva, sem eiga reyndar útibú um allan heim (nánar tiltekið 97 löndum) en aðalstöðvar sfnar í Ameríku, eins og fleiri skrítin trúfélög. Vottamir lentu nefni- lega í þeirri leiðindaaðstöðu, að fjölmiðlar komust á snoðir um að frá þeim hefði verið stolið leyniskrá yfir brottræka félaga fyrir tæpu ári, í júlí í fyrra. í skránni ku vera greint frá einka- högum 4-6.000 manns eða svo. Sagt er að hún sé hálfur annar metri á þykkt og nái allt aftur til ársins 1952, eða 40 ár. Þetta er auðvitað afskaplega vont mál, því dönsk yfirvöld em á því að þessi skráning bijóti í bága við lög og reglur, en Vottamir bera það lyrir sig að þeir megi skrifa svona punkta niður hjá sér, svo framarlega það sé ekki á tölvu. Komið hefiir fram annars staðar að tölvuskráningin fari fram í aðalbækistöðvum safnaðarins í Ameríku, þar sem þeir em ekki jafnfeintnir við slík apparöt. Og það er ekki falleg lesning, sem skráin býður upp á. Eins og áður var nefnt, er hún um fólk, sem gert hefur verið brottrækt úr söfnuðinum vegna þess að það hefur gert sig sekt um athæfi, sem ekki sæmir sanntrúuðum mönnum. Það getur verið hór- dómur eða tóbaksreykingar, þátttaka í stjómmálum eða keppnisíþróttum eða — og „uhyggen spreder sig“ — jafn- vel sú hræðilega synd að hvetja ungt fólk til framhaldsnáms, sem Vottamir telja siðspillandi með afbrigðum. „Safnaðarþjón- amir“ mega ekki hafa alskegg og þykja ósiðsamlegir í klæða- burði ef þeir ganga ekki um í jakkafötum og með bindi, þó það sé kannski ekki alveg ljóst hvar þeir finna fordæmi fyrir slíkum útlitsreglum í Biblíunni. Forsprakki safnaðarins hér í landi leggur að jöfnu samkyn- hneigð og stelsýki, en getur um- borið hvort tveggja af himnesk- um kærleika, svo framarlega sem menn láta ekki undan veik- leika sínum. Og það er reyndar fleira, sem Vottamir líta hom- auga, til dæmis blóðgjafir, enda valdi ung rnóðir í söfnuðinum það frekar um daginn að deyja en þiggja blóð og verða þar með útskúfuð úr „samfélagi heil- agra“. Utskúfunin er nefnilega hræðileg refsing íyrir þá ræfla, sem fyrir henni verða. Það má segja að þeir hætti að vera til í augum fyrrverandi safnaðar- systkina og sinna nánustu, því fólk á sjálflt á hættu útskúfun, ef það helrir eitthvert samband við sektargemlingana. Foreldrar mega ekki einu sinni heilsa brot- legu bami sínu á götu, hvað þá meira, og iðulega em það reynd- ar nánir ættingjar, sem koma upp um „syndina", því það er að sjálfsögðu tilkynningaskylda innan safnaðarins. Og svona í lokin má nefna, að fólk á svo erfitt með að slíta sig úr þessum kærleiksfaðmi, að eigin vali eða annarra, að það em starfandi fjölmargir stuðningshópar víða um land. Já, „kristilegu kær- leiksblómin spretta, kringum hitt og þetta“. ______________ Höfundur er rithöfundur i Kaup- mannahöfn. ólskir kennimenn láti undan ffeistingum holdsins. Kaþólskir gáfumenn á Englandi hafa sumir látið sér fátt um málið finnast og benda á að menn heiti einlífi ffekar en skrrlífi, manninum sé syndin eiginleg — það sé ein- mitt það, sem greini hið mann- lega frá hinu guðlega — og prestar geti sem aðrir menn fall- ið í freistni. Og það gera þeir. I Bandaríkjunum em til dæm- is stuðningssamtök við konur, sem eiga í kynferðis- og/eða tíl- fmngasambandi við kaþólska presta, og innan vébanda þeirra em meira en 1.000 manns. Sam- tökin nefnast Fagnaðarerindið og em starfrækt af hjónunum Joe og Cathy Grenier. Þeim er málið ekki alls óviðkomandi, því hann er fyrrverandi prestur og hún fyrrverandi nunna. Bæði em afar trúuð og beijast fyrir af- námi einlífiskröfu kirkjunnar. Þau segja vandann brýnan, ekki síst vegna leyndarinnar, sem hjúpar þessi sambönd. Ann- ars vegar er leyndarmál elskend- anna og hins vegar láta kirkjunn- ar menn eins og vandinn sé ekki til. Þangað til kirkjan endurskoð- ar afstöðu sína er um þrjár leiðir að velja: syndga á laun, láta af kjóli og kalli eða ganga til liðs við biskupakirkjuna, sem hefur nær sömu kenningu og hin kaþ- ólska en leyfir hjónabönd presta.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.