Pressan - 28.05.1992, Side 41
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. MAÍ 1992
41
ÍSLAND
NAFN Askja Hlíf
FÆDD 18. september 1970
MÁL 90 - 60 - 90
ÁHUGAMÁL Að keyra um á
Toyotunni sem pabbi hennar
gaf henni þegar hún varð
kynþroska.
Er atvinnulaus sem stendur en er opin fyrir öllu
FÆREYJAR
NAFN Splittbjörg Returonum
FÆDD 1. desember 1967
MÁL 185-30-55
ÁHUGAMÁL Engin
Hefur unnið sem flugþjónka
hjá Föreyjarlandsflugið, en er
annars alltaf full og vitlaus.
EISTLAIUD
NAFN Druzla Gúllasnokof
FÆDD 24. júlí 1971
MÁL 90- 178-20
ÁHUGAMÁL Aö standa í
biðröðum og halda orgelkon-
serta.
Druzla er heimavinnandi
húsmóöir, enda nýbúin aö eiga þríburana K, G og B.
SUÐUR-AFRÍKA
NAFN Beatrice Van Der
Staadtransval
FÆDD 16. mars 1969
MÁL 120 - 70 - 90
ÁHUGAMÁL Að tína demanta
og sauma í
Vinnur við einhliða land-
kynningu á jákvæðan hátt.
Olga er því munaöarlaus um þessar mundir.
JÚPÍTER
NAFN Xxxxzy 264216
FÆDD 36. galaks 2022
MÁL x - x2 - x/2
ÁHUGAMÁL Að labba um f
geimnum.
Vegna súrefnisskorts er óvfst
með þátttöku Xxxxzy í keppn-
inni, en hún á hug okkar jaröarbúa.
Kynning á keppendum Ungfrú Alheimsþokka 1992 verður á skemmtistaðnum Moulin Rouge, Laugavegi 116, 29. maí
næstkomandi, en sjálft úrslitakvöldið er laugardaginn 13. júní. ífyrra var haldin Ungfrú Þokki 1991 keppni sem
heppnaðist í alla staði mjög vel og komust færri að en vildu.
BÍÓIN
ÓGNAREÐLI Basic Instinct REGNBOGANUM
Maður hlýtur að taka undir með öllum þeim aragrúa krítíkera sem hafa skammast út í þessa kvik-
mynd. Þetta er andstyggileg og nauðómerkileg mynd í viðhafnarumgjörð. Michael Douglas er eins
og sveskja í framan og Sharon Stone er ódýr Ijóska, eins og Hollywood fjöldaframleiöir þessi miss
erin. Erótíkin er allsendis óerótísk, en ofbeldiö kemst hins vegar fyllilega til skila. En af því það er
búið að tala og skrifa svo mikið um myndina, af því aö auglýsingastjórarnir eru í rauninni hetjur
hennar, förum viö öll í bíó — þaö er alltaf uppselt — og göngum út á eftir tóm, þreytt og slöpp.
★★
SJÓNVARP
• Herra Bean snýr aftur. Sumum
finnst breski grínleikarinn Rowan Atk-
inson ógeðslega fyndinn, öörum finnst
hann ógeðslegur pervert. Atkinson
leikur Herra Bean sem keyrir um á litla
bílnum sínum og skilur hvarvetna eftir
sig glundroða og eyðileggingu. Sjón-
varpiö fim. kl. 20.35.
• Umhverfisbyltingin. Umhverfis-
ráðstefnan mikla í Ríó er aö byrja;
sumir segja aö þetta sé skrautsýning
þar sem ríki heims ætli að hvítþvo af
sér ýmsar umhverfissyndir—aðrir, og
þeim fer fækkandi — segja að þama
verði mörkuð einhvers konar tímamót.
Hér hefur göngu sína bandarískur
heimildamyndaflokkur um ástand (
umhverfismálum og hvernig megi
bjarga jörðinni frá aðsteöjandi vá. í
fyrsta þættinum er meðal annars fjall-
að um þau skaölegu áhrif sem land-
búnaðar- og iðnbyltingin hafa haft á
umhverfiö. SjónvarpiO fim. kl. 21.05.
• Opnustúlkan. Maríel Hemingway
er gasalega sæt og í þessari mynd
kemur hún nakin fram. Hún leikur
opnustúlku, leikfélaga ársins hjá Play-
boy, sem lendir í ógöngum og fyrirfer
sér á endanum. Myndin, sem er
byggö á raunverulegum atburðum,
vakti taisverðar deilur á sínum tíma.
Samt i meöallagi góð kvikmynd, en
ábyggilega betri en myndin um afa
Manel, Emest Hemingway, sem Sjón-
varpiö sýndi um daginn. Hún var blátt
áfram hlægileg. SjónvarpiO lau. kl.
23.10.
• Hólmgöngumenn. Ridley Scott
geröi þessa mynd áður en hann varð
frægur og áður en áhorfendur fóru aö
renna í grun hversu mistækur leikstjóri
hann væri. Hún er gerð eftir sögu Jos-
ephs Conrad og segir frá tveimur
frönskum hermönnum sem geta ekki
látið hvor annan í friði. Leikarar eru
góðir: Harvey Keitel, Edward Fox,
Tom Conti og Albert Finney. StöO 2
fös. 23.10.
• Van Gogh. Þær eru orðnar ótelj-
andi kvikmyndirnar sem hafa veriö
geröar um lífshlaup þessa óhamingju-
sama listamanns. Þessi sería er
sómasamleg og gott betur, ágætis
brot úr listasögunni sem varla veröur
miklu dramatískari en þetta. Stöð 2
VINSÆLUSTU
MYNDBÖNDIN
1 Doc Hollywood
2 Harley Davidson and
the Marlboro Man
3 Jungle Fever
4 Mortal Thoughts
5 Soapdish
6 Regarding Henry
7 Suburban Commando
8 Toy Soldiers
9 Memories of Midnight
10 Sheltering Sky
sun.kl. 17.00.
LÍKA í BÍÓ
• BÍÓBORGIN Höndin sem vöggunni
ruggar’" í klóm arnarins" Leitin
mikla" Svellkalda klíkan* Læknirinn"
• BÍÓHÖLLIN Ósýnilegi maöurinn**
Skellum skuldinni á vikapiltinn" Út í
bláinn* Víghöföi**** Leitin mikla" Ban-
væn blekking"
• HÁSKÓLABÍÓ Kona slátrarans"
Refskák** Steiktir grænir tómatar"*
Litli snillingurinn"* Frankie & Johnny**
Háir hælar"
• LAUGARÁSBIÓ Fólkiö undir stig-
anum* Mitt eigiö Idaho**** Náttfata-
partí*
• REGNBOGINN Ógnareöli** Lost-
æti**»* p|r 0g frg Bridge"* Freejack*
Kolstakkur"** Léttlynda Rósa***
Homo Faber"”
• STJÖRNUBÍÓ Óður til hafsins*"
Hook** Strákarnir í hverfinu" Börn
BÓKIN
FÓTBOLTABÓKIN ’92
Það er allt oflítiö geflö
útafhandbókumog
uppsláttarritum hérá
landi. Þess vegna ber
að fagna bókinni—
sérstaklega fyrirþað
sem hún gæti orðið;
full af allskyns fróöleik
um einskisveröa hluti
varöandi fótboltann.
Listum yfir marka-
kónga, landsleikjamet-
um, leikjafjölda, skor-
uöum mörkum og bara
yfirleitt hver geröi hvaö,
hvernig og hve oft. Út á
þaö ganga íþróttir. Bók-
in er þarft framtak og
fær 8 af 10 í sparkvissa
flokknum.
náttúrunnar***
• SÖGUBÍÓ Grunaöur um sekt"*
Hugarbrellur*
... fær Hannes Lúmsson
fyrir að hafy tekist að
draga Daniel Buren til ís-
lands. Litla galleríinu
hans Ldrusar hefyr tekist
það sem stóru söfnunum
hefur ekki tekist.
VISSIR ÞÚ
... að maður sem hafði 50
þúsund krónur á mánuði fékk
850 króna launahækkun eftir
síðustu samninga? Ef þessi mað-
ur leggur launahækkunina sína
inn á bankabók mun hann hafa
eignast eina milljón eftir 1.176
mánuði eða rétt um 98 ár. Hann
mun geta tekið milljónina sína út
árið 2090.
... að fjölskylda sem er áskrif-
andi að tveimur dagblöðum og
Stöð 2 og greiðir afnotagjald
Rikisútvarpsins ver um 78 þús-
und krónum á ári í áskrift að
fjölmiðlum. Eftir 50 ár verður
þessi fjölskylda búin að greiða
um 3,9 milljónir króna í áskrift-
ina.
... að rekstur eigin bifreiðar er
álíka kostnaðarsamur sam-
kvæmt vísitölu framfærslukostn-
aðar og rúm 80 prósent af öllum
matarinnkaupum meðalfjöl-
skyldunnar. Bfllinn „étuf ‘ því á
við tvo fullorðna og eitt bam.
SÓLARHRINQINN 7 DAQA VIKUNNAR
PÓNTUNARSlMI:
679333
PIZZAHÚSIÐ
Grantátvegl 10
- þjónar þér allan aólarhringlnn