Pressan - 09.07.1992, Blaðsíða 30

Pressan - 09.07.1992, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR PRCSSAN 9. JÚLÍ 1992 Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri á Stöð 2 EKKI GOÐ / A STALLI Ingva Hrafn þekkja flestir sem á annað borð eiga sjónvarp. Hann byrjaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1966, var frétta- maður hjá Ríkissjónvarpinu og síðar fréttastjóri. Hann hætti, var réttara sagt rekinn, en lét nú fyrir skömmu „freistast til að taka við fréttastjórastöðu á Stöð 2“, þar sem hann er haldinn illdrepan- legri bakteríu fréttamannsins. Hann hefur það að stefnu sinni að gera fréttaflutninginn per- sónulegri, léttari og líflegri en verið hefur, þannig að fólki h'ði vel með að hafa fréttamennina sem gesti heima hjá sér. Hlutverkið aldrei mikilvægara Hvernig sérðu almennt fyrir þér hlutverkfjölmiðla ídag? „Hlutverk fjölmiðla er svo sem ekki breytt að því leytinu til að það er að upplýsa fólk og fræða. Þeir reyna að sýna þjóð- lífið og umheiminn í kringum okkur í eins hlutlausri hnotskum og hægt er. Ég held að fjölmiðlar á Islandi séu almennt í hópi þeirra alfremstu í heiminum hvað varðar úrval og ábyrgð í fréttamennsku. Hlutverk fjölmiðla hefur ef til vill aldrei verið mikilvægara en nú á upplýsingaöld. Fréttamiðl- amir eru í meiri samkeppni en nokkru sinni fyrr, við erlent og innlent tímaritaflóð, gervihnatta- sjónvarp og fjarlægðir hafa styst svo mjög að heimurinn er aðeins brot af því sem hann var. „ En tekst fjölmiðlum að halda utan um hlutleysi sitt í heimi samkeppninnar? „Ef þeir ætla að teljast til al- varlegra fjölmiðla verða þeir að geta fjallað um mál frá öllum hliðum. Öll erum við einhvem tímann hlutdræg á ævi okkar en ég hygg það vera eitt mikilvæg- asta verkefni blaðamannsins hverju sinni að leggja hlutlaust og kalt mat á þær fréttir sem hann er að vinna hverju sinni, og koma þeim frá sér eins réttum og ábyrgum og kostur er. Það hlýtur að vera aðalsmerki og einkunn- arorð allra blaðamanna.“ Islenskir hlaðamenn hafa fengið gagnrýni frá almenn- ingi um óvönduð vinnubrögð. „Það kemur alltaf gagnrýni. Það er svo í blaðamannastéttinni að það er töluvert mikil endur- nýjun í henni, þetta er krefjandi streitustarf og ekki svo margir sem gera það að ævistarfi. Það krefst óskiptrar athygli og mik- illar orku. Það er óhjákvæmilegt að mistök verði í þessu feikna- lega kapphlaupi við tímann. En í heildina séð má segja að íslensk- ir blaðamenn beri af starfssystk- inum meðal annarra þjóða fýrir ábyrga afstöðu, sem mótast af því að yfirmenn á fjölmiðlum hér eru ábyrgir menn.“ Sjónvarpsfréttir...en líka sviðsframkoma En nú eru margir viðmœl- endurfarnir að spila inn á fjöl- miðlana. „Maður hefur séð það, og stundum brosað að því, að ein- stakir ráðherrar, sérstaklega nýir, hafa verið þjálfaðir af sérfræð- ingum og vilja þá gjaman horfa í myndavélina þannig að það sé eins og þeir séu að ávarpa þjóð- ina. Við bendum þá oft á að við- komandi eigi ekki að tala til myndavélarinnar heldur til fréttamannsins sem spyr og stendur aðeins til hliðar við hana. Það verður einfaldlega vand- ræðalegt ef viðmælendur halda langar svarræður og horfa beint í myndavélina. Þeir halda að þetta sé mjög sniðugt, áhrifamikið og virki vel, en það er ekki þannig. Menn dæsa og tala um að allt- af sé verið að tala við sömu mennina en í litiu þjóðfélagi eins og okkar er ákveðinn, þröngur hópur fólks sem er í lykilstöðum og fólk vill heyra hvað þeir hafa að segja. Ráðherramir og þing- mennimir okkar, svo og leiðtog- ar launþegahreyfingarinnar em svo til einu „leikaramir" sem við fáum að sjá. En þetta em nú samt mennimir sem halda mjög mikið utan um fjöreggið.“ Má segja að í þessumfrétta- heimi sem við erum að tala um, sem er mjög lifandi, hrað- ur og ör, að kröfurnar séu að breytast. Nú nálgist fréttir það að vera skemmtiefni fremur en upplýsing. „I sjónvarpsfréttum felst fréttaflutningur, en líka ákveðin sviðsframkoma. Klæðnaður, framkoma, uppseming og annað skiptir geysilega miklu máli í því sambandi. Það er ábyrgðarhluti hvemig menn segja frá frétt- næmum atburðum og hvemig þeim er skilað inn í stofú til fólks alla daga vikunnar. Lengi hefur verið litið á sjón- varpið hér sem ákveðið ægiveldi og fólk borið mikla virðingu fyr- ir því. Ég hef haft það að steftiu minni að gera fréttaflutninginn sjálfan persónulegri, léttari og líflegri en verið hefur þannig að fólki líði vel að hafa okkur sem gesti heima hjá sér. Þannig emm við ekki bara að flytja þeim vá- leg tíðindi, hvöss og alvarleg á svipinn. Við reynum að vera með svolítið öðmvísi fféttir og emm ekki jafn rígbundin af þeim PRESSAN/Jim Smart hefðum sem ríkja á Ríkissjón- varpinu. Það þarf að vera jafn- vægi í fréttaflutningi og fullvissa fólk um að við emm ekkert heil- ög. Við emm eins og hver annar sem í kringum okkur er.“ Þú talar um þennan létta stíl.. .þennan ameríska. „Þetta er mannlegri stíll. Við emm engin goð á stalli, við emm bara eins og ég og þú. Við emm gestir og gestir koma ekki bara til að segja vondar fréttir og vera þungir. Gestir eiga líka að vera skemmtilegir og þess vegna reynum við að gantast svolítið. Fólki líkar það vel. í Bandaríkj- unum er fólki boðið uppá ævin- týraleg laun fyrir það eitt að framreiða fféttimar. Ég lít fýrst og fremst á þessa útgáfu sem gerist vestra sem mannlegan stíl. Við emm þama, tölum saman, segjum ykkur fréttimar og emm lifandi.“ Ekki öll mál skemmtileg Oft er havarí þegar frétta- menn taka á viðkvœmum mál- um. Er þörf fyrir sérstaka til- litssemi? , J>ví miður em ekki öll mál já- kvæð og skemmtileg og það em líka erfiðu hliðamar sem menn þurfa að horfa á. Eitt hef ég á til- finningunni, hvemig sem á því stendur, að fólk vilji helst ekki heyra og sjá mjög vondar fréttir í sjónvarpi. Það virðist ekki vilja fá þær heim í stofu til sín á kvöldin, inn í sitt helga vé. Ég held þetta stafi af því, að hjá lít- illi þjóð er samkenndin mikil. Ég fæ allt öðmvísi viðbrögð þegar fféttir em léttar. Menn vilja ekki fara að sofa þunglyndir.“ Lendið þið einhvern tímann í því að þið þutfið að henda út fréttum af einhverjum ástœð- um, pólitískum eða öðrum? „Ekki pólitískum. Við gerum þær kröfur til okkar að ef ffétt hefur ömggar heimildir þá er í lagi með hana og engin pólitík stoppar hana. Við heymm hins vegar fullt af hlutum sem eru kannski um eitt og annað en rétt- ar heimildir em auðvitað Iykil- orð í því sem fréttamenn vinna að. Við metum það síðan hvaða málum við viljum taka á og hveiju við segjum ffá. Það á sér stað gífurlegt val og mörgum hugmyndum er hafnað.“ Ert þú semfréttastjóri aldrei í vafa? „Ég er orðinn gamall hundur í þessu og tel mig þekkja þetta þjóðfélag nokkuð vel. Ég er oft í vafa, á hveijum degi er ég f vafa, og velti því fyrir mér hvað ég eigi að gera. Ég tel mig hins veg- ar hafa reynslu til að leggja mat á það. Hér em mjög lífleg skoð- anaskipti um málin og ffam fer mjög metnaðarfull og fagleg umræða. Við fáum alls konar upplýsingar og það eina sem ég segi við mitt fólk er: „Kannið heimildimar og fáið staðfest- ingu.“ Einokun fjölmiðla brotin niður Lítum á samkeppnina. Hvernig stendur fréttastofa Stöðvar 2 í samanburði við fréttastofu Ríkissjónvarpsins? „Það er ekki hægt að tala um samkeppni því það er engin sam- keppni. Ég var á RÚV í þijú ár sjálfur og var allra manna harð- astur í að berjast við að drepa Stöð 2 vegna þess að þá var ég þeim megin og var trúr minni stofnun. En ég segi bara að til allrar hamingju hef ég séð villu míns vegar. Kannanir í dag sýna, að við er- um að gera góða hluti, það góða hluti að stór hópur manna finnur sig ekki knúinn til að horfa á fréttir Ríkissjónvarpsins heldur horfir á okkur. Það er ekki nema níu prósenta munur á horfun sem einhvem tímann var 20 prósent. En það em margir úti á landi sem við náum ekki ennþá til vegna tæknilegra mála sem verið er að vinna í að leysa. Við höfum af- burðafólk hér í starfi og að mínu mati emm við á hverjum degi að framleiða betri, líflegri og fjöl- breyttari fréttir en þau á Ríkis- sjónvarpinu." Eruð þið kannski að verða ábyrgðarfyllri en áður? „Ég tel að fféttastofa Stöðvar 2 hafi verið ábyrgðarfull bæði undir stjóm Páls Magnússonar og Sigurveigar Jónsdóttur, sem em ákaflega hæft fólk. Hér er yngra starfsfólk og enginn út- varpsráðsdraugur yfir mönnum. Ég einn er ábyrgur fýrir fféttun- um og fféttastofunni og þar með er það hausinn á mér sem er að veði. Það er hér meiri keyrsla og meiri drifkraftur í hópnum og menn em óhræddir við að taka á málum. Það er annað andrúms- loft sem ríkir á Ríkissjónvarpinu. Þetta fann ég þau tæp þijú ár sem ég var þar fféttastjóri. Því verður erfitt að breyta og sérstaklega jiegar þau em með apparat eins og útvarpsráð sem yfirvald yfir stofnununni." Framtíðin. Sérðu fyrir þér breytingar með aukinni Evr- ópusamvinnu? „Samkeppnin verður æ harð- ari með alla þá fféttamiðla sem við höfum. Okkar mikilvæga mál er að vera fjölbreytt og gefa fólki, innan þess ramma sem við höfum, þverskurð af því sem er að gerast hér innanlands og úti í heimi. Við verðum að gera það vel og muna að við emm íslensk. Við emm einir öflugustu útverð- ir íslenskrar tungu og menningar og verðum að leggja rækt við það í allri þessari alþjóða- mennsku að stýra ffá okkar sérís- lenskum málum og gera það á lipru máli. Það sem RÚV hefur fram yfir okkur er það að þeir em aðilar að EBU, Samband evrópskra sjón- varpsstöðva, og fá þaðan gífúr- lega mikið efni. Við höfum ekki sömu tæknilegu möguleikana á að fá allt sem þeir hafa því innan EBU hafa einkastöðvar enga möguleika. Það er mjög vafa- samt að þetta standist í aukinni Evrópusamvinnu. Ég tel að ein- okun fjölmiðla verði lögð niður og sá tími hlýtur að koma að rík- istútvarp, sem er í ójafnri einok- unarskattlagðri samkeppni við einkafjölmiðil, standist ekki lengur. Ég tel að ríkisútvarpið sem slíkt muni starfa áffam en ekki á þeim gmndvelli sem nú er. Hlut- verk ríkisrisanna mun alls staðar breytast og það er verið að end- urskoða útvarpslögin. Það er ekkert sem ríkisútvarp- ið getur gert, ekkert, sem við get- um ekki gert.“________________ Te/ma L. Tómasson * I Bandaríkjunum er fólki boðið uppá ævintýraleg laun fyrir það eitt að framreiða fréttirnar. Ég lít fyrst og fremst á þessa útgáfu sem gerist vestra sem mannlegan stíl.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.