Pressan - 24.09.1992, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 24. SEPTEMBER 1992
DAVÍÐ
Oddsson borgarfulltrúi er æva-
reiður vegna skattanna sem
nafni hans forsætisráðherrann
ætlar að innheimta af sveitarfé-
lögum. Hann sagði Moggan-
um að hann myndi mótmæla
þessu kröftuglega ef hann væri
borgarstjóri, líklega af því að
hann veit af langri reynslu
hversu lítils vesælir borgarfull-
trúar mega sín. Það kynni hins
vegar ekki góðri lukku að
stýra, því þá yrði fámennt á
fundinum sem Svavar Gests-
son vill fá með borgarstjóra og
fyrsta þingmanni Reykvíkinga
(sem heitir líka Davíð) til að
mótmæla við forsætisráðherra.
Svona hagsmunaruglingi hafa
ekki margir lent í. Þó henti eitt-
hvað álíka
GUÐMUND
Ólafsson hagíf æðing. Guð-
mundur hefur haft flestum
öðrum skynsamlegri og
skemmtilegri skoðanir á land-
búnaðarmálum og lagt til í
nefhdum á vegum ríkisins að
ríkið hætti að setja peninga í
dauðar rollur. Svo varð hann
fyrir því óláni að verða fjár-
málastjóri Hagvirkis, sem ný-
lega var endurskírt Fórnar-
lambið, svona rétt fyrir slátur-
tíðina. Ijakkafötum fjármála-
stjórans er Guðmundur hins
vegar á því að ríkið geti séð af
nokkur hundruð milljónum
svo skepnan megi lifa, þótt allir
aðrir sjái að blessað lambið á
sér ekki lífsvon, til dæmis bú-
stjóri þrotabúsins. En svona
getur gengið illa að fást við
landbúnaðarvandann þegar í
óefni er komið. Það veit líka
GUÐNI
Ágústsson, þingmaður Fram-
sóknarflokksins á Suðurlandi.
Hann hefúr verið allur af vilja
gerður að hjálpa bændum í
kjördæminu sínu, en fær litlar
þakkir fyrir. Að minnsta kosti
frá bóndanum í Ölfúsinu sem
sagðist missa lystma á lamba-
kjöti í hvert sinn sem Guðni
opnaði munninn. Bragð er að
þá barnið finnur. Þetta er nátt-
úrlega ekki kurteisi, en svona
geta bændur verið óheflaðir og
borið litla virðingu fyrir yfir-
valdinu. Það er eitthvað annað
en
EIÐUR
Guðnason umhverfisráðherra.
Hann vill að umhverfisráð-
herra ráði því hvað má og hvað
má ekki segja um umhverfis-
mál. Það hefur einhver meng-
unaróværa náð inn í kollinn á
Eiði eða þá að skýringin á
þessu á sér freudískari rætur.
Þegar Eiður var ungur frétta-
haukur var nefnilega til siðs að
þéra stjórnmálamenn og leyfa
þeim sjálfúm að ákveða hvers
var spurt í viðtölum. Eiður hef-
ur líklega aldrei jafnað sig á
þessu. Hans vegna er vonandi
að hann fái aldrei ráðuneyti
sem skiptir máli og hefúr eitt-
hvað að fela. Þau yrðu erfið
viðtölin hans við sjálfan sig.
Blikk og Stál hf.
FIMM ÁRA VANGOLDNAR
GREHK9.UR í LÍFEYRISSJÖR
MÁLM- OG SKIPASMWA
Framkvæmdastjórinn segir málið hluta
af viðskiptum fyrirtækisins við Hagvirki
hf. Aðrir segja málið nýtilkomið og
starfsmenn séu nú rukkaðir fyrir sinn
hlut í vangoldnum gjöldum.
Hjá Lífeyrissjóði Málm- og
skipasmiðasambandsins er nú
leitað skýringa á meintum van-
goldnum greiðslum í sjóðinn frá
fyrirtækinu Blikki og Stáli hf.
Samkvæmt upplýsingum PRESS-
UNNAR er um að ræða greiðslur
allt ffá árinu 1987, sem ekki kom í
ljós að misbrestur var á fýrr en
fyrir um mánuði. Forráðamenn
f)rfrtækisins segja hins vegar allar
skuldir fyrirtækisins við lífeyris-
sjóðinn eiga rætur að rekja til taps
þess á viðskiptum við Hagvirki hf.
og aðra stórverktaka.
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR kom málið upp á yfir-
borðið fýrir um það bil mánuði
þegar launþegi hjá fyrirtækinu
hafði samband við lífeyrissjóðinn.
Sjóðurinn sendir reglulega út yfir-
lit til félagsmanna sinna og biður
þá að kanna hvort greidd iðgjöld
stemmi við útreikninga á launa-
seðlum. Heimildir blaðsins herma
að svo hafi ekki verið og í kjölfarið
var leitað skýringa á misfellunni.
EKKIGREITT AF YFIRVINN-
UNNI
Viðmælendur blaðsins sögðu
málið á mjög viðkvæmu stigi, en
töldu líklegast að vangoldnar
greiðslur ættu rætur að rekja til
breytinga sem urðu á reglum um
greiðslur í lífeyrissjóði í kjölfar
kjarasamninga árið 1986. Þær
kváðu á um að greitt skyldi í líf-
eyrissjóði af yfirvinnu, en ekki
einungis af dagvinnu, og tók
breytingin gildi í þrepum frá árinu
1987. Þá áttu launþegar að greiða
1 prósent af yfirvinnu, en vinnu-
veitendur 1,5 prósent. Þau hlutföll
fóru stighækkandi þar til þau
náðu 4 og 6 prósentum árið 1990.
Viðmælendur blaðsins innan líf-
eyrissjóðsins sögðu að svo virtist
sem þessar breytingar hefðu
aldrei komist inn í launaútreikn-
inga Blikks og Stáls og þar lægi
skýringin á vangoldnum greiðsl-
um. Ekkert lægi fyrir um hvort
þama væru á ferðinni mistök í út-
reikningum eða vísvitandi undan-
skot.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins hefur lífeyrissjóðurinn
leitað eftir upplýsingum frá Blikki
og Stáli um launagreiðslur þess á
undanförnum árum, í þeim til-
gangi að bera þær tölur saman við
greidd iðgjöld í sjóðinn. Ekki
fékkst staðfest hvort þær upplýs-
ingar hefðu verið veittar, en ef
misbrestur reynist á má búast við
að sjóðurinn rukki fyrirtækið um
mismuninn.
Heimildir blaðsins meðal fýrr-
um starfsmanna herma að þeir
hafi að undanförnu fengið bréf frá
lífeyrissjóðnum út af málinu og
telja sumir sinn hlut í vangoldn-
um gjöldum nema allt að 350 þús-
undum. I því tilfelli væri vangold-
inn hlutur fýrirtækisins um 425
þúsund krónur og heildargjöld í
vanskilum fýrir starfsmanninn þá
tæp 800 þúsund.
GAMLAR SKULDIR, SEGIR
FRAMKVÆMDASTJÓRINN
Jóhannes Siggeirsson, fram-
kvæmdastjóri lífeyrissjóðsins,
vildi ekkert segja í samtali við
blaðið um þetta mál og kvaðst líta
á viðskipti sjóðsins við einstak-
linga eða einstök fyrirtæki sem
trúnaðarmál. Garðar Erlendsson,
ffamkvæmdastjóri Blikks og Stáls,
sagði að fýrirtækið hefði átt í við-
ræðum við sjóðinn vegna van-
goldinna gjalda sem ættu rætur að
rekja til ársins 1987 og viðskipta
Blikks og Stáls við Hagvfrki vegna
byggingar flugstöðvar. Þefr samn-
ingar hefðu farið fram í mestu
vinsemd og hann átti von á að
brátt tækist samkomulag um
greiðslu á 6,5 milljónum sem eftir
væru af mun stærri upphæð.
Garðar sagði ekkert nýtt hafa
komið upp á í þeim viðskiptum
að undanfömu.
„Þetta kemur Hagvfrki og flug-
stöðinni ekkert við,“ sagði einn
viðmælenda PRESSUNNAR sem
þekkir vel til málsins. Hann kvað
málið hafa komið upp á yfirborð-
ið fýrir skömmu og tengdist það
ekkert eldri skuldum Blikks og
Stáls við sjóðinn.
Blikk og Stál hefúr verið í frétt-
um að undanförnu vegna gjald-
þrotabeiðni þess á hendur Hag-
virki (Fórnarlambinu hf.). Sam-
komulag náðist um að falla frá
henni, en Blikk og Stál hefúr tapað
á viðskiptum sínum við fleiri
verktaka á undanförnum árum,
Auk viðskipta sinna við Hagvirki
tapaði fyrirtækið verulegum fjár-
hæðum á gjaldþroti Steintaks og
vegna byggingar á Kringlunni 4.
Karf Th. Birgisson
Óbætt tjón vegna rangrar
upplýsingaskyrslu frá lögreglu
Það segja ekki allir farir sínar
sléttar í viðskiptum við lögregluna
og þykir sumum sem starfsað-
ferðir hennar séu ekki alltaf eins
og best verður á kosið. Þannig er
því farið með ungan Sýrlending,
sem jafnframt er íslenskur ríkis-
borgari, en hann lenti í óskemmti-
legu máli nú fyrir röskum mánuði
er keyrt var á bifreið hans. Óhöpp
sem slík eru í sjálfu sér ekki óal-
geng en sérstaða málsins felst í því
að maðurinn hefur ekki enn feng-
ið greiddar bætur frá tryggingafé-
lagi sínu vegna rangrar upplýs-
ingaskýrslu sem því barst frá lög-
reglunni í Reykjavík.
Málsatvik eru þau að 9. ágúst
síðastliðinn var bakkað á bifreið
Sýrlendingsins. Tjónvaldur keyrði
upp á gangstétt en hljóp af slys-
stað ásamt farþegum sem í bíln-
um voru. Lögregla var kölluð til
og hefðbundin skýrslutaka fór
fram án þess að næðist til öku-
manns bifreiðarinnar sem tjóninu
olli. Nokkru síðar hringdi eigandi
bflsins til lögreglu og sagði að tek-
ist hefði samkomulag um af-
greiðslu málsins. Lögreglan tók
þetta gott og gilt án þess að biðja
um gögn því til staðfestingar og
ber því við að hart sé ef ekki er
lengur hægt að treysta fólki! Jafn-
ffarnt er sagt að ekid hafi litið svo
út sem mennirnir hafi ætlað að
reyna að skorast undan greiðslu.
Það sem gerðist í raun var að
Sýrlendingnum barst símtal frá
manni sem sagðist vera frá trygg-
ingafýrirtæki og bað hann að hitta
sig á veitingahúsi. Það gerði hann
í góðri trú en hitti þá fýrir bílstjór-
ann sem tjóninu olli. Hann varð
að vonum hissa og sagðist hafa
búist við manni frá tryggingafé-
laginu. Þeir ræddu þó málin og
komust að sámkomulagi urn að
athugað yrði hversu mikið tjónið
væri og hvort þeir gætu gert það
upp sín á milli. Nokkrum dögum
síðar hittust þeir aftur og hafði þá
tjónið verið metið á um fjörutíu
þúsund krónur. Það þótti of há
upphæð til að greiða beint og
samdist þeim um að málið fengi
afgreiðslu með venjubundnum
hætti gegnum tryggingafélag.
Nú líður og bíður og ekkert
gerist í málinu, en við eftir-
grennslan kemur í ljós að trygg-
ingafélaginu hefúr borist upplýs-
ingaskýrsla frá lögreglu þar sem
segir að eigandi bflsins er tjóninu
olli hafi haft símasamband þar
sem hann tjáir lögreglumanni að
mennirnir hafi gert upp málið sín
á milli. Skýrsla þessi er send trygg-
ingafélaginu án þess að lögð séu
fram nokkur gögn fullyrðingu
mannsins til staðfestingar og
skýrslan síðan lögð til grundvallar
mati á því hvort tjónið fáist bætt.
Það fæst þó ekki fýrr en maðurinn
hefur dregið framburð sinn til
baka.
Tjónþoli bíður enn afgreiðslu
málsins hjá tryggingafélagi sínu,
en í samtali við PRESSUNA sagði
Sævar Stefánsson lögreglumaður
að náðst hefði í málsaðila og nú
væri búið að leiðrétta málið.
Tryggingafélagið hefúr hins vegar
ekki fengið leiðréttingarskýrslu og
tjónið því enn óbætt.