Pressan - 24.09.1992, Blaðsíða 16
16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 24. SEPTEMBER 1992
Fylgisþróun flokka
---■---
II
Hafa 5
ÞINGMENN,
FENGJU 7
13 >5%
Hafa 9
ÞINGMENN,
FENGJU 8
Skoðanakönnunin var framkvæmd helgina 19.-20. september.
Spurt var „Ef kosið væri ril Alþingis nú, hvaða flokk myndir þú kjósa?“
60%
'90 '91 '92
Hafa 10
ÞINGMENN,
FENGJU 10
HAFA 26
ÞINGMENN,
FENGJU 24
PRISSAN/AM
6n%
FYLGI I ÞESS-
ARI KÖNNUN
6,4%
Skoðanakönnun Skáís fvrir PRESSUNA
Kratar sveiflast upp
þegar allaballar
tapa fluginu
Ríkisstjórnarflokkarnir héldu þingmeirihluta sínum ef gengið yrði til kosninga nú. Kratar mælast nú sterkari en nokkur undan-
farin ár. Fylgistap sjálfstæðismanna frá kosningum virðist hins vegar staðfest. Allur vindur er úr fylgissveiflu Alþýðubandalags-
ins og Framsókn tapar einnig. Kvennalistinn er eini stjórnarandstöðuflokkurinn í sókn.
Að ofan sést hvernig þingsæti skiptust á milli flokkanna miðað við
NIÐURSTÖÐU SKOÐANAKÖNNUNARINNAR. INNAN SVIGANS ER RAUNVERULEG TALA
ÞINGMANNA HVERS FLOKKS, EN INNST GEFUR AÐ LlTA STUÐNINGINN, SEM AÐ BAKI
LIGGUR.
PRKSSAN/AM
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar sem Skáís hefur
gert fyrir PRESSUNA mundi rík-
isstjórnin halda þingmeirihluta
sínum ef gengið yrðí til kosninga
nú. Alþýðuflokkurinn héldi öllum
sínum 10 þingmönnum en Sjálf-
stæðisflokkurinn mundi missa 2
af sínum 26. Eftir stæði þingmeiri-
hluti 34 þingmanna á móti 29
þingmönnum stjórnarandstöð-
unnar. Alþýðubandalagið mundi
tapa einum þingmanni; einn
stjórnarandstöðuflokka. Fram-
sókn mundi hins vegar vinna einn
og Kvennalistinn tvo.
ALÞÝÐUFLOKKURINN
VINNURÁ
í könnuninni mældist fylgi Al-
þýðuflokksins 16,4 prósent hjá
þeim sem tóku afstöðu. Flokkur-
inn hefúr ekki fengið jafngóða út-
komu í skoðanakönnunum Skáís
síðan fyrir kosningarnar 1987 eða
fyrir meira en einu kjörtímabili. f
nóvember á síðasta ári fóru kratar
meira að segja undir 10 prósentin
íkönnunSkáís.
í síðustu kosningum fengu
kratar 15,5 prósent atkvæða og
dugði það þeim til 10 þingsæta.
Samkvæmt könnuninni nú héldi
flokkurinn þeim þingsætum en
bætti ekki við sig þrátt fýrir fylgis-
aukningu um 0,9 prósentustig.
Kratar munu hins vegar ugg-
laust túlka þessar niðurstöður
sem meiri fylgisaukningu en svo
að hún dygði ekki til að fjölga
þingmönnum þeirra. Alþýðu-
floldcurinn á það sammerkt með
öllum flokkum utan Sjálfstæðis-
flokks að fá yfirleitt meira upp úr
kjörkössunum en niðurstöður
síðustu skoðanakannana fyrir
kosningar bera með sér. Ef gerður
er samanburður á síðustu könnun
Skáfs fyrir kosningarnar 1991 og
úrslitum kosninganna þá gæti
fylgið nú borið með sér væntingar
um 18,8 prósenta fylgi og 12 þing-
menn.
En það er sama hversu sterkir
menn eru í trúnni eða reikningn-
um. Enginn er þess umkominn að
spá um hvert óákveðna fylgið fer
stuttu fyrir kosningar þótt finna
megi vissa meginstrauma út úr
síðustu kosningum.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
FASTUR
Það hefur verið merkilega lítil
breyting á fýlgi Sjálfstæðisflokks-
ins frá því í nóvember í fýrra.
Hann hefur sveiflast þetta hálft
prósent upp eða niður fyrir 37
prósentin. Nú er hann fýrir neðan;
með 36,4 prósenta fýlgi. Það gæfi
honum 24 þingmenn eða tveimur
færri en hann hefúr nú.
Sjálfstæðisflokkurinn má því
muna fífil sinn fegurri í skoðana-
könnunum. Á blómatíma hans, á
stjórnarandstöðumánuðunum á
síðasta kjörtfmabili, mældist hann
löngum yfir 50 prósentum í könn-
unum Skáís; eða allt ffá miðju ári
1989 ffam til mars á síðasta ári. f
kosningunum í aprfl fékk hann
hins vegar ekki nema 38,6 pró-
senta fýlgi. Fylgið nú er 2,2 pró-
sentustigum lakara en kosninga-
árangurinn.
Ef sömu aðferð er beitt á fýlgi
Sjálfstæðisflokksins samkvæmt
þessari könnun og Alþýðuflokks-
ins þá bætir það ekki stöðuna.
Fylgið nú gefur aðeins loforð um
31,2 prósenta fýlgi í kosningum
og aðeins 20 þingmenn. Það er
aðeins skárra en eftir strandhögg
Borgaraflokksins 1987 en engu að
síður hörmuleg útkoma fýrir Sjálf-
stæðisflokkinn.
KVENNAUSTINN EINI
STJÓRNARANDSTÖÐU-
FLOKKURINN Á UPPLEIÐ
Samkvæmt þessari könnun er
Kvennalistinn eini stjórnarand-
stöðuflokkurinn sem hefur bætt
fýlgi sitt ffá síðustu könnun í júlí.
Hann fær nú 11,3 prósenta fylgi
en var með 9,0 prósent í júlí. Og
11,3 prósentin nú gæfu listanum
sjö þingkonur eða tveimur fleiri
en hann hefur nú.
f síðustu kosningum fékk
Kvennalistinn 8,3 prósenta fýlgi.
Árangurinn nú er því 2 prósent-
ustigum betri en þá.
Samanburðurinn sem var beitt
hér að ofan á fýlgi krata og sjálf-
stæðismanna í síðustu kosning-
um, og síðustu könnun fýrir þær,
mundi litlu sem engu breyta fýrir
konurnar þar sem fýlgi þeirra í
síðustu könnun Skáís var merki-
lega nálægt kjörfýlginu. Fylgið
mundi þó hækka í 11,7 prósent án
þess að það skilaði Kvennalistan-
um fleiri þingsætum.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ f
LÆGÐ
Allur vindur virðist úr Alþýðu-
bandalaginu þótt flokkurinn sé í
stjórnarandstöðu. Flokkurinn
bæði minnkar ffá síðustu könnun
og er auk þess eini stjórnarand-
stöðuflokkurinn sem mælist með
minna fýlgi en í síðustu kosning-
um.
Samkvæmt könnuninni fengju
allaballar 13,5 prósenta fylgi og
átta þingmenn. Það er 0,9 pró-
sentustigum lakari árangur en í
síðustu kosningum og flokkurinn
mundi missa einn þingmanna
sinna.
Eftir nokkurn fjörkipp í könn-
uninni í nóvember á síðasta ári
hefur fýlgi Alþýðubandalagsins
mælst minna og minna. Forystu-
mönnum flokksins virðist því
ekki hafa tekist að nýta sér stjórn-
arandstöðuna til vinsælda.
En eins og kratar geta allaballar
snúið niðurstöðum þessarar
könnunar sér í vil með því að
benda á niðurstöður síðustu
könnunar fýrir kosningamar 1991
og úrslit sjálffa kosninganna. Sú
aðferð mundi hækka fylgi Al-
þýðubandalagsins upp í 16,9 pró-
sent og færa þeim tíu þingmenn,
einum fleiri en þeir hafa nú. Eftir
sem áður yrðu allaballar að sætta
sig við að vera minni en kratamir,
en það þykir þeim mikil skömm í
eilífu stríði A-flokkanna.
FRAMSÓKN TAPAR EN ER
ENNSTÓR
Framsókn tapar nokkm ffá síð-
ustu könnun eða 2,4 prósentustig-
um. Hann mælist nú með 22 pró-
senta fýlgi og fengi samkvæmt því
fjórtán þingmenn eða einum fleiri
en hann hefúr í dag.
Þrátt fýrir tap ffá síðustu könn-
un er fýlgi Framsóknar enn vel yf-
ir kjörfýlgi flokksins frá síðustu
kosningum. Þá fékk hann 18,9
prósenta fýlgi eða 3,1 prósentu-
stigi minna en hann mælist nú
með.
Stjórnarandstaðan hefur nýst
Framsókn betur en Alþýðubanda-
laginu. Framsóknarflokkurinn
hefur allt frá stjórnarmyndun
mælst með yfir 20 prósent og allt
upp í 25 prósent. En frá síðast-
liðnu vori hefúr heldur dregið úr
vindinum í segl Framsóknar.
Eins og Kvennalistakonur getur
Framsókn lítið beitt talnaleik til að
oftúlka niðurstöður þessarar
könnunar. Síðasta könnun Skáfs
fyrir kosningarnar 1991 sagði
nokkuð rétt fyrir um fýlgi flokks-
ins. Hann gæti í mesta lagi búist
við 23,1 prósents fýlgi en engum
þingmanni til viðbótar við þá fjór-
tán sem hann fengi samkvæmt
þessari könnun. _____________
GunnarSmári Egilsson