Pressan - 24.09.1992, Blaðsíða 35

Pressan - 24.09.1992, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR PRESSAN 24. SEPTEMBER 1992 35 ntanlegt á næstu höfunda. Einhic Snæbjörn Arng Silfurtónar spila á útgáfutónleikum í kvöld. Tóm skemmtileg- heit. SILFRAPIR TÓNARÁ PÚLSINUM Silfurtónar hafa nú starfað í rúm tuttugu ár og gefið út smá- skífur sem allar eru uppseldar og þeir hafa brasað margt á þeim tíma. Sveitin spilaðist í upphafi vel saman í ótal brúð- kaupum, einkasamkvæmum og álíka samkundum en upp úr 1976 fóru meðlimir í lægð sem þeir risu ekki upp úr fyrr en fimm árum síðar. Frá þeim tíma hafa þeir djammað og spilað fyrir fólk, og ekki fólk, og nú er enn að koma út hljómplata með lögum þeirra. Hefur hún að geyma bæði ný lög og eldri í bland og flokkast sem svokölluð safnplata og ber hið sjálfsagða nafn, Silfurtónar. Sveitin er þekkt fyrir hressilega sviðsfram- komu og sjaldan lýgur almanna- rómur í þeim efnum. „Megin- stefnan er að skemmta okkur og öðrum,“ segir Hlynur Hös- kuldsson bassaleikari. „Tónleik- arnir okkar eru yfirleitt ein alls- heijaruppákoma og við reynum alltaf að koma fólki á óvart.“ Það er ætlun hljómsveitar- innar að spila af krafti í vetur eins víða og hægt er, eins oft og hægt er og eins skemmtilega og hægt er. Utgáfutónleikar verða haldnir á Púlsinum í kvöld og verða sendir út í beinni útsend- ingu á Bylgjunni, einnig spila þeir annað kvöld á sama stað. Sigurður Steingrímsson er 38 ára nýút- skrifaður barítónsöngvari. Hann er um þessar mundir í fríi frá löggæslustörfum til að syngja í óperunni Luciu di Lamm- ermoor. Óperan Lucia di Lammermoor verður frumsýnd í íslensku óper- unni næstkomandi föstudag með þeim Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Bergþóri Pálssyni í aðalhlutverk- um, undir leikstjórn Michaels Beauchamp. Athygli vekur að alls óþekktur söngvari er í einu af stóru hlutverkunum. Sigurður Steingrímsson heitir hann og fer með hlutverk guðsmannsins Rai- mondos sem flytur veislugestun- um í brúðkaupi þeirra Luciu og Arturos váleg tíðindi. „Þetta verð- ur prófsteinn á það hvort mér lík- ar að taka þátt í svona sýningum," sagði Sigurður í samtali við PRESSUNA. Það sem helsta athygli vekur með Sigurð er að hann er fullra 38 ára og nýútskrifaður barítón- söngvari úr Söngskólanum. Hann er í leyfi ffá lögreglustörfum til að taka þátt í þessari fyrstu upp- færslu sinni hjá óperunni. „Olöf Kolbrún fór þess á leit við mig snemma í sumar að ég yrði með í vetur.“ Nú ertu heldur seint á ferð mið- að við flesta kollega þína. „Já, ég er seinþroska listamað- ur, en bassinn hefur lengri líftíma BERJUM5T A MOTI ÞYNCDARLÖCMALINU Tímaritið Bjartur og ffú Emih'a hefur komið út í rúmlega eitt og hálft ár, en aðstandend- ur þess eru leikhúsið Frú Emilía og bókaútgáfan Bjartur. Eitt af meginmarkmiðum félags- ins er að berjast á móti þyngdarlögmálinu, sem sést til dæmis á því að áskrift að tímaritinu kostar núna 1992 krónur og mun hækka um krónu á ári til ársins 2000. Eins og sjá má fvle- ir verðið því ártalinu. „Þetta er gjörsamlega óháð því að hér sé slæm ríkisstjóm. Við virðisauka og annað lítið á okkur fá,“ sagði Snæbjörn Arngrímsson hjá Bjarti. Stendur tímaritsútgáfan þá undir sér? „Já, hún gerir það, eða við ætlum að láta hana gera það þrátt fyrir að við tökum virðisaukann.“ Tímritið hefur komið út alls sjö sinnum og er áttunda tölublaðið væntanlegt dögum. Tímaritið fjallar um bókmenntir og leiklist, bæði yngri og eldri eru í blaðinu viðtöl við leikara og leikhúsfólk og ýmislegt annað efni sem bókmenntum. sort og félagar, sem gefa úttímaritið Bjacfog frú Emilíu, ætlá að standa við gefin loforð þrátt fyr- ir að ríkisstjórnin áformi að leggja á virðisaukaskatt. en tenórinn. Ég hef verið í kórum og sungið einsöng og telst því ekki algerbyijandi.“ Hinn nýi Raimondo er fjöl- skyldumaður búsettur í Hafnar- firði. Ertu af söngættum, Sigurð- ur? „Nei, það er ekki mikið um söng í minni ætt en ég er ættaður úr Skagafirði. — Eru Skagfirðing- ar ekki meira og minna allir söng- fólk?“ Rúnar Júlíusson tón- listarmaður „Þetta er Geimsteinn, Rúnar Júlíusson. Við erum ekki við í augnablikinu, vinsamlegast lesið inn skilaboð.“ Fyrri myndin var tekin árið 1986 þegar Bjarni Breiðfjörð var engilfríður verzlunarskólanemi. Hin síðari er tekin aðeins sex árum síðar og hvílík stakkaskipti! í stað prúða drengsins með Simon Le Bon-klippinguna er kominn trylltur konungur reykvísks næturlífs í fullum skrúða. í þessum dálki hefur stundum verið lýst furðu á þeim breyt- ingum, sem menn taka á þremur, fjórum áratugum. En fyrst Bjarni breytist svona á einungis sex árum má guð vita hvernig hann verður á aldamótaballi Ingólfskaffis eftir átta ár og víst má telja að hann verði orðinn geimvera áður en að fimmtugsafmælinu kemur. Söngdúettinn úr Eyjum Þorsteinn Lýðsson og Guðlaug Dröfn Ólafs- dóttir heitir parið í söngdúettnum sem syngur hástöfum „Ég má ekki, ég má ekki“, svo hátt að það glymur alla leið frá Vest- mannaeyjum til útvarpsstöðvanna í Reykja- vík, þar sem lagið er spilað í tíma og ótíma. Þorsteinn og Guðlaug eru bæði Vestmann- eyingar og hafa tónlistarblóð í æðum. Þor- steinn er sonur Lýðs Ægissonar, sem er ein- mitt höfundur lagsins; Lífið í lit. Og Lýður er bróðir Gylfa Ægissonar. I Guðlaugu rennur hins vegar Mánablóð því hún er dóttir Labba í Mánum. Þau eru bæði rétt skriðin yfir tvítugt og nýbyrjuð að búa, þó ekki saman. Þorsteinn vinnur í frystihúsinu í Eyj- um en Guðlaug er hár- greiðslunemi sem í fyrra varð í öðru sæti í söngva- keppni ffamhaldsskólanna. Um helgar hittist svo dúettinn og syngur á „Okkur félögunum" í Vest- mannaeyjum. Alien3 ★ ★★★ Óhugnanlega spennandi — þótt óhugnaðurinn sé meiri en spennan. Jafnvel jarð- bundnasta fólk sekkur djúpt niður ( þann heim sem höfundarnir hafa búið til og nötra af ótta við að Ijóta skrímslið nái að éta fólkið (fanga- nýlendunni. Batman snýr aftur Batman Re- turns ★★★ Augnakonfekt og pottþétt skemmtun, þrátt fyrir þunnan söguþráð. Þó er erfitt að horfa á leikmynd ítvo tíma. Veggfóður ★★★ Fjörug og skemmtileg þrátt fýrir augijósa hnökra. Tveir á toppnum 3 Lethal Wea- pon 3 ★★ Minni hasar og minna grín en í fyrri myndum en meira af dramatískum tilburðum. ■ Hiimii Alien3 ★ ★★★ Meistaralegur lokaþáttur þessarar trílógíu. Heim- urinn sem höfundar myndarinnar hafa búið til gerir Batman-veröld- ina að hálfgerðu Lególandi. Hvítir geta ekki troðið White Men Can't Jump ★★★ Glúrin mynd og oft stórsniðug um hvítan mann og svertingja sem iðka körfubolta á götum Los Angeles. Veggfóður ★★★ Fjörug og skemmtileg unglingamynd en ef til vill ekki stórkostlegt kvikmynda- verk. Tveir á toppnum Lethal Weapon ★★ Minni hasar og minna grín en í fyrri myndum, en nríeira af dram- atískum tilburðum. Batman snýr aftur Batman Re- turns ★★★ Augnakonfekt og pottþétt skemmtun, þrátt fyrir þunnan söguþráð. Mjallhvít og dvergarnir sjö ★★★ Sígild teiknimynd úr smiðju Disneys. Yfirleitt hugljúf, en nornin er býsna hræðileg og hefur valdið mörgum börnum andvökunótt- um. HASKOLABIO Hefndarþorsti Renegades ★ Spennumynd, full af klisjum og skytteríi. Hvorki Kiefer Sutherland né Lou Diamond Phillips ná að gera daufa mynd betri. Svo á jörðu sem á himni ★★★ í heildina séð glæsileg kvikmynd og átakanleg. Varla hefur sést betri leikur í íslenskri bíómynd en hjá Álfrúnu litlu örnólfsdóttur. Gott kvöld, herra Wallenberg ★★★ Með skárri sænskum mynd- um í háa herrans tíð. Átakanleg og mikil sága, en dálítið þunglamaleg. Stellan Skarsgárd er afburðaleikari. Ár byssunnar Year of the Qun ★★ John Frankenheimer var eitt sinn með efnilegri leikstjórum, síð- an hefur hann gert myndir í með- allagi og þar fýrir neðan. Þessi er í meðallagi. Veröld Waynes Wayne's World ★★ í flokki mynda sem gera út á geðveikan húmor. Gallinn er að húmorinn er ekki nógu geðveikur og of sjaldan fyndinn. Steiktir grænir tómatar Fried green tomatoes ★★★ Konumynd; um konur og fyrir konur. Góðir eig- inmenn láta undan og fara með. LAUGARASBIOl Kristófer Kólumbus Christopher Columbus: The Discovery ★ Allt verður að steini sem þeir snerta Salkind- feðgar. Ekki einu sinni Brando rís upp úr meðalmennsk- unni. Eina spennan sem boðið er upp á er hvort Kólumbusi tekst að finna Ameríku — myndin er ekki fyrir þá sem vita hvernig sú saga fór. Ferðin til Vesturheims Far and Away ★★★ Rómantísk stórmynd, ákaflega gamaldags en oft stór- skemmtileg. Nicole Kidman stelur senunni frá bónda sínum, Tom Cruise, sem á í erfiðleikum með írskan framburð. Það er ekki oft að Hollywood gerir svona myndir nú- orðið. Beethoven ★★ REGNBOGINN Prinsessan og durtarnir ★★★Myndin er tal- og hljóðsett af mikilli kostgæfni og ekkert til sparað. Það er lofsvert. Grunaður um græsku Under Suspicion ★★★ Spennumynd sem gengur upp þótt smáhikst verði í lokin. Laura San Giacomo er sæt og klár og það er gaman að sjá niðurnítt England í amerískri glæpamynd. Varnarlaus Defenseless ★★★ Ágætur þriller, þótt áhorfandinn sé stundum á undan söguþræðinum. Ógnareðli Basic Instinct ★★ Lostæti Delicatessen ★★★★ Hugguleg mynd um mannát. Queen's Logic ★★ Þetta er lík- lega þúsundasta myndin sem fjall- ar um endurfundi vinahóps. Eins og aðrar slíkar býður hún upp á nokkrar vel dregnar persónur en einnig nokkrar miður lukkaðar. Ofursveitin Universal Soldier ★★ Mynd um karlmenni, fyrir stráka sem kannski pína kærusturnar með. Schwarzenegger gerir þetta allt miklu betur. Börn náttúrunnar ★★★ Róm- aðasta íslenska bíómyndin. Á hálum ís The Cutting Edge ★★ Ástir og afrek íshokkímanns og skautalistdanskonu. Dálítið sérhæft og ekki vantar klisjurnar. Ferðin til Vesturheims Far and Away ★★★ Rómantísk stórmynd, ákaflega gamaldags en oft stór- skemmtileg. Nicole Kidman stelur senunni frá bónda sínum, Tom Cruise, sem á í erfiðleikum með írskan framburð. Það er ekki oft að Hollywood gerir svona myndir nú- orðið. Beethoven ★★

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.