Pressan - 24.09.1992, Blaðsíða 29

Pressan - 24.09.1992, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 24.SEPTEMBER 1992 29 LESENDUR Um banka- reikninginn í tslandsbanka J PRESSUNNI þann 17. september er haft eftir Birni Eysteinssyni að ég fari „frjálslega og liðugt með staðreyndir“. Vegna þessa vil ég segja eftirfarandi: I svari bankaeftirlitsins „varðandi starfshætti fslandsbanka hf.“ kemur fram að „viðskiptabanka eða sparisjóði er al- mennt óheimilt að bakfæra af reikningi án samþykkis reikningseiganda." Birni væri hollt að líta sér nær, því bankaútibú hans hefur farið frjálslega með inneign á reikningi viðskiptamanns. Yfirstjóm fslandsbanka ætti einnig að skammast sín fyrir að leggja blessun sína yfir verknaðinn með þögninni og þeirri hrokafullu ákvörðun að endurgreiða við- skiptamanninum ekki þann pening sem tekinn var af reikningi hans. Til að bíta höfuðið af skömminni var bankinn þó óformlega reiðubúinn til að útvega peningana eftir öðrum leiðum, ef þetta tiltekna dæmi yrði ekki gert að blaðamáli. Þessu tilboði um greiðslu fyrir þögn var að sjálfsögðu hafnað, en eftir sit- ur spumingin um siðferði þess sem til- boðið gerir.“ Vilhjálmur Ingi Amason, formaður Neytendafélags Akureyrar og nágrennis. Bjarni ekki formaður í viðtali við Bjarna Ákason í síðustu PRESSU var sagt að hann væri formaður handknattleiksdeildar Vals. Það er ekki rétt, Bjami er fyrrverandi formaður en núverandi formaður heitir Lúðvík Sveins- son. Bjami og Lúðvík em beðnir velvirð- ingar á mistökunum. Þá brenglaðist setning höfð eftir Bjama f vinnslu viðtalsins. Rétt er setningin: „Það var alltaf sex mánaða sperra en síð- an kemur upp sú staða að félög vilja að fara að kaupa leikmenn og láta þá bara vera í sperru í sex mánuði, en þá hefðu þeir verið lausir í úrslitakeppnina og get- að leikið í henni með nýju félagi." Jóna Ingibjörg hœtt Frá og með þessu blaði leggjast af pist- lar Jónu Inibjargar Jónsdóttur kynlífs- fræðings af í PRESSUNNI. Jóna Ingibjörg hefur ritað pistla sína fyrir blaðið frá stof- nun þess eða rétt rúm fjögur ár. PRES- SAN þakkar Jónu samstarfið. Ritstj. Kanaríeyjaferðir viðbótarsæti á tilboðsverði Air Europa Frábær þjónusta í beinu leiguflugi til Kanarí. Eftir Ijúffenga máltíð verður boðinn tollfrjáls varningur til sölu og sýnd kvikmynd til að stytta farþegum stundir Brottfor: Bjóðum nú 100 viðbótarsæti á tilboðsverði Air Europa til Kanaríeyja Með tímamótasamstarfi stærsta leiguflugfélags Spánar — Air Europa og Heimsferða, býðst ný íslendingum hagstæðari Kanaríeyjaferðir en nokkru sinni fyrr. Air Europa flýgur nú í fyrsta sinn til íslands og býður því farþegum Heimsferða sæti á sérstöku kynningarverði. Bókaðu strax og tryggðu þér þessi einstöku kjör! 17. desember — aðeins 42 sæti laus. 7. janúar — fá sæti laus 28. janúar— laus sæti. 18. febrúar. 11. mars. 7. janúar — 3 vikur Jólaferð 17. des. — 3 vikur Verð frá aðeins 39.700 m. v. hjón með tvö börn, 2-11 ára. Verð kr59.900 pr. mann miðað við tvo í smáhýsi Þökkum frábærar viðtökur. Verð frá kr. Hjón með tvö börn. Verð kr. 74.900 pr. mann pr. mann m. v. tvo í íbúð Yfir 200 sæti seldust upp á þremur dögum. Glæsilegir nýir gististaðir: Vista Dorada / Sonnenland - Smáhýsi í Maspalomas Duna Beach / Duna Golf - Glaesileg smáhýsi hjá golfvellinum í Maspalomas Liberty Sol - í miðbæ Playa del Inglés Corona Roja - Við ströndina á Playa del Inglés HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 TURAUIA Það er sama hvert farartækið er - aðgæslu þarf ávallt að sýna! Ú UMFERÐAR RÁÐ

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.