Pressan - 24.09.1992, Blaðsíða 34
34
FIMMTUDAGUR PRESSAN 24. SEPTEMBER 1992
POPP
FIMMTUDAGUR
• Silfurtónar hinir sí-
brosandi eru nú að gefa
út fyrsta geisladisk sinn,
Imeð afar fagurri Ijós-
mynd traman á. Skýin eru hlý heitir
þessi fyrsta afurð félaganna sem töfr-
uðu sig inn í hjörtu ungmennanna
fyrr í sumar með laginu Töfrum. Þeir
verða á Púlsinum í kvöld.
• Bleeding Volcano var stofnuð
upp úr tónlistarlegum ágreiningi
meðlima hljómsveitarinnar Boney-
ard. Hún hefur nú komið sér saman
um geislaplötu, Damcrack, og í tilefni
þess verða útgáfutónleikar á Tveimur
vinum. Þungt rokk er sérgrein þeirra
en hljóðfæraskipan ekkert óvenjuleg;
trommur, bassi gítar og söngur eru í
höndum þeirra Vilhjálms G. Friðriks-
sonar Brekkan, Guðmundar Þ. Sig-
urðssonar, Sigurðar Kristinssonar og
Halls Ingólfssonar.
• Síðan skein sól með Helga
sviðsfyrirmynd leikur á Gauknum í
kvöld. Væntanlega verður fullt út úr
dyrum því Helgi þykir hinn mesti töf-
fari.
• Viðar Jónsson og Þórir Úlfars-
son halda uppi kántrífjöri í Borgar-
virkinu með lúðrablæstri og söng.
Reyndar leika þeir aðeins á gítar og
syngja. Á efri hæðinni er athvarf fyrir
þá sem heyra of vel.
• Dansað fram á rauða nótt á
Hótel Borg í kvöld, enda lokakvöldið
á Borginni þar sem dansað hefur ver-
ið allar götur síðan 1930. Eins og allir
vita er Tommi Hard Rock búinn að
kaupa staðinn og það stendur síður
en svo til að stiginn verði trylltur
dans á Borginni á næstunni því verið
er að legqja parket og gera allt voða
fínt. í tilefni þessa ætla rekstraraðilar
Borgarinnar að halda veislu þar sem
sem allt verður fljótandi í veigum. Og
það á að dansa fram á rauða nótt.
• Hljómar halda áfram að rifja upp
gamla tíð og tíma en ef þú þarft að
finna miq þá hef ég þennan síma...
Á Hótel íslandi.
• Viðari og Þóri hlýtur að koma
vel saman. Þeir spila sveitatónlist í
Borgarvirkinu.
• Guðmundur Rúnar fúnar á Fóg-
etanum.
• Líf og sál Ijúfu strákarnir verða
afturá Gauknum.
• Guðmundur Rúnar verður á
Fógetanum, eða hinn heimsfrægi
Guðmund ur Múnar á sama stað.
MM.w+mm.wMmm.m
• Siggi Björns trúbador hefur
ekki verið á skerinu síðan um mitt
sumar. Hann hefur svosem ekki misst
af miklu. Og maður skilur hreinlega
ekki af hverju hann er kominn heim.
Það var víst ægilega gaman hjá
Sigga því hann spilaði mikið í Noregi
og Kaupmannahöfn. Nú ætlar hann
að spila á Café Amsterdam og hver
veit nema erlendur andblær leiki þar
um.
• Bogomil Font og Milljóna-
mæringarnir eru komnir á kreik og
nú með sýnishorn úr nýrri 45 mín-
útna langri mynd sem tekin var upp
meðal annars á Púlsinum fyrir
nokkru. Heyrst hefur að þeir hafi
þegar selt sýningarrétt að myndinni
út fyrir landsteinana. í myndinni
koma meðal annars fram „beibsin"
sem þeir óskuðu svo mjög eftir í
myndina. Þeir eru enn og aftur á
Púlsinum.
• Hljómar og öll Bláu augun eru
nú loks komin saman og það með
Shady Owens og Engilbert Jensen
innanborðs, sem margir héldu að
myndi aldrei lánast. Aðrir meðlimir
eru þeir Gunnar Þórðarson, Rúnar
Júlíusson og Erlingur Björnsson og
ætlar sveitin að vera með show undir
leikstjórn Valgeirs Skagfjörð. Kom-
bakk og nostalgía í fyrirrúmi en gæti
þó verið hreint ágæt skemmtun á
Hótel íslandi.
• Jethro Tull verða á Akranesi.
Óþarft að hafa fleiri orð um það.
• Líf og sál hefur ekki spilað lengi,
að minnsta kosti ekki á Gauknum.
Þeir leika blandaða tónlist og geta
meira að segja verið ansi Ijúfir.
• Svartur pipar hefur gert það ágætt
upp á síðkastið enda hafa þeir spilað
mikið í Hafnarfirðinum. Þykir stíll
sveitarinnar skemmtilegur með
lúðrablæstri og fjölröddun sem þau
ætla nú að hafa í heiðri á Tveimur
vinum. Sem fýrr skipa hljómsveitina
Ari Einarsson, Ari Daníelsson, Jón B.
Loftsson, Hafsteinn Valgarðsson og
síðast en ekki síst þau Margrét Eir og
Gylfi Már sem sjá um sönginn.
• Viðar og Þórir með kúrekarokk í
Borgarvirkinu.
• Hermann Ingi trúbador á Feita
dvergnum við Höfðabakkabrúna.
Það mun vera feikimikið stuð þar.
• Guðmundur Rúnar múnar á
Fógetanum. Hann spilar víst einnig á
gítar, strákurinn.
• Fánar; Bergsteinn Björgúlfsson
söngtrommari, Þórður Högnason
söngbassi og Magnús Einarsson bara
gítaristi, halda útgáfutónleika h
Hressó í kvöld.
• Tveir Logar, þeir Hermann Ingi
og Guðlaugur frá Eyjum, leika á
Rauða Ijóninu.
LAUGARDAGUR
• Siggi Björns leikur loks fyrir ís-
lendinga, og nú á Café Amsterdam.
• Bogomil Font og Milljóna-
mæringarnir aftur á Púlsinum og
væntanlega enn með nýju myndina í
fórum sínum og fjölmörg tilboð í
vasanum.
• Black Sabbath eru ekki öfunds-
verðir af að spila á eftir Jethro Tull.
Það er að segja ef sama fólkið ætlar á
hvora tveggju tónleikana.
• Hermann Ingi spilar á gítar á
Feita dvergnum.
• Ham heldur einnig útgáfutónleika
á Hressó. Þeir verða væntanlega í
miklum ham í kvöld, enda ekki á
hverjum degi sem þeir halda útgáfu-
tónleika.
SUNNUDAGUR
• Siggi Björns trúbador með er-
lendan andblæ á Café Amsterdam.
• ViBar og Þórir í Borgarvirkinu.
• Haraldur Reynisson trúbador
ásamt leynigestinum Grétu úr
Dúkkulísunum. Hún er að koma í
fyrsta sinn fram sem trúbador.
• Tveir Logar eru tveir fyrrum Log-
ar. Þeirverða á Rauða Ijóninu.
• Sniglabandið rokkar á Gaukn-
um.
ÞRIÐJUDAGUR
• Dan Cassidy djassar á skemmti-
staðnum Berlín næstu þriðjudags-
kvöld.
BARIR
| • Þeir Valur og Lúffi
jopnuðu um síðustu
jhelgi barinn Barrokk
I þar sem Pétursklaustur
ður og þar á undan einhver
chilesk restorasjón. Að manni
skilst er vel smurt á verðið á
staðnum til að halda ótíndum
almúganum úti en höfða þess í
stað til betri borgara bæjarins.
Hvort það hefur tekist skal
ósagt látið, að minnsta kosti
varð drykkjumaður PRESSUNN-
AR ekki neitt sérstaklega var
við að þar sæti reykvískur aðall
öðrum fremur. Það kann ef til
vill að hafa sett strik í reikning-
inn að í miðri opnuninni fór
vatn að buna niður úr loftinu,
en fram að þessu hafa innan-
hússgosbrunnar einkum þótt
glæsilegir ef þeir eru á gólfinu,
en síður ef þeir eru í loftinu. Það
jók að vísu nokkuð á gildi gos-
brunnsins að fyrir neðan stóð
flygillinn, sem Hjörtur Howser
settist seinna við til þess að
leika undir hjá Richie Scobie.
Þrátt fyrir þetta tókst nú að
opna staðinn með pomp og
prakt og ekki síst vöktu athygli
stórskemmtilegar myndir og
skreytingar Cheo Cruz á veggj-
unum. Stemmningin á barnum
var annars ágæt, í rólegra lagi
en hæfilega gáskafull. Það verð-
ur þó ekki síst að telja staðnum
til tekna að Hjaltí Úrsus Árna-
son sinnti dyragæslu og spjall-
aði við gesti þess á milli. Gest-
irnir voru flestir komir á fer-
tugsaldur og sumir hverjir farn-
ir að reskjast allnokkru betur.
Þrátt fyrir það vantaði engan
veginn fulltrúa ungu kynslóðar-
innar, sem áttu það sameigin-
legt með eldri gestum að vera
nær undantekningarlaust fínir í
tauinu. Barrokk er að mörgu
leyti sérstakur staður og góðra
(og hárra) gjalda verður. Hins
vegar verður að segjast alveg
eins og er að hann er engan
veginn neitt sérstakt athvarf
fjáðari foringja og ef undan er
skilin hin dásamlega koníak-
stofa á Hótel Holti hafa þeir
hvergi höfði að halla enn um
sinn.
JETHRO TULLOC
BLACK SABBATH
Mennbúastvið ölluá
tónleikunum með Jethro
Tull og Black Sabbath
um hetgina. Aðallega er
þó búistvið að þeir verði
**■ „hard and heavy".
Siggi Sveins á
Aðalstöðinni
Siggi Sveins handboltakappi er
þekktur fyrir flest annað en að
sitja við hljóðnema í útvarpi, —
nema ef vera skyldi til að tala um
leiksigra sína. Um síðustu helgi
brá hins vegar svo við að hlust-
endur Aðalstöðvarinnar gátu í
fyrsta sinni fylgst með honum í
beinni útsendingu þar sem hann
sjálfur, ásamt Sigmari Guð-
mundssyni, talaði frá sér vit og
rænu um íþróttir og aftur íþróttir.
„Þetta er og mun verða blanda af
tónlist og íþróttum," segir Sigurð-
ur. „Ég vona að hún eigi eftir að
falla í góðan jarðveg." Þættirnir
koma til með að byggjast á fjöl-
breytni, viðtölum, staðreyndum
og skemmtiefni. Þeir eiga að vera
opnir og léttir en reynt verður að
fá sem flesta gesti í hljóðstofu.
Ekki verða hitamál látin kyrr
liggja og Sigurður ætlar sér að
fylgjast vel með á þeim vettvangi,
bæði hérlendis og erlendis. Rifjað-
ir verða upp íþróttaviðburðir vik-
unnar og helstu úrslit, en ýtt verð-
ur úr vör með fréttum af hand-
bolta.
ASKACANUM
Um heigina verða haldnir uppi
á Skaga tónleikar með Jethro Tull
og Black Sabbath. Margir hafa
beðið eftir þeim með óþreyju og
einn þeirra er Skúli Gauta, sem
flestir vita að er meðlimur Snigla-
bandsins og þjónn leiklistarinnar.
Færri vita að hann er forfallinn
aðdáandi Jethro Tull og hefur alla
tíð verið síðan hann var pottorm-
ur. Skúli var einn af þeim sem
skrifuðu nafn hljómsveitarinnar
stórum stöfum á gömlu, gráu
strigatöskuna sína og lenti í
rimmum við þá skólafélaga sína
sem voru á öðru máli. Það komst
engin önnur hljómsveit að hjá
drengnum. „Það frábæra við Jet-
hro Tull er það að þeir hafa verið
sjálfum sér samkvæmir alla tíð og
gert hlutina á eigin forsendum,“
segir Skúli. „Þeir hafa verið lausir
við að elta tískusveiflur, þótt þeir
hafl haft yfír sér ákveðinn blæ
hvers tíma. Þetta eru líka ffábærir
tónlistarmenn og tónlist þeirra
einkennist af skemmtilegum
kaflaskiptingum, sem eru ffemur í
ætt við tónsmíðar en að þær til-
heyri dægurlagastílnum. Það er
líka stutt í það leiiaæna hjá þeim.“
— Skúli var sammála því að Jet-
hro Tull væri orðin roskin hljóm-
sveit en sagði það ekki há þeim á
nokkum hátt. „Þeir eru með þessa
rokkveiru í blóðinu og það sem ég
hef séð af þeim af myndböndum
lofar góðu. Ég er mjög spenntur
og hJalrka rosalega til.“
Jóhann Richards er og hefur
verið á kafi í Black Sabbath og ætl-
ar sér að sjálfsögðu á tónleikana.
„Þeir hafa verið spámenn í tutt-
ugu ár,“ segir Jóhann. „Þeir fjöll-
uðu um meira en „love“ og allt
það. Þeir fjölluðu um lífið.“ Hann
segir að fyrir sér séu þeir fyrsta
„heavy metal“-grúppan og hann
hlustar enn á gömlu plöturnar.
„Þeir döluðu svolítið þegar Ossy
fór og auðvitað saknar maður
þess að fá ekki að sjá hann, en þeir
gerðu mjög skemmtilegt kom-
bakk með nýjum mönnum og ég
býst við að tónleikarnir verði
„hard and heavy“.“
Athygli vekur
nafngift þáttanna, en
þeir hafa hlotið það
undarlega nafn „Ster-
ar og stærilæti“,
hljómar vel... en
þýðir hvað? „Það vita
allir hvað sterar eru
og stærilæti þýðir
mont — og hitt og
þetta,“ segir Sigurður.
„Þetta passaði vel
saman og gefur til
kynna að pláss verður
í þættinum fyrir allt
milli himins og jarð-
ar.“ Ekki væri furða
þótt hlustendur yrðu
varir við einhvern
taugatitring hjá hin-
um nýja útvarps-
manni, sem ætlar sér
að hafa gaman af
þessu nýja hlutverki í
lífinu.
Siggi Sveins er í loftinu á Aðal-
stöðinni hvern sunnudag með
heitustu fréttirnar úr íþrótta-
heiminum, úrslit, viðtöl og að
sjálfsögðu tónlist.
RypmíSkUp s>attup
Ivgenia Gold, rússneskur dansari, ætlar að kenna byrjendum og
lengra komnum stepp næstu vikurnar í Listdansskóla íslands. Ivgenia
útskrifaðist sem klassískur dansari en hafði sem sérgrein karakterdansa,
sem er listræn útfærsla áþjóðdönsum. Hún ferðaðist um öll Sovétríkin,
sem þá voru og hétu, en alls hefur hún dansað í um 40 löndum. Auk
hefðbundna ballettnámsins lagði Ivgenia stund á nútímadans, djass og
stepp og ætlar nú að miðla íslenskum dansunnendum á öllum stigum af
reynslu sinni og þekkingu.
GuUöld steppsins var á fyrstu áratugum tuttug-
ustu aldarinnar og blómstraði á
miUistríðsárunum, en dansinn
hefur farið upp og niður í vin-
sældum. Þetta er dans þar sem
hæU og tá eru notuð til að mynda
ryþmískan slátt í gólfið og oftast
notaðar stálplötur til að ná ffam
auknum áhrifum. Stepp af ýmsu
tagi er algengt í ffumstæðum
dönsum og þjóðdönsum og lík-
legt að rætur steppsins megi
rekja til írskra þjóðdansa sem
bárust með innflytjendum tU Amer-
íku. BlökkufóUc bar hins vegar af hvað
danshæfileika snerti og sló til dæmis í gegn á
Cotton Club- skemmtistaðnum. Dans- og
söngvamyndir urðu vinsælar og upp á stjörnuhim-
ininn skaut leUcurum á borð við Ginger Rogers og
Fred Astair. Eftir að ffamleiðslu slflcra mynda
var hætt dvínaði áhuginn á steppi og þótti það
lengi vel hreinlega haUærislegt. Upp úr 1970
fór áhugi svo að aukast á ný og hefur stepp
æ síðan notið vaxandi vinsælda.
Ivgenia Gold ætlar að kenna stepp-
dans í Listdansskólanum.
KENNIR FÖLSK-
UM AÐ SYNCJA
Ester Helga Guðmundsdóttir
heitir söngkennarinn hjá Söng-
smiðjunni, sem auglýsir nám-
skeið fýrir þá sem hreint og'
beint eru falskir. Er virkilega
hægt að kenna fölskum að
syngja?
„I flestum tilfellum er þetta
fólk sem telur sig vera falskt,
falskt kannski af þeim ástæðum
að því hefur einhvem tíma verið
sagt að það geti ekki sungið.
Þess vegna hefur það aldrei
sungið! Flestir geta lært að
syngja með örlítUli
hjálp. í fyrra sóttu
átján nemendur tíl
mín byrjenda-
námskeið. öll
sögðust þau vera
fölsk. Mér hraus
hálfþartinn hugur
við því að fara að
reyna að kenna
átján fölskum
nemendum að
syngja. Annað
kom hins vegar á
daginn, því um
leiðogþaufóraað
njóta sín og opn-
ast voru aðeins
tvö eða þrjú þeirra
sem ekki gátu
sungið,“ segir Est-
er, sem heldur
hópnámskeið fýrir Ester heldur hópnámskeið fyrir þá „fölsku".
þá „fölsku“ þar sem sungin eru
lög í léttum dúr.
Ester heldur einnig einstak-
lingsnámskeið. Ólíkt annarri
söngkennslu fléttar hún inn
spuna- og leiklistarkennslu.
„Það sem ég legg áherslu á er
ekki bara röddin sjálf, heldur
einnig túlkun.“
Sjálf er Ester menntuð í
Bandaríkjunum, nánar tiltekið í
Bloomington í Indiana. Undir-
leikari með Ester er Guðbjörg
Sigurjónsdóttir.